Morgunblaðið - 02.09.2022, Page 14

Morgunblaðið - 02.09.2022, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Í aðdraganda innrásar Rússa í Úkra- ínu í febrúar sl. þótti mörgum það vera talandi dæmi um ósvífni Pútíns forseta, sem ætti sér engin mörk, að fullyrða að engin ákvörðun hefði verið tekin um að senda rússneska herinn yfir landamæri Úkraínu. Mikið lið hafði verið dregið saman við norðurlandamærin og stríðsæfingar hafnar í Hvíta-Rússlandi. Á meðan á þessu stóð sendu ráðamenn á Vesturlöndum ekki vopn til Úkraínu. Kanslari Þýskalands og forseti Frakklands töluðu fyrir því að ekki mætti ýta und- ir að stríð brytist út. Þeir töldu sig geta spilað rullu sem sátta- semjarar, enda nytu þeir tiltrú- ar Pútíns umfram aðra. Og ekki vantaði upp á að símalínur log- uðu til að þefa af því sem helst gæti vakið áhuga leiðtogans í Kreml og komið í veg fyrir að innrás hæfist. Þessir menn og fleiri fengu sæti við langa borðið í Kreml, sem lengdist sífellt. En á dag- inn kom að friðarboðar höfðu ekkert uppi í erminni og höfðu ekki undirbúið að senda Úkra- ínu varnarvopn, héldi Pútín sínu. En sennilega töldu þeir sér trú um að þeirra vel aug- lýsta framtak hefði seinkað því að Pútín sendi mannskap og tól yfir landamærin. En þetta þukl seinkaði ekki því að gefin væru fyrirmæli um innrás. Ástæðan var einföld. Þegar þarna var komið var aðeins einn banda- maður sem Pútín vildi ekki styggja. Forseti Kína. Hann vildi halda þessum þætti heims- friðar þar til Ólympíuleikum hans væri lokið. Pútín lofaði því og kom spjall og spurninga- leikur við leiðtogana sér vel og breiddi yfir raunverulegu ástæðuna. Pútín hefði aldrei látið það innantóma spjall tefja sig. Og það er vafalaust að töfin var Rússlandi dýr, en hún var óhjákvæmileg. Pútín hélt loks yfir landa- mærin og í átt til Kænugarðs. Hann stillti upp langri röð óhugnaðartóla og hers á veg- inum í átt til höfuðborgarinnar. Þessi sýning, rétt eins og upp- stillingin sem nefnd var í upp- hafi og heræfingarnar, átti að sannfæra Úkraínumenn um að staða þeirra væri töpuð. For- seti Úkraínu og hans menn gerðu sér grein fyrir að Pútín taldi sig ekki þurfa að bjóða þeim neitt. Hann væri þó tilbú- inn til að draga úr markmiðum um til að leggja allt landið undir Moskvu. Það væri hans eftir- gjöf. Hann héldi yfirtökunni frá 2014 og óverulegri viðbót, kannski næsta líkt því sem hann hefði þegar hrifsað. Úkraína gæti því haldið sínu að mestu, en yrði „hlutlaust ríki“ og félli frá öllum hug- myndum um aðild að Nató og hlyti að auka og efla tengsl sín við Rússland. Þetta síðasta hef- ur ætíð verið forgangskrafa Pútíns og er sú enn þýðingar- meiri eftir að Pútín missti Finn- land og Svíþjóð í Nató, sem allt fram í febrúar 2022 hefði verið óhugsandi. Sú kúvending er eina mikla niðurlægingin sem Pútín hefur orðið fyrir á spila- borði utanríkismála frá því að hann tók við völdum. Flestir aðrir leikir hans, og sumir næsta óvæntir, hafa gengið upp og aukið virðingu hans sem andstæðings, sem þyrfti að taka alvarlega. Pútín óttaðist ekki hótanir um refsiaðgerðir. Slíkt tal, eftir landtöku hans 2014, kostaði hann lítið. Þvert á móti héldu stórríki ESB áfram að kremja sig sjálf undir áhrif Rússa svo sem með langtímasamningum um stórfelld olíukaup og að haf- ist var handa um að loka á nýt- ingu kjarnorku í ríkjum eins og Þýskalandi. Evrópuríkin telja brýnt að þessari óþægilegu uppákomu í austri ljúki sem fyrst. Efna- hagsþvinganirnar miklu hittu þau sjálf fyrir. En menn gáfu sér að fara mætti með það mál eins og sýndarleikinn frá 2014. Nú eru þýskar verksmiðjur að loka vegna óbærilegs kostnað- ar, enda hefur orkuverð hækk- að meira en spáð var. Selenskí forseti sá fyrir að veturinn yrði erfiður fyrir baráttuna upp á líf og dauða. Að auki stýrir Boris ekki Bretlandi lengur. Marg- víslegur efnahagsvandi er að hrjá Breta sífellt verr. Það dregur úr getu þeirra. Hvernig sem kosningarnar fara í Banda- ríkjunum eftir tvo mánuði er hætt við að brátt losni um stuðning við óvinnandi hernað. Verðbólgusprengja er þar og hún verður ekki hunsuð lengur. Á