Fréttablaðið - 03.01.2023, Side 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Membrasin er frábær lausn fyrir þurra húð, hár, augu, nef og leggöng.
Til vinstri má sjá Sleep Aid melatónín-munnúðann sem fæst loksins á Íslandi. Til
hægri má sjá úrval freyðitöflulínunnar frá Trace Minerals.
Kjarni er öflugt bætiefnabox.
n Reynslusögur
Ég hef tekið „KONA 45+“-
bætiefnaboxið frá númer eitt
síðustu 3 mánuði og finn að
ég hef miklu meiri og jafnari
orku yfir daginn. Hárið mitt
hefur aldrei verið eins gott og
það tengi ég einungis við að
vítamínin eru að hafa áhrif.
Ég sef líka betur og þó svo ég
vakni að nóttu til þá sofna ég
strax aftur, það er alveg nýtt
fyrir mér. Mæli 100% með!
Íris Björk Jónsdóttir
Ég byrjaði að taka inn
„KJARNA“ fyrir sjö mánuðum.
Tók það inn í tvo mánuði
og ákvað þá að skipta yfir í
„ORKU“-boxið, en fann fljótt
að mig langaði að skipta aftur
yfir í „KJARNA“, hann einfald-
lega hentaði mér betur. Ég
á auðveldara með að vakna
á morgnana, er með jafnari
orku yfir daginn og þarf ekki
á orkudrykkjum að halda
eins og áður. Ég er líka ein-
beittari og finn mikinn mun á
meltingunni.
Jóhann Marel Viðarsson
númer eitt sem koma í hand-
hægum umbúðum sem er auðvelt
að kippa með sér hvert sem er.
Hver dagskammtur inniheldur
sérvalin næringarefni og jurtir sem
valin eru með samvirkni í huga.
„Mörgum þykir erfitt að feta sig
áfram í heimi bætiefna enda er
framboðið gríðarlegt og vörurnar
eins misjafnar og þær eru margar.
Stór hluti Íslendinga tekur inn
bætiefni og flestum er umhugað
um gæði þeirra. Gæði og virkni
fara hönd og hönd og við lögðum
strax ríka áherslu á að gæðin yrðu
ofar öllu. Þess vegna leituðum við
til virtra framleiðenda í Dan-
mörku sem vinna bætiefnin beint
úr fæðu og uppfylla alla nauðsyn-
lega gæðastaðla,“ greinir Íris frá.
Hún segir mörgum vaxa í augum
að finna hvaða bætiefni sé best að
taka.
„Einn stærsti kosturinn við
bætiefnaboxin frá númer eitt er
einfaldleikinn. Allt er í einum
pakka og flækjustigið því ekkert.
Maður velur einfaldlega pakkann
sem hentar manni hverju sinni og
tekur svo inn daglegan skammt,“
útskýrir Íris um bætiefnaboxin
sem heita Kjarni, Kyrrð, Orka,
Vörn, Kona 45+ og Karl 45+.
„Bætiefnaboxin frá númer eitt
eru einföld, þægileg og örugg
lausn. Þau eru framleidd á algjör-
lega náttúrulegan hátt og byggja
á þekkingu úr hefðbundnum
læknavísindum og á margra
alda reynslu af lækningarmætti
náttúrunnar. Áhersla er lögð á að
opna augu fólks fyrir mikilvægi
náttúrulegra bætiefna í plöntu- og
matvælaformi. Við erum sann-
færðar um að það sé formið sem
líkama okkar er eðlislægt að nýta
til að fá næringarefni. Þess vegna
líkjast bætiefnin mjög mikið mat-
vælum sem við neytum dagsdag-
lega,“ upplýsir Íris.
Vítamín, steinefni og jurtir
bætiefnanna frá númer eitt eru
unnin úr plöntum og án allra
ónauðsynlegra íðefna og aukefna.
„Þau eru mild, frásogast vel og
eru náttúruleg viðbót við daglegt
mataræði. Bætiefnin Karl 45+,
Vörn og Kyrrð eru vegan og öll
línan er glúten- og mjólkurlaus.
