Morgunblaðið - 27.08.2022, Page 2

Morgunblaðið - 27.08.2022, Page 2
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Prime Skipið er mjög stórt og tekur 3.250 farþega og 1.500 áhafnarmeðlimi skipið. Fyrir þremur árum varð hún yngsta manneskjan til að fara til allra fullvalda ríkja heims, eða 196 ríkja alls, aðeins 21 árs gömul. 300 metra langt skip Stjórnendur Norwegian Cruise Line völdu að gefa skipinu nafn hér í Reykjavík því aldrei hefur jafn stóru skipi verið gefið nafn hér. Skipið eru tæpir 300 metrar að lengd og tekur 3.250 farþega. Í áhöfn eru 1.500 manns. Því geta tæplega 5.000 manns verið um borð. Morgunblaðið/Eggert Eldborgarsalur tvísetinn vegna skipsins - Katy Perry kemur í Sundahöfn í dag - Bríet söng fyrir gesti í Hörpu í gær Bekkir Eldborgarsalarins í Hörpu í voru þétt setnir í tvígang í gærkvöldi þegar Norwegian Cruise Line fagn- aði nafngift skemmtiferðaskipsins Norwegian Prima. Alls voru 2.600 gestir boðaðir í Hörpu og því þurfti að halda veisluna tvívegis sama kvöld. Íslensk list var í fyrirrúmi á skemmtuninni en Íslenski dansflokk- urinn, Sinfóníuhljómsveit Íslands og söngkonan Bríet skemmtu gestum. Í dag mun svo bandaríska söngkonan Katy Perry koma fram við athöfn við Skarfabakka í Sundahöfn í Reykja- vík, en hún verður guðmóðir skipsins sem er eitt það stærsta í heiminum. Auk Perry tekur ferðaáhrifavald- urinn Lexie Alford, betur þekkt sem Lexie Limitless, þátt í því að vígja Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Utanríkisráðherrar Eystrasaltsríkj- anna og Íslands komu saman í Höfða í gær til þess að undirrita sameiginlega yfirlýsingu ríkjanna, en í gær voru liðin 31 ár frá því að utanríkisráðherr- ar Eystrasaltsríkjanna undirrituðu í Höfða yfirlýsingu ásamt Jóni Bald- vini Hannibalssyni, þáverandi utan- ríkisráðherra, um endurnýjun stjórn- málasambands við Ísland. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var gestgjafi á athöfninni í Höfða. Auk hans tóku þau Egils Levits, for- seti Lettlands, Gitanas Nausëda, for- seti Litháens, Alar Karis, forseti Eistlands og Þórdís Kolbrún Reyk- fjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra til máls. Þórdís Kolbrún undirritaði svo yfirlýsinguna ásamt þeim Edgars Rinkçviès, utanríkisráðherra Lett- lands, Urmas Reinsalu, utanríkisráð- herra Eistlands, og Gabrielius Landsbergis, utanríkisráðherra Lit- háens. Í yfirlýsingunni sem undirrituð var í gær áréttuðu ríkin fjögur einlægan samstarfsvilja sinn, auk þess sem ut- anríkisráðherrarnir fordæmdu harð- lega „tilefnislaust, óréttlætanlegt og ólöglegt stríð Rússa í Úkraínu,“ sem væri skýrt brot á alþjóðalögum og í trássi við stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna. „Grimmilegar árásir Rússa hafa haft skelfilegar afleiðingar í Úkraínu og hafa ekki aðeins valdið gríðarleg- um þjáningum óbreyttra borgara, heldur einnig alvarlegum langvar- andi afleiðingum í alþjóðastjórnmál- um, á efnahag og orsakað mannúðar- vanda um alla veröld,“ segir í yfirlýsingunni. Þá lögðu ráðherrarnir fjórir áherslu á staðfasta samstöðu sína með úkraínsku þjóðinni, sem og viðvarandi skuldbindingu sína um að veita Úkraínu frekari stuðning í við- námi sínu gegn árásum Rússa. Í yfirlýsingunni var einnig farið yf- ir ýmis önnur mál, þar sem ríkin vilja rækta sameiginlega vináttu sína og tengsl, og var þar nefnt sérstaklega aukið samstarf í varnar- og öryggis- málum, í efnahags- og þróunarmál- um, sem og í loftslagsmálum. Þórdís Kolbrún segir í samtali við Morgun- blaðið að það sé ástæða til að dást að þessum vinaþjóðum og rækta sam- bandið við þær. »16 Vilja rækta vináttu og tengsl ríkjanna - 31 ár liðið frá því að formlegt samband var endurnýjað Morgunblaðið/Eggert Viðhöfn Forsetar og utanríkisráðherrar ríkjanna fjögurra voru glaðir í bragði við undirritun sameiginlegu yfirlýsingarinnar í Höfða í gær. 2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022 www.kofaroghus.is - Sími 553 1545 TIL Á LAGER Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik STAPI - 14,98 fm Tilboðsverð 779.000kr. 25% afsláttur BREKKA34 - 9 fm Tilboðsverð 489.000kr. 25% afsláttur NAUST - 14,44 fm Tilboðsverð 539.000kr. 30% afsláttur VANTAR ÞIGPLÁSS? Afar einfalt er að reisa húsin okkar. Uppsetning tekur aðeins einn dag TILBOÐÁGARÐHÚSUM! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari veitti Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara formlega áminningu á fimmtudaginn vegna ummæla hans á samfélagsmiðlinum Facebook, sem m.a. vörðuðu hælisleitendur og samkynhneigða karlmenn. „Hér ber að undirstrika að vararíkissaksóknari er staðgengill ríkissaksóknara sem er æðsti handhafi ákæruvalds hér á landi. Vararíkissaksóknara ber því að vera öðrum ákærendum fyrirmynd í allri sinni framgöngu,“ segir í skriflegu svari ríkissaksóknara við fyrirspurn Morgunblaðsins. Áminningin er veitt á þeim lagalega grundvelli að háttsemi Helga utan starfs hans sem vararíkissaksóknari hafi verið ósæmileg og ósamrýmanleg starfi hans. Sú háttsemi hafi varpað rýrð á störf hans, á emb- ætti ríkissaksóknara og ákæruvaldið almennt. Ekki náðist í Helga Magnús við vinnslu fréttarinnar, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Vararíkissaksóknari formlega áminntur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.