Morgunblaðið - 27.08.2022, Side 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022
Fagfólk STOÐAR veitir nánari upplýsingar og ráðgjöf
Trönuhrauni 8 | s. 565 2885 | stod.is
K design
Léttu þér lífið með hágæða ítalskri hönnun
Sturtustóll með baki og örmum
Stöðugur og vandaður sturtustóll með
góða burðargetu. Hæðarstillanlegir fætur.
Verð: 22.890,-
Í samningi við
Sjúkratryggingar Íslands
Nettur sturtukollur
Hentar vel í litla sturtuklefa.
Hæðarstillanlegir fætur.
Verð: 9.890.-
Í samningi við
Sjúkratryggingar Íslands
Eftir langa leit fundu forystu-
menn meirihlutans í Reykjavík
götubút í borginni þar sem ekki er
enn orðið reglulegt umferðaröng-
þveiti. Þessi götubútur er á Háaleit-
isbrautinni þar sem hún mætir Bú-
staðavegi, nærri Borgarspítalanum.
Ákveðið hefur verið að bæta úr
þessu svo að ná megi fram sömu
óþægindum og íbúar hafa fengið að
kynnast á of þröngum götum ann-
ars staðar í borginni. Gatan, sem er
með tvær akreinar í báðar áttir,
verður þrengd þannig að hún rúmi
aðeins einn bíl í hvora átt enda má
með því tryggja að þar geti reglu-
lega skapast þrengsli og tafir sem
mikilvægar eru fyrir borgarbúa.
- - -
Í samtali við sjúkraflutningamenn
kemur fram að þetta séu þau
gatnamót sem sjúkrabílar fari oft-
ast yfir. Þetta þarf ekki að koma á
óvart, en sjúkraflutningar verða
auðvitað að víkja fyrir sterkum rök-
um þrengingarmanna. Athygli vek-
ur að sjúkraflutningamenn segjast
hafa lesið um þetta í fjölmiðlum og
ætla að setja sig í samband við
borgina vegna þessa. Einhvern tím-
ann hefði borgin líklega talið
ástæðu til að ræða slíkar breyt-
ingar við þá sem þurfa að aka neyð-
arakstur um gatnamótin oft á dag,
en þegar lífsnauðsynlegar þreng-
ingar eru annars vegar víkja slík
sjónarmið eðli máls samkvæmt.
- - -
Þegar lokið hefur verið við að
þrengja Háaleitisbrautina má
telja að allt sé fullþrengt í borginni.
Ef borgarbúar aka engu að síður
óvænt um götu sem virðist of rúm
er þeim bent á neyðarnúmer borg-
arinnar, 411-1111, þar sem hægt er
að koma með ábendingar um óþarf-
lega greiðar götur.
Neyðarástand
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Hátt í þrjú hundruð manns hlýddu á
Yrsu Sigurðardóttur rithöfund sem
fór með þrjár stuttar draugasögur á
meðan hópurinn gekk saman upp á
Úlfarsfell í gærkveldi. Þegar toppn-
um var náð greip tónlistarmaðurinn
Snorri Helgason gítar og kórónaði
stemmninguna með spili og söng. Við-
eigandi þótti að fá hann með í för þar
sem hann gaf nýlega út plötuna
Margt býr í þokunni. Gangan var á
vegum Borgarbókasafnsins í Úlfars-
ársdal og bar yfirskriftina: „Hroll-
vekja á Úlfarsfelli.“ Að lokinni göngu
lét hópurinn hrollinn líða úr sér í
Dalslaug.
Hreyfing og menning
Stella Sif Jónsdóttir var ein þeirra
sem skipulögðu viðburðinn. „Þessi
hugmynd kom upp á hugarflugsfundi
þar sem við ræddum hvernig við gæt-
um búið til skemmtilega tónlistar- og
menningarupplifun.“
Sögurnar sem Yrsa fór með á leið
upp fjallið voru sannar, að hennar
sögn, og gerðust á Íslandi. Þegar
komið var upp á topp sagði hún svo
eina erlenda.
Mætingin og stemmningin fór fram
úr vonum skipuleggjenda. Stella seg-
ir að leikurinn verði endurtekinn í
einhverju formi, enda ljóst að hreyf-
ing og menning fari vel saman.
Draugasögur og dulúð í fjallgöngu
- Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur
sagði að allar sögurnar væru sannar
Morgunblaðið/ Björn Jóhann Björnsson
Fjölmennt Göngugarpar voru á
þriðja hundrað að sögn viðstaddra.
Útgerðarfélagið Þórsberg ehf. á
Tálknafirði fékk á dögunum afhent-
an nýjan yfirbyggðan Cleopatra
40BB-beitningavélarbát frá Báta-
smiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.
Báturinn fékk nafnið Indriði Krist-
ins BA 751 og er hann kominn til
heimahafnar.
Báturinn er 12,5 metrar á lengd,
6,5 metra breiður og mælist 30
brúttótonn. Báturinn leysir af hólmi
eldri bát með sama nafni. Skipstjór-
ar á bátnum eru Magnús og Indriði
Guðjónssynir og framkvæmdastjóri
Þórsbergs er Guðjón Indriðason.
Aðalvél bátsins er af gerðinni
Doosan 4V158TI og er 600 hestafla.
Tvær ljósavélar eru í bátnum frá
sama framleiðanda. Andveltigeymir
er í bátnum.
Rými er fyrir allt að 54 460 lítra
kör í lest. Millidekk er lokað með að-
greindu dráttarrými. Báturinn er
útbúinn til lengri útiveru ef þarf.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Nýr bátur Indriði Kristins BA 751 siglir inn til hafnar á Tálknafirði.
Nýr Indriði Kristins
til Tálknafjarðar