Leikhúsmál - 01.06.1997, Qupperneq 30

Leikhúsmál - 01.06.1997, Qupperneq 30
LEIKHÚSMÁL „Sígild list verður aldrei takmark heldur leið að takmarki.“ Hann sýndi klassísk verk og nútímaverk hlið við hlið, til lærdóms og þróunar íyrir áhorfendur. Hann trúði ekki á að mata áhorfendur á því sem auðmeltast var. Svo slyngur lærifaðir var hann að hon- um tókst að fá áhorfendur til að vilja sjá það sem honum var huglægast þá stundina. List- dansinn var hljóðfæri sem hann lék á og sú leið sem Ballets russes fór var hans eigin leið til listræns þroska. Hann gerði sér grein fyrir að stöðug leit að nýjum leiðum til tjáningar og sköpunar var nauðsynleg því stöðnun gat af sér hnignun og endalok. Árin ffamundan voru tilraunaskeið í listastarfi, í stöðugri leit að nýrri slóðum. Það voru stórar stundir og erfiðar þegar illa tókst til, en jafnvel mistök voru nauðsynleg til að vinna enn stærri sigra. Ef listdans ætti að hafa eitthvert samband við daglegt líf - eða tengsl við fólk almennt - var tilgangslaust að endur- taka ballettsköpun á borð við Les Sylphides, Le Spectre de la rose og Sjerasade. Þessi verk voru klassísk fegurðar- upplifún vegna þess hversu frábærlega þau voru túlkuð og upp- færð á sínum tíma. En stríð og byltingar komu af stað öðrum tilfinningum og við- horfum. Ballets russes þróaðist á þann veg að til- einka sér eða leita uppi bylgjur listhræringa fremur en að innleiða þær eins og áður gerð- ist. Kúbisminn hóf innreið sína. Ballets russes hafði nú í faðmi sér mestu listbyltingarmenn og sköpuði tónlistar og myndlistar 20. aldarinnar. Þá Picasso, De- rain, Braque, Matisse, Rouault, Milhaud, Paulenc og Auric. Árið 1917 sýndi Ballets russes ballettinn Parade. Hugmynd og saga eftir Cocteau. Tónlist eftir Satie og leiktjöld og búningar eftir Picasso. Dansskáld var Massín. Parade var fýrsti kúbíski ballettinn og var kúvend- ing á öllu hinu viðtekna og ögrun við upp- hafningu hjómsins. Og auðvitað vakti þetta reiði áhorfenda í fyrstu, en verkið stendur eftir sem eitt þeirra sem marka hvörf í þróun nútímaballetts. Massín fann sínar leiðir í danssköpun og eftir hann eru nokkur meistaraverk frá þess- um tíma, meðal annars: Les Femmes de bonne humeur frá 1917. Leiktjöld og búning- ar eftir Bakst, tónlist eftir Scarlatti. Titill og efni úr kómedíu eftir Goldoni. Dansarar Lopokova, Cecchetty, Idzíkovskí og fleiri. La Boutique fantasque ffá 1919. Tónlist eftir Rossini, búningar og leiktjöld Derain, dansarar Lopokova, Sokolova, Tsjernísjeva, Cecchetty, Nemsínova, Vojsíkovskí og Idz- íkovskí. Upphaflega átti Bakst að gera leik- tjöld en Díaghílev snerist hugur, sem leiddi til vinslita þeirra. Þetta litla búðarævintýri var einn af mestu sigrum Ballets russes. Þar kom til frábær persónusköpun og skopskyn Massíns, smekkur og nýbreytni Derains, líf- legir tónar Rossinis og meistaralega dansað verk og ber þar hæst can-can- dansinn, sem Lydia Lopokova dansaði. Le Tricorne (Þríhyrndi hatturinn) frá 1919 var affakstur af veru Ballets russes á Spáni á stríðsárunum. Tónlist eftir Manuel de Falla, Picasso sá um leiktjöld og búninga. Sögu- þráður eftir Martinez Sierra. Karsavína dansaði malarakonuna og vann enn einn sigurinn á ferli sínum og Farucca-dans Massíns er einn af hápunktum danssögunn- ar. Leiktjöld Picassos eru talin meðal stór- verka nútímaleikhúss. Ballettinn Pulcinella frá 1920 eftir Massín við tónlist Stravinskys er unninn út frá hefð- um commedia dell’arte um ástarfléttur og laumuspil. Leikmynd Picassos, götur Napoli í mánaskini, var kúbísk opinberun. Sjaldan hafa danssköpun, sviðsmynd, tónlist og saga runnið svo saman í órofaheild sem væru þau af sama eðli, enda vakti Díaghílev yfir sam- vinnunni og stjórnaði henni. Eftir dauða Díaghílevs, þegar átti að endurgera Pulcin- ella undir stjórn annarra, gerðu menn sér ljósa grein fyrir hversu ómetanlegur þáttur Díaghílevs hafði verið. Massín fór frá Ballets russes vegna ágrein- ings við Díaghílev og Broníslava Nijinska varð aðaldanshöfúndur Ballets russes. Díaghílev dreymdi um að endurvekja ball- ettinn Þyrnirósu sem hafði verið sýndur í Pétursborg 1890 við mikinn glæsibrag. Árið 1921 rættist sá draumur. En ævintýraleg leik- tjöld og búningar Bakst, ódauðleg tónlist Tsjajkovskís og glæsi- dansarar komu ekki í veg fýrir ósigur sem var næstum dauða- dómur yfir Ballets russes. Áhorfendur skildu ekki viðhorf Díaghílevs til sígilds listdans þar sem Ballets russes hafði ávallt haft forystu í nýsköpun. Díaghílev batt miklar vonir við Nijinsku. Árið 1923 samdi hún Les Noces sem er meistaraverk hennar og hefur lifað fram á okkar daga. Tónlist eftir Stravin- sky, leiktjöld og búningar eftir Gont- sjarovu. Ballettinn fjallar um sveita- brúðkaup í Rúss- landi og var á þeim tíma frumlegast verka Ballets russes. Árið 1924 samdi hún Les Biches við tónlist Francis Paulenc. Leikmynd og búningar eftir Marie Laurencin. Þetta var skemmti- og ádeilu- verk á uppalíf þessa tíma. Um þessar mundir komu nýir dansarar til sögunnar. Nýliði frá Kiev, Sergej Lífar og Anton Dolin frá London. Díaghílev sagði um Dolin þegar hann hóf feril sinn með Ballets russes: „Hann dansar dásamlega. í Carnaval, Cimarosiana og Pulcinella er hann næstum betri en hinir sem hafa dansað það.“ Nijinska skóp nýtt verk fýrir Dolin, Le train bleu. Leik- tjöldin voru eftir kúbíska myndhöggvarann Henry Laurens. Söguþráður eftir Cocteau, tónlist eftir Milhaud, búningar eftir Coco Channel og fortjald eftir Picasso. Þetta var verk líðandi stundar sem fjallaði um útiveru og íþróttalíf á baðströnd, eins nýtískulegt og hugsast gat. Channel innleiddi nýja tísku með búningum sínum í Le train bleu og for- tjald Picassos, Risakonurnar á ströndinni, er eitt af undrum tuttugustu aldar. Karsavína og Bolm í abalhlutverkum í Eldfuglinum. 30

x

Leikhúsmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1744

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.