Fréttablaðið - 03.01.2023, Side 6
Við þurfum að skoða
þetta mál af aukinni
dýpt og ákefð með
aukna áherslu á
almenningssamgöng-
ur í huga.
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir,
forseti borgar-
stjórnar í
Reykjavík
Samkvæmt athugun-
um hleypur kostnaður
við fluglest á100-200
milljörðum króna.
Meðal styrkleika
Íslands er áhersla á
menntun og árangur í
nýsköpun.
JEEP.IS
PLUG-IN HYBRID
FÆRÐIN ER
ALLTAF GÓÐ
EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX!
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
Leyfðu Jeep® Wrangler Rubicon Plug-In
Hybrid að spreyta sig á krefjandi slóðum.
Leiðin verður rafmögnuð. Bjóðum upp
á 35”-37” og 40” breytingapakka.
Mannfjölgun á Íslandi, stór
aukin ferðamennska og ferða
teppur síðustu vikna sýna að
taka þarf upp umræðuna um
fluglest að mati forseta borgar
stjórnar. Samtök ferðaþjónust
unnar taka ekki illa í það.
bth@frettabladid.is
samgöngur Þórdís Lóa Þórhalls
dóttir, forseti borgarstjórnar í
Reykjavík, telur að lokun Reykja nes
brautar á dögunum vegna ófærðar
gefi meira tilefni en nokkru sinni til
að leggjast í gaumgæfilega skoðun á
fluglest milli höfuðborgarinnar og
Keflavíkurflugvallar.
Of mikill þrýstingur skapaðist að
hennar sögn á innviði Íslands á árinu
sem leið. Mannfjölgun á höfuð
borgarsvæðinu nemi 12.000 manns
á nokkrum misserum. Auk þess hafi
verið mjög snjóþungt undanfarið og
spáð sé þremur milljónum erlendra
ferðamanna innan tíðar. Það segi
sig sjálft að mikið aukaálag skapist
á innviði. Þegar Reykjanesbrautinni
var lokað á dögunum hafi ekki verið
til nein varaáætlun og 30.000 manns
lent í vanda.
„Við getum ekki lengur stungið
höfðinu í sandinn. Það er tilvalið
verkefni að úthýsa uppbyggingu
lestar til Kef lavíkur ef verkefnið
reynist hagkvæmt en ákvörðun um
þetta er vitaskuld á ábyrgð ríkisins,“
segir Þórdís Lóa.
Hún segir að horfa verði langt
fram í tímann er kemur að sam
göngum og minnka áherslu á einka
bílinn í umhverfislegu tilliti.
„Við þurfum að skoða þetta mál
af aukinni dýpt og ákefð með aukna
áherslu á almenningssamgöngur í
huga.“
Spurð hvort hún tali sama máli
og formaður Viðreisnar á Alþingi
í þessum efnum, segist Þórdís Lóa
ekki hafa hugmynd um það.
Hún tali sem forseti borgarstjórn
ar og áhugamanneskja um atvinnu
líf, ferðaþjónustu og umhverfis
vernd.
„Þessi hugmynd er algjörlega þess
virði að ræða hana frekar. Það eru
ýmsir sem spyrja hvers vegna þeir
komist ekki við komu í Keflavík í
expresslest,“ segir Jóhannes Þór
Skúlason, framkvæmdastjóri Sam
taka ferðaþjónustunnar, inntur eftir
viðbrögðum við hugmyndinni.
Hann telur þó að taka ætti
umræðu um fluglest úr samhengi
við ófærðarpælingar. „Þetta er
stærra mál en svo að við hendum
upp lest bara af því að það varð
ófært tvo daga á síðasta ári. En lest
yrði eflaust afskaplega góð viðbót
við Keflavíkurflugvöll. Það stendur
þó allt og fellur með hagkvæmni.“
Samk væmt athugunum sem
gerðar hafa verið hleypur kostnaður
við fluglest að líkindum á 100 til 200
milljörðum króna. n
Segir lokun Reykjanesbrautar ýta
undir skoðun á lest til Keflavíkur
Reykjanes-
braut var lokað
og fjölmargir
urðu innlyksa í
Leifsstöð eftir
mikla ofankomu
skömmu fyrir
jól.
Fréttablaðið/
Sigtryggur arikristinnhaukur@frettabladid.is
atvinnulíf Ísland er í þriðja sæti á
lista yfir samkeppnishæfustu lönd
þegar kemur að vinnuafli í skýrslu
samkeppnisstofnunarinnar IMD í
Lausanne. Hefur Ísland hækkað um
fjögur sæti á listanum á einu ári.
Í skýrslunni kemur fram að
meðal styrkleika Íslands sé áhersla
á menntun, fjöldi menntaðs fólks,
tungumálakunnátta og árangur í
fjárfestingum og nýsköpun.
Í efsta sæti er Sviss og þar á eftir
kemur Svíþjóð. Öll Norðurlöndin
eru á meðal efstu tíu á listanum.
Þýskaland er í 10. sæti, Bandaríkin í
16., Bretland í 28. og Kína í 40. sæti.
Hæst stökk Perú, um 16 sæti, en
NýjaSjáland féll um 13.
Samkvæmt IMD hefur hreyfan
leiki starfsfólks minnkað síðan
faraldurinn skall á. Þetta hefur ekki
gengið að fullu til baka enn þá. n
Samkeppnishæfni
Íslands rýkur upp
Nýsköpun hefur gengið vel á Íslandi.
Fréttablaðið/anton brink
benediktarnar@frettabladid.is
viðskipti Flugfélagið Mýflug hefur
ásamt öðrum fjárfesti keypt 77,1
prósents hlut í f lugfélaginu Erni.
Þetta staðfesta þeir Hörður Guð
mundsson, eigandi Ernis, og Leifur
Hallgrímsson, eigandi Mýflugs.
„Það eru nokkrir fjárfestar sem við
vorum að selja hluta af fyrirtækinu
og Mýflug er einn af þeim. Með söl
unni er verið að styrkja félögin, bæði
til þess að ná samlægum áhrifum og
styrkja félögin til lengri tíma. Þetta
eru orðin gömul félög, Ernir er 53 ára
núna í vor og hefur verið leiðandi á
sínum markaði. Ég hef verið að reka
þetta sjálfur í tæplega 53 ár og fer að
undirbúa það að opna fyrirtækið
fyrir almennum hluthöfum. Það er
eiginlega ástæðan bak við söluna,“
segir Hörður.
„Við komum áfram að rekstri
félagsins og ég kem áfram til með
að stjórna hérna. Það var bara verið
að opna fyrirtækið fyrir fjárfestum
ef menn vilja koma og leggja pen
ingana sína í góð fyrirtæki,“ segir
Hörður, sem gerir ekki ráð fyrir
neinum stórkostlegum breytingum
á rekstrinum.
Hörður segir að f lugfélagið sé
rekið í plús og að salan hafi ekkert
með tap að gera.
Leifur Hallgrímsson, eigandi
Mýflugs, segir að með kaupunum
sé Mýflug að styrkja stöðu sína á
innanlandsmarkaði. „Ég held að það
sé búið að leita að fjárfestum í þetta
verkefni í tvö ár. Okkur var boðið
að koma að þessu núna fyrir ára
mót. Við skoðuðum þetta með fleiri
góðum aðilum og niðurstaðan var sú
að fara í þetta verkefni,“ segir Leifur.
„Við höfum talað fyrir því lengi,
að við, Ernir og Norðurland Air
ættum að sameinast með einhverj
um hætti. Þetta eru þrjú frekar lítil
félög og eru nú ekki mikils megnug
eða burðug en sameinuð geta þau
kannski gert eitthvað af viti,“ segir
Leifur. n
Flugfélagið Mýflug kaupir hlut í flugfélaginu Erni
Hörður Guðmundsson, eigandi
flugfélagsins Ernis.
6 Fréttir 3. janúar 2023 ÞRIÐJUDAGURFréttablaðið