Fréttablaðið - 21.12.2022, Page 38

Fréttablaðið - 21.12.2022, Page 38
Eitt story og linkur – og fólkið mitt er komið. Það er alveg ótrúlegt. Við eigum bara í svo góðu sambandi. Friðrik Ómar Hjörleifsson AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@ frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Upplýsingar um sölustaði er að finna á glediskruddan.is glediskruddan glediskruddan Höfundar: Marit & Yrja. Gleðiskruddan er dagbók fyrir börn á aldrinum 6-15 ára sem byggir á hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði. „Ég mæli einlæglega með Gleðiskruddunni sem er frábær bók til að virkja börn í að efla vellíðan, bjartsýni og þrautseigju“-Bryndís Jóna, Núvitundarsetrinu- Stórsöngvarinn Friðrik Ómar er kominn í jólafrí eftir vel lukkaða vertíð. Þrátt fyrir að hart sé í ári hjá mörgum jólatónleikahöldurum vegna óvenju mikils framboðs, er Friðrik búinn að selja tæplega sjö þúsund tónleikamiða. ninarichter@frettabladid.is „Við erum búin að vera að byggja upp þetta verkefni í sjö ár og það hefur vaxið og dafnað. Þetta er búið að vera stærsta árið okkar, það hefur aldrei gengið eins vel. Aldrei eins mikil innkoma en þetta kostar alltaf meira og meira,“ segir söngvarinn glaður í bragði. Friðrik Ómar hefur staðið fyrir tólf jólatónleikum í Salnum í Kópa- vogi og fimm tónleikum í Hofi á Akureyri. „Ég skal alveg viðurkenna að þetta er farið að taka í,“ segir Friðrik spurður um þreytu eftir aðra eins vertíð. „En röddin er allt í lagi. Þetta er bara líkamleg þreyta. En andlega er ég bara í sjöunda himni.“ Friðrik Ómar segist ekki hætta að hlusta á jólalög eftir vertíðina, og er það aðallega kóngurinn sjálfur, Elvis, sem ratar á fóninn. „Hann er minn maður,“ segir söngvarinn. „Núna fer maður sjálfur að dunda sér, halda jól og hitta vini og kunn- ingja. Ég hlakka til að fara norður. Ég f lýg norður að morgni Þorláks- messu og þá byrjar þetta allt saman. Ég verð á Akureyri um jólin. Öll fjöl- skyldan er þar og ég verð þar bara í gamla húsinu mínu með mömmu og pabba,“ segir Friðrik Ómar. Fjölskyldan snæðir saman ham- borgarhrygg á aðfangadag. „Og jólasalatið hennar mömmu, svona beisik bara. Svo er góð sósa með og púrtvín,“ segir söngvarinn kíminn. Friðrik Ómar fagnar um þessar mundir 25 ára útgáfuafmæli sinnar fyrstu jólaplötu sem hann gaf út aðeins 16 ára gamall. „Þá hélt ég mína fyrstu jólatónleika. Það er aldarfjórðungur og ég þekki kata- lóginn vel. Þess vegna er svo gaman að fá ný jólalög inn. Maður reynir að gefa út líka ný lög svo að þetta sé ekki alltaf það sama. Svo er þetta líka eins með tónleikana. Maður þarf að leyfa þeim aðeins að breyt- ast,“ segir hann. „Mínir tónleikar skera sig úr. Ég er með sófa á sviðinu og fæ lista- fólkið í sófann,“ segir Friðrik Ómar aðspurður um aðsóknartölurnar. „Þetta er svolítið eins og sjónvarps- þáttur ef maður pælir í því, maður gerir þetta persónulegt og deilir með fólki því sem maður er að gera. Þetta er ekki bara það að koma á sviðið og syngja gamalt jólalag.“ Söngvarinn þakkar einnig sam- félagsmiðlum söluna. „Það er ekkert flókið. Ég hef áttað mig á því undanfarið að ég er búinn að eignast dásamlegan vinahóp í gegnum Instagram og þar tala ég við fólkið mitt. Það er að fylgjast með mér, ekki af því að ég sé að gefa húfur,“ segir hann og hlær. „Ég er ekki í þeim bransanum. Ég bara er með hóp sem er að fylgjast með því sem ég er að gera. Það sem hefur gerst síðastliðið árið er að ég hef haldið tvenna, þrenna tónleika og þetta er bara auglýsingin sem ég þarf að keyra á. Eitt story og linkur – og fólkið mitt er komið. Það er alveg ótrúlegt. Við eigum bara í svo góðu sambandi. Þau eru svo virk og dug- leg að senda á mig, og ég á þau,“ segir hann, sendir jóla-stuðkveðjur og og þakkar aðdáendum sínum kærlega fyrir frábært „season“. Hvað varðar eftirlætislag söngvar- ans að flytja stendur lagið Vetrarsól sérstaklega upp úr. Þá nefnir hann einnig sálminn Heims um ból, til að syngja með öðrum. n Sjö þúsund sæti í desember Friðrik Ómar söngvari er kominn í jólafrí og ætlar til Akureyrar um jólin eftir frábæra tónleikavertíð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFáN ninarichter@frettabladid.is Þriðja þáttaröð hinna geysivinsælu Netflix-þátta Emily in Paris kemur út í dag. Aðalleikkona þáttanna, Lily Collins, já, dóttir söngvarans Phil Collins, er snúin aftur sem rosalega bandarísk markaðskona sem ráðin er af fyrirtæki í París til að veita inn- sýn í bandarískan hugsunarhátt. Hér er líka um að ræða nálgunina á Frakkland sem áhorfendur fá, sem er hin bandaríska poppmenningar- sýn á Frakka og Frakkland. Þættirnir hafa notið gríðarlegra vinsælda og ekki síst sem óhemju gott hatursgláp, þar sem fólk eng- ist um í téðu óþoli gagnvart fyrr- nefndri bandarískri, og ekki alltaf upplýstri, nálgun á franska menn- ingu, sögu og tungumál. Gagnrýnin snýr til dæmis að því að þættirnir taki franskar staðal- myndir og klisjur og setji í forgrunn sögunnar eins og jólabækur í búðar- glugga á Þorláksmessu og Emily, jólaskinkan sjálf, sé klisjan af sjálfri sér, sjálfhverf og meingölluð. Per- sónan Emily talar ekki frönsku, sem ku æra franska áhorfendur. Emily ranghvolfir meira að segja augunum þegar Frakkar í Frakklandi reyna að gera sig skiljanlega á frönsku. Mon dieu! Samfélagsmiðlar, snobb og stéttaskipting eru litir á striganum hans Darren Starr, höfundar ekki ómerkilegri þátta en Sex and the City, Beverly Hills og Melrose Place. Þó er lítið unnið með gagnrýni eða ádeilu og það er aftur eitt af því sem gagnrýnandi Variety, Daniel D’Addario, finnur að þáttunum í pistli þar sem hann rekur ástæður þess að Emily gerir fólk gersamlega brjálað. Slíkir pistlar eru óteljandi á alnetinu, vilji fólk kynna sér málið. Það er þó nokkuð víst að æði margir samlandar mínir munu glápa á ævintýri Emily í París um jólin, þáttarheiti sem rímar bara á frönsku en ekki á ensku. n Lily Collins í París ærir í þriðja sinn Gagnrýnendur þreytast ekki á að finna þáttunum allt til foráttu. 34 Lífið 21. desember 2022 MIÐVIKUDAGURFréttabLaðið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.