Morgunblaðið - 27.08.2022, Side 36
36 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022
2. deild karla
Ægir – Njarðvík ....................................... 1:3
Haukar – ÍR.............................................. 0:2
Staðan:
Njarðvík 19 16 1 2 55:17 49
Þróttur R. 18 12 3 3 40:24 39
Völsungur 18 9 5 4 38:28 32
Ægir 18 9 3 6 31:31 30
ÍR 19 7 5 7 29:29 26
Höttur/Huginn 18 6 6 6 32:26 24
Haukar 18 6 6 6 26:23 24
KF 18 4 7 7 32:39 19
Víkingur Ó. 18 4 6 8 33:37 18
KFA 18 5 3 10 30:46 18
Reynir S. 18 2 5 11 16:37 11
Magni 18 2 4 12 19:44 10
2. deild kvenna
Efri hluti:
Grótta – ÍA................................................ 1:1
Fram – KH................................................ 3:0
Staðan:
Fram 12 10 1 1 31:7 31
Grótta 12 8 3 1 46:11 27
Völsungur 11 8 3 0 37:10 27
ÍR 11 8 2 1 35:14 26
ÍA 12 7 1 4 41:20 22
KH 12 4 1 7 32:30 13
England
B-deild:
Luton – Sheffield United......................... 1:1
Staðan:
Sheffield Utd. 6 3 2 1 10:5 11
Watford 5 2 3 0 4:2 9
Reading 5 3 0 2 6:6 9
Blackburn 5 3 0 2 6:7 9
Sunderland 5 2 2 1 8:7 8
Hull 5 2 2 1 7:8 8
Bristol City 5 2 1 2 8:6 7
Norwich 5 2 1 2 6:5 7
Preston 5 1 4 0 1:0 7
Millwall 5 2 1 2 7:8 7
Blackpool 5 2 1 2 5:6 7
Cardiff 5 2 1 2 3:4 7
Rotherham 4 1 3 0 6:2 6
WBA 5 1 3 1 8:6 6
Wigan 4 1 3 0 3:2 6
Burnley 5 1 3 1 6:6 6
Luton 6 1 3 2 4:5 6
QPR 5 1 2 2 6:7 5
Birmingham 5 1 2 2 3:4 5
Swansea 5 1 2 2 4:8 5
Stoke 5 1 1 3 5:8 4
Huddersfield 4 1 0 3 5:6 3
Middlesbrough 5 0 3 2 7:9 3
Coventry 2 0 1 1 3:4 1
Þýskaland
Freiburg – Bochum.................................. 1:0
Ítalía
Monza – Udinese ...................................... 1:2
Lazio – Inter ............................................. 3:1
Staða efstu liða:
Lazio 3 2 1 0 5:2 7
Napoli 2 2 0 0 9:2 6
Inter 3 2 0 1 6:4 6
Roma 2 2 0 0 2:0 6
Juventus 2 1 1 0 3:0 4
Holland
NEC Nijmegen – Groningen .................. 1:1
- Andri Fannar Baldursson var ónotaður
varamaður hjá NEC Nijmegen.
Belgía
B-deild:
Genk U23 – Lommel................................ 0:3
- Kolbeinn Þórðarson var ekki í leik-
mannahóp Lommel.
Svíþjóð
Örebro – Piteå.......................................... 0:1
- Berglind Rós Ágústsdóttir lék fyrstu 84
mínúturnar með Örebro.
- Hlín Eiríksdóttir lék allan leikinn með
Piteå og skoraði.
Staða efstu liða:
Rosengård 17 13 3 1 51:16 42
Linköping 17 13 1 3 45:14 40
Kristianstad 17 12 3 2 35:12 39
Häcken 17 9 5 3 35:15 32
Hammarby 17 10 1 6 29:22 31
Danmörk
Horsens – AGF......................................... 2:1
- Aron Sigurðarson lék allan leikinn með
Horsens og skoraði sigurmarkið.
- Mikael Neville Anderson lék allan leik-
inn með AGF.
Staða efstu liða:
Silkeborg 6 4 1 1 12:6 13
AGF 7 4 1 2 9:5 13
Nordsjælland 6 4 1 1 8:4 13
Randers 6 3 3 0 8:4 12
Horsens 7 3 2 2 7:6 11
København 6 3 0 3 13:10 9
B-deild:
SönderjyskE – Næstved ......................... 1:1
- Kristófer Kristinsson var ónotaður vara-
maður hjá SönderjyskE og Atli Barkarson
var ekki í hóp.
0-'**5746-'
Danmörk
Bikarinn, 16-liða úrslit:
Ringsted – Aalborg ............................. 25:32
- Aron Pálmarsson var ekki í leikmanna-
hópi Aalborgar. Arnór Atlason er aðstoð-
arþjálfari liðsins.
