Leikhúsmál - 01.06.1997, Qupperneq 6
LEIKHUSMAL
Hvað er á döfinni?
Þessa dagana fara fram tökur á kvikmyndinni Perlur og
svín eftir Oskar Jónasson. Hér má sjá Jóhann Sigurðarson
í hlutverki sínu.
Atribi úr sömu mynd: Ingvar Sigurbsson sést hér í forgrunn-
inumf en hann leikur rússneska sjóarann Viktor.
Ríkissjónvarpið
Ríkissjónvarpið hefur ákveðið að
vera með svokallað Sunnudagsleik-
hús næsta vetur. Á sunnudagskvöld-
um gefst þá landsmönnum kostur á
að sjá leikið íslenskt efni, bæði gam-
alt og nýtt. Þá voru ráðnir fimm
höfundar til að skrifa þrjá 20 mín-
útna leikþætti. Skilyrðin sem þætt-
irnir áttu að uppfylla voru að þeir
væru í léttum dúr og að hver þáttur
segði sögu sem gerist í samtíman-
um. Þá gátu höfundar valið um þrjú
rými þar sem sagan myndi gerast og
þar af var eitt rýmið kaffihús eða
bar. Fyrir hvern þátt mátti höfundur
skrifa verk fyrir fjóra leikara auk
eins leikara sem færi með hlutverk
barþjónsins. f samráði við höfunda
voru síðan valdir fimm leikstjórar
og fór svo að Ágúst Guðmundsson
leikstýrir leikþáttum Karls Ágústs
Úlfssonar, Baltasar Kormákur þátt-
um Þorvalds Þorsteinssonar, Þor-
steinn Jónsson þáttum Guðrúnar
Helgadóttur, Óskar Jónasson þátt-
um Hlínar Agnarsdóttur og Gísli
Snær Erlingsson þáttum Friðriks
Erlingssonar. Það verður byrjað á að
senda þessa þætti út í haust en tökur
fara fram nú í maí og júní.
Þá hefur Ríkissjónvarpið gert
samning við Leikiistarskóla fslands
um að framleiða 45-60 mínútna
sjónvarpsleikrit. Nemendur skólans
munu þá fara með hlutverkin og
verður verkinu sjónvarpað á næsta
vetri.
Að lokum má geta þess að Ríkissjónvarp-
ið var með beina útsendingu úr Þjóðleik-
húsinu þann 11. apríl síðastliðinn. Þetta var
síðasta sýningin á Þrek og tár effir Ólaf
Hauk Símonarson. Ritnefndin hafði sam-
band við Stefán Baldursson þjóðleikhús-
stjóra og Sigurð Valgarðsson dagsskrárstjóra
Ríkissjónvarpsins og létu þeir báðir vel af
þessu framtaki. Þá fannst Stefáni vel til
fundið að velja einmitt þetta verk þar sem
erfitt er að ferðast með þessa sýningu um
landið. En þessi sýning hefur notið mikilla
vinsælda og það eru margir úti á lands-
byggðinni sem ekki hafa átt kost á því að sjá
hana. Sigurður sagði að vel gæti farið svo að
þessi leikur yrði endurtekinn seinna með
einhverja aðra sýningu.
Stöð-2
Þegar blaðið fór í prentun var Stöð-2 ekki
búin að taka neinar ákvarðanir varðandi
næsta vetur. En vonir stóðu þó til að haldið
yrði áfram með Fornbókabúðina sem verið
er að sýna um þessar mundir. Þá hafa þeir
Benedikt Erlingsson, Hilmir Snær Guðna-
son og Tvíhöfðinn verið að vinna að gam-
anþáttum sem Stöð-2 vonast til að sýna
næsta haust. Um er að ræða átta sjálfstæða
gamanþætti sem byggðir eru á stuttum
atriðum.
Kvikmyndaheimurinn
Nokkrar myndir eiga að fara í tökur í sum-
ar. Sporlaust sem er spennumynd um ungt
fólk í Reykjavík samtímans. Handritið
samdi Sveinbjörn I. Baldvinsson
en Hilmar Oddson leikstýrir
myndinni. Stikkfrí sem er barna-
mynd um unga stúlku sem leitar
föður síns í Reykjavík. Handrit
og leikstjórn er eftir Ara Krist-
insson. Vildspor er dönsk mynd
sem Simon Staho leikstýrir.
Kvikmyndasamsteypan er með-
framleiðandi að myndinni.
I haust mun Ágúst Guðmunds-
son hefja tökur á mynd sinni
Dansinn ef nægt fjármagn fæst í
verkið.
Loftkastalinn
Með haustinu er stefnt að því að
frumsýna í Loftkastalanum söng-
leikinn Fame og leikverkið Beina
útsendingu eftir Þorvald Þor-
steinsson. Þær sýningar sem þeg-
ar eru í gangi í Loftkastalanum,
þ.e. Áfram Latibœr og Á sama
tíma að ári, verða sýndar áfram
eitthvað fram á sumar og jafnvel
lengur. Þá hafa ýmsir hópar sýnt
því áhuga að leigja húsnæðið í
sumar en enn hefur elckert verið
ákveðið í þeim efnum.
Skemmtihúsið
Ormstunga fer á listahátíð í
Noregi í júní og á meðan verður
gert hlé á sýningum í Skemmti-
húsinu. Þar verður þó ýmislegt á
döfinni í sumar. Stefnt er að því
að taka upp sýningar á verkinu
Or Something, You Know nú í júní
en verkið var áður ffumsýnt í ágúst síðast-
liðnum. Vala Þórsdóttir samdi verkið og fer
jafnframt með eina hlutverkið í sýningunni.
Verkið verður flutt á þremur tungumálum:
dönsku, ítölsku og ensku. Þá mun Brynja
Benediktsdóttir frumsýna barnaleikritið
Skottuleikur og verður jafnvel farið með þá
sýningu út á land.
Light Nights
Light Nights verður með sýningar í Tjarnar-
bíói eins og undanfarin ár. í sýningunni má
sjá forynjur, drauga og huldar vættir. Enn
fremur eru leikþættir með efni úr Islend-
ingasögum og þáttur úr Völuspá. Sýningar
heljast þann 10. júlí og er leikið á ensku.
6