Fréttablaðið - 03.01.2023, Qupperneq 26
Ellen B. spyr fleiri
spurninga heldur en
hún svarar og er merki-
legt skref í sögu Þjóð-
leikhússins.
Leikhús
Ellen B.
Verk eftir Marius von Mayenburg
Þjóðleikhúsið
Leikstjóri: Benedict Andrews
Leikarar: Ebba Katrín Finnsdóttir,
Unnur Ösp Stefánsdóttir og
Benedikt Erlingsson
Leikmynd og búningar: Nina
Wetzel
Lýsing: Björn Bergsteinn
Guðmundsson
Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson
Hljóðhönnun: Gísli Galdur
Þorgeirsson og Aron Þór
Arnarsson
Þýðandi: Bjarni Jónsson
Sigríður Jónsdóttir
Við ljúgum öll. En að hverjum?
Öðru fólki? Mökum okkar? Okkur
sjálfum? Hverjar eru ástæður lyga
og hverjar eru af leiðingarnar?
Hvenær verður hvít lygi hættuleg
haugalygi? Erfiðum spurningum
er varpað fram í jólasýningu Þjóð
leikhússins en svörum er erfitt að
henda reiður á. Ellen B. er fyrsti
hluti af nýjum þríleik eftir þýska
leikskáldið Marius von Mayenburg,
annar hluti verður frumsýndur í lok
janúar 2023 og sá þriðji næsta haust.
Ellen B. gerist á sama stað, í stof
unni, og á sama tíma, í rauntíma.
Átakakvöldstund á milli þriggja ein
staklinga sem allir hafa eitthvað að
fela. Þrátt fyrir afmarkaða umgjörð
snýst leikverkið um fortíðina og
framtíðina, orsök og mögulegar
af leiðingar. Hvað gerðist á milli
þeirra þriggja? Hver er gerandinn?
Hver er þolandinn? Marius von
Mayenburg er eitt athyglisverðasta
leikskáld Þýskalands um þessar
mundir og í Ellen B. tekst hann á við
stórar hugmyndir með stíl og form
að vopni. Valdbeiting, kynjamis
rétti, kynslóðabarátta og kynferð
isleg misnotkun. Ekkert er honum
óviðkomandi. En hver er Ellen B?
Skuggi hennar svífur yfir stofunni
á leiksviðinu ásamt Patriciu High
smith, höfundi sem sérhæfði sig
í sálfræðitryllingi, lygavefjum og
misgóðu fólki.
Tilfinningarússíbani
Leikritið gerist á heimili Astrid, sem
leikin er af Unni Ösp Stefánsdóttur.
Astrid er venjulegur kennari í venju
legum skóla sem þráir framgang í
sínu starfi og átakalaust heimilislíf
en verður miðpunktur átaka. Unnur
Ösp er upp á sitt besta í hlutverkinu.
Hún spígsporar um sviðið eins og
ljónynja í vörn, hörfar og klórar til
skiptis, og fyllir upp í þagnirnar
með stingandi augnaráði, stundum
sárbænandi en stundum skipandi.
Kveikurinn að kvöldstundinni er
koma Úlfs, skólastjóra skólans þar
sem Klara, sambýliskona Astridar,
stundaði nám og Astrid kennir.
Benedikt Erlingsson mætir eins og
eldibrandur, tilbúinn að kveikja í
tilvist kvennanna til að fá sitt fram.
Ekki er hægt að sjá að Benedikt hafi
ekki staðið á leiksviði í áratug. Hann
er skarpur, kómísku tímasetning
arnar hárfínar og tilfinninga rússí
bani Úlfs er eftirminnilegur.
Hvati fyrir aðra
Klara, leikin af Ebbu Katrínu Finns
dóttur, hefur ímugust á Úlfi og
margt að fela, líkt og hin tvö. En fyrir
hvern? Klara er fremur óskrifað blað
og þrátt fyrir sterkan leik á köflum,
sérstaklega undir lokin, þá er Ebba
Katrín fremur tilfinningalega f löt
í hlutverkinu sem endurspeglar
vankanta leikverksins. Klara fær
sjaldan rödd heldur er notuð sem
leppur fyrir átök Astridar og Úlfs,
viðhengi í lífi Astridar. Klara hefur
hefur lítið ákvörðunarvald og þar
af leiðandi fábrotna gerendahæfni
nema undir blálokin og óljóst er
hverju hún hefur að tapa. Hið sama
gildir með Ellen B. Þær eru aðallega
hvatinn fyrir þróun annarra frekar
en hvatakonur í eigin lífi.
