Morgunblaðið - 27.08.2022, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.08.2022, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022 ✝ Sanita Osa fæddist í Jur- mala í Lettlandi 1. nóvember 1971. Hún lést 14. ágúst 2022 á krabba- meinsdeild Land- spítalans. Foreldrar henn- ar eru Aleksandrs Oss, f. 5. ágúst 1942, verkfræð- ingur og fyrrver- andi yfirmaður hjá orku- málaráðuneytinu í Lettlandi, og Aija Osa, f. 29. júní 1942, d. 15. desember 2012, listfræðingur og fyrrverandi dagskrárgerð- arstjóri yfir listum og menningu hjá lettneska ríkisútvarpinu. Sanita var eina barn foreldra sinna og ólst hún upp hjá þeim í bænum Jurmala. Auk þess átti fjölskyldan smájörð og hús í sveitinni Pure, 50 kílómetra vestur af Jurmala, þar sem hún dvaldist mikið á sumrin og í frí- um sínum. Sambýlismaður Sanitu er Guðmundur Tryggvason, f. 9. janúar 1966, viðskiptafræðingur og starfar hann sem sérfræð- ingur hjá Skattinum við Lauga- veg. Hann er sonur hjónanna Björns Tryggva Karlssonar, fyrr- verandi kennara, og Hrefnu Péturs- dóttur, fyrrverandi matráðskonu, sem bæði eru látin. Syn- ir Guðmundar og Sanitu eru Alex- ander Oliver Guð- mundsson og Tryggvi Aron Guð- mundsson, fæddir 9. mars 2018. Sanita var með tvær meist- aragráður í sálfræði og í gæða- stjórnun. Vann hún við bæði fögin í heimalandi sínu, Lett- landi, en starfaði þó lengst af sem barnasálfræðingur. Á Ís- landi vann hún síðast sem frí- stundafræðingur hjá frístunda- heimilinu Bakkaseli við Breiðholtsskóla. Sanita kom fyrst til Íslands árið 2011 í stutta heimsókn eftir bréfaskipti við sambýlismann sinn. Árið 2012 kom hún svo aft- ur til landsins til lengri dvalar. Dvaldist hún jafnframt alltaf á sumrin í Lettlandi, eða eins og hún framast gat. Útför Sanitu hefur þegar far- ið fram. Í dag kveð ég mína ástkæru sambýliskonu, Sanitu Osu. Ég minnist hennar fyrst þegar ég beið hennar á Keflavíkurflugvelli í maímánuði árið 2011 þegar hún kom fyrst til Íslands með flugi frá Riga í vikuheimsókn til mín. Við höfðum spjallað saman á netinu í svolítinn tíma áður, en núna var komið að okkar fyrsta fundi sam- an. Ég beið á flugvellinum fullur eftirvæntingar en líka svolítið stressaður og allt í einu birtist þessi myndarlega kona fyrir framan mig. Við Sanita náðum strax mjög vel saman í þessari stuttu ferð hennar til Íslands enda var það einkenni á henni hversu opin og einlæg hún var alltaf og hversu fljót hún var að kynnast nýju fólki. Ég tók líka eftir því hversu skemmtileg hún var, hláturmild með eindæmum, með góðan húm- or og líka hversu vel greind hún var. Ég var því alveg staðráðinn í því frá fyrstu stundu að þessa konu yrði ég að hitta aftur, og það sem allra fyrst. Því keypti ég mér vikuferð til hennar til Lettlands í júlí sama ár. Í þessari ferð varð ekki aftur snúið í sambandi okkar Sanitu. Sanita kom aftur til Íslands í janúar 2012 til dvalar til lengri tíma og hefur dvalist hér á landi síðan, með smáhléum þó. Sanitu líkaði dvölin á Íslandi vel en þó fann maður alltaf að Lettland tog- aði í hana að einhverju leyti, ekki síst þegar voraði, og eyddi hún því flestum sumrum sínum þar ytra. Sanita var sálfræðingur að mennt og vann um tíma sem barnasálfræðingur í Jurmala við meðferðarstofnun fyrir börn. Seinna meir fór hún í meira nám og varð þá gæðastjórnun fyrir valinu en við það vann hún síðast í Lettlandi áður en hún kom til Ís- lands. Þegar við eignuðust tvíburana okkar, Alexander og Tryggva, sá maður strax hversu frábær móðir Sanita var. Hún vildi allt gera sem í hennar valdi stóð til þess að þeim bræðrum liði sem allra best og var hún svo kröfuhörð fyrir þeirra hönd að mér fannst stundum nóg um. Sanita tók örlögum sínum af miklu æðruleysi og bar hún til- finningar sínar ekki á torg. Það voru örfáir sem vissu hversu al- varlega veik hún var og því kom dauði hennar næstum öllum á óvart. Hún sagði mörgum vinum sínum og vandamönnum frá því að hún ætti við heilsubrest að stríða en minntist ekki einu orði á að það væri jafn illvígur sjúkdóm- ur og krabbamein. Hún vildi halda þessu út af fyrir sig og ekki valda öðrum óþægindum að óþörfu. Nú er komið að kveðjustund og hef ég