Morgunblaðið - 02.09.2022, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2022
Haustverkin September er genginn í garð og þá er ekki seinna
vænna að klára útiverkin áður en veturinn skellur á.
Eggert
Úkraína, ríki sem hefur búið við
innrásir og ógnanir af hálfu Rússa
allt frá árinu 2014, hefur nú staðið
af sér linnulausar sprengjuárásir,
umsátur um borgir og grimmdar-
verk gagnvart almennum borg-
urum um hálfs árs skeið. Úkraína
heyr ekki aðeins varnarstríð fyrir
lýðræðið heldur berst beinlínis fyrir
lífi sínu sem sjálfstætt ríki.
Hinn 24. ágúst sl. fagnaði Úkra-
ína 31. afmæli sínu sem sjálfstætt
ríki. Það er þungbært til þess að
hugsa að á þeim sama degi voru einnig liðnir
réttir sex mánuðir frá því að rússnesk stjórn-
völd hófu tilhæfulausa og víðtæka innrás í Úkra-
ínu, árás sem var fordæmd af samfélagi þjóð-
anna, sem og allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna, og sem varð tveimur þjóðum hvatning
til að sækja um aðild að Atlantshafs-
bandalaginu.
Okkur ber að styðja Úkraínu sem fullvalda
lýðræðisríki og styðja viðleitni úkraínskra
stjórnvalda til að verða hluti af samstarfi Evr-
ópuríkjanna. Innrásarstríð Rússa í Úkraínu er
meðal alvarlegustu hernaðaraðgerða á evr-
ópskri grund frá lokum síðari heimsstyrjald-
arinnar. Rússneskar hersveitir hafa framið
grimmdarverk og stríðsglæpi og hernaður
Rússa í Úkraínu mun hafa miklar og alvarlegar
afleiðingar fyrir fæðuöryggi um heim allan, sem
og efnahagsástand í heiminum.
Alþjóðasamfélagið hefur brugðist við hernaði
Vladimírs Pútíns á hendur Úkraínu með reiði og
hneykslan, ekki síst vegna þess að staðfestar
frásagnir af ofbeldi, eyðileggingu, hermd-
arverkum og morðum hafa borist nánast dag-
lega.
Skýrslur sem herma að rússneskir embætt-
ismenn hafi skipulagt og hrint í framkvæmd
svokölluðum „fráflokkunaraðgerðum“, ásamt
gögnum sem sýna fram á að rússneskar her-
sveitir hafi yfirheyrt, handtekið, hrakið á flótta
eða flutt úr landi með valdi milljónir úkraínskra
ríkisborgara, þar á meðal börn, hafa vakið reiði
og hneykslun.
Við höfum séð myndir af hroðalegum afleið-
ingum sprengjuárása Rússa á staði þar sem al-
mennir borgarar hafa leitað skjóls, svo sem
skóla, leikhús og sjúkrahús. Óháðir fjölmiðlar og
mannúðarsamtök hafa í sínum fórum skjalfestar
heimildir um aftökur sem hafa farið fram í borg-
um eins og Bútsja og Irpin, um pyntingar á
jafnt hermönnum sem almennum borgurum og
að öllum íbúum í heilli borg, svo sem Mariupol,
hafi verið meinaður aðgangur að grunnþjónustu
og um leið hafi þeir sætt hörðum árásum og
grimmdarverkum af hendi hernámsliðsins.
Einnig benda ýmis gögn til þess að Rússar
hafi í hyggju að innlima stór
svæði Úkraínu með valdi með því
að nota aðferðirnar í „innlim-
unarhandbókinni“ sem við mun-
um frá 2014. Hyggjast rússnesk
stjórnvöld setja í embætti ólög-
mæta leppembættismenn með
það hlutverk að halda sýnd-
arþjóðaratkvæðagreiðslu um að
verða hluti af Rússlandi. Inn-
limun með valdi væri gróft brot á
sáttmála Sameinuðu þjóðanna,
sem ekki yrði látið afskiptalaust
og hefði alvarlegar afleiðingar.
Ekkert ríki hefur rétt á að breyta
einhliða landamærum nágrannaríkis síns.
Virkt samstarf við alþjóðasamfélagið
Á meðan dauði og eyðilegging eru daglegt
brauð í Úkraínu hafa íbúar landsins leitað skjóls
í neðanjarðarbyrgjum, hætt lífi sínu til að afla
sönnunargagna um grimmdarverk og barist upp
á líf og dauða fyrir þjóð sinni, tungu, frelsi og
sjálfsmynd. Þrautseigja og staðfesta úkraínsku
þjóðarinnar hefur orðið heimsbyggðinni allri
hvatning til að styðja baráttu þeirra fyrir frelsi.
