Fréttablaðið - 21.12.2022, Page 21
Tilfinningin var
rosalega góð þegar
ég sá að ég hafði bætt
Íslandsmetið. Ég bjóst
ekki við því að ná því á
þessu móti.
Irma Gunnarsdóttir
Guðmundur
Hilmarsson
gummih
@frettabladid.is
Irma Gunnarsdóttir, 24 ára
landsliðskona úr FH, sló um
nýliðna helgi 25 ára gamalt
Íslandsmet í þrístökki
innanhúss á stökkmóti FH
sem haldið var í Kaplakrika.
Irma stökk 13,13 metra á mótinu
og bætti met Sigríðar Önnu Guð-
jónsdóttur frá árinu 1997, sem var
12,83 metrar.
„Ég er vitaskuld mjög ánægð
með að hafa slegið þetta met. Ég
er búin að vera að stefna á að bæta
þetta met í tvö ár. Ég bjóst ekki við
því að ná því á þessu móti en ég sá
alveg fyrir mér að bæta metið ein-
hvern tímann í vetur. Þetta kom
mér á óvart enda var þetta aðeins
annað mót vetrarins. Tilfinningin
var rosalega góð þegar ég sá að ég
hafði bætt Íslandsmetið. Ég ætlaði
ekki að trúa þessu alveg í byrjun
en svo meðtók ég þetta og þetta
var ansi sætt þar sem ég hef unnið
mjög hart að þessu markmiði
mínu í nokkuð langan tíma. Það
var líka gaman að bæta svona
gamalt met og það með nokkuð
afgerandi hætti,“ segir Irma.
Sigríður Anna á Íslandsmetið í
þrístökki utanhúss sem er 13,18
metrar. Spurð hvort hún hafi ekki
sett stefnuna á að slá það met líka
segir Irma: „Jú, að sjálfsögðu er
það stefnan og eftir þetta stökk
um helgina er ég ekkert langt frá
því.“
Irma segir að Íslandsmetið gefi
henni byr í seglin. „Þetta lítur
Ætlaði ekki
að trúa þessu
Irma bætti
25 ára gamalt
Íslandsmet í
þrístökki innan-
húss.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
bara vel út og ég er mjög spennt
fyrir komandi mótum,“ segir
landsliðskonan.
Þrístökkið er aðalgrein Irmu
en hún leggur einnig stund á
langstökk. „Ég tek stundum þátt
í spretthlaupi mér til skemmt-
unar en aðaláherslan hjá mér er
þrístökkið og langstökkið,“ segir
Irma, sem ekki alls fyrir löngu
náði sínum besta árangri í lang-
stökki þegar hún stökk 6,14 metra.
Draumurinn er Ólympíuleikar
Spurð hvað hún stefni á í fram-
tíðinni varðandi íþróttirnar segir
hún: „Það væri auðvitað algjör
draumur að komast á Ólympíu-
leikana og á þessi stærri mót eins
og Evrópumótið. Það er svolítið
langsótt en kannski verður það
að veruleika í framtíðinni,“ segir
Irma.
Hvað er fram undan hjá þér?
„Ég tek þátt í móti í Árósum
í Danmörku í lok janúar og svo
stefni ég á að taka þátt í Norður-
landamóti fullorðinna innanhúss.
Svo er fullt af öðrum mótum í
sumar sem ég tek þátt í, bæði
hér heima og erlendis. Það er
til dæmis Norðurlandamótið
utanhúss, Evrópubikarkeppnin,
Meistaramót Íslands og bikar-
keppnin,“ segir hún.
Irma hefur lagt stund á frjálsar
íþróttir mörg undanfarin ár. „Ég er
búin að æfa frjálsar íþróttir frá því
ég var ellefu ára gömul. Ég byrjaði
í öllum greinum en fyrir um það
bil þremur árum setti ég alfarið
fókusinn á þrístökk og langstökk,“
segir Irma, sem gekk í raðir FH frá
Breiðabliki fyrir einu ári síðan.
Hún keppti í sjöþraut og náði
meðal annars að verða Norður-
landameistari U23 ára árið 2018.
Irma er á þriðja ári í íþrótta-
fræði við Háskólann í Reykjavík
og auk þess að keppa fyrir FH
og landsliðið þjálfar hún yngri
krakka í frjálsum íþróttum hjá
FH.
„Mér finnst virkilega gaman að
þjálfa krakkana og ég fæ mikið
út úr því. Svo finnst mér ég læra
heilmikið sjálf af því að leiðbeina
krökkunum,“ segir Irma.
Nú eru jólin á næsta leiti.
Hvernig hagar íþróttakonan sér á
þessum tíma?
„Ég reyni að halda góðri rútínu
en maður verður nú samt að leyfa
sér eitthvað um jólin. Æfingarnar
stoppa ekkert þótt það séu að
koma jól. Við tökum til að mynda
æfingu á aðfangadagsmorgun
en ég tek því svo rólega á jóladag
og annan í jólum og reyni eftir
fremsta megni að njóta. Eftir það
fer svo allt á fullt. Það má ekkert
slaka á ef maður ætlar sér að ná
lengra,“ segir Irma. n
Helgi Guðmundsson húsa-
smiður byrjaði að taka inn
D-vítamín orkublöndu með
burnirót frá ICEHERBS fyrir
nokkrum árum. Hann segir
blönduna gefa sér orku og
hafa góð áhrif á sig almennt.
„Ég byrjaði fyrst að taka þetta
inn til að halda sjóninni við, en
ég er fæddur og uppalinn í sveit
og vandist við að borða mikið af
krækiberjum sem ég held að hafi
stuðlað að því að ég hef alltaf verið
með góða sjón. En ég er viss um að
D-vítamín orkublandan hafi líka
sitt að segja við að styrkja sjónina
enda er ég orðinn 81 árs gamall og
ekki enn farinn að nota gleraugu,“
segir Helgi.
