Morgunblaðið - 27.08.2022, Síða 14

Morgunblaðið - 27.08.2022, Síða 14
14 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022 Atvinnueign ehf kynnir í einka-leigu: 1.517,7 fm. verslunarhúsnæði við Fellsmúla 28 í Reykjavík. Húsnæðið er nýtt undir verslunog lager í dag. Eigninbýður uppámiklamöguleika til atvinnurekstrar er vel staðsett í miklu verslunarhverfimiðsvæðis í Reykjavík. Gott aðgengi er að húsnæðinu og næg bílastæði. VSK leggst ekki við leigufjárhæð. Laust frá 1. mars 2023. Frekari upplýsingar veitir: Halldór Már löggiltur fasteignasali í síma 898 5599 og netfang: halldor@atvinnueign.is Síðumúli 13 108 Reykjavík S. 577 5500 atvinnueign.is Fasteignamiðlun FELLSMÚLI 28, 108 REYKJAVÍK Halldór Már Sverrisson Viðskiptafræðingur Löggiltur fasteignasali Löggiltur leigumiðlari 898 5599 halldor@atvinnueign.is Fellsmúli 28, 108 Reykjavík Atvinnu - og verslunarhúsnæði Skannaðu kóðann og skoðaðu eignina Karlotta Líf Sumarliðadóttir karlottalif@mbl.is Nýtt íslenskt sendiráð verður opn- að í Freetown, höfuðborg Síerra Leóne í Vestur-Afríku, en verkefni þess verða fyrst og fremst á sviði tvíhliða þróunarsamvinnu. Vonir standa til að það verði formlega opnað öðru hvoru megin við næstu áramót. Þessi ákvörðun er ekki ný af nálinni heldur á hún sér nokk- urn aðdraganda. Tafir hafa þó orð- ið á framkvæmdinni, meðal annars vegna heimsfaraldurs. Ekki verður skipaður nýr sendi- herra við sendiráðið heldur verður það undir stjórn útsends forstöðu- manns. Auk hans er gert ráð fyrir að annar útsendur starfsmaður verði þar við störf. Í tengslum við þessa ráðstöfun stendur ekki til að loka öðrum sendiráðum. Síerra Leóne nýverið bæst í hópinn „Tvíhliða þróunarsamvinna er lykilþáttur í þróunarsamvinnu Ís- lands en meginmarkmið hennar er að bæta lífsviðurværi fátæks fólks á grundvelli jafnréttis, mannrétt- inda og sjálfbærrar þróunar, í takt við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Megináhersla hefur ver- ið á þróunarverkefni þar sem unn- ið er í nánu samstarfi við héraðs- stjórnir að uppbyggingu innviða sem styðja við lífskjör og framþró- un,“ segir í svari frá utanríkis- ráðuneytinu. Undanfarin ár hafa Malaví og Úganda verið sam- starfslönd Íslands í tvíhliða þróun- arsamvinnu og nýverið bættist Síerra Leóne við. Þar er þegar unnið að ýmsum verkefnum á grundvelli samstarfssamnings við stjórnvöld í landinu og alþjóða- stofnanir. Verkefnið bætt lífsgæði þúsunda kvenna Nefna má verkefni á sviði mæðraverndar sem miðast að því að útrýma svonefndum fæðingarf- istli og er unnið í samvinnu við landsskrifstofu UNFPA. Hefur verkefnið haft afgerandi áhrif á að bæta lífsgæði þúsunda kvenna, sem annars áttu í hættu á að verða útskúfað úr samfélaginu. Ísland hefur einnig stutt vatns- og hrein- lætisverkefni í fiskiþorpum í sam- vinnu við UNICEF sem snúa að bættum lífskjörum íbúa og bættri meðferð sjávarfangs. Þá má nefna undirbúning að samstarfsverkefni með sjávarútvegsráðuneyti Síerra Leóne á sviði fiskimála og bláa hagkerfisins sem unnið er með að- komu íslenskra fiskisérfræðinga. Rétt eins og sendiráð Íslands í Malaví og Úganda mun fyrirhugað sendiráð í Síerra Leóne hafa um- sjón með samstarfinu við þarlend yfirvöld og alþjóðastofnanir sem starfa í landinu. Sendiráðið vinnur í náinni samvinnu við alþjóða- og þróunarsamvinnuskrifstofu utan- ríkisráðuneytisins sem sinnir und- irbúningi og eftirliti með verk- efnum. Opna nýtt sendiráð í Síerra Leóne - Á sviði tvíhliða þróunarsamvinnu - Nýr sendiherra verður ekki skipaður AFP Freetown Þegar er unnið að ýmsum verkefnum í Síerra Leóne, en nefna má verkefni á sviði mæðraverndar og vatns- og hreinlætisverkefni sem dæmi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.