Nina Wetzel hannar leikmynd
og búninga með naumhyggjuna að
leiðarljósi. Við horfum á persónur
verksins eins og í gegnum smásjá,
ofan í ræktunarskál þar sem sam
félagsleg vandamál samtímans
fjölfaldast fyrir framan augu áhorf
enda. Hljóðhönnunin og lýsingin
styðja þétt við þessa fagurfræði,
ofurbjart ljósið eins og gildra í
bland við endurtekinn takt sem
gæti verið hjartsláttur, skeiðklukka
eða sprengjuniðurtalning.
Mannlegur harmleikur
Eftir langa fjarveru er ástralski leik
stjórinn Benedict Andrews kominn
aftur til að leikstýra í Þjóðleikhús
inu, heimsviðburður líkt og leik
ritið. Í staðinn fyrir íburðarmikla
umgjörð og tæknibrellur fyrri
sýninga Andrews í Þjóðleikhúsinu
er allt strípað niður og eftir stendur
mannlegur harmleikur, barátta ein
staklinga sem hann stjórnar virki
lega vel. Hann hikar þó ekki við að
teygja á raunveruleikanum, vinna
gegn klassísku stofudramatíkinni
og minna áhorfendur á að þeir séu í
leikhúsi. Ákvörðun Andrews um að
færa leikinn inn í áhorfendasalinn
færir persónur leiksins undan smá
sjánni, líkt og þær eigi sér undan
komuleið. Slíkt dregur úr sprengi
krafti sýningarinnar þó að sumar
senurnar, þar á meðal þegar Klara
situr úti í sal, virki ágætlega.
Ellen B. spyr f leiri spurninga
heldur en hún svarar og er merki
legt skref í sögu Þjóðleikhússins,
vonandi merki komandi tíma. Hér
er á ferðinni eftirtektarvert leik
verk um átakafleti samtímans, bar
áttu kynslóðanna og persónulega
ábyrgð. Ellen B. er leiksýning til að
taka mark á og sjá þrátt fyrir van
kanta. Merkilegu leiksýningarnar
eru nefnilega ekki þær gallalausu,
ef þannig sýningar eru yfirhöfuð til,
heldur þær sem vekja áhorfandann
til umhugsunar. n
Niðurstaða: Kviksjá lyga
og mannlegs breyskleika sem
heldur áhorfendum á tánum allan
tímann.
Léttvín, lygamyllur og
langvarandi skaði
Unnur Ösp Stefánsdóttir, Ebba Katrín Finnsdóttir og Benedikt Erlingsson fara með hlutverk Astrid, Klöru og Úlfs í
leikritinu Ellen B. eftir Marius von Mayenburg sem frumsýnt var í Þjóðleikhúsinu annan í jólum. Mynd/Jorri
tsh@frettabladid.is
Glöggir vegfarendur hafa ef laust
rekið augun í það að á auglýsinga
skiltum víða um höfuðborgarsvæð
ið sjást nú ekki hefðbundnar auglýs
ingar frá fyrirtækjum og verslunum
heldur myndlistarverk. Um er að
ræða sýningu á verkum Sigurðar
Ámundasonar sem ber heitið Rétt
hermi en fyrirtækið Billboard, sem
rekur auglýsingaskjái á höfuðborg
arsvæðinu, stendur að verkefninu.
Sigurður segir verkið eiga rætur
í póststrúktúralisma, óræðni og
efa: „Merkingarlaus vörumerki sem
túlka ekkert en líta stórt á sig, bera
númer og íslenska stafi í handahófs
kenndri röð. Tákn sem tákna tákn,
sem snúast um sjálf sig, leiðarvísar
sem í raun leiða ekki neitt.“
Billboard efndi í haust til opinnar
samkeppni um myndlistarverk í
almenningsrými í samstarfi við Y
gallery og Listasafn Reykjavíkur
undir heitinu Auglýsingahlé. Sýn
ingin stendur yfir dagana 1. til 3.
janúar 2023 og verður sýnd á yfir
450 auglýsingaskjáum Billboard
um allt höfuðborgarsvæðið þannig
að reikna má með að rúm 80 pró
sent höfuðborgarbúa muni sjá verk
Sigurðar dag hvern.
