Fréttablaðið - 21.12.2022, Page 2

Fréttablaðið - 21.12.2022, Page 2
Lokað í laugunum Salalaug Í Kópavogi er ein þeirra lauga á höfuðborgarsvæðinu sem þurfti að loka vegna bilunar í Hellisheiðarvirkjun 19. desember. Var heildarframleiðslu- geta hitaveitu höfuðborgarsvæðisins skert um 20 prósent. Stefnt er að því að laugarnar verði opnaðar aftur á hádegi í dag. Fréttablaðið/Ernir bth@frettabladid.is veður „Þær eru svo til uppseldar, snjóskóf lurnar hjá okkur,“ sagði starfsmaður Byko þegar viðskipta- vinur hringdi í gær. Það eru engar ýkjur því Sigurjón Ólafsson, verslunarstjóri í Byko Breiddinni, skýtur á að um 3.000 skóflur hafi verið seldar í verslunum Byko á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga. Innan við tuttugu skóf lur voru eftir í hans búð í gær og flestir birgjar tómhentir. „Þetta er heitasta varan í dag, snjóskóflurnar. Svo má nefna hálku- saltið sem rýkur út í tonnum. Við erum að tala um jólagjafirnar í ár,“ segir Sigurjón léttur. Sköfur, hitablásarar og rafmagns- ofnar hafa einnig verið mikið teknir í kuldanum. „Þetta fer út í brettavís.“ Um metsölu er að ræða. Þarf að fara aftur til febrúar til að rifja upp viðlíka viðskiptatíma að sögn Sigur- jóns en þá kyngdi snjó niður. Hann segir sæmilegar skóflur kosta 2.000- 4.000 krónur. „Það var einn á bílastæði hérna fyrir utan sem spurði hvort við værum farin að gefa skóflur. Hann spurði vegna þess að hann sá hvern einasta kúnna sem kom út frá okkur með skóflu í hendinni,“ segir Sigur- jón og hlær. n Skóflusala slær öll met eftir óveðrið Kristján með eina síðustu skófluna. Þingeyingar eru uggandi um að þeir nái ekki að hlusta á hátíðarþögn og klukknahljóm fyrir klukkan 18 á aðfangadag á Rás 1. Óvíst er hvort viðgerð á biluðum sendi fari fram fyrir jól en allt gert til þess. bth@frettabladid.is NorðurlaNd Bilaður útvarps- sendir hefur leitt til þess að hluti íbúa á Norðurlandi óttast að helgi jólanna verði spillt. Rás 1 liggur niðri í Mývatns- sveit og víðar. Stefnir að óbreyttu í að ekki verði hægt að hlusta á helga þögn og klukknahljóm fyrir klukkan sex á aðfangadag með hefðbundnum hætti. Sólveig Jónsdóttir, sem mun dvelja á Arnarvatni í Mývatnssveit um jólin, hefur ritað útvarpsstjóra bréf vegna málsins. Í bréfinu segir Sólveig að undan- farnar vikur hafi útsending Rík- isútvarpsins í Mývatnssveit verið algjörlega óboðleg. Hvorki hafi verið hægt að hlusta á Rás 1 né Rás 2, búið sé að kvarta en loforð um viðgerð hafi ekki haldið. „Nú þegar jólin nálgast er mjög áríðandi að þetta komist í lag. Ríkisútvarpið hefur stórt hlutverk í helgihaldi þorra þjóðarinnar – kveðjurnar, þögnin fyrir sex, klukknahringingin þegar jólin eru hringd inn og aftansöngurinn,“ skrifar Sólveig. „Á þetta er ekki hlustað í síma eða í gegnum sjónvarp – það er algjört stílbrot. Ríkisútvarpið gegnir auðvitað fyrst og fremst öryggishlutverki og það er ólíð- andi að útsending náist ekki í svo langan tíma,“ segir Sólveig. „Við vonum að það verði hægt að kippa þessu í lag,“ segir Stefán. Aðrar dreifileiðir séu í boði en útvarpið eitt. Segja jólin í hættu vegna bilunar í útvarpssendi Tvísýnt er um heilagleikann í Mývatnssveit fyrir þá sem hlusta rétt fyrir klukkan 18 á aðfangadag á klukkur hringja inn jólin. Fréttablaðið/gEtty Við vonum að það verði hægt að kippa þessu í lag. Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri „En það kann að vera að það sé ekki eins hátíðlegt að hlusta á þetta í gegnum síma eða sjónvarp,“ segir hann. Málið sé til marks um hve Ríkisútvarpið skipti þjóð- ina miklu máli á stundum sem þessum. Sigurbjörn Óskar Guðmunds- son hjá Vodafone segir stefnt að því að skipta um sendi um leið og aðstæður leyfa. „Fimmtudagsveðurspáin lítur vel út, við gerum allt hvað við getum,“ segir hann þannig að ekki er öll von úti hjá Mývetningum. n kristinnhaukur@frettabladid.is tækNi Ísland verður eitt af fimm löndum þar sem nýtt rafrænt veski Evrópusambandsins verður prófað. Hin löndin eru Þýskaland, Dan- mörk, Lettland og Noregur. Veskið er app sem hægt verður að nota sem rafræn skilríki, tengjast opinberri þjónustu og geyma við- kvæmar persónuupplýsingar. Einn- ig verði hægt að greiða og millifæra með appinu. Þó að áhersla sé lögð á öryggi hefur veskið hlotið gagnrýni á Evr- ópuþinginu. Meðal annars hefur Cristian Tehers, frá Rúmeníu, lýst veskinu sem „kína-seríngu“ Evrópu. Hollendingurinn Rob Roos efast um að veskið verði alltaf valkvætt. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, hefur hins vegar sagt að veskið muni veita Evrópubúum betri stjórn yfir upp- lýsingum sínum og koma í veg fyrir auðkennisþjófnað. n Ísland eitt fimm tilraunalanda fyrir rafrænt veski Appið hefur verið gagnrýnt á Evrópuþinginu. Fréttablaðið/gEtty 2 Fréttir 21. desember 2022 MIÐVIKUDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.