Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.12.2022, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 21.12.2022, Qupperneq 8
Stormasamt ár er senn á enda, en árið 2022 hefur meðal annars einkennst af stríðsátökum, öfgum í veðráttu og pólitískum usla. Hér sjást svipmyndir frá árinu sem er að líða. thorgrimur@frettabladid.is Ár átaka, dauða og veðurofsa Íbúar í bænum Uvalde í Texas sækja minningarathöfn vegna skotárásarinnar á Robb-grunn- skólann í maí. Nítján börn og tveir fullorðnir starfsmenn voru myrt í árásinni, sem hleypti nýju lífi í hinar langvarandi deilur um byssuofbeldi í Bandaríkjunum. Fréttablaðið/Getty Elísabet II. Bret- landsdrottning lést 8. septem- ber síðastliðinn eftir rúm sjötíu ár í hásætinu. Drottningin var þaulsætnasti þjóðhöfðingi í sögu Bretlands og þaulsætn- asti sitjandi þjóðhöfðingi á heimsvísu þegar hún lést. Hún var borin til grafar þann 19. september í fyrstu ríkisút- för Bretlands síðan Winston Churchill lést árið 1965. Fréttablaðið/ Getty Suðurkóreskar öryggissveitir tóku þátt í æfingu á við- brögðum við efnavopnaárásum í Seúl í ágúst. Æfingar af þessu tagi voru ekki haldnar í tíð síðustu ríkisstjórn- ar, sem lét af völdum í maí. Fréttablaðið/Getty Shinzo Abe, fyrrverandi for- sætisráðherra Japans, var skotinn til bana á kosningafundi þann 8. júlí. Morðinginn kenndi Abe og flokki hans um uppgang sértrúarsafn- aðar sem hafði haft aleiguna af móður hans. Byssuofbeldi er sjaldgæft í Japan og því var morðið mikið áfall. Fréttablaðið/ePa Íran hefur logað í mótmælum frá því að kona að nafni Mahsa Amini lést í haldi siðgæðislög- reglunnar þann 21. september. Lögreglan hafði handtekið hana fyrir að hylja hár sitt ekki nógu vel undir slæðu sinni, en strangar reglur gilda um klæðaburð kvenna samkvæmt lögum klerka- stjórnarinnar. Mótmælendur kalla eftir endalokum klerkaræðisins í Íran. Fréttablaðið/ePa Fátt hefur sett eins sterkan svip á árið og innrás Rússa í Úkraínu sem hófst í febrúar. Hér sjást íbúar bæjarins Írpín nálægt Kænu- garði flýja yfir hrunda brú þann 7. mars, á meðan Rússar sátu um höfuð- borgina. Harðir bardagar geisa enn víða um landið og heim- urinn stendur á öndinni yfir því hvar næsta orr- usta verður háð. Fréttablaðið/ePa Portúgalskur maður í Alberg- aria-a-Velha reynir að slökkva eld sem nálgast heimili hans í júlí. Hita- bylgjur riðu yfir Evrópu frá júní fram í ágúst og ollu þurrkum, gróðureldum og brutu víða hvert hitametið á fætur öðru. Fréttablaðið/ Getty Annáll erlendAr fréttAmyndir 21. desember 2022 miÐViKUdAGUr

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.