„Það er alveg klikkað, ég er ekki
alveg búinn að fatta þetta og á
kannski ekkert eftir að fatta þetta
fyrr en þetta er búið,“ segir Sigurður
um það að sjá verkin sín svo víða.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Sigurður vinnur með merkingarlaus
vörumerki í list sinni en Rétthermi
er framhald seríu sem hann hefur
unnið að undanfarin ár og sýndi
meðal annars í Hafnarborg 2022.
„Ég fattaði að þetta smellpass
aði og væri góður kandídat í þetta
verkefni. Þannig að mér fannst bara
sniðugt að sækja um þetta og bjóst
ekkert endilega við að fá það,“ segir
Sigurður en verk hans voru valin úr
hópi yfir 40 umsækjenda.
„Ég er að leika mér með mjög
dramatískt og rómantískt mynd
efni, svolítið intense. Auglýsingar
eru það oft líka, eru með svona
undarlegar áherslur, heimurinn er
orðinn gífurlega fallegur af því þetta
húðkrem er komið á markað. Algjör
ýking,“ segir hann.
Sigurður tók þá ákvörðun fyrir
nokkrum árum að vinna verk sem
væru bara vörumerki.
„Ég er oft að vinna með manninn
og náttúruna og í staðinn fyrir að
teikna manninn sjálfan ákvað ég
að taka afurð mannsins, tilfinning
una og það sem er að gerast í sam
tímanum. Ég vil meina að þetta sé
ákveðið samtal við Edvard Munch
og Ópið,“ segir hann. n
Sýnir verk á hátt í fimm hundruð auglýsingaskjáum
Um þessar mundir sjást verk Sigurðar Ámundasonar á yfir 450 auglýsinga-
skjáum Billboard víðs vegar um höfuðborgarsvæðið. Mynd/Aðsend
Sigurður
Ámundason
tsh@frettabladid.is
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð
herra á vinsælustu bók síðasta árs
en bók hennar og Ragnars Jónas
sonar, Reykjavík glæpasaga, er efst
á lista yfir mest seldu bækur 2022 í
Pennanum Eymundsson.
„Mér finnst þetta voða gaman
og allt í kringum þessa bók hefur
verið mjög skemmtilegt, bæði að
skrifa hana en ekki síður, sem kom
mér ánægjulega á óvart, hvað fólk
tók henni vel. Margir hafa gefið sig
á tal við mig hér og þar með alls
konar skoðanir á bókinni og yfir
leitt jákvæðar. Það hefur bara verið
gaman en líka er fólk að upplýsa
alls konar kenningar og vanga
veltur,“ segir Katrín.
Spurð um hvort þetta gefi fyrir
heit um fleiri bækur segir Katrín
hlæjandi: „Nú liggur leiðin náttúr
lega bara niður á við, þannig að það
er erfitt að koma með framhald.“
Hún bætir þó við að hún útiloki
ekki hvað gerist síðar: „Það var
bara sér ákvörðun að gera þetta.
Ég ætla nú að taka mér hlé frá skrif
unum allavega um sinn en svo er
aldrei að vita hvað gerist seinna.“
Mest seldu bækur ársins 2022:
1. reykjavík glæpasaga
Ragnar Jónasson/Katrín Jakobs-
dóttir
2. Játning
Ólafur Jóhann Ólafsson
3. independent People
Halldór Laxness
4. Kyrrþey
Arnaldur Indriðason
5. sagas of the icelanders
Ýmsir höfundar
6. eden
Auður Ava Ólafsdóttir
7. iceland in a Bag
Ýmsir höfundar
8. Hamingja þessa heims
Sigríður Hagalín Björnsdóttir
9. Gættu þinna handa
Yrsa Sigurðardóttir
10. Keltar
Þorvaldur Friðriksson
Forsætisráðherra
efst á metsölulista
Ragnar og Katrín eiga mest seldu
bók ársins 2022. FrÉTTABLAðið/ernir
18 Menning 3. janúar 2023 ÞRIÐJUDAGURFréttabLaðiðmennInG FréttabLaðið 3. janúar 2023 ÞRIÐJUDAGUR