Fréttablaðið - 21.12.2022, Side 40

Fréttablaðið - 21.12.2022, Side 40
frettabladid.is 550 5000 RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is PRentun Torg ehf. dReifing Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Láru G. Sigurðardóttur n Bakþankar „Kæra Rut, ég vona að þú hafir átt ánægjulega þakkargjörðarhátíð. Vildi segja þér að mér finnst bón þín aldeilis frábær. Sjálfri hefði mér aldrei dottið í hug að tína fræ í óbyggðum, hvað þá eyðimörk. Allavega, ég fann eitthvað sem líkist fræjum á leið okkar í dag en það á eftir að koma í ljós hvernig mér tókst til. Það munaði litlu að ég myndi færa þér músaskít! Bless- unarlega stoppaði eiginmaðurinn mig af. Nú þegar ég hef afhjúpað vanþekkingu mína iða ég í skinn- inu að komast að því hvort eitthvað af þessu sem ég tíndi verði nothæft. Sjáumst fljótlega. Ást, Lára.“ Fram undan er hin mikla gjafa- hátíð. Hjá trúleysingjum sem trúuðum. Lengst af synti ég með straumi pakkaflóðs jólanna, enda hefð innan fjölskyldunnar að gefa mikið af pökkum. Pökkum í nafni Stúfs, Trumps og annarra litríkra merkismanna. Síðustu árin breyttum við til og forðumst nú Kringluna líkt og skaflana sem hertekið hafa Reykjavík. Við erum orðin meira fyrir lágstemmda jóla- hátíð. Enginn troðningur eða oln- bogaskot lengur eða örvæntingar- full augnaráð í umferðaröngþveiti. Og helst engir pakkar í okkar hús. Við eigum meira en nóg af verald- legum hlutum. Svo þegar ég hugsa til baka eru eftirminnilegustu jólin þegar við gáfum samveru í formi hádegisverðar, göngutúrs, fjall- göngu, spilakvölds o.fl. Sagt er að sælla sé að gefa en þiggja. Á Indlandi þakka menn því ekki fyrir sig – þeir vita að sælan er hjá þeim sem gefur. Jafnvel þegar maður gefur granna sínum næstum músaskít, óafvitandi. Munið því, að ef slík gjöf lendir í ykkar höndum þá er ásetningurinn góður og gefandinn væntanlega alsæll. Sem er svolítið það sem jólin ganga út á. Að gefa og þiggja kærleiksfræ, sama af hvaða meiði. n Gjöf til Rutar Vatnagörðum 14 104 Reykjavík litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is UMHVERFISVÆN PRENTUN Verður gjöfin þín gjöfin þín? Gefðu vini, fjölskyldu eða ástinni fallega gjöf sem skapar dýrmætar minningar — ein gjöf opnar yfir 40 dyr út í heim. Eða kemur þér á milli landsfjórðunga. Allir sem kaupa gjafabréf frá okkur fram að Þorláksmessu gætu unnið 500.000 kr. gjafabréf. Kauptu þína gjöf á icelandair.is/gjafabref gjafabréf? Ég get svarað þér hvar og hvenær sem er á tm.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.