Fréttablaðið - 03.01.2023, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 03.01.2023, Blaðsíða 12
Mér fannst ég ekki fá tækifærið sem ég átti skilið að fá. Það styrkti mig samt bara meira andlega. Kynningarfundur vegna vindorkugarðs innan Brekku í Hvalfjarðarsveit Zephyr Iceland áformar að reisa u.þ.b. 50 MW vindorkugarð innan Brekku í Hvalfjarðarsveit. Í janúar n.k. (2023) mun fyrirtækið halda opinn kynningarfund um verkefnið og eru íbúar og hagsmunaaðilar hvattir til að mæta og kynna sér framkvæmdina. Umsjón með mati á umhverfisáhrifum verkefnisins er í höndum EFLU. Á fundinum munu fulltrúar Zephyr Iceland og EFLU kynna framkvæmdina og helstu áherslur umhverfismatsins og svara spurningum fundargesta um verkefnið. Fundurinn fer fram mánudaginn 9. janúar í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit og hefst kl. 20. Landsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir hefur farið frá- bærlega af stað með stórliði Fiorentina á Ítalíu. Eftir erfiða dvöl hjá Frankfurt hefur ljós hennar skinið skært í Flórens. Árið 2022 var blendið hjá Alexöndru með landsliði og félagsliðum en lauk á frá- bæran hátt. helgifannar@frettabladid.is fótbolti Alexandra Jóhannsdóttir hefur verið á mála hjá ítalska stór- liðinu Fiorentina síðan í ágúst. Þaðan kom hún frá Frankfurt, þar sem hún hafði leikið í hálft annað ár. Þegar Fréttablaðið ræddi við Alexöndru var hún nýkomin aftur til Flórens eftir stutt jólafrí hér á landi. „Það var mjög gott að hitta vinina og fjölskylduna,“ segir þessi 22 ára gamli miðjumaður. Tímabilið hefur verið gott það sem af er. Fiorentina situr í þriðja sæti, f imm stigum frá toppliði Roma. Alexandra segir klára bæt- ingu á liðinu milli leiktíða. „Á sama tíma í fyrra vorum við í sjötta, sjöunda sæti. Við höfum samt verið að tapa á móti liðunum á toppnum svo við þurfum að gera betur þar. Mér fannst allt annað að sjá liðið í síðustu tveimur leikjun- um fyrir frí,“ segir Alexandra, sem skoraði einmitt sín fyrstu mörk fyrir Fiorentina í síðasta leik fyrir frí. Tvö mörk gegn Parma í 4-0 sigri. Að vakna úr dvala Fiorentina er stórt lið á Ítalíu en hefur verið í dvala undanfarin ár. Síðast varð liðið ítalskur meistari vorið 2017. „Tvö síðustu tímabil hafa verið skelfileg svo væntingarnar eru þær að gera betur. Markmiðið er sett á Meistaradeildarsæti og ég tel það raunhæft.“ Alexandra bendir á að ítalska deildin styrkist ár frá ári. Hún tekur sem dæmi árangur ítalskra liða í Meistaradeild Evrópu. Fyrir þetta tímabil var fækkað úr tólf liðum í tíu í deildinni. Spilaðar eru tvær umferðir og deildinni svo skipt upp í efri og neðri hluta að þeim loknum. „Svo að átta síðustu leikirnir á tímabilinu eru algjörir toppleikir. Maður fær það ekki í öðrum deild- um.“ Hvað frammistöðu hennar hjá Fiorentina varðar er Alexandra afar sátt. „Markmiðið var bara að komast í liðið og reyna að sanna mig. Manni er samt haldið á tánum. Ég veit að ef ég skít upp á bak er ég tekin úr liðinu. Þetta hefur verið framar björt- Gengið í Flórens framar björtustu vonum ustu vonum, að fá að byrja f lesta leiki og spila 90 mínútur.“ Karlarnir í fyrsta sæti Kvennaliði Fiorentina er sinnt betur en víða þekkist. Betur má þó ef duga skal og er það markmiðið. „Við fáum nýja aðstöðu á næsta ári sem er fyrir karla- og kvenna- liðið. Þar er gert ráð fyrir okkur. Eins og er erum við að nota aðstöðu karlaliðsins. Ef þeir þurfa eitthvað fá þeir það. Við erum alltaf númer tvö. Það verður mikill munur að fá nýtt æfingasvæði og vera með okkar svæði,“ segir Alexandra. „Við fáum nýjan leikvang sem verður okkar. Nú erum við að spila 40 mínútum frá borginni. Ég fæ ekki þessa heimavallartilfinningu þar. Það á eftir að breyta miklu að fá nýjan völl.“ Aðstaða kvennaliðs Fiorentina er mun betri en sú sem Alexandra fékk að kynnast hjá Frankfurt. „Kvennalið Frankfurt fær ekki einu sinni að æfa á svæði karlaliðs- ins. Þær eru settar í annað sætið og jafnvel þriðja. Getan þar er samt aðeins meiri en hér. Þær eru með 14-15 landsliðsmenn. En hvernig komið er fram við kvennaliðið er betra hjá Fiorentina.“ Upplifun Alexöndru hjá Frank- furt var ekki eins og sú hjá Fior- ent ina. Hún fékk fá tækifæri til að sanna sig. „Ég skildi að ég fengi ekki alla leiki því ég kom inn í janúar. En mér fannst ég ekki fá tækifærið sem ég átti skilið að fá. Það styrkti mig samt bara meira andlega.“ Næstum því ár hjá landsliðinu Alexandra fór á láni í sitt gamla félag hér heima, Breiðablik, í sumar. Það gerði hún til að fá leiki undir beltið fyrir Evrópumótið í Englandi með íslenska landsliðinu. „Ég var bara að hugsa um EM. Mig langaði að spila og vera í toppstandi fyrir Evrópumótið. Það skilaði sér ágætlega fyrir mig að ná að sanna mig í nokkrum leikjum og þess vegna opnaðist þessi gluggi. Ég sé alls ekki eftir því.“ Alexandra var ekki hrædd við að taka eitt skref aftur á bak til að komast í sitt besta stand fyrir EM. „Ég var bara að hugsa um sjálfa mig. Það var erfitt að spila ekki neitt og ætla svo að fara að sanna sig.“ Ísland gerði jafntef li í öllum leikjum sínum í riðlakeppni EM og komst ekki áfram. „Þetta var mikið næstum því ár. Að tapa ekki í riðlinum á EM en ekki komast áfram var mikill skellur. Það var líka sorglegt að komast ekki á HM. Þetta féll ekki með okkur í ár og átti ekki að ger- ast. Það er bara næsta ár, það er ekki hægt að spá meira í þessu.“ Sem fyrr segir er Fiorentina stað- sett í Flórens og þar er ekki leiðin- legt að búa. „Flórens er náttúrulega æði. Maður þarf bara að passa pasta-át og svoleiðis. Það er meiri sjarmi yfir þessari borg en öðrum. Maður er aðeins lengra frá fjölskyldunni en þau eru dugleg að koma. Þeim finnst það ekki leiðinlegt.“ n Alexandra Jóhannsdóttir í leik með Fiorentina. Þar hefur hún stimplað sig rækilega inn á sinni fyrstu leiktíð og er fastamaður í byrjunarliðinu. fréttablaðið/getty 12 Íþróttir 3. janúar 2023 ÞRIÐJUDAGURÍÞRóttIR Fréttablaðið 3. janúar 2023 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.