evrusvæðinu er verðbólga komin upp í 9,1%. Hraði hennar hefur ekki verið slíkur í aldar- fjórðung. Seðlabanki evrunnar tók allt of seint við sér. Við þetta allt bætast svo áætlanir í álfunni um skömmtun og myrkvun á kaldasta tíma árs- ins. Það mun ekki ýta undir stuðning við slag sem enginn endir sést á. Pútín hefur putta sinn á því að flýta fyrir þessari öfugsnúnu þróun. Robert Habeck efnahags- ráðherra Þýskalands sagði ný- verið að „hvar sem orkuþörf væri þýðingarmikill þáttur í rekstri fyrirtækis horfðu menn á skelfilega stöðu“. Efnahagsþvinganir allra tíma urðu hæl- krókur á þá sjálfa} Þrengingar og vetrar- veður veikja vonir Þ egar litið er á einstök framfaraskeið í sögu þjóðarinnar kemur í ljós hve frjáls utanríkisviðskipti og inn- streymi erlends fjármagns hefur haft þar mikið að segja. Í byrjun síðustu aldar var erlent fjármagn drifkraftur- inn að baki tæknibyltingu í sjávarútvegi og öðr- um atvinnugreinum. Útlendingar kenndu okk- ur að leggja vegi, byggja brýr og hafnir, teikna og smíða hús, svo ekki sé minnst á aðrar iðn- greinar og handverk á borð við brauð- og öl- gerð. Margir settust hér að og urðu hluti af þjóðinni. Þegar skrúfað var fyrir frjáls viðskipti við útlönd og erlent áhættufjármagn hvarf úr landinu á kreppuárunum komu áratugir hafta og stöðnunar í kjölfarið. Kostir beinnar erlendrar fjárfestingar eru ótvíræðir í samanburði við erlendar lántökur. Ný þekking og kunnátta fylgir fjárfestingunni, hún leiðir til aukinnar fjölbreytni atvinnulífsins og opnar nýja markaði fyrir útflutning. Stoðir efnahagslífsins verða fjölbreyttari og velmegun eykst. Erlendur aðili sem hættir fjármagni sínu í íslenskt fyrirtæki til lengri tíma er í raun- inni að lýsa yfir stuðningi við íslenskt efnahagslíf og vilja til að byggja upp og efla nýsköpun í landinu. Gildandi reglur um erlenda fjárfestingu eru fremur strangar í alþjóðlegum samanburði. Nefna má takmark- anir á eignarhaldi erlendra aðila í sjávarútvegi og einnig verður að hafa hugfast að fjölmörg atvinnustarfsemi er að mestu rekin af fyrirtækjum í eigu opinberra aðila. Þetta gildir t.d. um fyrirtæki í framleiðslu og dreif- ingu á raforku, svo og öflun og dreifingu á heitu og köldu vatni. Opinber rekstur er einnig ríkjandi hvað varðar vegakerfið, flugvelli, hafnir og flugumsjón, svo ekki sé minnst á heilbrigðiskerfið. Bent hefur verið á að aðeins tvö aðildarríki OECD búi við meiri hömlur hvað varðar erlenda fjárfestingu, en það eru Nýja-Sjáland og Mexíkó. Áform um heildarlög varðandi rýni beinnar erlendrar fjárfestingar vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu voru nýlega kynnt í sam- ráðsgátt stjórnvalda. Þau áform verður að skoða í ljósi alls framangreinds og einnig með tilliti til þess að nýsköpun í greinum sem hvíla á hugviti og sérhæfðri þekkingu verður að hafa aðgang að erlendu áhættufjármagni. Áformin eru í sjálfu sér skiljanleg en út- færsla þeirra má ekki fæla útlendinga frá fjár- festingum í íslenskum fyrirtækjum. Við þurfum mjög á beinni erlendri fjárfestingu að halda eins og sagan kennir okkur. Nálgunin við þetta viðfangsefni má ekki vera á for- sendum hræðslu við útlendinga eða skapa tyrfið og frá- hrindandi lagaumhverfi. Fremur en að draga úr ættum við að hvetja erlenda fjárfesta til að koma hingað með fjár- magn sitt með einföldu og skiljanlegu regluverki þó að jafnframt sé hugað að öryggishagsmunum þjóðarinnar. aslaugs@althingi.is Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Framfarir og erlend fjárfesting Höfundur er háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BRENNIDEPILL Andrés Magnússon andres@mbl.is Á þessu ári hafa nú þegar 2.550 manns sótt um al- þjóðlega vernd á Íslandi, sem eru nær þrisvar sinn- um fleiri en í fyrra og vel ríflega tvisvar sinnum fleiri en þegar næst- flestir sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi. Haldi fjölgunin áfram sem horfir munu þeir vera rúmlega þrjú þúsund í árslok, um 0,8% af íbúa- fjölda landsins. Mestu munar um fólk á flótta frá innrás Rússa frá Úkraínu, en jafnvel þegar sá fjöldi er