Morgunblaðið - 27.08.2022, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.08.2022, Blaðsíða 24
með að í haust fækki fé um 6-10% yfir landið í heild en það komi þó ekki endanlega í ljós fyrr en við lok slátur- tíðar. Þetta bætist við um 20% fækk- un sem verið hafi síðustu ár. Meira þarf til að koma Ágúst er svartsýnn á framtíð sauðfjárræktarinnar, miðað við nú- verandi rekstarskilyrði. Hún sé á undanhaldi og erfitt að snúa þróun- inni við. Það sama eigi við um nauta- kjötsframleiðslu. Þetta sé þungur rekstur fyrir þá sem hann stunda. Ágúst segir að vissulega hafi aðgerðir spretthópsins sem lagði til aukinn stuðning við sauðfjárræktina hjálpað. Það sé hins vegar bráðaaðgerð. Meira þurfi til að koma frá ríkinu til þess að reksturinn sé raunhæfur. Vonast hann til að tíminn verði not- aður til að hugsa til framtíðar. Stórhækkun afurðaverðs til bænda skiptir einnig máli en þar reið Sláturfélag Vopnfirðinga á vaðið. Skúli segir að 20% verðhækkun eins og var í spilunum hefði alls ekki náð að halda í við verðlagsþróun og hækkun aðfanga, hvað þá að vinna upp slakann. Ljóst er að lambakjöt muni hækka út úr búð vegna hækk- unar verðskrár til bænda en óvissa er um áhrif þess á innlenda markaðinn. Skúli segir að það kæmi sér ekki á óvart þótt 10-20% samdráttur verði í sölu á nýju söluári. Þess má geta að birgðir kindakjöts eru óvenju litlar nú við upphaf sláturtíðar. Fyrstu réttir og slát- urtíð er að hefjast Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Grýtubakkahreppur Troðningur manna og fjár var í almenningnum í Gljúfurárrétt. Bændur eru misjafnlega fjármargir eins og sést í dilkunum. Nokkrar réttir Heimild: Bænda- blaðið ÁGÚST 2022 27. Kálfafellsdalsrétt, Suðursveit 27.-28. Brunnvallarétt, Suðursveit 28. Kálfafellsrétt, Suðursveit SEPTEMBER 2022 3. Hrútatungurétt, Hrútafirði 3. Miðfjarðarrétt, Miðfirði 3. Möðruvallarétt, Eyjafjarðarsveit 3. Mýrarrétt, Bárðardal 4. Þverárrétt ytri, Eyjafjarðarsveit 4. Baldursheimsrétt, Mývatnssveit 4. HlíðarréttMývatnssveit 4. Tungurétt, Öxarfirði 7. Oddsstaðarétt, Lundarreykjadal 9. Hrunaréttir, Hrunamannahreppi 9. Skaftholtsréttir, Gnúpverjahr. 10. Reykjaréttir, Skeiðum 10. Tungnaréttir, Biskupstungum 12. Þverárrétt, Þverárhlíð 12. Svignaskarðsrétt, Borgarhreppi 12. Hítardalsrétt, Hítardal 17. Fossvallarétt, Lækjarbotnum 17. Melarétt, Fljótsdal 18. Ölfusrétt, Ölfusi 18. Þórkötlustaðarétt, Grindavík Stóðréttir: 18. Skrapatungurétt, Laxárdal 24. Laufskálarétt, Hjaltadal BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is F yrstu fjárréttir haustsins verða um helgina, í Suður- sveit. Fyrsta stóra rétta- helgin er þó eftir viku. Sláturtíð er að hefjast. Slátrun hefst á Hvammstanga á mánudag og á Húsa- vík um miðja viku en hin stóru slátur- hús landsins hefja ekki slátrun fyrr en eftir rúma viku. Sláturhússtjórar sem rætt er við hafa ágæta tilfinningu fyrir komandi sláturtíð. Þokkalega hefur gengið að manna sláturhúsin en það er þó eitt- hvað misjafnt á milli húsa. Það er mikið gert með erlendu vinnuafli, ekki síst frá Póllandi. Ágúst Andrés- son, forstöðumaður kjötafurðastöðv- ar KS sem rekur sláturhús á Sauðár- króki og á aðild að sláturhúsi SKVH á Hvammstanga, segir að aðeins vanti upp á starfsfólk til þess að hann sé al- veg sáttur. Þarf að ráða 140 menn í sláturhúsið á Sauðárkróki og um 100 á Hvammstanga. Nokkur sláturhús eru að taka í notkun nýja tækni við fláningu, eins tæki sem sett voru upp í sláturhúsi SS á Selfossi á síðasta ári. Tækið dregur gæruna af bógi og hálsi, niður síðu og bak. Síðan tekur annað tæki við sem grípur gæruna og dregur hana niður af lærinu. Ágúst segir að með þessu þurfi færri hendur við fláningu og störfin léttist. Gerir hann ráð fyrir að hægt sé að fækka um 4-5 starfsmenn í hverju sláturhúsi. Bændur fækka fé Síðastliðið vor og