Þannig stuðlum við að bættri lýð-
heilsu almennings og spurning
dagsins ætti alltaf að vera: „Hvern-
ig líður mér í dag?“ Okkar svar við
því er ætíð það sama: „Láttu þér
líða sem allra best, alltaf!“,“ segir
Íris.
Membrasin við þurrki
Í þeim frosthörkum og fimbul-
kulda sem lagst hafa yfir Ísland að
undanförnu hafa margir fundið
fyrir þurrki í húð, hári, augum, nefi
og leggöngum.
„Allt er gjörsamlega að skrælna,
loftið er þurrt, náttúran er þurr
og við erum þurr,“ segir Díana
Íris. „Veðrinu stjórnum við ekki
en við getum hjálpað kroppnum
að tækla þennan leiðinda þurrk
með Membrasin sem inniheldur
góðar fitusýrur. Þær eru öflugar
þegar kemur að því að vinna gegn
þurrki og á síðustu árum hafa
niðurstöður rannsókna sýnt að
ómega 7-fitusýran hjálpar til við
þurrk en hún finnst meðal annars
í haf þyrnisolíu sem Membrasin
vörurnar innihalda.“
Membrasin vörurnar koma í
pörum sem vinna vel saman en
einnig hvor í sínu lagi.
„Membrasin Vision er sér-
hannað fyrir augu og fæst bæði
til inntöku og með augnúða.
Membrasin Vision-bætiefnið
inniheldur einstaka blöndu af
SBA24® haf þyrnisolíu sem er rík
af ómega 7, lúteini og zeaxantíni
til að vernda slímhúð augnanna,
sjónhimnu og tárafilmu. Hún
styrkir augnbotnana og verndar
gegn bláum geislum frá tölvu og
skjáum farsíma,“ upplýsir Díana
Íris og heldur áfram:
„Þess má geta að SBA24® haf-
þyrnisolía er sú olía sem mest
hefur verið rannsökuð á heims-
vísu. Samsetning, öryggi og verkun
hafa verið klínískt sannreynd.“
Vision-augnúðinn er vegan
og inniheldur hafþyrnisolíu og
hýalúrónat.
„Hafþyrnisolían styrkir fitulag
tárafilmunnar og ver augun
gegn þurrki. Hýalúrónat styður
við vatnsbindigetu tárvökvans,
smyr augun og kemur í veg fyrir
frumuskemmdir. Hún hentar
vel fyrir viðkvæm augu og engin
vara með hliðstæð innihaldsefni
er á markaði,“ útskýrir Díana
Íris um Membrasin vörurnar
sem eru framleiddar í Finnlandi
undir ströngustu gæðakröfum og
flokkaðar sem lækningatæki með
sannaða virkni.
Membrasin Moisture eru sér-
hannaðar vörur sem vinna gegn
þurrki í húð og slímhúð og saman-
standa af bætiefni til inntöku
og kremi til að nota í leggöng
og á kynfæri.
„Talið er að átta af hverjum
tíu konum upplifi legganga-
þurrk einhvern tímann á
ævinni. Bætiefnið er algjört
dúndur fyrir alla slímhúð og
húðina almennt og margir
taka það í vetrarþurrkinum.
Bætiefnið inniheldur ómega
3, 6, 7 og 9 fitusýrur og A- og
E-vítamín. Kremið er horm-
ónalaus meðferð sem hefur
góð áhrif á bakteríuflóru
legganga og er það allra
besta sem við getum gert
til að næra slímhúðina innan
frá. Kremið inniheldur hreina
hafþyrnisolíu, hýalúrónsýru
og mjólkursýrur til að viðhalda
réttu sýrustigi í leggöngum,“
greinir Díana Íris frá og nefnir að
nú í janúar bætist þriðja parið við
vörulínuna sem sérstaklega er
ætlað fyrir einstaklinga með mjög
viðkvæma, þurra húð og exem.
Hágæða freyðitöflur
Fyrirtækið f lytur inn hágæða
freyðitöflur frá Trace Mine-
rals sem eru vegan, glúten- og
sykurlausar, GMP-vottaðar og án
erfðabreyttra hráefna. Vöru-
línan samanstendur af fjórum
tegundum, það er magnesíum og
steinefnasöltum.