$'-39,/*"
Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir hefur ákveðið að
hætta keppni í golfi.
Ólafía, sem er 29 ára, hefur verið
einn fremsti kylfingur landsins
undanfarinn áratug. Hún eignaðist
sitt fyrsta barn á síðasta ári, soninn
Maron Atlas, en snéri aftur á golf-
völlinn á þessu ári eftir 20 mánaða
fjarveru.
„Nú er komið að tímamótum í
mínu lífi,“ sagði Ólafía Þórunn í
færslu sem hún birti á YouTube en
hún var meðal annars kjörin
íþróttamaður ársins árið 2017.
Ólafía Þórunn
hættir keppni
Morgunblaðið/Óttar
Hætt Ólafía Þórunn var kjörin
íþróttamaður ársins árið 2017.
Alfons Sampsted og liðsfélagar
hans hjá Bodø/Glimt frá Noregi
leika í A-riðli Evrópudeildarinnar í
knattspyrnu ásamt Arsenal frá
Englandi, PSV frá Hollandi og
svissneska liðinu Zürich en dregið
var í riðla í Istanbúl í Tyrklandi í
gær. Elías Rafn Ólafsson og sam-
herjar hans í Midtjylland eru í F-
riðli ásamt Lazio frá Ítalíu, Feye-
noord frá Hollandi og Sturm Graz
frá Austurríki. Keppni í Evrópu-
deildinni hefst 8. september en
dráttinn má sjá í heild sinni á
mbl.is/sport/fotbolti.
Alfons mætir
Arsenal
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Noregur Alfons varð meistari með
Bodö/Glimt á síðustu leiktíð.
BEST Í ÁGÚST
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Mig langaði ekki að koma til baka
bara til að vera með heldur koma
til baka almennilega,“ sagði Ólöf
Sigríður Kristinsdóttir, 19 ára
knattspyrnukona hjá Þrótti í
Reykjavík, í samtali við Morgun-
blaðið. Eins og skýrt er frá neðar á
síðunni var Ólöf besti leikmaður
ágústmánaðar í Bestu deildinni í
fótbolta að mati Morgunblaðsins.
Ólöf meiddist illa með U19 ára
landsliðinu fyrir tímabilið og lék
því sinn fyrsta leik á tímabilinu í
Bestu deildinni 4. ágúst gegn Aft-
ureldingu. Hún hefur alls leikið
fjóra leiki í deildinni og skorað í
þeim tvö mörk og lagt upp þrjú til
viðbótar.
Þarf að leggja meira á sig
„Þetta gerðist með U19. Ég reif
liðþófa og eitthvað í hnésbótinni.
Það var ekkert sérstaklega þægi-
legt,“ útskýrði Ólöf og hélt áfram:
„Mér hefur gengið vel og ég er
ánægð með hvernig ég hef komið
til baka. Ég hefði viljað vinna
þennan síðasta leik, en mér finnst
þetta flott. Stelpurnar hafa svo ver-
ið flottar allt tímabilið og safnað
fullt af stigum, þrátt fyrir að vera
óheppnar með meiðsli. Álfhildur
[Rósa Kjartansdóttir], Katla
[Tryggvadóttir] og einhverjir af er-
lendu leikmönnunum hafa verið að
glíma við meiðsli,“ sagði hún.
Ólöf segir meiðslin ekki angra
sig lengur, en viðurkennir að hún
þurfi að byggja sig meira upp fyrir
leiki en áður. „Ekki þannig, en ég
þarf að halda mér við og gera æf-
ingar. Ég þarf að leggja miklu
meira á mig en ég þurfti að gera og
undirbúa mig betur líkamlega fyrir
leiki.“
Hélt það yrði erfiðara
Framherjinn missti af tíu fyrstu
leikjum Þróttar í deildinni á leiktíð-
inni. Hún átti von á að fjarveran
yrði erfiðari en raun bar bitni.
„Ég hélt það yrði erfiðara, en ég
náði að halda mér upptekinni við að
gera annað. Svo reyndi ég alltaf að
mæta á æfingar og í alla leiki. Svo
var ég með Agli [Egilssyni] sjúkra-
þjálfara og Angelos [Barmpas]
styrktarþjálfara. Þeir hjálpuðu mér
mjög mikið,“ sagði hún.
