Morgunblaðið - 27.08.2022, Síða 6

Morgunblaðið - 27.08.2022, Síða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ef tekið væri upp veggjald að nýju í Hvalfjarðargöngum gæti það fjár- magnað tvöföldun ganganna á tiltölu- lega skömmum tíma. Þannig er áætl- að að ef veggjald væri 1.000 krónur á ferð fyrir fólksbíl tæki það um 14 ár en 7 ár ef gjaldið væri 2.000 krónur. Vegagerðin vinnur að heildstæðri greiningu á jarðgangakostum á Ís- landi. Eru 23 jarðgangakostir til skoðunar, 18 á landsbyggðinni og fimm á höfuðborgarsvæðinu. Sem lið í þessari vinnu fékk Vega- gerðin Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri til að skoða umrædda átján jarðgangakosti á landsbyggð- inni, með tilliti til arðsemi, umferð- aröryggis og tengingar atvinnu- og búsetusvæða ásamt byggðaþróun. Tekið er fram að í skýrslunni er ekki tekin afstaða til þess hvað af þessum atriðum skuli vega þyngst eða hvert vægi einstakra þátta skuli vera, heldur er reynt að meta hlut- lægt hvern jarðgangakost fyrir sig út frá sambærilegri og viðurkenndri að- ferðafræði. Vegagerðin lítur svo á að greinargerðin geti verið grunnur fyr- ir umræðu um frekari forgangsröðun jarðgangakosta við gerð nýrrar sam- gönguáætlunar. Ný göng undir Hvalfjörð við hlið eldri ganga er einn þeirra jarðganga- kosta sem fjallað er um. Núverandi göng voru hönnuð fyrir tæplega 8 þúsund bíla umferð á dag að meðaltali yfir árið. Umferðin er alveg við það mark, ef hún hefur þá ekki þegar náð því. Hins vegar hefur Vegagerðin ekki ákveðið svar við því hvenær um- ferðin væri orðin það mikil að nauð- synlegt yrði að grafa önnur göng. Skýrsluhöfundar benda á að í núver- andi stöðlum er gerð krafa um að í nýjum göngum séu neyðarútgangar með 500 metra millibili, ef umferð er umfram 8 þúsund bíla. Tvöföld göng eru talin anna um 20 þúsund bíla um- ferð. Stofnkostnaður við ný göng, 7,5 km löng, er áætlaður rúmir 23 milljarðar króna, miðað við verðlag 2019. Vakin er athygli á því að þegar Sundabraut verður lögð aukist umferð um Hval- fjarðargöng og arðsemi ganganna þar með. Önnur göng undir Hvalfjörð yrðu gerð til að létta á allri umferð sem nú fer um veginn, hvert sem hún er að fara. Skýrsluhöfundar sjá fyrir sér verulega tekjumöguleika með gjald- töku. Umferðin er svo mikil að ef veggjald væri 2.000 krónur fyrir fólksbíl yrði veggjaldið líklega ekki nema 7 ár að greiða upp framkvæmd- ina. Ef gjaldið væri 1.000 krónur tæki það um 14 ár. Undir fjall og yfir fjörð Skýrsluhöfundar setja fram hug- myndir um aðra útfærslu á Hvalfjarð- argöngum. Göngin færu undir Hval- fjörð og áfram undir endann á Akrafjalli og yrði nyrðri munninn norðan við Akrafjall. Þessi göng yrðu tæpir 10 km að lengd en það er há- markslengd ganga sem heimilt er að ráðast í samkvæmt reglugerð. Áætlaður stofnkostnaður er rúmir 30 milljarðar á verðlagi ársins 2019. Hægt væri að greiða stofnkostnaðinn á 9-10 árum með 2.000 kr. veggjaldi. Skýrsluhöfundar varpa einnig fram hugmynd um að halda áfram yf- ir Grunnafjörð, sem er norðan Akra- fjalls, og stytta þannig leiðina meira. Grunnafjörður er hins vegar friðlýst fuglaverndarsvæði og þarf sérstakar ráðstafanir til að vegur þar yfir komi til greina. Fjórtán ár að greiða göng með gjaldi Morgunblaðið/Árni Sæberg Hvalfjarðargöng Gjaldtöku var hætt fyrir fjórum árum en mannvirkin eru til reiðu og hægt að hefja innheimtu á ný með skömmum fyrirvara. - Vegagerðin skoðar átján jarðgangakosti á landsbyggðinni - Lagt mat á arðsemi, umferðaröryggi og byggðaáhrif - Ný Hvalfjarðargöng nýtast vel - Hugmynd um að lengja göngin undir Akrafjall Mjög góð mæting var á fyrstu nýnemadaga Háskólans á Akureyri eftir kórónuveiru í vikunni og greinilegt að nýnemar vildu fyrir alla muni mæta í eigin per- sónu og taka þátt þrátt fyrir að nærri öll dagskráin hafi einnig verið í boði í streymi. Alls bárust 1.716 umsóknir um nám við Háskólann á Akureyri, áður en frestur rann út í