Morgunblaðið - 27.08.2022, Side 18

Morgunblaðið - 27.08.2022, Side 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Framfarir í flugi eru miklar og við lifum á spennandi tímum,“ segir Hjörleifur Jóhannesson flugstjóri hjá Icelandair. „Sjaldan kemur eitthvað sem talist getur bylting í vélum eða tækni. Fremur er þetta stöðug fram- vinda og vissulega er starf flugmanna allt öðruvísi nú en áður. Leiðsögu- tækni er sífellt betri og fullkomnari og í dag er áhersluatriði að draga úr eldneytisnotkun á flugi. Rafknúnar flugvélar eru mögulega framtíðin. Eftir tuttugu ár eða svo gæti ég trúað að slíkar verði komnar og hugsanlega ráðandi í innanlandsflugi okkar Ís- lendinga.“ Algjörir trukkar Hjörleifur Jóhannesson, sem er fæddur árið 1961, er reynslubolti í fluginu, sem allt síðan í æsku hefur verið hans hálfa líf. Faðir hans, Jó- hannes R. Snorrason, var einn af frumkvöðlum flugs á Íslandi, hand- hafi flugskírteinis nr. 5 og goðsögn í lifandi lífi. Þetta umhverfi átti sinn þátt í því að Hjörleifur lagði flugið fyrir sig og byrjaði hjá Flugleiðum árið 1987 í innanlandsfluginu á Fokk- er F-27. Er í dag flugstjóri hjá Ice- landair á Boeing 757, það er týpunum 200 og 300. Er einnig á breiðþotunum Boeing 767–300, en í dag eru fjórar og bráðum fimm slíkar í flotanum. Slíkar taka alls 262 farþega, hafa stórt fraktrými og eru aukinheldur mjög langdrægar. „Boeing 767-300 eru ótrúlegar flugvélar; algjörir trukkar,“ segir Hjörleifur og brosir. Flugið er honum sýnilega sönn ástríða. Blaðamaður settist niður með Hjörleifi og sam- talið fór á flug. Alltaf hægt að lenda Sjómenn hafa greint frá því, meðal annars í samtölum hér í Morgun- blaðinu, að öfgar í veðráttu hafi sjald- an verið meiri en á síðastliðnum ár- um. Í ferðum fraktskipta yfir Norður-Atlantshafið sé þungur sjór og háar öldur sem gerir siglingar oft vandasamar. Hjörleifur segir að í 30.000 til 40.000 fetum, sem er algeng hæð í millilandsflugi, að séu veðr- áttan önnur en á jörðu niðri. Menn finni því ekki svo mjög fyrir sveiflum sem að framan er lýst. Hins vegar komi oftar nú en áður stormar á Keflavíkurflugvelli svo bíða þurfi klukkustundum saman áður en hægt sé að leggja vélum að landgöngubrú. „Flugvélum er ekki hægt að leggja að rönum eða stigum fari vindstyrkur yfir 25 metra á sekúndu. Síðustu árin hefur hins vegar stundum hent að vindur fer í meira en 40 metra. Þá er ekkert annað að gera en bíða uns lægir, jafnvel í einhverjar klukku- stundir. Þó er nánast alltaf hægt að lenda í Keflavík, óháð vindstyrk, séu bremsuskilyrði á flugbrautum í lagi,“ segir Hjörleifur. Í fluginu segir hann menn finna lítið fyrir lofslagsbreyt- ingum því vélarnar eru aldrei svo þungar, til dæmis í flugi út frá Evr- ópu, að hitastig takmarki afkastagetu hreyfla. Við Vötnin miklu „Auðvitað er 40 gráðu hiti í Þýska- landi – eins kom fyrir nokkru og var langvarandi – nokkuð sem getur haft áhrif. Dregið getur úr afkastagetu hreyfla á þann hátt að vélar skynja sig í meiri hæð en raunin er. Samt höfum við ekki lent í neinu slíku,“ segir Hjörleifur og heldur áfram: „Oft eru krappir vindar yfir Græn- landi og veðráttan þar síbreytileg. Og þrátt fyrir að hafa flogið þarna yfir óteljandi sinnum sér maður alltaf eitthvað nýtt. Í flugi til og frá Banda- ríkjunum, það er til miðríkjanna og á vesturströndina, er farið þvert yfir jökulinn sem breytist sífellt. Þegar er komið er inn yfir Kanada er flogið svo klukkustundum skiptir yfir óbyggðir. Í Bandaríkjunum er svo farið sunnan við Vötnin miklu og hinar víðfeðmu sléttur þar; Great Planes. Sé flogið til Denver má svo alltaf reikna með þrumuveðri í nágrenni Kletta- fjallanna.