þetta að segja að leiðar- lokum: Elsku hjartans Sanita mín, þakka þér fyrir allar þær frá- bæru samverustundir sem við átt- um saman og strákana okkar tvo sem þú gafst mér. Sársauki minn er núna óbærilegur og nístir mig inn að beini þar sem ég sakna þín svo mikið. Ég á jafnframt erfitt með að sjá framtíðina án þín. Ég og synir okkar tveir höfum misst mikið en við verðum samt að halda áfram með okkar líf því annað er ekki í boði. En ég er samfærður um að við feðgar eig- um eftir að hitta þig einhvern tíma aftur, þótt síðar verði. Guðmundur Tryggvason. Mín kæra mágkona Sanita Osa er látin og sorgin er óbærileg fyr- ir okkur sem eftir erum. Bróðir minn hefur misst sína ástkæru Sanitu og litlu drengirnir hennar eru orðnir móðurlausir. Sanita, þessi sterka og yndislega kona, lést á krabbameinsdeild Land- spítalans 14. ágúst eftir stutta legu. Ég hitti Sanitu fyrst hér heima á Íslandi og við náðum strax mjög vel saman. Mikið fannst mér það gleðilegt að Guð- mundur bróðir minn var búinn að hitta þessa góðu konu. Þótt við Sanita töluðum ekki sama móður- mál var það ekkert vandamál því hún talaði mjög góða ensku og við áttum einnig sameiginleg áhuga- mál tengd menntun okkar beggja. Sumarið 2017 fór ég ásamt dóttur minni og syni hennar til Lettlands til að heimsækja Guðmund og Sa- nitu. Þar áttum við dásamlega viku með þeim. Sanita var stolt af landinu sínu og betri leiðsögu- mann hefðum við ekki getað feng- ið. Hún kynnti okkur staði og sögu landsins á frábæran hátt. Lífið brosti við bróður mínum og hans elskuðu sambýliskonu og í mars árið eftir eignuðust þau drengina sína Tryggva og Alex- ander, hamingjan var fullkomnuð. En svona getur lífið verið órétt- látt, nú er lítil fjölskylda búin að missa sína sterku og góðu Sanitu og erfitt getur verið að sjá fram í tímann. En tíminn líður, og minn- ingin um yndislega móður og sambýliskonu mun ylja elsku bróður mínum og drengjunum hans um alla framtíð. Hvíl í friði kæra Sanita, megi allar góðar vættir varðveita litlu fjölskylduna sem eftir situr í sár- um og gefa þeim styrk í framtíð- inni. Margrét Edda Jónsdóttir Fjellheim. Nú hefur okkar kæra Sanita kvatt þetta líf. Hún var burtkölluð héðan á sunnudagsmorgni, 14. ágúst, eftir hetjulegt en vonlaust stríð við krabbamein. En allt hef- ur sinn tíma og hún hafði svo margt að lifa fyrir að lengri tíma hefði hún þurft. Til að annast drengina sína, Tryggva og Alex- ander, eiga enn fleiri samveru- stundir með eiginmanninum, Guðmundi Tryggvasyni, hlúa að jurtunum sínum í garðinum, hitta vini og sinna félagsmálum og svo margt annað. Henni hafði liðið illa allt frá því í sumarbyrjun, hún vonaðist eftir bata eftir því sem á leið en varð síðsumars að gefast upp fyrir sláttumanninum slynga, meinið hafði þá dreift sér svo víða að engum ráðum varð við komið. Sanita var uppalin í Jurmala í Lettlandi. Hingað til lands kom hún fyrst árið 2011 og svo aftur 2012 til verðandi manns síns, Guð- mundar Tryggvasonar viðskipta- fræðings. Sjálf var hún vel mennt- uð, barnasálfræðingur með MA-gráðu í gæðastjórnun. Móðir hennar, Aija, lést fyrir tæpum áratug, en faðir hennar, Alex- andre Oss, lifir enn. Guðmundur missti átján ára gamall móður sína, Hrefnu Pétursdóttur mat- ráðskonu, bjó eftir það með föður sínum, (Birni) Tryggva Karlssyni kennara, m.a. á Sauðárkróki í Skagafirði. Eftir það fluttust þeir feðgar suður, Tryggvi fór á eft- irlaun en Guðmundur lauk þá stúdentsprófi og síðar háskóla- námi í viðskiptafræði, fyrst til BS- prófs og síðan cand oecon-gráðu. Eftir að Tryggvi faðir Guðmund- ar lést árið 2013 eignaðist Guð- mundur hans hlut í eignum hans en föðursystur hans tvær áttu þá þegar sinn erfðahlut í föðurleifð þeirra systkina eftir árið 2004. Sanita hafði yndi af samvistum við aðra, fjölskylduna á Íslandi, samstarfsmenn og aðra sem hún kynntist. Hún var formaður fé- lagsskapar Letta á Íslandi, vann einnig á frístundaheimili um tíma. Þau Guðmundur tóku vel á móti gestum sem komu til þeirra í Kópavoginn. Meðan jörðin Stóra- Borg var enn í höndum Guðmund- ar og föðursystra hans voru fund- ir um þau málefni oft haldnir á heimili þeirra. Þá var gott á