Vopnaðar hersveitir Úkraínu hafa barist af
krafti til að verja þau gildi sem okkur öllum eru
kær.
Bandaríkin styðja margvíslegar alþjóðlegar
rannsóknir á voðaverkum í Úkraínu. Þar með
eru taldar þær rannsóknir sem Alþjóðlegi saka-
máladómstóllinn, Sameinuðu þjóðirnar og ÖSE
(Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu) standa
fyrir. Bandaríkin eru ævinlega reiðubúin að
styðja dómstóla í þeim löndum um heim allan
sem hafa lögsögu yfir einstaklingum sem eru
ákærðir fyrir alþjóðlega glæpi. Við munum nú
sem endranær eiga virkt samstarf við alþjóða-
samfélagið til að aðstoða Úkraínu við endur-
byggingarstarfið.
Afleiðinganna af árásarstríði Rússa gætir víð-
ar en í Úkraínu. Innrásarstríð Rússa hefur vald-
ið miklu uppnámi í kornverslun á heimsvísu og
stofnað fæðuöryggi fjölda þjóða í hættu. Þetta
ástand hefur einnig ýtt undir verðbólgu og or-
sakað miklar verðhækkanir um heim allan.
Sprengjuárásir á akra, flutningskerfi og
geymslusvæði í Úkraínu hafa valdið gífurlegri
eyðileggingu, sem veldur því að landið getur
ekki lengur fætt íbúa sína og íbúa fjölda annarra
landa. Í mörgum tilvikum hafa rússneskar her-
sveitir bókstaflega skilið eftir sig sviðna jörð á
úkraínskum ökrum.
Úkraínskir bændur, sem hefðu ella mátt
vænta metuppskeru í sumar, reyna nú eftir
bestu getu að afla nýrra landbúnaðartækja í
stað stolinna eða skemmdra tækja og berjast við
að sjá fjölskyldum sínum og nærsamfélögum
farborða.
Bandaríkin leggja áherslu á að tryggja að
úkraínsk matvæli komist á heimsmarkað. Við
höldum áfram að nota alþjóðasamstarf, svo sem
samstarf G20-ríkjanna, til að þrýsta á Rússa um
að standa við nýgerðan samning um að leyfa
flutninga á matvælum frá úkraínskum höfnum
við Svartahafið. Í ljósi bíræfinna árása Rússa á
höfnina í Ódessu, aðeins 24 klukkustundum eft-
ir undirritun samningsins, sem og þráfelldra
árása þeirra á landbúnaðarsvæði og flutninga-
starfsemi, er ljóst að alþjóðasamfélagið þarf að
beita sér af fullum þunga til að greiða fyrir út-
flutningi matvæla frá Úkraínu.
Markmiðið að þvinga stjórnvöld til að
láta af ofbeldisverkunum
Þótt Vladimír Pútín hafi þegar valdið Úkra-
ínu og heiminum öllum óafturkræfum skaða er
markmið refsiaðgerða af hálfu Bandaríkjanna
og samstarfsríkja okkar að þvinga stjórnvöld í
Kreml til að láta af ofbeldisverkunum. Aðgerð-
irnar hafa þegar komið hart niður á efnahag
Rússlands og neytt þarlend stjórnvöld til að
beita fordæmalausum og ósjálfbærum inn-
gripum til að hindra alvarlegan skaða.
Hagfræðingar spá því að til lengri tíma litið
og með hertum refsiaðgerðum verði rússnesk
stjórnvöld uppiskroppa með neyðarbjargráð og
þá komi hinn raunverulegi fórnarkostnaður af
ákvörðunum þeirra harkalega niður á rúss-
neskum almenningi.
Þessa má þegar sjá merki, hvert sem litið er.
Stjórnvöld í Kreml hafa ekki birt neinar þjóð-
hagslegar upplýsingar um nokkurra mánaða
skeið. Þótt Pútín fullyrði að efnahagur Rúss-
lands hafi verið blómlegri en efnahagur ESB-
ríkjanna tala rauntölur öðru máli. Á öðrum árs-
fjórðungi 2022 varð fjögurra prósenta sam-
dráttur í efnahag Rússlands, en hagvöxtur í
ESB-ríkjunum jókst sem nam sömu prósentu-
tölu. Rússland hefur þegar lent í vanskilum með
tvær afborganir skulda og hefur í fyrsta sinn í
meira en öld ekki getað staðið í skilum með er-
lendar gjaldeyrisskuldir sínar.