“ Tölvan velur bestu leiðina Á norðurhveli jarðar eru vestlægir vindar ráðandi. Flug frá Bandaríkj- unum til Íslands tekur því yfirleitt skemmri tíma en þegar flogið er vest- ur um haf. „Hér gildir eins og með annað í tilverunni að mikilvægt er að nýta sér alltaf meðvindinn,“ nefnir Hjörleifur og segir að í fluginu haldist umhverfissjónarmið, eldneytissparn- aður og tækniþróun jafnan í hendur. „Jafnan séu valdar stystu flugleið- irnar eða flogið í þeirra hæð að eyðsla verði sem minnst. Þarna mun- ar um tölvur sem komu í þotur Ice- landair fyrir nokkrum árum og taka á móti rafrænum vindaspám. Hug- búnaður tækjanna ber þá saman þyngd vélar og afl við líklega vindátt og -stefnu, mótstöðu í lofti, loftþrýst- ing og fleira slíkt. Með þessu er besta leið og hæð valin – og hver einasta ferð og leggur rýnd eftir á til að læra af.“ Mikilvægt að nýta meðvindinn - Framfarir í flugi og þróunin er áhugaverð - Vestanvindar ráðandi á norðurhveli - Umhverfi, eldneytissparnaður og tækni - Rafvélar hugsanlegar í innanlandsflugi - Hjörleifur á flugi í áratugi Ljósmynd/Guðni Agnar Kristinsson Flugstjóri Þrátt fyrir að hafa flogið þarna yfir óteljandi sinnum sér maður alltaf eitthvað nýtt, segir Hjörleifur. Hér er hann í flugstjórnarklefanum á breiðþotu af gerðinni Boeing 767–300 og segir hana ótrúlega flugvél. Ljósmynd/Hörður Sveinsson Icelandair Stél á þotunum sem á síðustu mánuðum hafa hver af annari fengið nýtt útlit samkvæmt stefnu- og áherslubreytingum hjá flugfélaginu. Vegna eldgosa á Reykjanesskaga hefur Icelandair gefið fyrirætlanir um gerð flugvallar í Hvassahrauni frá sér. Eftir stendur þá að milli- landaflugið þarf varavöll sem nú er í Reykjavík. Þann völl vilja margir úr notkun og þá eru Egilsstaðir og Akureyri til vara. Eru þó helst til of langt frá SV-horninu svo aðra kosti þarf að skoða. „Faðir minn talaði oft fyrir því, meðal annars í bókum sínum Skrif- að í skýin, að útbúinn yrði flug- völlur á Álftanesi við Bessastaði. Auðvitað hefði slíkt verið frábært, nema hvað nú er komin byggð á því svæði og viðhorfin hafa breyst. Því tel ég best að Reykjavíkurflug- völlur fái að halda sér, en útbúa svo öruggan varavöll á Sauðárkróki. Þar er fyrir löng flugbraut, sem þarf að styrkja, útbúa flughlöð, byggja turn og flugstöð, koma upp slökkviliði, tollafgreiðslu og fleiru,“ segir Hjörleifur og að síðustu: „Í Skagafirði, frá Sauðárkróki og fram til dala, er yfirleitt snjólétt og skilyrði að því leyti góð. Yfirleitt er veðráttan nyrðra öndvert við það sem er hér fyrir sunnan sem er kostur. Þá eru fjöll fjarri að- flugslínu að Sauðárkróki, sem ég mæli eindregið með eigi að skoða varaflugvallarmál af alvöru.“ Skagafjörður Flugbrautin á Sauðárkróki er löng og aðflugsstefnur fjarri fjöllum. Flugstöðin er lítið notuð og kannski þarf að reisa stærra hús. Sauðárkrókur góð- ur fyrir varaflugvöll

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.