Morgunblaðið - 27.08.2022, Síða 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022
Tíðni og umfang plastmengunar í
refum er minni en fundist hefur í
sjávarlífverum. Þetta sýna niður-
stöður rannsókna Birte Technau um
plast og annað rusl af mannavöldum
í refasaur á Íslandi. Rannsóknin er
sú fyrsta sinnar tegundar hérlendis
en fjallað er um hana á heimasíðu
Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Refur er eina upprunalega land-
spendýr Íslands og nýtir sjávarfang
sem fæðu. Talið var að tegundin gæti
verið hentug til að vakta stöðu plast-
mengunar í lífríki norðurslóða.
Markmið rannsóknarinnar var að
leggja mat á plastmengun í saur úr
íslenskum refum og bera saman um-
fang plastmengunar í sýnum frá
Hornströndum og af öðrum svæðum
á Íslandi. Sýnum var safnað á Horn-
ströndum árin 1999 og 2020, en einn-
ig á Norðaustur- og Suðurlandi árin
2017 og 2018.
Tíðni plastmengunar var svipuð í
öllum þremur samanburðarhópun-
um, en plast fannst í 12 sýnum af
238, eða 5,04%. Ekki var hægt að
greina svæðisbundinn mun á sýnum.
Fram kemur í niðurstöðum rann-
sóknarinnar að plast hafi fundist í
refasaur frá öllum árum sem skoðuð
voru, sem bendi til þess að plast-
mengun af mannavöldum á norður-
slóðum hafi verið til staðar í nokkra
áratugi.
Þegar skoðaður var massi plasts
annars vegar og rúmmál þess hins
vegar, reyndust sýnin sem tekin
voru á Hornströndum sumarið 2020
vera með hæstu gildin í báðum til-
fellum. Næsthæstu gildin voru í sýn-
um frá Norðvestur- og Suðurlandi.
Rannsóknin var hluti af meistara-
námi Technau í haf- og strandveiða-
stjórnun við Háskólasetur Vest-
fjarða og Háskólann á Akureyri.
Ester Rut Unnsteinsdóttir spen-
dýravistfræðingur hjá Náttúru-
fræðistofnun Íslands var annar leið-
beinandi verkefnisins.
Rannsókn var unnin af Náttúru-
fræðistofnun Íslands árið 2019 á því
hvort plast væri á meðal fæðuleifa í
maga íslenskra refa, þar sem plast
fannst í 4% refa. Ákveðið var að
fylgja þeim niðurstöðum eftir með
þessari rannsókn.
Leitað plasts í refasaur
í fyrsta sinn á Íslandi
- Plastmengun af mannavöldum til staðar í nokkra áratugi
Morgunblaðið/Þorgeir Baldurss
Refur Talið var að tegundin gæti verið hentug til að rannsaka plastmengun
Borgarráð samþykkti á fundi sínum
sl. fimmtudag að leigja hluta af hús-
næði Knattspyrnusambands Íslands
í Laugardal þar sem 80 nemendum í
6. bekk Laugarnesskóla verður
kennt fram eftir vetri. Leigugjaldið
er 2,3 milljónir króna, það er fyrir
húsnæði, búnað, ræstingu, rafmagn,
hita og fleira slíkt.
Góð lausn
Í bókun meirihlutans í borgarráði
segir að þetta sé góð lausn; enda sé
stutt milli Laugarnesskóla og knatt-
spyrnuhússins. Þá séu gönguleiðir
þarna á milli til fyrirmyndar. Reikn-
að er með að nemendur fari aftur
yfir í Laugarnesskóla í nóvember og
desemer, enda sé þá tilbúin sú að-
staða sem þar er nú verið að útbúa.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
bókuðu að leiga á húsnæði KSÍ fyrir
skólastarf staðfesti fyrirhyggjuleysi
borgaryfirvalda. Víða í húsum Laug-
arnesskóla sé mygla, stofur ónot-
hæfar og listgreinar sé einungis
hægt að kenna með mikilli útsjónar-
semi. Enn séu ekki komnar fram-
tíðarlausnir fyrir skólastarf í Laug-
arneshverfinu sem þó sé í miklum
vexti og fólki fjölgi. Mikilvægt er að
taka föstum tökum viðhald á skóla-
húsnæði og uppbyggingu innviða í
hverfum borgar. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Laugardalur Stúkuhús fótboltans fær nýtt hlutverk um stundarsakir.
Skólastarf í hús KSÍ
- Leigt er fyrir Laugarnesskóla
- 6. bekkur í húsinu fram á haustið
Framkvæmdir standa nú yfir á
Kjarvalsstöðum við Klambratún í
Reykjavík þar sem unnið er að
nýjum salernum, en þau verða
ókyngreind. Þannig verður um að
ræða alveg lokaða klefa sem ætl-
aðir eru til notkunar óháð kyni.
Framkvæmdir hófust í byrjun
ágústmánaðar og eru verklok
áætluð í lok október.
Við hönnun var áhersla lögð á
að nýju salernin myndu ríma við
þá hönnun sem fyrir er á Kjar-
valsstöðum til þess að halda í
gamlan anda byggingarinnar, að
sögn Ólafs Óskars Axelssonar
arkítekts.
Gámar með salernum hafa verið
settir fyrir utan Kjarvalsstaði til
bráðabirgða meðan á fram-
kvæmdum stendur.
Vinna við ný salerni á Kjarvalsstöðum hófst í byrjun ágústmánaðar og eru verklok áætluð í lok október
Salernin
verða
ókyngreind
Morgunblaðið/Árni Sæberg
TENERIFE
FRAMLENGDU SUMARIÐ!
31. ÁGÚ. - 07. SEPT.
FLUG OG GISTING
MARYLANZA SUITES 4*
VERÐ FRÁ75.900 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 110.900 Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
31. ÁGÚ. - 07. SEPT.
FLUG OG GISTING
OHASIS APART. 3*
VERÐ FRÁ66.500 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 91.900 Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA