Morgunblaðið - 27.08.2022, Page 26

Morgunblaðið - 27.08.2022, Page 26
Tungumál Þriðja ríkisins E in áhugaverðasta úttekt á tungutaki þýskra nasista er bók sem Victor Klemperer gaf út árið 1947. Klemperer (1881- 1960) var gyðingur en kvæntur þýskri („arískri“) konu og lifði af helförina – þótt það munaði mjóu. Bókin heitir LTI – minnisbók fílólógs og birtist í afbragðsgóðri þýðingu Maríu Kristjánsdóttur 2005. „Fílólóg“ er textafræðingur en LTI stendur fyrir Lingua Tertii Imperii, sem er latína og merkir tungumál Þriðja ríkisins. Ofuráhersla var lögð á að „aríavæða“ Þriðja ríkið (arisieren á þýsku) en í því fólst til að byrja með að gera eigur gyðinga upp- tækar. Snemma í valdatíð nasista sást þetta orð á skiltum í verslunum en varð fljótt óþarft því að gyðingum var bannað að eiga verslanir. Skiltin hurfu þegar allt hafði verið „ar- íavætt“. Svipað átti við um „norrænuvæðingu“ (aufnor- den, orðrétt ‘norræna upp’). Hvað var „arískt“ og og hvað „norrænt“ var frekar óljóst en bæði orðin fólu þó í sér að losna við gyðinga. Ef talað var hreint út var notuð sögnin entju- den ‘afjúða’ (sbr. aflúsa). Eftir stríð var hins vegar lögð áhersla á að ‘af- nasistavæða’ (entnazifizieren) Þýskaland. Stöðugt var klifað á orðum eins og artfremd ‘af framandi tegund’ en þar var enn og aftur einkum átt við gyðinga. Sum orð gátu ýmist verið neikvæð eða jákvæð, t.d. ewig ‘eilífur’: annars vegar „hinn eilífi gyðingur“, hins vegar „hið eilífa Þýskaland“. Mörg orð sem nasistar stöguðust á áttu sér eldri rætur, t.d. ‘undirmenni’ (Untermensch) sem stillt var upp gegn ‘ofurmenninu’ (Übermensch) úr smiðju Nietzsches. Allt átti að vera stórt í sniðum hjá nasistum enda klíndu þeir for- liðnum „stór-“ á ýmis orð, t.d. Stór-Þýskaland. Annar forliður var „þjóð-“, t.d. í Volksgemeinschaft ‘samlífi þjóðarinnar’ en auðvitað bara þess hluta hennar sem var af „arískum“ stofni. Eitt slíkt orð sem lifði af Þriðja ríkið er Volkswagen ‘þjóðarbíll’. Nasistum var tíð- rætt um Weltanschauung ‘heimsskoðun’, sýn þeirra á flókið samspil stjórnmála og landafræði („geópólitík“) sem gerði þeim kleift að snúa staðreyndum á hvolf, brjóta mannréttindi og ráðast inn í önnur ríki, í nafni „æðri hugsjóna“. Öll opinber umræða var að sjálfsögðu hneppt í viðjar Gleichschaltung ‘samstillingar’; þjóðin átti að tala einum rómi en Hitler og Goebbels gáfu tóninn. Loks var mikið um skrauthvörf (e. euphemism). Talað var um „brottflutning“ þegar átt var við nauðungarflutninga. Hinar ill- ræmdu fangabúðir – oft sérhannaðar útrýmingarbúðir – hétu Kon- zentrationslager „samþjöppunarbúðir“. „Hert yfirheyrsla“ merkti pyntingar og Sonderbehandlung „sérstök meðferð“ var ekkert annað en morð á varnarlausu fólki. Eftir stríð settist Klemperer að í Austur-Þýskalandi. Ekki leið á löngu uns hann fór að heyra þar það sem hann kallaði „tungumál Fjórða ríkisins“. Endurómur þess tungutaks hljómar víða enn – en það er önnur saga. Tungutak Þórhallur Eyþórsson tolli@hi.is Goebbels gaf tóninn um tungutak nasista. 26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022 Erlutjörn 5 260 Reykjanesbæ Norðurgarður 6 230 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is 5 herbergja einbýlishús með bílskúr, tveimur sólpöllum og heitum potti. Grunnskóli og leikskólar í göngufæri. 5 herbergja einbýlishús með bílskúr, sólpalli og heitum potti á vinsælum stað í Keflavík. Íbúðarrými í kjallara alls um 52 m2 ekki inní skráðum fermetrum eignar. Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali s. 899 0555 Bjarni Fannar Bjarnason Aðstoðamaður fasteignasala s. 773 0397 Verð 95.000.000 kr. Verð 90.000.000 kr. Stærð 204,4 m2 Stærð 175 m2 M inningin um Tsjernóbíl-kjarnorkuslysið í norðurhluta Úkraínu árið 1986 er enn ofar- lega í huga margra sem muna viðbrögðin við því og hræðslubylgjuna sem fór um alla Evr- ópu vegna ótta við geislavirkni. Minningunni hefur verið haldið á lífi af rithöfundum og kvikmyndagerðarmönnum. Lygavefur sovéskra yfirvalda í kringum slysið og við- brögðin við því hefur verið rofinn. Við blasir gjörspillt, að- gerðalítið stjórnkerfi þar sem allt var gert til að leyna sannleikanum. Ekkert er breytt að þessu leyti þegar litið er til stjórn- arhátta Vladimirs Pútins og valdaklíku hans í Rússlandi samtímans. Rússneski herinn nýtir sér meira að segja stærsta kjarnorkuver Evrópu í suðurhluta Úkraínu, Zaporizhzhia kjarnorkuverið, sem vopn í stríðinu gegn Úkraínu og í raun Evrópu allri. Gerist eitthvað svipað í Zaporizhzhia og varð í Tsjernó- bíl yrði hættan margföld, hroðalegur liður í rússneskum stríðsrekstri. Beita má kjarnorku og geislavirkni án sprengju eða skotflaugar. Breska varnarmálaráðuneytið sagði fimmtudaginn 25. ágúst frá því að gervihnattarmyndir sýndu rússneska skriðdreka aðeins um 60 metra frá kjarnorkuverinu. Þá bárust fréttir um að tenging vers- ins við landsnet Úkraínu hefði verið rofin í fyrsta sinn í sögu þess. Rússar náðu verinu á sitt vald snemma í mars. Tæknimenn frá Úkraínu hafa til þessa haldið utan um allan búnað. Tveir af sex kjarnakljúfum versins voru enn starfræktir fyrir landsnet Úkraínu þar til fimmtudaginn 25. ágúst. Í loftinu liggur hætta á kjarnorkuslysi. Ásakanir ganga á víxl. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafa ekki sannreynt neitt. Óttinn við það sem þarna kann að gerast varpar ljósi á þráteflið um framtíð Úkraínu 0sex mánuðum eftir að innrás Rússa hófst. Þeir halda um 20% af landi Úkraínu. Yfirlýst markmið Volodymyrs Zelenskíjs Úkraínuforseta er að ná öllum herteknum svæðum úr höndum Rússa, þar á meðal Krímskaga. Forsetinn býr þjóðina með öðrum orðum undir lang- vinnt stríð, þreytistríð. Sé það háð af rúmlega 40 milljón manna þjóð við 144 milljón manna óvinaþjóð ættu úrslitin að liggja á borðinu. Svo er þó ekki í þessu tilviki. Hvað eft- ir annað hefur baráttuþrek Úkraínumanna komið á óvart andspænis ráðþrota, illa búnum rússneskum hermönnum. Sé að marka kannanir eru allt að 92% Úkraínumanna að baki sjálfstæðisstríðinu. Í Rússlandi eru þeir teknir höndum sem nota orðið „stríð“. Hve lengi Kremlverjar geta blekkt þjóð sína og beitt ógnarvaldi til að knýja stríðsvélina veit enginn. Í þjóðhátíðarræðu miðvikudaginn 24. ágúst sagði Úkraínuforseti: „Ný þjóð birtist heiminum klukkan 4 að morgni 24. febrúar. Hún fæddist ekki, heldur endurfæddist. Þjóð sem grét ekki, öskraði eða var óttaslegin. Hún lagði ekki á flótta. Gafst ekki upp. Og gleymdi engu. Við látum ekki hræða okkur að samningaborðinu með byssu við höfuð. Í okkar huga birtist hræðilegasta járnið ekki í eldflaugum, flugvélum og skriðdrekum heldur í hlekkjum. Ekki í skotgröfum heldur fótajárnum.“ Forsetinn víkur þarna að kjarna hernaðarátakanna, frelsisþránni. Án hennar hefðu Úkraínumenn ekki snúist til varnar. Þeir vilja sjálfir ráða örlögum sínum, búa í heimi þar sem virt eru alþjóðalög og mannúðleg sam- skipti. Rússar troða á þessu öllu. Innrásin var gerð með þeim rökum Pútins að Úkraína ætti hvorki tilverurétt sem ríki né þjóðin sem þjóð. Það ætti að afmá landamærin gagnvart Rússlandi, afvopna þjóðina og afnazistavæða hana, uppræta lýðræðislega stjórnarhætti og aflífa stjórnendur í Kyív. Frá þessu markmiði hörðustu stuðningsmanna stríðsins og Pútins hefur ekki verið horfið. Í vikunni var gerð útför Dariu Duginu sjónvarpskonu sem barðist undir merkj- um stór-rússneskrar þjóðernisstefnu við hlið föður síns, hugmyndafræðings stefn- unnar. Hún var myrt með bílsprengju sem rússneska öryggislögreglan, FSB, klínir purkunarlaust á úkraínska konu sem hafi laumað sér til Moskvu með 12 ára dóttur sinni og síðan flúið til Eist- lands. Ræður við útförina boðuðu skelfilegt framhald Úkra- ínustríðsins, ráði ræðumenn einhverju um herför Pútins. Alexander Dugin, faðir Darinu, taldi það eitt réttlæta dauða dóttur sinnar að sigra í stríðinu, hún hefði lifað fyrir sigurinn og dáið fyrir hann. „Okkar rússneska sigur, sann- leika okkar, rétttrúnað okkar, ríki okkar.“ Álitsgjafi aðalrásar rússneska ríkissjónvarpsins, Alexei Mukhin, sagði: „Dasha Dugina er í mínum huga Jóhanna af Örk okkar tíma.“ Jóhanna af Örk var frönsk frelsishetja á 15. öld. Hún af- létti umsátri Englendinga um borgina Orlèans á aðeins níu dögum. Hún varð þjóðhetja sautján ára en Englend- ingar brenndu hana á báli þegar hún var aðeins 19 ára. Ár- ið 1920 tók kaþólska kirkjan hana í dýrlinga tölu. Rússneski herinn er ekki nú til stórræða utan Úkraínu. Með logandi ljósi er leitað að nýjum hermönnum um allt Rússland. Þeir eru fluttir úr herstöðvum skammt frá landamærum NATO-ríkja, til dæmis í norðri. Sannar það enn að Moskvumenn óttast ekki árás úr vestri hvað sem þeir sögðu fyrir innrásina. Að baki henni eru stórveldis- draumar. Nú, þegar forsetar Eystrasaltsríkjanna þriggja sækja Ísland heim og árétta gildi samstöðu smáþjóða á hættu- tímum, fækkar dag frá degi minnismerkjum um sovéska hernámið í löndum þeirra. Svigrúm hefur loks skapast eft- ir frelsi í 30 ár til að fjarlægja þessi tákn kúgunar Kreml- verja. Nágrannaþjóðir Rússa vita best að styðja verður Úkra- ínumenn til að rússneski herinn fái makleg málagjöld, annars er enginn óhultur. Ógnvænlegt þrátefli í Úkraínu Hvað eftir annað hefur bar- áttuþrek Úkraínumanna komið á óvart andspænis ráðþrota, illa búnum rúss- neskum hermönnum. Björn Bjarnason bjorn@bjorn.is Árið 2009 samþykkti þing Evr- ópusambandsins, að 23. ágúst yrði árlegur minningardagur fórn- arlamba alræðisstefnunnar, komm- únisma og nasisma. Sumir fræði- menn hafa að vísu andmælt því, að kommúnismi skuli lagður að jöfnu við nasisma. Hann hafi aðeins miðað að því að útrýma stéttaskiptingu án þess nauðsynlega að útrýma ein- staklingum úr þeim stéttum, sem áttu að hverfa. Nasisminn hafi hins vegar miðað að því að útrýma ein- staklingum, sem fæddir voru inn í hópa eins og gyðinga og sígauna. En þessi munur er fræðilegur frekar en raunhæfur. Lítið barn, sem Stalín lét svelta til bana í Úkraínu, af því að það var komið af sjálfseign- arbændum („kúlökkum“), átti ekki síður heimtingu á að lifa en lítið barn af gyðingaættum, sem Hitler lét myrða í gasklefunum í Auschwitz. Líklega féllu um 100 milljónir manns á tuttugustu öld af völdum komm- únista og um 20 milljónir af völdum nasista. Dagurinn 23. ágúst var ekki val- inn af neinni tilviljun. Þennan dag árið 1939 voru hakakrossfánar dregnir að hún á Moskvuflugvelli, og lúðrasveit lék þýska þjóðsönginn, „Deutschland über alles“, um leið og utanríkisráðherra Hitlers, Joachim von Ribbentrop, steig út úr flugvél sinni. Hann var kominn til að und- irrita griðasáttmála, sem Stalín og Hitler höfðu gert, en með honum skiptu þeir á milli sín Mið- og Aust- ur-Evrópu. Í hlut Stalíns komu aust- urhluti Póllands, Finnland, Eystra- saltsríkin og Moldóva (þá nefnd Bessarabía), en í hlut Hitlers vest- urhluti Póllands, jafnframt því sem hann fékk frjálsar hendur í Mið- Evrópu. Finnar vörðust hins vegar svo snarplega, að Stalín hætti við að innlima landið og gerði við þá frið- arsamninga, þar sem þeir urðu að láta af hendi talsverð landsvæði. Sannaðist þar eins og fyrri daginn, að sagan er stundum hliðholl bestu skyttunum frekar en fjölmennustu hersveitunum. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Minningardagur um fórnarlömb

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.