„Um 75 prósent einstaklinga
fá ekki nægilegt magnesíum úr
daglegri fæðu. Magnesíum fyrir-
finnst í mörgum fæðutegundum,
svo sem kjöti, fiski, brauði, pasta,
hrísgrjónum og mjólkurvörum,
en mataræði okkar hefur breyst
mikið frá því sem áður var,“ segir
Íris.
Magnesíum er nauðsynlegt
fyrir gott andlegt jafnvægi, sterk
bein og tennur, það bætir svefn,
hefur góð áhrif á hjarta- og æða-
kerfið, getur unnið gegn of háum
blóðþrýstingi, stuðlar að eðlilegri
slökun vöðva og vinnur gegn sina-
drætti og fótaóeirð.
„Magnesíum stuðlar að eðlilegri
vöðva- og taugastarfsemi og er
eitt af aðalefnunum sem þarf til
að byggja upp og styrkja bein.
Þá spilar það stóran sess í nær
300 lífefnafræðilegum ferlum
líkamans,“ upplýsir Íris.
Max-Hydrate Energy, Endur-
ance og Immunity innihalda
steinefni og sölt.
„Ef okkur skortir steinefni og
sölt getum við fundið fyrir ein-
kennum eins og orkuleysi, minn-
istruflunum, fótapirringi eða
þurrki í húð svo eitthvað sé nefnt.
Trace Minerals freyðitöflurnar
viðhalda eðlilegu jafnvægi vökva-
búskapar okkar; þær eru einstak-
lega góðar á bragðið og án allra
aukefna og sykurs,“ greinir Íris frá.
Melatónín loksins á Íslandi
Þær Íris og Díana Íris segja sanna
ánægju að kynna fyrir lands-
mönnum Sleep Aid-munnúðann
sem inniheldur 1 milligramm af
melatóníni og var nýlega leyft í
sölu á Íslandi.
„Sleep Aid er fyrir þá sem eiga
í vandræðum með að festa svefn,
vakna oft á nóttunni eða eru
með svefntruflanir. Góður svefn
er nauðsynlegur til að viðhalda
eðlilegri líkamsstarfsemi og góðri
heilsu. Ef við fáum ekki nægan
svefn getur það valdið vanlíðan
og aukið hættu á ýmsum kvillum,
sérstaklega ef um langvarandi
svefnleysi er að ræða,“ segir Díana
Íris.
Svefntruflanir geti verið af
ýmsum ástæðum, til dæmis af
völdum álags og sjúkdóma.
„Þá eru ákveðnir hópar í meiri
hættu á svefntruflunum en aðrir;
þau sem vinna vaktavinnu,
ferðast oft á milli landa, þjást af
kvíða, þunglyndi eða langvarandi
verkjum, og konur á breytinga-
skeiði,“ útskýrir Díana Íris.
Sleep Aid melatónín munnúð-
inn er bragðgóður og inniheldur
200 dagskammta. Hann er vegan,
laktósa- og glútenfrír, einfaldur og
þægilegur í notkun og aðeins fyrir
fullorðna.
„Melatónín styttir tímann sem
þarf til að sofna og gagnleg áhrif
koma fram þegar 1 milligramms
af Sleep Aid melatóníni er neytt
rétt fyrir svefn. Talið er að munn-
úði nýtist líkamanum allt að 50
prósent betur en hefðbundnar
töflur og hylki því innihald hans
frásogast beint í gegnum slímhúð
munnhols og út í blóðrásina,“
útskýrir Díana Íris. n
Vörurnar fást í flestum apó-
tekum, stórmörkuðum og heilsu-
vöruverslunum. Allar nánari
upplýsingar á numereitt.is.
Mæðgurnar Díana Íris og Íris setja sér alltaf ný og raunhæf heilsumarkmið um áramót. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fæðubótarefni ættu ekki að koma í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði og heilbrigðan lífsstíl. Geymist þar sem börn ná ekki til.
2 kynningarblað A L LT 3. janúar 2023 ÞRIÐJUDAGUR