borð- um og ekki var það síðra í barna- afmælunum þar. Eftir að Co- vid-19-faraldur hófst dvaldist Sanita stundum hjá föður sínum í Lettlandi ásamt sonum þeirra tveimur. Stundum lokuðust flug- vellir tímabundið og þá dvaldist hún lengur ytra en hún hafði ætl- að sér. Nú voru þau öll aftur sam- an á Íslandi, og þegar lát hennar bar að voru þau nýlega flutt í nýtt og heppilegra húsnæði en þau höfðu fyrr haft. Við Leo, mágur föður Guð- mundar, og ég undirrituð föður- systir hans, erum harmi slegin yf- ir fráfalli Sanitu og eftirsjáin og minningarnar um liðna tíð með henni og fjölskyldunni hrannast að. Við samhryggjumst Guð- mundi og biðjum ungum sonum þeirra Sanitu velferðar um alla framtíð. Guðrún Karlsdóttir frá Stóru-Borg. Sanita Osa Sálm. 9.11 biblian.is Þeir sem þekkja nafn þitt treysta þér því að þú, Drottinn, bregst ekki þeim sem til þín leita. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓSKAR LÁRUSSON, lést á Skógarbæ þriðjudaginn 16. ágúst. Lárus Óskarsson Guðlaug Helgadóttir Ásthildur Óskarsdóttir Eiríkur Á. Ingvarsson Anna María Óskarsdóttir Halldór Benjamín Brynjarsson Andri Þór Óskarsson barnabörn og langafabörn Ástkær frændi okkar, STEINÞÓR ÞORSTEINSSON fyrrverandi mjólkurbílstjóri frá Efri-Vindheimum, síðast til heimilis í Seljahlíð 9c, Akureyri, lést á Dvalarheimilinu Hlíð 24. ágúst. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 1. september klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á facebook-síðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju. Þeir sem vilja minnast hans eru beðnir að láta hjartadeild Sjúkrahússins á Akureyri njóta þess. Þorsteinn, Ingimar, Birgir, Valgerður, Flosi, Þórunn, Steinþór, Steinunn, Þórey, Haukur, Guðný, Svana, Kristján og fjölskyldur Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN HUGBORG MARINÓSDÓTTIR snyrtifræðingur, lést laugardaginn 30. júlí á Háskóla- sjúkrahúsinu í Torrevieja á Spáni. Minningarathöfn verður haldin í Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 30. ágúst klukkan 15. Rósa, Ása og fjölskyldur Eyrartröð 16, 220 Hafnarfirði sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Eyrartröð 16 220 Hafnarfirði Opið kl. 11-16 virka daga FALLEGIR LEGSTEINAR Hefðbundin áletrun og uppsetning á höfuðborgarsvæðinu á legsteini er innifalið Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURJÓN HANNESSON húsasmíðameistari, Stillholti 21, Akranesi, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi sunnudaginn 21. ágúst. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 2. september klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is. Hlekk á streymi má einnig nálgast á mbl.is/andlat. Guðlaug Bergþórsdóttir Rannveig Sigurjónsdóttir Bergsteinn Metúsalemsson Guðríður Sigurjónsdóttir Ágúst Grétar Ingimarsson Bergþóra Sigurjónsdóttir Hannes Sigurbjörn Jónsson Hafdís, Birkir, Rúnar Freyr, Sigurjón, Ingimar Elfar, Jón Gautur, Hilmar Veigar, Guðlaug Gyða og langafabörn Okkar ástkæra eiginkona, systir, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, VIBEKE JONSSON, 9.4. 1941, lést miðvikudaginn 9. ágúst á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útför hennar fór fram í kyrrþey fimmtudaginn 11. ágúst í bænahúsi Fossvogskirkju. Hjartans þakkir færum við starfsfólki á 5. hæð Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir yndislega umönnun og hlýju. Hlekk að minningarorðum má finna á: https://minningar.is/memories/vibeke-a.-jonsson-1941-2022 Sigurður Jónsson Árnason Ingolf Madsen Gitte Madsen Guðrún Sigurðardóttir Þórleifur Hólm Guðmundsson Charlotte Sigurðardóttir Þór Sigurðsson Kolbrún Dóra Kristinsdóttir Pétur Sigurðsson Jana Sigurðsson ömmu- og langömmubörn Elskulegi unnusti minn, faðir, sonur, bróðir, tengdasonur og barnabarn, ÞÓRÐUR KÁRASON pípulagningameistari, Ásbúð 52, Garðabæ, lést miðvikudaginn 24. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Elsa Kristín Auðunsdóttir Laufey Líf, Anna, Tinna, Sunna og Kári Anna Þórðardóttir Kári Grétarsson Grétar Kárason Laufey Baldvinsdóttir Auðunn Helgi Herlufsen Þórður Jónsson Ásdís Hjörleifsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.