Leikhúsmál - 01.06.1997, Side 7
LEIKHÚSMÁL
Horft til framtíðar
Málþing Leikfélags Reykjavíkur
í Borgarleikhúsinu
„Það er engin framtíð í starfinu. Fram-
tíðin liggur í manninum sem gegnir
starfinu.“ Svo mælti einhver fróður mað-
ur og mætti segja að hugsunin sem fylgir
þessum frómu orðum hafi hrint af stað
hugmyndinni um málþing sem haldið
var 20. janúar síðastliðinn á vegum Leik-
félags Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu.
Hvað vildu starfsmenn segja um fram-
vindu mála í LR og hvaða hugmyndir
höfðu þeir til að bæta rekstur og starf-
semi leikhússins.
í september ’96 var haldinn spjall-
fundur í Borgarleikhúsinu þar sem
starfsmenn komu saman og ræddu hin
ýmsu mál og meðal annars bar á góma
hugmyndina um að halda málþing og
voru það Þórhildur Þorleifsdóttir og
Ásdís Skúladóttir sem settu hana fram.
Skipuð var nefnd til að fylgja þessari
hugmynd eftir. I þá nefnd völdust undir-
rituð, Theodór Júlíusson, Elfar Bjarna-
son, Hlín Agnarsdóttir og Ólafur Örn
Thoroddsen. Við tókum starf okkar mjög
svo alvarlega og voru þeir ófáir fundirnir
þar sem málin voru skeggrædd, drög að
þinginu mótuð og endurmótuð þar til
allir voru sáttir og leikhússtjóri sam-
þykkur. Málþingið sem bæri heitið
„Horft til framtíðar" færi fram þannig að
undir það yrði lagður heill vinnudagur.
Um morguninn færu fram pallborðsum-
ræður þar sem leikhússtjóri, formaður
LR, dramatúrg hússins og Hlín Agnars-
dóttir myndu halda sitt erindið hvert.
Síðan eftir hádegi yrði öllu starfsfólkinu
skipt niður í vinnuhópa sem myndu taka
fyrir hin ýmsu málefni leikhússins, ræða
þau ofan í kjölinn og koma síðan með til-
lögur og niðurstöður til endurbóta. Þetta
starf hæfist á því að svokallaðir hópstjór-
ar þessara vinnuhópa flyttu stutt erindi
sem gætu leitt inn í umræðuna. Að lok-
um yrðu síðan niðurstöður hópanna
kynntar og almennar umræður um þær
tækju við ef tími gæfist.
Galvösk, með fastmótaða áætlun í
vasanum, réðst nefndin til framkvæmda
og leit afraksturinn dagsins ljós þann 20.
janúar síðastliðinn. Málþingið tókst
með ágætum. Margt, mikið og merkilegt
var rætt og höfðu allir sitt að segja um
hin ýmsu mál leikhússins. Staða LR á
þessum merkilegu tímamótum, þ.e. 100
ára afmæli þess, var meðal annars til
umræðu og einnig hvernig bæri að leiða
Leikfélagið inn í jafn merkilega framtíð.
Það var mál manna að gott átak þyrfti til
að hefja LR upp úr sínum öldudal og að
ný kynslóð mætti fara að móta framtíð
þessa merka félags. Það var ekki fyrr en
undir kvöldmatarleytið að þinginu var
slitið og þreyttir en bjartsýnir málþings-
gestir tíndust til síns heima.
Nú tók málþingsnefnd að sér að safna
saman öllum þeint niðurstöðum sem
skiluðu sér eftir vinnu stafshópanna og
koma þeim áleiðis til málþingsgesta.
Voru þær niðurstöður um margt merki-
legar og margar góðar tillögur til úrbóta.
Var síðan kallað saman til framhalds-
fundar þann 17. febrúar síðastliðinn til
að ræða þessar niðurstöður og hvernig
mætti nýta þær leikhúsinu til framdrátt-
ar. Enn og aítur átti sér stað mjög góð
umræða og nú eru þessar niðurstöður í
höndum stjórnar LR og leikhússtjóra,
sem vonandi geta notað þær við sitt
starf, að leiða Leikfélag Reykjavíkur inn í
bjartari framtíð.
Þannig var þessi hugmynd um mál-
þing, LR til heilla, til lykta leidd og út-
skrifaði málþingsnefnd sjálfa sig með
sóma. Nú þarf bara að láta verkin tala og
vonandi markar þetta þing upphafið að
nýju, árangursríku og glæsilegu tímabili
hjá hinum síunga öldungi.
Fyrir hönd málþingsnefndar,
Jóhanna Jónas
Styrkir til atvinnu-
leikhópa frá
menntamálaráðu-
neytinu
Menntamálaráðuneytið úthlutaði nýlega
framlögum af fjárlagaliðnum „Starfsemi
atvinnuleikhópa“. Eftirtaldir hlutu styrki til
nýrra verkefna:
Islenska leikhúsið 1,2 millj. kr. til uppsetn-
ingar leikverks af verkefnalista leikhússins.
Frú Emilía 1,2 millj. kr. til uppsetningar
leikverks af verkefnalista leikhússins.
Tunglskinseyjan 1,2 millj. kr. til uppsetning-
ar óperunnar Tunglskinseyjunnar.
Gallerí Njála 750 þús. kr. til uppsetningar
leikritsins Gallerí Njála.
Leikhús kirkjunnar 750 þús. kr. til uppsetn-
ingar leikritsins Heilagir syndarar.
Furðuleikhúsið 400 þús. kr. til undirbúnings
uppsetningar á barnaleikritinu Ávaxta-
karfan.
Flugfélagið Loftur 1 millj. kr. viðbótarstyrk-
ur til uppsetningar leikritsins Bein útsend-
ing.
Augnablik 750 þús. kr. viðbótarstyrkur til
uppsetningar á leikverkinu Tristran og
ísold.
Hvunndagsleikhúsið 750 þús. kr. viðbótar-
styrkur til nýrrar sýningar á Trójudœtrum
og Jötninum.
Þá er Hafnaríjarðarleikhúsið Hermóður og
Háðvör á 2ja ára starfsstyrk og fær leik-
húsið 8 millj. kr. til starfseminnar á þessu
ári.
Alls bárust umsóknir frá 40 aðilum til rúm-
lega 70 verkefna. Til úthlutunar voru 16
milljónir króna.
Þá úthlutaði Listasjóður nú í fyrsta sinn
styrkjum til atvinnuleikhópa í formi starfs-
launa listamanna. 28 leikhópar sóttu um
styrki fyrir 86 leikhúslistamenn.
Eftirtaldir leikhópar hlutu styrki:
Islenska leikhúsið 18 mánuði.
Frú Emilía 18 mánuði.
Hafnarfjarðarleikhúsið 15 mánuði.
Möguleikhúsið 15 mánuði.
Augnablik 10 mánuði.
Hvunndagsleikhúsið 6 mánuði.
Fljúgandi fiskar 6 mánuði.
Gallerí Njála 6 mánuði.
Leikhús kirkjunnar 6 mánuði.
7