Fréttablaðið - 21.12.2022, Page 1

Fréttablaðið - 21.12.2022, Page 1
2 7 6 . t ö l u b l a ð 2 2 . á r g a n g u r f rettab lad id . i s M I ð V I K u D a g u r 2 1 . D e s e M b e r 2 0 2 2 Bráð á stysta degi ársins Sjö þúsund sæti í desember Tímamót ➤ 22 Lífið ➤ 34 Fyrir það sem mestu máli skiptir Í minnisblaði sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs um Grandaborg segir að skólprör hafi farið í sundur og blés loft- ræstikerfi skolpmenguðu lofti upp í húsnæði leikskólans. benediktboas@frettabladid.is stjórnsýsla Í minnisblaði Helga Grímssonar, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, segir að aðalorsök slæmra loftgæða á leikskólanum Grandaborg hafi verið skriðkjall- ari undir húsinu og hönnun á loft- ræstikerfi. „Enn fremur kom í ljós að skólprör hafði farið í sundur vegna þess að húsið hefur sigið á liðnum árum. Þar af leiðandi hafði skólp seytlað ofan í jarðveg í kjallar- anum. Loftræstikerfið blæs svo lofti úr kjallaranum, upp í húsnæði leik- skólans,“ segir í minnisblaðinu. „Ég er alveg sammála því að þetta var svolítið sláandi lesning,“ segir Guðrún Jóna Thorarensen, sam- ráðsfulltrúi leikskólastjóra í Reykja- vík, en á fundi skóla- og frístunda- ráðs í vikunni var farið yfir málið. Í kjölfarið var ákveðið að loka leikskólanum og í október var starf- semin f lutt á þrjá staði. Foreldrar báðu um að starfsemi leikskólans yrði færð á einn stað og í nærum- hverfi leikskólans og reyndi borgin að finna hentugt húsnæði í Vestur- bænum en án árangurs. Rakaskemmdir og mygla hafa nú fundist í alls 28 leikskólum, grunn- skólum og frístundaheimilum á þessu ári. Þeir leikskólastjórar sem Fréttablaðið talaði við í gær voru sammála um að vera orðnir svolítið þreyttir á ástandinu í húsnæðis- málum. Margir undruðust þögn alþingismanna og ráðamanna um húsnæðismál leikskóla borgarinnar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðs- ins verður tveimur leikskólum til viðbótar lokað innan tíðar vegna myglu. „Byggingar fara ekki í svona ástand á einni nóttu. Þetta er búið að vera langvarandi ástand. Leik- skólastjórar eru búnir að hringja í borgaryfirvöld í eitt eða tvö og jafnvel f leiri ár en það er bara ekki brugðist við,“ segir Guðrún. Í bréfi sem leikskólastjórar í Reykjavík sendu borgarfulltrúa og skóla- og frístundasviði 10. nóvem- ber kom fram að fjárhagslíkanið fyrir leikskólana væri löngu úrelt og grunnstöðugildi hefðu ekki verið fjármögnuð í tvö ár. n sjá nánar á frettabladid.is Saurlofti blásið úr loftræstikerfi inn til leikskólabarna Sjósundskempur láta ekki frosthörkur desembermánaðar aftra sér. Hér má sjá fjórar ná smá hita í kroppinn í pott- inum í Nauthólsvík á meðan kappklæddir ferðamenn standa hjá. Fréttablaðið/anton brink Byggingar fara ekki í svona ástand á einni nóttu. Guðrún Jóna Thorarensen, samráðsfulltrúi leikskólastjóra saMgönguMál Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir fulla þörf á að endurskoða þær heimildir sem Vegagerðin hafi til að fjarlægja bíla sem sitji fastir í sköflum á vegum og í vegköntum. Snjómokstur hafi reynst erfiður víðast hvar síðustu daga og gengið hægt, bæði vegna bifreiða sem sátu fastar í snjónum og hindruðu snjó- moksturstæki, en einnig sökum þess hversu mikil ásókn var af hálfu sveitarfélaga og Vegagerðarinnar í þjónustu snjómoksturstækjanna. Innviðaráðherra ætlar að koma í veg fyrir að viðlíka ástand og skap- aðist um helgina komi fyrir aftur. Sjá Síðu 6 Þörf á endurskoðun heimilda

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.