Samþættar refsiaðgerðir hafa einnig leitt til
frystingar á meira en helmingi varasjóðs Seðla-
banka Rússlands, fjármuna sem stjórnvöld í
Kreml hefðu að öðrum kosti nýtt til að knýja
stríðsvél sína. Skertur aðgangur að innfluttum
aðföngum og fullunnum vörum, sérstaklega
vörum sem innihalda háþróaðan tæknibúnað,
hefur þegar orsakað flöskuhálsa og mun til
lengri tíma litið hamla framleiðslu, flutningi og
verslun, og það sem meira er, framleiðslu og
viðhaldi á hernaðartækjum og -tólum.
Á meðan refsiaðgerðirnar draga úr getu Pút-
íns til að vígbúast, verja úkraínskar hersveitir
land sitt af festu og áræðni. Úkraínska þjóðin
verst sem einn maður, sameinaðri en nokkru
sinni fyrr.
1,2 milljarðar bandaríkjadala
í mannúðaraðstoð
Frá því að allsherjarinnrás Rússa hófst í
febrúar hafa yfir 50 ríki slegist í hóp með
Bandaríkjunum og veitt Úkraínu öryggis-
aðstoð. Í sameiningu hefur okkur tekist að
greiða fyrir enn fleiri vopnasendingum til Úkra-
ínu til að halda áfram vel heppnuðu varnarstríði
sínu.
Frá því að Rússland hóf þaulskipulagt, tilefn-
islaust og grimmilegt stríð sitt gegn Úkraínu
hinn 24. febrúar sl. hafa Bandaríkin lagt Úkra-
ínu til hernaðaraðstoð fyrir andvirði næstum 10
milljarða bandaríkjadala. Þar á meðal eru stór-
skotaliðsbúnaður og skotfæri, brynvarin öku-
tæki og háþróuð loftvarnarkerfi fyrir Úkraínu.
Fyrir þrautseigju og staðfestu Úkraínu-
manna hafa yfir 2,6 milljónir þeirra sem hrakist
hafa frá heimilum sínum vegna innrásarinnar –
eða rúmur þriðjungur þeirra sem urðu að flýja –
getað snúið aftur heim.
Borgaralegt samfélag í Úkraínu hefur veitt
víðtæka og síaukna mannúðaraðstoð, samþætt
úrræði og endurreist nærsamfélög. Hjálp-
arstarfsmenn, sem flestir eru frá Úkraínu, eru
við störf á öllum 24 stjórnsýslusvæðum Úkraínu
og geta aðstoðað næstum 12 milljónir íbúa
Úkraínu. Bandaríkin eru stolt af því að hafa lagt
yfir 1,2 milljarða bandaríkjadala til mannúðar-
aðstoðar á þessu ári.
Hinn víðtæki stuðningur, sem alþjóða-
samfélagið hefur sýnt Úkraínu, allt frá þjóð-
þingum heimsins til Evrópuráðsins, sýnir með
órækum hætti að tilefnislausum árásum á sjálf-
stæð, fullvalda ríki verður mætt með fordæm-
ingu og þær munu reynast árásarríkinu dýr-
keyptar. Bandaríkin og bandamenn þeirra og
samstarfsaðilar um allan heim tala nú einum
rómi, sem aldrei fyrr.
Við stöndum áfram með Úkraínu og liðsinn-
um henni í baráttunni fyrir lífi þjóðarinnar, um
leið og við styrkjum og eflum varnir Evrópu og
lýðræðislegan grundvöll ríkja álfunnar. Við
stöndum með Úkraínu vegna þess að landa-
mæri og fæðuöryggi mega ekki verða að kúg-
unartæki. Við stöndum með Úkraínu vegna
þess að mannréttindi eru óumdeild réttindi
allra. Við stöndum með Úkraínu vegna þess að
það er rétt.
Eftir Michelle Yerkin » Við stöndum áfram með
Úkraínu og liðsinnum
henni í baráttunni fyrir lífi
þjóðarinnar, um leið og við
styrkjum og eflum varnir
Evrópu og lýðræðislegan
grundvöll ríkja álfunnar.
Michelle Yerkin
Höfundur er sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.
