Leikhúsmál - 01.06.1997, Síða 16

Leikhúsmál - 01.06.1997, Síða 16
LEIKHÚSMÁL Hinn óforbetranlegi bjartsýnismadur, Birtingur sjálfur, leikinn af Gunnari Helgasyni. aði að vinna svona tvö ár hjá Þjóðleikhúsinu og kannski önnur tvö hjá LR og fara síðan í nám einhvers staðar ytra, þar sem hægt væri að kynnast starfsháttum og innviðum í stór- um leikhúsum. - Svo er náttúrlega ekki hægt að sjá fyrir hvernig maður lendir inn í hring- iðu atburðanna í atvinnumennskunni, hvert maður þeysist. Maður ræður ekki alltaf ferð- inni einn og sér, sérstaklega ekki þegar mað- ur hefur bundist börnunum og burunni. - Þú ert ekki innfæddur Gaflari? - Nei aðfluttur, alinn upp í Vesturbænum og KR-ingur. - Og langaði snemma að verða leikari? - Ég fór í gegnum þetta fyrir áhrif ffá gömlum vini og kollega, Stefáni Jónssyni. Ég var búinn að vera í Herranótt menntaskól- ans í fjögur ár þegar ég fór inn í Leiklistar- skólann. - Byrjaði hjá Þórhildi Þorleifsdótt- ur í Ó þetta er indœlt stríð. Það var lærdóms- ríkt. Ætli hún hafi ekki verið komin 8 eða 9 mánuði á leið þegar hún var að setja þetta upp með okkur. Þarna fékk ég þann besta skóla í aga sem ég hef nokkurn tíma haft. Hún kenndi okkur svo sannarlega hvað agi er mikilvægur. Þetta var alveg nýtt fyrir flestu þessu unga fólki. En eftir þetta hefur aldrei farið á milli mála hjá mér hvað hvert handtak er mikilvægt við uppsetningu á leiksenu, að fólk haldi einbeitingu við það sem það er að gera. - Á genaralprufu sneri hún upp á sig, skellti saman möppunni og sagðist ekki taka þátt í svonalöguðu. Hvers vegna? Ja, ætli hún hafi ekki vitað að við gætum betur. Þessi lokahnykkur varð líka til þess að allir lögðu sig frarn, bættu sig, gerðu sitt allra besta. Fólk les myndmál hraðar en fyrr Síðan tók ég þátt í Prjónastofunni Sólinni, söngleiknum Oklahóma og Náðarskotinu með Herranótt, en einnig lék ég svo með Stúdentaleikhúsinu seinni árin í mennta- skóla, 1983-84 og 1985. Svo var ég í götu- leikhúsinu Svörtu og sykurlausu með Gíó. - Og langaði að leggja fyrir þig leikstjórn. Áttirðu þér fyrirmyndir þar, hérlendis, erlendis? - Nei, það held ég ekki, en þetta var sem- sagt alltaf með, í bakþankanum, að glíma við leikstjórn. Ég byrjaði að vinna í Þjóðleikhús- inu strax eftir útskrift úr Leiklistarskólan- um. Ég held að allt í þesum bransa kenni manni. Ég hef fengið tækifæri til þess að vinna með mörgum af okkar fremstu leik- stjórum, Þórhalli, Þórhildi, Gíó, til dæmis. Maður pikkar upp sitthvað hjá hverjum. Ég get ekki sagt að ég hafi beinlínist hrifist af neinum sem fyrirmynd, ekki heldur því sem maður hefur séð af erlendum uppsetning- um. Mér finnst raunar að maður sé miklu meira undir áhrifum frá kvikmyndum og sjónvarpi heldur en leikhúsi. - I myndmáli eru kvikmyndir og sjónvarp töluvert á und- an leikhúsinu. Leikhúsgestur nú er síðastlið- in tuttugu ár eða svo búinn að lesa myndmál (sjónvarp aðallega) 2-4 tíma á dag, mynd- mál sem þróast ár frá ári. Ég held að það sé eitthvað sem leikhúsið verður að taka nótis af. Hvað gerir gott kvikmyndahandrit, hvað gerir gott leikrit. Það er einfaldlega að sagan sé góð. En við lesum myndmál miklu hraðar en fyrr. Það er einatt á ferðinni sögn í skot- um og klippingu, sem fólk skilur, hvað segir þessi myndrammi, þetta klipp? - Við lesum fróðlega og ótrúlega öra þróun með því að skoða kvikmyndir til dæmis dæmi á tíu ára fresti frá 1917 til dagsins í dag. Leikhús verður vitaskuld aldrei kvik- mynd. Það er gjörsamlega allt annar miðill. En kvikmyndin getur innspírerað leikhúsið, rétt eins og leikhúsið kvikmyndina. Þegar við vorum að vinna hérna að þessum sýn- ingum töluðum við mikið um kvikmyndir, t.d. Woody Allen. Þvílíkur meistari í díalóg. Tökum til dæmis Husbands and wives\ Megnið af myndinni eru 3-4 að tala í einu og það truflar ekki. Það er farið út og suður en samt er alltaf meginstraumur í samskipt- unum, samtölunum, tjáskiptunum, sem skilar sér. Það er of mikil krafa uppi um það í leik- húsinu að allt verði að heyrast og sjást. Þetta er bara ekki rétt. - Það er stundum talað um „óvenju skýra framsögn" og slíkt mikið lofað. Auðvitað á skólinn, Leiklistarskólinn, 16

x

Leikhúsmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1744

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.