Morgunblaðið - 27.08.2022, Page 34

Morgunblaðið - 27.08.2022, Page 34
34 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022 60 ÁRA Unnur Guðrún Óttars- dóttir er fædd í Reykjavík 27. ágúst 1962. Hún er stúdent frá Menna- skólanum í Kópavogi og lauk hún kennaranámi frá Kennaraháskóla Íslands 1986. Auk þess hefur Unnur lokið MA-námi í listmeðferð frá Pratt Institue í New York og dokt- orsprófi frá University of Hertfor- shire í Englandi. Einnig hefur hún lokið BA- og MA-prófum í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Unnur hefur rekið eigin listmeð- ferðarstofu frá 1991 og hefur hún m.a. veitt einstaklingum meðferð sem hafa orðið fyrir alvarlegum áföllum. „Börnin sem ég vinn með eiga oft mjög erfitt og eru þau í sum- um tilfellum í umsjá barnaverndar- nefnda. Þau eru hetjur hversdagsins þó þau fái ekki verðlaun eða viður- kenningu fyrir allan þann styrk og útsjónarsemi sem þau sýna í lífinu. Ég hef lært mikið um seiglu, þraut- seigju, styrk og stóíska ró af þeim börnum sem hafa glímt við, að því er virðist, óyfirstíganlega erfiðleika og aðstæður sem þau hafa ekkert vald til að breyta.“ Unnur hefur sinnt ýmsum nefnd- ar- og félagsstörfum. Sat hún í nefnd á vegum Háskólans á Akureyri þar sem fjallað var um nám í listmeðferð á Íslandi. Hefur hún setið í stjórn Félags listmeðferðarfræðinga á Íslandi og var formaður um tíma. Unnur sat í stýrihópi fyrir alþjóðlegt Erasmus-verkefni undir forystu Listaháskóla Íslands, sem kallast „Listsköpun og samvinna: Leiðir að virkni og velferð“. Nú situr Unnur í stjórn rannsóknarnefndar félags Listmeðferðarfræðinga í Evrópu. „Rannsóknir á sviði listmeðferðar og listsköpunar eru fremur nýjar af nálinni og margir spennandi fletir og niðurstöður eru að koma fram í auknum mæli.“ Þess má geta að Unnur átti fund með frú Karen Pence, fv. varaforsetafrú Banda- ríkjanna, 2019 þegar hún heimsótti Ísland, þar sem fjallað var um störf og rannsóknir Unnar á sviði listmeð- ferðar. Unnur hefur stundað rannsóknir á listmeðferð, minni og teikningu um árabil. Hún hefur þróað nýja hugsun sem byggir á kenningum og aðferð- um listmeðferðar þar sem skjólstæð- ingarnir og nemendur nýta list- sköpun til að vinna úr tilfinningum sínum og læra jafnhliða. „Það er ótrúlegt hversu árangursríkt það er fyrir flesta að teikna til að leggja á minnið. Rannsóknin sem ég gerði sýndi að börnin mundu að jafnaði fimm sinnum meira af því sem þau teiknuðu í samanburði við það sem þau skrifuðu, þegar níu vikur höfðu liðið frá því að þau lögðu á minnið upphaflega.“ FJÖLSKYLDA Sonur Unnar er Jón Karl Sigurðsson, f. 1983, doktor í stærðfræði. Kona hans er Vala Kol- brún Pálmadóttir, f. 1982, tauga- læknir. Börn þeirra eru Pálmi Sig- urður, f. 2018; og Unnur Lóa, f. 2019. Faðir Jóns Karls var Sigurður Hjálmar Jónsson skíðamaður, f. 1959, d. 1996. Foreldrar Unnar eru Óttar Yngvason, f. 1939, hrl. og framkvæmdastjóri, og Elín Birna Daníelsdóttir, f. 1939, hjúkrunar- fræðingur. Eiga þau fjögur börn og er Unnur elst þeirra. Unnur Óttarsdóttir Ljósmynd/Tia Dufour, ljósmyndari Hvíta Hússins Með varaforsetafrúnni Frá vinstri: Óttar Yngvason, frú Karen Pence, Unnur Óttarsdóttir og Jón Karl Sigurðsson. Ljósmynd/Helga Óttarsdóttir Fjölskyldan Frá vinstri: Jón Karl, Pálmi Sigurður, Unnur Guðrún, Unnur Lóa og Vala Kolbrún stödd í golfferð úti á Álftanesi í vor. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú þarft að vera svo sveigjanlegur sem mest þú mátt. Ef þú tekur þarfir heild- arinnar með í reikninginn mun það skila þér mun betri árangri en ef þú einblínir bara á sjálfan þig. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú ættir að íhuga hugmynd sem ein- hver hefur fram að færa. Leggðu þitt af mörkum til að gera andrúmsloftið betra. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Ef maður nálgast viðfangsefni sín af ást, ver maður minni orku í að klára þau. Vertu ekki of stoltur að leita eftir aðstoð. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þér gætu boðist nýir möguleikar sem þú ert ekki viss um hvernig þú getur notfært þér. Af þessum sökum skaltu forð- ast rifrildi við yfirmenn þína eða foreldra. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Reyndu að fegra í kring um þig því þægilegt umhverfi hvetur til vandaðra vinnubragða og góðra afkasta. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Fólk sem er að reyna að ganga í augun á þér, móðgar þig hugsanlega alveg óvart. Reyndu að slaka svolítið á og sjá hlutina í víðara samhengi. 23. sept. - 22. okt. k Vog Segðu já ef einhver vill gefa þér eitt- hvað í dag sem bætir heimilið. Þótt nauð- synlegt sé að skoða mál frá öllum hliðum þá kemur að því að ákvörðun verður að taka. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Láttu aðra ekki velkjast í vafa um skoðanir þínar. Einhver eldri og vitrari bíður þess að segja þér eitthvað mikilvægt. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Láttu vonbrigðin ekki ná tökum á þér. Skoðaðu líf þitt og breyttu til í stað þess að kenna alltaf öðrum um alla hluti. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú vilt forðast að hitta náinn vin þinn, en þú getur ekki endalaust skotið fundi ykkar á frest. Nú er tækifærið að sýna hvað í þér býr. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Það er eitt og annað sem kemur þér á óvart þegar þú ferð að athuga mál sem þér hefur verið falið að leysa. Nú skipt- ir máli að halda ró sinni. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú getur ekki breytt heiminum og ættir að líta þér nær og koma jafnvægi á eigið líf. Það er mikilvægt að þú gerir þér grein fyrir því að ekki er allt sjálfgefið í þessum heimi. höfum haldið hópinn og hist í „sauma- klúbbi“ mánaðarlega í 54 ár. Höfum farið saman í mörg ferðalög innan lands og utan og í 11 ár héldum við jólaböll fyrir fjölskyldur okkar, með jólasveinum og lifandi tónlist sem snillingurinn Reynir Jónasson harm- onikkuleikari sá um og allar veitingar voru heimabakaðar, að sjálfsögðu.“ Söngur og tónlist hafa alltaf skipað stóran sess hjá Þórunni og á skóla- árunum var hún í Verslunarskóla- kórnum en stjórnandi hans var Jan Morávek. Hún söng með Árnesinga- kórnum í Reykjavík undir stjórn Þur- íðar Pálsdóttur, í Kirkjukór Hafnar- fjarðarkirkju þar sem Páll Kr. Páls- son stjórnaði og með Óratóriu- kórnum undir stjórn Ragnars Björnssonar. „Ég hef verið svo lánsöm að eign- ast sex frábær barnabörn og hef fengið að njóta samvista þeirra allt frá fæðingu. Við höfum farið margar ferðir saman innanlands og þegar hvert og eitt þeirra náði 7 ára aldr- inum, fór ég með þau til Kaupmanna- hafnar þar sem alltaf var sama dag- skráin, þ.e. Tívolí og dýragarðurinn m.a., ásamt heimsókn til Hinriks bróður míns og fjölskyldu í Svíþjóð. Þegar Margrét dóttir mín og Sig- urður hófu sambúð í fyrra bættist Ágúst Örn í hópinn. Gabríel Þór son- fjögur ár og tók þátt í alþjóðlegum fundum og ráðstefnum víða um heim- inn á þeirra vegum. Hún sinnti stjórnarstörfum og formennsku í all- mörg ár í Skálklúbbi Reykjavíkur og var forseti norrænnar ráðstefnu sem haldin var í Reykjavík árið 1999. Hún hefur verið félagi í Rb.st. nr. 1 