Ólöf fékk mikilvægt hlutverk á
bekknum hjá Þrótti á meðan hún
jafnaði sig á meiðslunum. „Ég
gegndi mjög mikilvægu hlutverki
og lét alla skrifa undir á blaðið á
leikskýrslunni,“ sagði Ólöf létt, en
viðurkenndi síðan að það væri tölu-
vert erfiðara að vera á bekknum en
á vellinum. „Ég er aldrei stressuð á
vellinum en það tekur á taugarnar
að setja á bekknum og sérstaklega
þegar við erum að tapa. Það er erf-
itt að geta ekki hjálpað til.“
Hún er á sínu þriðja tímabili hjá
Þrótti, en fyrstu tvö tímabilin var
hún að láni frá Val. Hún skipti al-
farið yfir í Þrótt fyrir þessa leiktíð
og sér ekki eftir því. „Mér líður
mjög vel með að vera alveg komin
yfir. Köttaranir og allir í Þrótti
eru eins og ein stór fjölskylda,“
sagði hún. Ólöf vill sjá fleiri unga
leikmenn fara af bekknum hjá
Breiðabliki og Val og í önnur fé-
lög. „Við Katla höfum sýnt að það
er hægt að spila með öðrum liðum
en þessum topp tveimur. Mér
finnst við líka vera á leiðinni
þangað, að verða jafngóð og efstu
liðin.“
Eins og má sjá hér fyrir neðan
er framlínan í liði ágústmánaðar
alfarið skipuð leikmönnum Þrótt-
ar. Ólöf nær afar vel saman með
þeim bandarísku Murphy Agnew
og Danielle Marcano. „Mér fannst
leiðinlegt að geta ekki spilað með
þeim í byrjun tímabilsins. Það er
gaman að fylgjast með þeim í
leikjum og æfingum. Um leið og
ég mátti skjóta var ég mætt á
aukaæfingar með þeim og það
virðist vera að virka,“ sagði Ólöf
Sigríður.
Langaði ekki að koma til
baka bara til að vera með
- Ólöf búin að jafna sig á erfiðum meiðslum - Fljót að láta að sér kveða
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Best Ólöf Sigríður Kristinsdóttir hjá Þrótti úr Reykjavík var besti leik-
maður ágústmánaðar í Bestu deildinni að mati Morgunblaðsins.
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir sóknarmaður úr Þrótti úr Reykjavík var besti
leikmaðurinn í Bestu deild kvenna í fótbolta í ágústmánuði samkvæmt ein-
kunnagjöf Morgunblaðsins, M-gjöfinni. Ólöf var ein af þremur leikmönnum í
deildinni sem fengu samanlagt fjögur M í þremur leikjum sinna liða í ágúst,
en hinar voru bandarísku liðsfélagar hennar Murphy Agnew og Danielle
Marcano.
Ólöf var áberandi í glæsilegum sóknarleik Þróttara í ágústmánuði og
skoraði tvö mörk og lagði upp þrjú til viðbótar. Þróttur vann þrjá leiki af
þremur í mánuðinum og fékk Ólöf einu sinni tvö M, gegn ÍBV, og eitt M í tví-
gang; gegn Selfossi og Aftureldingu, en 14. umferðin telur ekki í liðið að
þessu sinni, þar sem henni er ekki lokið.
Valur og Breiðablik, efstu tvö lið deildarinnar, eru með tvo leikmenn hvort
í ellefu manna úrvalsliði Morgunblaðsins í ágúst, sem má sjá hér til hliðar.
Þróttur fékk flest M í ágúst
Þróttur fékk flest M í ágústmánuði eða 20 talsins. Valur fékk 18 M, Stjarn-
an 17, Breiðablik 16, Selfoss 12, Keflavík 12, ÍBV 11, KR 11, Afturelding 11
og Þór/KA fékk 8 M. Af þeim sem eru í liði mánaðarins voru Murphy Agnew
úr Þrótti og Sigrún Gunndís Harðardóttir hjá Aftureldingu oftast í liði um-
ferðarinnar í ágúst, eða í tvö skipti af þremur. Arna Sig Ásgrímsdóttir og
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir hjá Val, Danielle Marcano hjá Þrótti og Betsy
Hassett úr Stjörnunni eru í liði mánaðarins í annað sinn.
Lið ágústmánaðar hjá Morgunblaðinu
í Bestu deild kvenna 2022
3-4-3 Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar í ágúst
2
Fjöldi sem
leikmaður fékk í ágúst
2Tiffany Sornpao
Selfoss
Vigdís Lilja
Kristjánsdóttir
Breiðablik
Danielle Marcano
Þróttur
Betsy Hassett
StjarnanAgla María
Albertsdóttir
Breiðablik
Þórdís Hrönn
Sigfúsdóttir
Valur
Murphy Agnew
Þróttur
Arna Sif Ásgrímsdóttir
Valur
Caroline van
Slambrouck
Keflavík
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
Þróttur
Sigrún G. Harðardóttir
Afturelding
2
1
3
3
1
1
3
1
3 3
1
3
1
4
1 4
2
4
1
3
2
Ólöf Sigríður best í Bestu
deildinni í ágúst