Bætt orka bætir liðina
Helgi er menntaður húsasmiður
og starfaði lengi sem slíkur. „Ég
var orðinn nokkuð slæmur í
hnjánum á tíma enda var ég starf-
andi smiður, lá mikið á hnjánum í
vinnunni og bólgnaði upp í þeim.
Fyrir nokkrum árum kynntist ég
bætiefnunum frá ICEHERBS og
fannst spennandi að prófa þau.
Enda er ég vanur fjallagrösum, blá-
berjum og krækiberjum frá jurta-
ríkinu úr sveitinni fyrir vestan og
trúi því að það sé rétt að treysta á
náttúruna. Þegar ég byrjaði að taka
inn D-vítamín blönduna frá ICE-
HERBS fannst mér hún gera mér
gott að ýmsu leyti.
Ég er núna hættur að vinna en
það er þó ekki langt síðan ég var
að fikta í þessu að gamni. Það eru
kannski um þrjú eða fjögur ár
síðan ég var að leggja parket, þó
þetta gamall. Ég tel mig nú nokkuð
góðan og er viss um að D-vítamín
orkublandan hafi haft góð áhrif á
liðina en líka orkuna. Meiri orka
gerir mér kleift að hreyfa mig
reglulega, eða um 3-4 sinnum í
viku. Þá fer ég 2-3 í viku í ræktina
og geng 1-2 í viku. Það hefur
hjálpað til við að minnka bólgurn-
ar í hnjánum og bæta líðanina.
Ég finn að ég er orkumeiri
almennt og þetta hefur áhrif á
hvort annað, orkan og líðanin.
Eftir því sem maður hreyfir sig
meira þá eykst orkan. Ég hef líka
haldið sjóninni, eða hún hefur alla
vega ekki versnað í þessu tíu ár,“
segir Helgi.
Fann fyrir mun
„Ég tek D-vítamín orkublönduna
allt árið um kring en inntakan er
ekki svo stíf að ég taki þetta með
mér í hverja helgarferð. En svona
flesta daga. Ég fann þó mun á mér,
eftir að hafa farið í mánaðarferð
norður í land án þess að taka bæti-
efnið með mér. Ég er ekki frá því
að ég hafi verið stirðari eftir á, en
það batnaði fljótt aftur eftir að ég
byrjaði að taka þetta inn aftur.“
Við fáum einfaldlega ekki nóg
D-vítamín er eitt mikilvægasta
vítamínið sem líkaminn þarfnast.
Það hjálpar okkur að vinna kalk
úr fæðunni til þess að fyrirbyggja
kalkskort og hefur jákvæð áhrif á
sjónheilsu á ýmsan hátt. Skortur
á því getur valdið ýmsum kvillum
eins og sársauka í liðum og í verstu
tilfellum alvarlegum heilsufars-
vandamálum. Í mörgum tilfellum
þegar liðvandamál orsakast af D-
vítamínskorti má snúa vandanum
við með inntöku á D-vítamín
bætiefni.
D-vítamín fáum við úr fæðu og
úr sólarljósinu en fjöldi rannsókna
sýnir fram á að nútímamaðurinn
fær ekki nóg af D-vítamíni úr fæð-
unni. Við sem búum á norðlægum
slóðum erum enn verr sett því við
fáum líka of lítið af sólarljósi, hvað
þá í svartasta skammdeginu. Því er
lykilatriði að taka inn D-vítamín
sem bætiefni til þess að tryggja
nægilegt magn.
Einstök orkublanda
Orkublandan frá ICEHERBS inni-
heldur 2.000 einingar af D-víta-
míni og hreina íslenska burnirót.
Orkublandan er sniðin fyrir þá
sem glíma við skammdegisslen.
ICEHERBS fær mikið af góðum
viðbrögðum frá neytendum um
hvað varan gerir þeim gott.
Flestallir finna mun á
sér eftir að hafa tekið
Orkublönduna dag-
lega í 5-10 daga, og
fólk vaknar mun
hressara.
Hið norræna ginseng
Burnirótin er ein
magnaðasta lækninga-
jurt sem vex á Íslandi
og eitt best geymda
leyndarmál jurta-
ríkisins. Jurtin er oft
kölluð hið norræna
ginseng en hún er
þekkt fyrir einstök
áhrif sín á aukna orku, einbeitingu
og úthald. Áður fyrr var hún meira
að segja notuð til að auka frammi-
stöðu hermanna. Klínískar rann-
sóknir sýna einnig fram á að hún
hjálpar fólki að vinna gegn stressi
og álagi. Burnirótin er oft notuð til
að vinna gegn orkuleysi, sleni og
depurð og þannig vinnur hún vel
með D-vítamíninu.
Innihaldsefni sem Orkubland-
an frá ICEHERBS samanstendur
af eru algert dúndur fyrir aukna
orku, snerpu og úthald. Í hverju
hylki eru 2000 einingar af D-víta-
míni sem er viðmiðunargildi fyrir
efri mörk daglegrar meðalneyslu
á D-vítamíni. Burnirótin í Orku-
blöndunni er handtínd á Íslandi,
þurrkuð, verkuð og mulin. Öll
bætiefni ICEHERBS eru framleidd
á Blönduósi. n
ICEHERBS fæst í öllum betri
matvöruverslunum, apótekum,
heilsuvöruverslunum og í glæsi-
legri vefverslun iceherbs.is.
Áttræður og orkumikill af D-vítamínblöndunni
Helgi Guðmundsson hefur tekið D-vítamín orkublöndu frá ICEHERBS í um
árabil og segir áhrifin ekki hafa látið á sér standa. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 21. desember 2022