Þrautseigja úkraínsku þjóðarinnar um sex mánaða skeið
Kirkjudeildir, sem
samanlagt telja 2,5 millj-
arða kristins fólks um all-
an heim, standa saman að
Grænum september –
The season of Creation –
á hverju ári. Tímabilið
stendur frá Bænadegi
sköpunarinnar, 1. sept-
ember, til hátíðardags
Frans frá Assisí, vernd-
ara vistfræðinnar, 4.
október. Hér hefur myndast sú hefð að
ljúka því ekki fyrr en í tengslum við um-
hverfisþingið stóra, Hringborð norður-
slóða (Arctic Circle Assembly), sem hald-
ið er um miðjan október í Hörpu.
Þjóðkirkjan hefur tekið virkan þátt í
Grænum september frá því 2017 og stað-
ið fyrir því að forystufólk af akri alþjóð-
legrar kristni hafi látið að sér kveða á
Arctic Circle. Hin síðari ár hefur verið
lögð áhersla á að ræða við landverndar-
og náttúrufræðinga, innlenda sem er-
lenda, meðal annars á Skálholtsráð-
stefnum, en slík ráðstefna verður nú
haldin í fjórða sinn.
Runni með rauðum
borðum í kirkjunni?
Stef Græns september á þessu ári er:
„Hlustum á raddir sköpunarverksins“.
Víða um heim má heyra kveinstafi úr
sköpunarverkinu, skógar braka til að
mynda af logandi eldi, dýrin leggja á
flótta undan svíðandi logum og fólk neyð-
ist til þess að yfirgefa heim-
kynni sín, umlukið reykjar-
svælu. Táknræn mynd
Græns september í ár er á
hinn bóginn sýn fjárhirðisins
Móse á Hóreb-fjalli: Runni í
ljósum logum sem þó brenn-
ur ekki. Hér er ekki á ferð-
inni eyðingarafl sem brennir
til ösku heldur staðfesting á
nærveru Guðs. Hann heyrir
kveinstafi þess og þeirra sem
þjást og kallar til forystu um
baráttu gegn eyðingu, órétt-
læti og kúgun. Andi Guðs
kallar á okkur að hlýða á margradda
kveinstafi sköpunarverksins og bregðast
við þeim með tilbeiðslu, iðrun og aðgerð-
um. Minnt er á að um köllun er að ræða
og að á þeim stað þar sem við hvert og
eitt stöndum sé heilög jörð.
Erindi Guðs hið sama
að fornu og nýju
Ég bendi öllum áhugasömum á heima-
síðu Tímabils sköpunarverksins, sem við
köllum Grænan september, https://
seasonofcreation.org. Þar er okkur meðal
annars bent á að gæta þess í málatil-
búnaði okkar að við hlustum sérstaklega
á og styrkjum raddir og hugmyndir
þeirra sem minnst hafa ýtt undir lofts-
lagsbreytingar en verða mest fyrir
barðinu á þeim. Þar á meðal eru raddir
ungs fólks og fólks á flótta sem hefur
sára sögu að segja en nær ekki eyrum
þeirra sem ráða. Ég minni í því sambandi
á vefinn: https://heimsmarkmid.is þar sem
ígrundað er hvað biblían og kristin trú
leggi til heimsmarkmiða Sameinuðu
þjóðanna.
„Köllun Móse þá og nú“
Gunnlaugur A. Jónsson prófessor em-
eritus segir í grein sinni „Köllun Móse þá
og nú“ um málverk Einars Hákonar-
sonar, að þegar Drottinn loks taki til
máls um erindi sitt og hlutverk það sem
hann hyggst fela Móse á hendur, hefjist
það á þeim orðum að hann hafi séð „eymd
þjóðar“ sinnar í Egyptalandi, „heyrt
kvein“ og „þekki þjáningu“ hennar. Síðan
segir Gunnlaugur: „Kvein til Drottins í
Gamla testamentinu kallar yfirleitt á við-
brögð hans og svo er einnig hér. Það
reyndist einmitt vera erindi hans við
Móse, sem hann fól að fara af stað og
leiða þjóð sina „… út úr Egyptalandi“.“
Að gömlu og nýju á Guð við okkur
sama erindið; að kalla til forystu um að
bregðast við kveinstöfum og lina þján-
ingar. Leiða til sigurs í baráttu gegn
óréttlæti og eyðingu lífs.
Grænn september í ljósum loga
Eftir Agnesi M.
Sigurðardóttur » Þjóðkirkjan hefur
tekið virkan þátt í
Grænum september frá
því 2017 og staðið fyrir
því að forystufólk af akri
alþjóðlegrar kristni hefur
látið að sér kveða á
Hringborði norðurslóða.
Agnes M. Sigurðardóttir
Höfundur er biskup Íslands.