vetur var talið að vegna lélegrar afkomu sauðfjár- ræktarinnar og hækkunar aðfanga myndu margir sauðfjárbændur hætta í haust og aðrir fækka fé. Margir virðast hafa breytt um skoðun vegna stórhækkunar afurðaverðs til bænda og aukins stuðnings ríkisins. Ágúst segir að vissulega séu dæmi um að bændur ætli að hætta í haust en það sé yfirleitt af óviðráðanlegum ytri or- sökum. Hann verður meira var við að menn ætli að fækka fé. Skúli Þórðarson, framkvæmda- stjóri Sláturfélags Vopnfirðinga, seg- ist vita um þrjá sauðfjárbændur sem verið hafi í viðskiptum við félagið og ætli að hætta í haust. Við það fækki um tvö þúsund fjár sem sé 7-8% af slátrun á Vopnafirði. Reiknar hann 24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það er auð- velt að gagnrýna valdaminni ríki heims fyrir mann- réttindabrot en þegar stórveldi eiga í hlut reynist það oft erfiðara. Rúmt ár er síðan Michelle Bachelet, mannréttinda- fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, sagði að nauðsynlegt væri að gera úttekt á meðferð Kín- verja á Úígúrum í Xinjiang- héraði í Kína. Síðan hefur ítrekað verið gengið á eftir skýrslunni, sem Bachelet boðaði. Hún hættir störfum sem mannréttindafulltrúi um mánaðamótin en ekkert bólar á skýrslunni enn. Kínverjar eru sakaðir um að hafa svipt rúmlega milljón manns úr röðum Úígúra og annarra múslímskra minni- hlutahópa í Kína frelsi og sett í fangabúðir. Lýsingar á vist- inni í þessum búðum eru ekki fagrar. Þeir sem ekki hafna í fangabúðum eru undir mikl- um þrýstingi og stöðugu eft- irliti. Konum eru boðin ýmis forréttindi, gangi þær að eiga Han-Kínverja, en eiga yfir höfði sér að fá ekki framgang í starfi og aðra mismunun giftist þær öðrum Úígúrum. Komið hafa fram ásakanir um ófrjósemisaðgerðir án sam- þykkis. Kínversk stjórnvöld eru einnig sökuð um að eyðileggja trúarlegar og menningar- legar minjar Úígúra. Markmið Kínverja virðist vera að þurrka út menningu Úígúra og hafa sumir gengið svo langt að nota orðið þjóð- armorð. Sameinuðu þjóðirnar þurfa vitaskuld að sannreyna þess- ar ofsóknir á hendur Úíg- úrum. Það ætti ekki að vera erfitt. Mikið hefur verið skrif- að um þjáningar Úígúra og ófá vitni hafa komið fram, sem erfitt er að véfengja. Kínverjar bregðast hins vegar öndverðir við í hvert skipti sem minnst er á hlut- skipti Úígúra. Þeir halda því fram að kennsla fari fram í búðunum og hlutverk þeirra sé að kveða niður öfgar og hryðjuverk. Um leið segja þeir að ásakanirnar séu ekk- ert annað en samsæri Banda- ríkjamanna og annarra vest- rænna ríkja um að sverta Kína og halda Kínverjum niðri. Bachelet segist vera undir stöðugum þrýstingi um að koma skýrslunni frá sér. Hún hafi einnig fengið bréf, sem fulltrúar nokkurra tuga ríkja hafi und- irritað, með áskorun um að birta skýrsluna ekki. Í vikunni skýrði Bachelet töfina á birtingu með því að hún þyrfti að hafa nið- urstöður úr ferð sinni til Kína með viðkomu í Xinjiang með í skýrslunni. Hún fór til Kína í maí og dvaldi þar í sex daga. Var henni legið á hálsi fyrir að leyfa kínverskum stjórn- völdum að sviðsetja heim- sóknina og sýna henni aðeins það sem þeim hentaði. Sameinuðu þjóðirnar hafa oft verið misnotaðar í mann- réttindamálum og stundum hefur ríkjum, sem fótum troða mannréttindi, tekist að komast í stöðu til að benda á aðra, sem síst eru verri. Ályktanir allsherjarþingsins bera því vitni að ekki er sama hver á í hlut. Ekki hefur verið ályktað jafnoft gegn neinu ríki en Ísrael á meðan ein- ræðisherrar og gerræðis- stjórnir annarra ríkja eru mun sjaldnar teknar fyrir og jafnvel látnar óáreittar. Það er ekkert grín að áreita Kínverja. Að því komust Norðmenn þegar þeir veittu andófsmanninum Liu Xiaobo friðarverðlaun Nóbels árið 2010. Kínverjar settu Norð- menn í frystikistuna og tók sex ár að koma samskiptum ríkjanna aftur í sama horf