undan- skilinn blasir við að straumurinn hingað til lands hefur þyngst mjög mikið, ár frá ári. Mál þessi hafa verið mjög í deiglu síðan alþjóðleg flóttamanna- bylgja reis við strendur Evrópu 2015, sem að miklu leyti mátti rekja til borgarastyrjaldarinnar í Sýrlandi og óaldar víðar í Mið-Austurlöndum og Afríku. Þjóðflótti frá Venesúela bætt- ist þar við og nú nýverið flóttamenn frá Úkraínu. Alls er talið að í heim- inum séu um 100 milljónir manna á flótta. Hér á landi hefur aukningin tæplega farið fram hjá neinum, ekki síst hin öra fjölgun Úkraínumanna, sem raunar hefur um margt gengið furðuvel. Hins vegar eru skólar víða orðnir afar þétt setnir, það reynir á fleiri innviði og ástandið víða komið að þolmörkum. Kostnaður snareykst Heildarkostnaður ríkisins við verndarkerfið hefur verið ríflega 3,5 milljarðar króna undanfarin ár, en stefnir nú hraðbyri í fimm milljarða á ári. Þá er ótalinn kostnaður vegna þeirra mála undir félagsmálaráðu- neyti og menntamálaráðuneyti, sem eru engir smáaurar heldur. Verra er að allt bendir til að samfélagið ráði ekki við fjöldann lengur. Húsnæði skortir, mennta- kerfið getur ekki tekið við börnunum, leikskólapláss vantar, sveitarfélög eins og Reykjavík, Hafnarfjörður og Reykjanesbær, sem hafa viljað taka þátt í móttökunni af góðum hug, geta ekki mikið meira, en kostnaður þeirra hefur vaxið gríðarlega. Ekki bætir úr skák að allt þetta virðist hafa verið stórkostlega van- metið af ráðuneytunum sem í hlut eiga. Á sama tíma hefur þingið ítrek- að, ár eftir ár, hafnað því að afgreiða frumvörp, sem taka á málinu að ein- hverju leyti, þótt þau hrökkvi örugg- lega ekki til. Frumvarp í fimmtu tilraun Til stendur að gera fimmtu til- raunina til þess að leggja fram frum- varp um breytingar á útlendinga- lögum frá 2016 á Alþingi nú í haust og verður það eitt af fyrstu þingmál- unum á dagskrá þingsins. Viðbúið er að umræðan um það verði fyrirferð- armikil, enda skiptar skoðanir á þess- um málum og nokkur tilfinningahiti um þau sömuleiðis. Segja má að hér á landi skipti nokkuð í tvö horn með afstöðuna í þessum efnum. Annars vegar eru þeir sem segja að Ísland eigi fullt í fangi með að taka við fólki, sem hér leitar hælis, en jafnframt séu í þeim hópi margir, sem ekki eigi erindi hingað til lands á þeim forsendum. Hins vegar segja aðrir að Ísland þurfi að gera miklu meira í þeim efnum og ekki skuli efast um erindi þeirra, sem segjast vilja fá hæli, eða snúa þeim til þess lands, þar sem þeir hafi fyrst gefið sig fram, líkt og nú er kveðið á um í alþjóðaskuldbindingum. Margir eru auðvitað einhvers staðar þar á milli og loks má geta þeirra, sem telja einfaldlega að landamærin eigi að vera galopin, en þá stendur eftir spurningin hvort almenningur eigi að standa straum af kostnaðinum, sem af komu hælisleitenda hlýst. Útlendingamálin enn og aftur í deiglunni Fjöldi fólks sem hlotið hefur vernd á Íslandi Frá 2014, eftir tegund verndar Heimild: Gallup 0 200 400 600 800 1000 1200 ’22’21’20’19’18’17’16’15’14 Vernd ættingja Kvótaflóttamenn Mannúðarsjónarmið Viðbótarvernd Vernd 1.107 Viðbrögð benda til þess að frumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra muni ekki renna andstöðulaust í gegnum Alþingi. Varla verður þó hjá því litið að staðan hefur gerbreyst á undanförnum árum, bæði hvað heildarfjölda varðar og ásókn þeirra, sem fremur eru að flýja bág kjör en bráða lífshættu. Vel er þekkt að hagkerfið hef- ur þörf fyrir vinnufúsar hendur, en það er verra ef það fólk slig- ar hæliskerfið vegna þess að aðrar leiðir eru torsóttari. Huga þarf að stöðu og getu sveitarfélaga til að sinna mála- flokknum, en félagsmálaráðu- neyti og menntamálaráðuneyti telja sig nú þegar þurfa tæpan milljarð kr. í aukafjárveitingu. Bregðast þarf við á enn stór- tækari hátt ef íbúum landsins fjölgar árlega um eins og einar Vestmannaeyjar, allt fólk utan EES og margir í viðkvæmri stöðu, en við bætist að réttur til fjölskyldusameininga mun vafa- laust auka fjöldann enn frekar. Erfið mál úrlausnar HÆLISLEITENDUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.