Morgunblaðið - 27.08.2022, Side 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
„Staðan í leikskólamálum er góð á
Akureyri og við erum afskaplega
ánægð með það, segir Ásthildur
Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri.
Aðeins tvö börn fædd árið 2021 eða
fyrr eru á biðlista en vonir standa til
að þau fái leik-
skólapláss á allra
næstu dögum.
„Við búum sem
betur fer ekki við
skort á starfsfólki,
leikskólar í bæn-
um eru vel mann-
aðir og það vinnur
með okkur, sem
og að við tókum
nýjan leikskóla í
notkun í fyrra-
haust, Klappir, sem vissulega skiptir
máli, segir Ásthildur. „Þar hafa verið
innrituð 134 börn, og af þeim eru 15
fædd 2021 og 55 fædd 2020.“
Ásthildur segir að þau börn sem
hafi lent á biðlista eftir leikskóla-
plássi næsta vetur hafi flest verið ný-
flutt í bæinn eða um það bil að flytja
til Akureyrar og nú þegar hafi verið
leyst úr málum þeirra allra nema
þessara tveggja sem áður getur. All-
ar umsóknir sem bárust áður en
frestur til að sækja um rann út um
miðjan febrúar voru afgreiddar á til-
settum tíma og eins er búið að af-
greiða stærstan hluta þeirra um-
sókna sem bárust eftir að
umsóknarfrestur rann út.
Aðfluttir fleiri en brottfluttir
„Það er í rauninni ekki hægt að
segja að við hér á Akureyri eigum við
nokkurn vanda að etja í leikskólamál-
um, bara ofurlítinn lúxusvanda sem
felst í því að fleiri barnafjölskyldur
hafa flust til bæjarins en frá honum.
Venjulega helst þetta nokkurn veg-
inn í hendur en nú blasir við sú
ánægjulega staða að ungt fólk með
börn flytur í sívaxandi mæli til Akur-
eyrar enda er svo afskaplega gott að
búa hér. Samfélagið er allt að opnast,
litli bærinn að breytast í svæðisborg
með beinum samgöngum við útlönd,
góðum háskóla sem sækir stöðugt í
sig veðrið, góðri heilsugæslu og öllum
þeim innviðum sem fólk vill búa við
árið 2022,“ segir Ásthildur að lokum.
Góð staða í leikskólamálum á Akureyri
- Tvö börn á biðlista en fá örugglega pláss - Enginn skortur á starfsfólki og leikskólar í bænum eru
vel mannaðir, segir bæjarstjórinn - Fleiri barnafjölskyldur hafa flust til bæjarins en frá honum
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Nýr leikskóli Leikskólinn Klappir var tekinn í notkun í fyrrahaust. Þar eru 134 börn, þar af 15 fædd árið 2021 og 55 börn sem eru fædd árið 2020.
Ásthildur
Sturludóttir
ELDRI BORGARAR:
Aðventurferðir til
Kaupmannahafnar 2022
1. ferð: 20.-23. nóvember 2. ferð: 27.-30. nóvember
3. ferð: 4.-7. desember – fá sæti laus
Verð: 179.000 kr. á mann í tvíbýli.
Aukagjald v/gistingar í einbýli er 34.900 kr.
Innifalið eru flug með Icelandair, skattar, gisting,
m/morgunverði á Hotel Skt. Petri 5*, rútuferðir,
kvöldverðir og annað samkvæmt dagskrá.
Fagþegar fá vildarpunkta fyrir ferðina, einnig er
hægt að greiða hluta ferðar með punktum
! ! ! ! !
Niko ehf | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu
eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301,
einnig með tölvupósti í gegnum netfangið
hotel@hotelbokanir.is og á
www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is
Gist er á hinu glæsilega
Hotel Skt. Petri 5* sem
er staðsett í miðborg
Kaupmannahafnar.
Skemmtileg og fjölbreytt dagskrá
Sunnudagur: Flogið með Icelandair snemma morguns og lent í
Kaupmannahöfn á hádegi. Gisting á hinu glæsilega Hotel Skt. Petri
í miðborg Kaupmannahafnar. Um kvöldið er snæddur ekta danskur
matur á veitingastaðnum Karla sem er í göngufæri frá hótelinu.
Mánudagur: Skoðunarferð um gamla bæinn með Ástu Stefánsdóttur
leiðsögumanni sem gengur um slóðir Fjölnismanna og fræðir farþega
um sögu Kaupmannahafnar.
Þriðjudagur: Heimsókn í Jónshús, þar sem staðarhaldarinn Halla
Benediktsdóttir tekur á móti hópnum og fræðir um sögu hússins. Um
kvöldið er snæddur „Julefrokost“ í Tivoli á veitingastaðnum Grøften.
Eftir kvöldverðinn er hægt að skoða sig um í Tivoli sem hefur verið
breytt í „Juleland“ á Aðventunni.
Miðvikudagur: Sigling um síkin og Christianshavn meðan hljóm
sveit Michael Bøving og félaga leikur jazztónlist og vanalega ríkir mikil
stemning í þessum ferðum. Brottför frá hóteli á Kastrup flugvöll
síðdegis og flug til Íslands um kvöldið.
Fararstjóri: Sigurður K. Kolbeinsson