og fyrir veitinguna. Ekki hefur skrápur Kín- verja harðnað síðan. Hins vegar hefur aukin harka færst í stjórnarfarið og þegar gripið er til aðgerða virðast réttindi almennings aftarlega í forgangsröðinni. Það hefur til dæmis sýnt sig í því hvern- ig heilu byggðarlögin hafa verið sett í lás til að stöðva kórónuveiruna. Ljóst er að Bachelet setti sig í eldlínuna þegar hún lýsti yfir því að taka þyrfti út að- gerðir Kínverja gegn Úíg- úrum því að hún mátti vita að kínversk stjórnvöld myndu aldrei taka slíkri skýrslu þegjandi. Brotin í Xinjiang fara ekki á milli mála. Því er útilokað að gera Kínverjum til geðs í slíkri skýrslu án þess að útvatna hana þannig að hún verði merkingarlaust plagg. Næstu dagar verða ekki auðveldir fyrir mann- réttindafulltrúann fráfarandi. Útilokað er að gera Kínverjum til geðs í slíkri skýrslu án þess að útvatna hana þannig að hún verði merkingarlaus} Beðið eftir skýrslu um Úígúra Í gildandi lögum er lágmarkstrygg- ingavernd sem lífeyrissjóður veitir 56% af meðalævitekjum yfir 40 ára inngreiðslutímabil …“ Hvað segir þetta okkur, 56% yfir 40 ára tímabil? Það segir okkur að viðkomandi einstaklingur, sem er kannski á lágmarks- launum í þau 40 ár sem hann borgar í lífeyris- sjóð, fær rétt rúmlega helminginn af því sem hann var með áður í útborguð laun. Það þýðir auðvitað að þeir launalægstu, sem eru í þessari aðstöðu, þurfa að skera nið- ur útgjöldin um nær helming. Fyrir suma er það ekkert mál, t.d. þá sem eru á góðum laun- um og eiga sitt húsnæði skuldlaust, en fyrir þá sem hafa alla tíð verið á lágum launum og á leigumarkaði er þetta stórt vandamál og ávís- un á fátækt. Ríkisstjórn eftir ríkisstjórn mismunar fólki kerfisbundið á ýmsa vegu. Hvers vegna? Af hverju þessa endalausa mismunun sem bitnar verst á þeim verst settu? Við verðum að átta okkur á því að manneskja sem hætti að vinna fyrir tíu árum síðan og fór þá á eftirlaun og átti engan séreignarsparnað fær 56% af lágmarks- launum. Þetta er ekki flókinn útreikningur. Viðkomandi má þakka fyrir að ná 300.000 krónum á mánuði með bótum Tryggingastofnunar í útgreiðslu. Það lifir enginn á því og á hverjum bitnar þetta mest? Jú, konum. Þær hafa lægsta lífeyrinn. Ef þú ert að vinna þá færðu 200.000 króna frítekju- mark upp í vinnulaunin, fyrir skerðingar í almannatrygg- ingakerfinu, en bara 25.000 krónu frítekju- mark á lífeyrissjóðslaunin. Viðkomandi ætti auðvitað að hafa val um að geta notað 200.000 krónu frítekjumarkið upp í lífeyrissjóðslaunin. Það myndi gjörbreyta aðstæðum margra í al- mannatryggingakerfinu. Svo er það stóri hópurinn, sem við gleymum alltaf, þeir sem eigi hvorki í lífeyrissjóði né séreignarsparnaði og lifa í fátækt í boði stjórn- valda. Við erum líka með hóp sem er það illa staddur að hann fær 10% minna en lágmarks- lífeyri, sem er ekkert annað en sárafátækt og gróft fjárhagslegt ofbeldi. Þetta er einnig sérstaklega blóðugt í þeim tilfellum þegar fólk verður að taka út sér- eignasparnaðinn vegna nauðsynlegrar lækn- isaðgerðar. Það er staðreynd að fólk sem verð- ur að fara í læknisaðgerð þarf að taka út séreignarsparnaðinn sinn til að standa undir kostnaði við hana. Viðkomandi ætlaði sér ekki að taka hann út á þessum tímapunkti en ástæðan fyrir því að hann gerði það var að hann sá fram á að ef hann færi eftir því sem kerfið segði honum yrði hann að bíða eftir aðgerð í tvö til þrjú ár. Honum var stillt upp við vegg. Í staðinn fyrir að fá við- unandi þjónustu, sér að kostnaðarlausu í kerfinu, varð hann að gjöra svo vel að fjármagna hana sjálfur og taka út séreignarsparnaðinn til að komast í aðgerðina. Flokkur fólksins segir fólkið fyrst og svo allt hitt. gudmundurk@althingi.is Guðmundur Ingi Krist- insson Pistill Fjárhagslegt ofbeldi Höfundur er þingflokksformaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.