Morgunblaðið - 27.08.2022, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 27.08.2022, Qupperneq 35
DÆGRADVÖL 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022 „ÉG HÉLT AÐ ÞEIR GÆTU KANNSKI BORIÐ KENNSL Á ÞANN SEM STAL SJÓNVARPINU MÍNU.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að vera ekki of þrjósk til að viðurkenna mistök. GULLI? ROOOP GULLI BIÐUR AÐ HEILSA ER ÞETTA STÓRKJAFTA SEM SYNDIR ÞARNA? ÉG SÁ ÞESSI TVÖ KYSSAST BAK VIÐ KÓRALINN! NEI! ÞETTA ER KJAFTASKJÓÐA! „ÞETTA ER B-VARA. ÉG VAR BÚINN AÐ VARA HANN VIÐ ÞVÍ AÐ REYNA AÐ SETJA ÞÁ Í SJÁLFUR.“ BYGGINGAVÖRU- DEILD GLUGGAROG HURÐIR búa í Kópavogi. Eiga þau dótturina Karenu Lind, f. 25.12. 2006. Sonur Stefáns Þórs og Þórunnar Marinós- dóttur, f. 13.11. 1972, er Gabríel Þór, f. 4.1. 2000, og dóttir Jennýjar og Ragnars H. Guðmundssonar, f. 28.10. 1969, er Anna Lára, f. 17.9. 2000; 2) Margrét Stefánsdóttir, f. 16.3. 1973, eigandi Heillaverka ehf. Sambýlis- maður hennar er Sigurður Örn Ágústsson, stjórnarformaður Blue Bird, f. 15.4. 1970. Búa þau í Garða- bæ. Börn Margrétar og Úlfars Har- aldssonar, f. 22.11. 1969, eru Þórunn Birna, f. 29.3. 1999, Berglind Hrönn, f. 4.8. 2005, og Fanney, f. 9.2. 2007. Sonur Sigurðar og Dagmar Krist- jánsdóttur Norðdahl, f. 18.11. 1973, er Ágúst Örn, f. 22.7. 2010. Seinni eigin- maður Þórunnar er Þorsteinn Sv. Stefánsson, dr.med., f. 22.8. 1937. Þau slitu samvistir. Systkini Þórunnar: Sammæðra: Georg Heide Gunnarsson, f. 2.1. 1950, Gunnar Theodór Gunnarsson, f. 30.7. 1954, d. 10.11. 1980, og Hinrik Gunn- arsson, f. 12.1. 1960; samfeðra: Krist- ín Ingólfsdóttir, f. 14.2. 1954, og Pálmi Ingólfsson, f. 28.10. 1958. Foreldrar Þórunnar voru Ingólfur Páll Steinsson, prentari og auglýs- ingastjóri DV, f. 1.6. 1924, d. 25.8. 2021, og Jóhanna Magnúsdóttir, hús- móðir og skrifstofukona, f. 20.7. 1927, d. 7.2. 2013. Stjúpfaðir hennar var Gunnar Magnús Theodórsson, innan- hússarkitekt og bólstrari, f. 17.7. 1920, d. 14.3. 2002. Fósturforeldrar Þórunnar voru hjónin Sesselja Hinriksdóttir verka- kona, f. 10.9. 1897, d. 12.4. 1978, og Georg Pálsson, vélstjóri og kyndari, f. 6.11. 1897, d. 25.8. 1983. Þau bjuggu á Eskifirði og í Reykjavík. Þórunn Ingólfsdóttir Anna Guðmundsdóttir húsfreyja í Vestra-Fróðholti Sigurður Einarsson bóndi í Vestra-Fróðholti á Rangárvöllum Steinn Sigurðsson klæðskerameistari í Vestmannaeyjum og Reykjavík Kristín Hólmfríður Friðriksdóttir húsfreyja, kennari og hannyrðakona í Vestmannaeyjum og Reykjavík Ingólfur Páll Steinsson prentari og auglýsingastjóri DV, bjó í Hafnarfirði Guðrún Pálsdóttir húsfreyja í Litladal Friðrik Pétursson bóndi og smiður í Litladal í Tungusveit, Skagafirði Ingibjörg Þorsteinsdóttir húsfreyja í Innri-Drápuhlíð Jóhann Magnússon bóndi í Innri-Drápuhlíð í Helgafellssveit Magnús Jóhannsson bóndi á Uppsölum Ásthildur Jónasdóttir húsfreyja á Uppsölum í Eiðaþinghá Ástríður Þorsteinsdóttir húsfreyja á Helgafelli Jónas Sigurðsson bóndi á Helgafelli í Helgafellssveit Ætt Þórunnar Ingólfsdóttur Jóhanna Magnúsdóttir húsmóðir og skrifstofukona í Reykjavík Vísnagátan er sem endranær eft- ir Guðmund Arnfinnsson: Bæjarnafn á Norðurlandi. Nánast torleiði hann er. Ávallt talin óteljandi. Aska þekur landið hér. Guðrún B. á þessa lausn: Frá Sandi Hólmfríður sprottin spök. Sprengisandur er dekkjafjandi. Að telja sand þarf billjón bök. Svo blæs hún Katla Mýrdalssandi. Helgi R. Einarsson svarar: Fía kallast frú á Sandi. Fór ég Sprengisandinn á. Sandkorn eru óteljandi. Ösku kalla sand hér má. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una svona: Á sveitabæinn Sand ég fer. Sandur Sprengi torfær er. Sandkorn tæpast teljum smá. Tala um brunasand hér má. Þá er limra: Það sem háir bóndanum Brandi berum á Langasandi og fer verst með hann þennan fílhrausta mann er frammistöðuvandi. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: „Það sem verður að vera viljugur skal hver bera“, bið ég snótir og snáða í snarheitum gátu að ráða: Nafn það margur maður ber. Mesti dólgur er sá ver. Engilhreinn með sóma og sann. Sérmenntaður víst er hann. Ég átti afmæli á mánudag. Pétur Stefánsson sendi mér þessa skemmtilegu kveðju sem ég er þakklátur fyrir: „Sæll Halldór. Til hamingju með afmælið“: Megi ætíð auðnan fín á þig skína fögur. Heillaósk með árin þín áttatíu og fjögur. Í þessari hestavísu leikur Sigríð- ur Beinteinsdóttir á Hávarsstöðum sér að rími og orðum: Mjúk í gangi merin slyng makkann hringar Jóns í fang. Grasið angar grænt í kring grjótið springur fróns um vang. Jónas Jónasson Torfmýri kvað: Sólin þaggar þokugrát, þerrar saggans úða. Fjólan vaggar kolli kát, klædd úr daggarskrúða. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Sandar eru margs konar Mikið úrval fyrir golfferðina Finnið okkur á golfa.is golfa.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.