Leikhúsmál - 01.06.1997, Page 29

Leikhúsmál - 01.06.1997, Page 29
LEIKHÚSMÁL móti beindi henni inn á við. Hann lét lík- amann tala sjálfan, notaði klunnaleg form og innsnúna fætur. Orðaforði Nijinskys var óendanlegur, engir hringsnúningar í loftinu eða óbeinar tilvitnanir. Dansarinn lét ekki berast af óljósum innblæstri. Hann lét heim- inn finna fyrir tilveru sinni. Hann tókst ekki léttilega á við heiminn heldur réðst á hann af öllu afli. Nijinsky varð fyrir áfalli þegar systir hans, Broníslava Nijinska (Nízhinska), sem var sólóisti við Ballets russes, varð barnshaf- andi. Hún átti að dansa fórnardansinn í Vorblót- inu og skildi leyndustu þrár sköpunar hans og studdi hann við að raungera hugmyndir sínar. María Plitz var valin í staðinn, en hreyfing- arnar hentuðu henni illa og voru fjarlægar öllu því sem hún hafði áður dansað og hún skildi ekki ásetning hans. Miriam Ramberg sá Nijinsky sjálfan dansa fórnardansinn og gerði sér grein fyrir að dans Maríu Plitz var ekki annað en beina- grind af þeirri upplifun. Með frumsýningu á Vorblótinu 1913 átti sér stað meiri háttar við- burður í sögu tónlistar og listdans, sem var langt á undan sinni samtíð. Um leið og tón- listin hljómaði varð því- líkt uppþot að dansar- arnir gátu ekki greint hana. 1 hliðartjöldunum stóð Nijinsky, taldi og stappaði taktinn með fótunum svo að dansar- arnir hefðu möguleika á að dansa verkið. Stravinsky ríghélt í jakkalöf hans svo að hann æddi ekki inn á sviðið. Díaghílev reis upp í stúku sinni og reyndi að fá kyrrð í sal- inn, en áhorfendur fóru í hár saman og háðu jafnvel einvígi vegna uppþotsins. 1 lok 20. aldarinnar finnast okkur þessi viðbrögð næsta brosleg. En gerum við okkur grein fyrir hvernig tónlist Stravinskys, sem hefúr þvílíkan kraft, hrærir upp í tilfinningum mannanna, særir og trufiar, hefur hljómað í eyrum manna 1913? Seinna þetta ár fór Ballets russes í sýning- arferðalag til Suður-Ameríku. Díaghílev var ekki með í þeirri ferð sem varð örlagarík fyrir framþróun listdansins. I Suður-Amer- íku giffist Nijinsky ungri konu, Romolu De Pulsky, en hún var einn af dönsurum flokksins. Þegar Díaghílev frétti um gifting- una rak hann Nijinsky umsvifalaust frá flokknum. Hvað kom Díaghílev til að grípa til þessara örþrifaráða? Eflaust voru margar ástæður fýrir því. Hann hafði tekið Nijinsky að sér sem ómótað barn, elskað hann og dáð. Hann þekkti hina ótrúlegu hæfileika hans og veikleika. Hann hafði mótað huga þessa undrabarns og gert hann að byltingar- manni í danssköpun, langt á undan sinni samtíð. Romola de Pulsky var mjög viljasterk kona af forréttindastétt og Díaghílev gerði sér grein fyrir að eftir þetta mundi hann aldrei ná þeim tökum á lífi Nijinskys sem voru forsendan fyrir verkum eins og Skógar- púkanum og Vorblóti. Jafnframt þekkti Díag- hílev líka til þeirrar geðveilu sem blundaði í fari þessa snillings, sem síðar ágerðist svo að hann varð vitskertur og komst aldrei til heilsu á ný. f Moskvu hafði Díaghílev fengið til liðs við Ballets russes ungan dansara, Leoníd Massín, og undir leiðsögn Cecchettys leið ekki á löngu uns hann dansaði stórhlutverk, en það var í ballettinum Sögu Jósefs. Upphaflega hafði hann ætlað Nijinsky að semja þetta verk, en að lokum fékk hann Fokín til að gera það. Árið 1914 urðu miklar breytingar, heimsstyrjöld- in skall á og virtust litlir möguleikar á að hægt væri að halda áffam starfi Ball- ets russes. Flestir dansar- arnir vour komnir til Rússlands og Mír ískús- stva-{Listaheims-)w\mxnu sundraðir. Parísaróperan var lokuð og ferðalög von- laus. Díaghílev var í örvæntingaraðstöðu fjár- hagslega, en þrátt fyrir stríð varð að halda ballett- starfseminni áfram. 1916 til 1917 tókst Díaghílev að ferðast með flokkinn til Ameríku. Flokkurinn dvaldi um hríð á Spáni og í Porúgal við mikla erfið- leika. En þar og á Ítalíu komu ffam nýjar hug- myndir með suðrænni sól. Á þessum árum varð Massín Díaghílev mikill styrkur sem danshöfund- ur. Skólar hans voru lista- söfn Evrópu og prófessor- ar voru Bakst, Picasso, Stravinsky, Larionov og sjálfur Díaghílev. Samdi Massín sinn fyrsta ballett 1915, Soleil de nuit (Mið- nœtursólin), við tónlist Rimskíj-Korsakovs og leiktjöld og búningar eftir Larionov. Heimsstyrjöld og byltingar orsökuðu nýja strauma. Tíska Bakst var orðin svo ráðandi og alger að það var nauðsyn og sjálfsvörn að leita nýrra leiða í leikmyndagerð. Nýir lista- menn komu til liðs við Ballets russes. Massín, Larionov, Gontsjarova, Picasso og Cocteau. Dansararnir Odzíkovskí, Vojsíkov- skí, Vera Nemsínova, Olga Spessívtseva og Lydia Sokolova. Með Cecchetty sem ballett- meistara um borð var þetta glæsifley. Sem lærifaðir listþróunar sýndi Díaghílev fram á mikilvægi sígilds listdans i þróun nútíma danslistar. Hann gerði mikinn greinarmun á sígildri þjálfun og sígildum tjáningarleiðum. Sjö dansarar. Blýantsteikning eftir Picasso (1919). Olga kona hans er fremst á myndinni. 29

x

Leikhúsmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1744

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.