upphafi sumars, heldur færri en árið á undan. Flestar umsóknir bárust um nám í hjúkrunarfræði, yfir 200 í allt, en 147 nem- ar eru innritaðir í námið á komandi vetri. Þá bárust 209 umsóknir um nám í lögreglufræði fyrir verðandi lögreglumenn. Tvöfalt fleiri fengu inn í það nám nú en í fyrra. Báðar námsleiðirnar eru fjöldatakmark- aðar; hluti nema kemst áfram eftir samkeppnispróf. Þannig munu aðeins 75 hjúkrunarfræðinemar komast áfram eftir áramót að loknum samkeppnisprófum. Nú stunda tæplega 2.500 stúdentar nám við Háskól- ann á Akureyri og er hann þriðji stærsti háskóli landsins á eftir Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir Hringt inn Kristný Katla Kröyer Gísladóttir, nýnemi í sjávarútvegsfræði fékk það hlutverk að hringja Íslandsklukk- unni 22 sinnum. Hefð er fyrir því að hringja klukkunni í upphafi skólaárs, en Íslandsklukkunni, sem er eftir Krist- inn E. Hrafnsson myndhöggvara, var fyrst hringt árið 2001. Katrín Árnadóttir, kynningarfulltrúi, fylgist með. Eftirvænting Nýnemar við Háskóla Akureyrar fylgdust með því þegar klukkunni var hringt í gær. Góð mæting á nýnemadaga Ísland situr í toppsæti lista evrópsku hagstofunnar Eurostat yfir frétta- lestur á lýðnetinu þegar litið er til aldurshópsins 16-74 ára árið 2021. Lásu 95 prósent Íslendinga í aldurs- hópnum þá fréttir á netinu en með- alhlutfall ríkja Evrópusambandsins var 72 prósent. Þegar litið er til aðildarríkja ESB voru það Finnar sem mest lásu af fréttaefni rafrænt í fyrra. 93 prósent þeirra gerðu það en strax í kjölfarið komu Litháen og Tékkland með 92 prósent hvort land. Einnig deildu Króatar og Grikkir sæti, hvorir með sín 90 prósentin í netfréttalestri. Minnst lásu Rúmenar á netinu, þar var hlutfallið aðeins 59 prósent, en Þjóðverjar og Frakkar voru skammt undan með 62 og 63 prósent, þá Ítalir og Belgar með 64 og 67 pró- sent. Netnotkun í ESB-ríkjum, óháð því hvort um fréttaefni er að ræða, var 89 prósent í fyrra. Um níu af tíu íbúum nýttu sér þá netið á einhvern hátt, til dægradvalar eða annars. Lestur frétta á netinu í Evrópulöndum Hlutfall þeirra sem nota netið til að lesa tímarita- og dagblaðafréttir,% Ís la nd N or eg ur Fi nn la nd Li th áe n Té kk la nd G rik kl an d Ký pu r U ng ve rja la nd D an m ör k Ei st la nd H ol la nd Ír la nd Sp án n Sv íþ jó ð Po rt úg al Pó lla nd Le tt la nd Sv is s E S B -m e ð a lt a l Au st ur rík i B el gí a Ty rk la nd Íta lía Fr ak kl an d Þý sk al an d Rú m en ía Al ba ní a 95 95 93 92 92 90 89 87 86 86 85 83 82 82 81 81 80 80 72 69 67 66 64 63 62 59 58 Heimild: Eurostat M orgunfréttir Ísland á toppnum í netfréttalestri - Finnar duglegastir innan ESB Þolreið Landssambands hesta- mannafélaga stendur nú yfir. Þetta er í fyrsta skipti sem formleg keppni fer fram í greininni, en síðastliðið sumar fór fram prufukeppni. Sex lið keppa í ár og samanstendur hvert lið af einum knapa, tveimur aðstoðar- mönnum og þremur íslenskum hrossum. Farnir eru tveir áfangar dag hvern, sem eru um 20 til 40 kíló- metra langir og er markmiðið að ljúka við ferðirnar á sem skemmst- um tíma, Knapar fara þannig um 70 kílómetra á hestbaki á dag, en hross- in skipta deginum með sér. Refsistig eru gefin ef áverka verður vart á hrossunum eða ef púls þeirra er mjög hár þegar komið er í mark. Þannig skiptir máli fyrir knapann að þekkja þreytumerki hrossins. Knöp- um er frjálst að fara af baki og teyma hrossið hvenær sem er, en þurfa þó að vera á baki þegar þeir koma í mark. Þykja þolreiðarnar góð land- kynning fyrir Ísland þar sem farið er um slóðir sem eru illfærar öðruvísi en á hestbaki. Að þessu sinni koma tveir keppendur frá Íslandi, tveir frá Bandaríkjunum, einn frá Svíþjóð og einn frá Hollandi. Í gær riðu þó ein- ungis fimm knapar af stað, þar sem eitt hrossið særðist á fæti. Sex ríða sjötíu kílómetra á dag - Refsistig fyrir áverka og háan púls

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.