Hekla - 01.01.1940, Page 5

Hekla - 01.01.1940, Page 5
- 3 - Æfintýri úr eveitinni. Einusinni í fyrra sumar fórum eg og húsbóndi minn ad taka upp svörd vestur í Skrichihverfi, en þangad var um hálftíma ferd á hesti. Þegar vestur kom, fórum vid ad taka upp svörd- inn, en ödru hverju þurfti eg ad sækja hestana,því þeir vildu alltaf laumast hurt, þessvegna hafdi eg beizlin uppi í þeim. Þegar á daginn leid, kom til okkar drengur, Kristján ad nafni, og fór ad hjálpa okkur. Eitt sinn, er eg var ad gá ad hestunum, sá eg ad þrír raudir hestar voru komnir til okkar hesta. Kalladi eg nú í Stjána, og fórum vid ad reyna ad ná í hestana. Skjóna okkar var med járnhaft, og þegar hún sá okkur, prjónadi hún, og glamradi þá mjög í haftinu. Vid þad fældust hinir hestarnir, og tóku sprett vestur heidi og Skjóna á eftir. Vid eltum nú hestana, en brádlega voru þeir þó komnir í hvarf. Röktum vid spor þeirra vestur alla heidi, en þad gekk erfidlega. Eftir langa mædu fundum vid hestana í hvilft í heidarbrúninni. Ætladi eg ad taka Brún, eins og eg var vanur, en karl var nú ekki alveg á því, en samt nádi eg honum. Stjáni nádi Skjónu um sama leyti. Eg rakti svolítinn spotta úr beizli Skjónu og batt upp í Brún. Pórum vid nú ad reyna ad opna haftid á Skjónu, en þad gekk treglega, því vid kunnum ekki adferd- ina, en eftir langa mædu tókst mér ad smeygja ein- um kengnum úr, og þá var allt laust. Batt eg svo kedjumar saman og bætti þeim vid spottann, sem var uppi í Brún, var þetta hálf skrítid beizli en þó skárra en ekkert. Eórum vid nú á bak, eg á Brún, en Stjáni á Skjónu. Bar elck- ert sögulegt til tídinda á leidinni ad mógröfunum. En þegar þangad kom, var Laugi, sonur bóndans, kom- inn. Fór hann og Stjáni ofan í gröfina, en eg og bóndinn bárum frá og klufum. f næstu gröf var mikid vatn, og veggurinn á milli var ekki nema svo sem 50 sm. á þykkt. Allt í

x

Hekla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hekla
https://timarit.is/publication/1756

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.