Berg- þóru I.O.O.F. í 38 ár og gegnt þar mörgum trúnaðarstörfum. „Á Verzlunarskólaárunum eign- aðist ég frábæran vinahóp. Við vorum 30 sem útskrifuðumst 1968, 13 stelp- ur og 17 strákar. Við samstúdínurnar Þ órunn Ingólfsdóttir fædd- ist 27. ágúst 1947 á Land- spítalnum í Reykjavík. Hún ólst upp á Ásvalla- götu 49 og í Skipasundi 55 með móður sinni og fóstur- foreldrum hennar, Sesselju og Georg, og bjó hjá þeim á veturna á grunn- skólaárum sínum í Langholtsskóla, en á sumrin bjó hún hjá móður sinni og stjúpföður í Hólmgarði 5. „Á ung- lingsárunum vann ég í Bókaverslun Eymundsson í Austurstræti 18 við af- greiðslustörf, í Skrúðgarðinum í Laugardal við garðyrkju og hjá Loft- leiðum í Keflavík sem hlaðfreyja.“ Þórunn flutti í Gnoðarvog 64 þegar hún byrjaði í Vogaskóla. Tveim árum seinna fór hún í Verslunarskóla Ís- lands og útskrifaðist þaðan með stúd- entspróf árið 1968. „Strax að stúdentsprófi loknu réð ég mig sem læknaritara hjá dr. med. Friðriki Einarssyni, yfirlækni á nýrri skurðlækningadeild Borgarspítal- ans.“ Á árunum 1969-1972 var Þór- unn stundakennari í vélritun við Menntaskólann í Reykjavík og Verzl- unarskóla Íslands og kenndi einnig við Lögregluskóla ríkisins og Náms- flokka Reykjavíkur. Hún vann hjá Kynnisferðum/Reykjavík Excursions í fjögur ár við afgreiðslu- og upplýs- ingastörf. Frá árinu 1981 vann hún sem deildarstjóri ráðstefnudeilda hjá eftirtöldum fyrirtækjum, að frátöldu einu ári sem hún vann hjá Arnarflugi: Ferðaskrifstofu ríkisins, Ráðstefnum og fundum og Samvinnuferðum eða þar til ársins 2001 að hún stofnaði sitt eigið fyrirtæki ásamt Unni Björk Guðmundsdóttur, Íslandsfundi ehf./ Meeting Iceland. „Árið 2005 keypti ég Unni Björk út úr fyrirtækinu og var eftir það ein eigandi og framkvæmdastjóri fyrir- tækisins. Hjá mér vann úrvalsstarfs- fólk, bæði heilsárs og tímabundið sem var mikils virði og ég er þakklát fyrir. Einkunnarorð fyrirtækisins voru: „Með auga fyrir smáatriðum“. Það gat verið mikið álag en alltaf gaman og áhugavert að fást við ólík verkefni og vera í sambandi við fólk um allan heim.“ Þórunn var fulltrúi Norðurland- anna í International Skål Council í arsonur minn á þrjú hálfsystkini, Hlyn, Margréti Brynju og Sigurð Helga Hlöðversbörn og hef ég fengið að taka þátt í þeirra lífi alla tíð. Helstu áhugamál Þórunnar eru lestur góðra bóka, kvikmyndir, leik- hús, alls konar hannyrðir og blóma- skreytingar. „Ég hef sótt námskeið hjá Garðyrkjuskólanum á Reykjum og hjá Renate Rosenmeier skreyt- ingameistara í Danmörku. Einnig var ég um fimm vikna skeið á hinum þekkta SKALS design og hånd- arbejdsskole á Jótlandi. Síðastliðinn vetur var ég á námskeiði í akrýlmálun í Endurmenntun Tækniskólans hjá Önnu Gunnlaugsdóttur, listmálara og kennara. Fór með henni í Skissuferð til Garda-vatnsins í maí sl. sem var skemmtileg og lærdómsrík ferð. Núna er ég þátttakandi í Janus heilsueflingu til þess að fá aukinn styrk og orku, sem er mjög gefandi og ég mæli eindregið með.“ Fjölskylda Börn Þórunnar og fyrrverandi eig- inmanns hennar, Stefáns Bergs- sonar, löggilts endurskoðanda, f. 8.3. 1947, eru: 1) Stefán Þór Stefánsson, f. 24.3. 1969, framkvæmdastjóri ráð- gjafa- og þjónustusviðs WISE. Sam- býliskona hans er Jenný Guðmunds- dóttir, f. 27.9. 1973, flugfreyja. Þau Þórunn Ingólfsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri – 75 ára Með barnabörnunum Þórunn Birna, Berglind Hrönn, Gabríel Þór, Þórunn, Fanney, Karen Lind og Anna Lára. Kærleikurinn er mikilvægastur Nýstúdent Þórunn árið 1968. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.