Morgunblaðið - 02.09.2022, Side 24

Morgunblaðið - 02.09.2022, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2022 Góð heyrn glæðir samskipti Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Pantaðu tíma í HEYRNAR GREININGU Nánari upplýsingar í síma 534 9600 eða á heyrn.is Allar helstu rekstrarvörur og aukahlutir fyrir heyrnartæki fást í vefverslun heyrn.is 50 ÁRA Anna fæddist á Akureyri en ólst upp á Eski- firði og flutti til Reykjavíkur á unglingsárunum. Hún býr nú í miðbænum. Anna er með BA í frönsku frá HÍ, MA-gráðu í menningarfræði og M.Sc.- gráðu í stafrænni hönnun og miðlun frá Upplýsinga- tækniháskólanum í Kaup- mannahöfn. „Ég bjó samanlagt átta ár í Danmörku, en auk námsins vann ég á Norður- bryggju í aðdraganda og kjöl- farið á opnun menningarstofn- unarinnar.“ Anna lauk síðan meistara- gráðu í arkitektúr frá Columbia-háskóla í New York árið 2009 og vann um tíma á stofu þar og í Miami. Hún fluttist aftur til Íslands fyrir rúmum tíu ár- um. Anna rekur eigin stofu, Úrbanistan. Meðal nýlegra verkefna er kvikmynd sem Úrbanistan framleiddi og var frumsýnd í fyrra. Hún heitir Jarðsetning og í haust mun koma út samnefnd bók. Umfjöllunarefnið er niðurrif Iðn- aðarbankans í Lækjargötu. „Þetta tengist mínu sérsviði í bygginga- varðveislu og hugmyndafræði í arkitektúr.“ Hún vinnur einnig að stóru rannsóknaverkefni sem nefnist Húsnæðiskostir og híbýlaauður. „Það fjallar um listina að búa og byggist á þverfaglegu samstarfi sem ætlunin er að gefa út bók um á næsta ári. Svo er ég að vinna í byggðarannsóknum og skipulags- verkefnum fyrir ýmis sveitarfélög.“ Anna er einnig lektor í arkitektúr við Listaháskóla Íslands. Hún situr í minjaráði Reykjavíkur og nágrennis. Áhugamál Önnu eru fjallgöngur og skíðamennska. „Ég var leiðsögumaður á 10. áratugnum, göngubakterían lagðist í dvala þegar ég var komin með lítil börn, en er að vakna aftur.“ FJÖLSKYLDA Eiginmaður Önnu er Gunnlaugur Friðriksson, f. 1972, tölv- unarfræðingur hjá Inecta. Börn þeirra eru Uni Nils, f. 2006, Áshildur Her- dís, f. 2009, og Helgi Nils, f. 2012. Foreldrar Önnu eru Elsa Petersen, f. 1940, MA, og Bogi Nilsson, f. 1940, fv. ríkissaksóknari. Þau eru búsett í Reykjavík. Anna María Bogadóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú ert glaðlyndur og öll samskipti ganga vel, bæði í starfi og einkalífi. Þú ættir að þiggja þau heimboð sem þér berast. 20. apríl - 20. maí + Naut Ástvinir kynna hugmyndir fyrir þér sem eru svo langt frá því sem þér hugnast að það er erfitt að hlæja ekki. Skrifaðu ekki undir neitt fyrr en þú ert sáttur. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Styrkur þinn leiðir þig áfram og ryður öllum hindrunum úr vegi. Kannski munu tekjur þínar eða eignir aukast. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Leitaðu leiða til að bæta aðstæður þínar í vinnunni. Oft er tvísýnt um árangur en láttu það ekki draga úr þér kjarkinn. Ef félagar þínir hagnast, hagnast þú líka. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú færð tækifæri til þess að endur- skoða samkomulag sem þú hefur gert við systkini, ættingja, vini og nágranna á næstu mánuðum. Hindranir eru samt sem áður til staðar. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Skrifaðu niður allt sem þú þarft að gera og raðaðu svo verkefnunum eftir mik- ilvægi þeirra. Láttu aðra ekki teyma þig út í einhverja vitleysu. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú hefur í hendi þér að gera breytingar í samskiptum við aðra. Gerðu ekki meiri kröfur til sjálfs þín en þú ert fær um að standast. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þig þyrstir í ævintýri og það er eins gott því þú munt sannarlega fá nóg af þeim á næstunni. Leyfðu þér að njóta þess en gættu þess að ganga ekki of nærri þér. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú getur lært mikið af því að skiptast á skoðunum við vin þinn. Allt sem þú tekur þér fyrir hendur skilar hugsanlega hagnaði. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Alvarlegar og nærgætnar sam- ræður við vin kunna að verða þýðing- armiklar, annað hvort fyrir þig eða vin þinn. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þegar mál geta farið á hvorn veginn sem er verður maður að taka sína ákvörðun og láta slag standa. Notaðu því daginn vel og gerðu áætlun fyrir næstu viku. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Leggðu þig fram um að sýna sjón- armiðum annarra þá virðingu sem þú vilt þér til handa. Stundum þarf fólk bara að tjá sig og vita að á það er hlustað. hafa átt þátt í að skólanum var kom- ið á laggirnar.“ Helga fór tvisvar inn á þing sem varaþingmaður 1999- 2003. Helga hefur mikinn áhuga á arki- tektúr og hönnun. „Ég færi trúlega í arkitektanám ef ég væri að velja mér starfsferil í dag. Við hjónin höf- um haft mjög gaman af því að gera upp hús og þau eru orðin nokkur húsin sem við höfum endurbyggt. Ég er alveg liðtæk með hamarinn þó maðurinn minn sé aðalsmiðurinn. Þá er körfuboltinn mikið áhugamál en við hjónin vorum í stjórn körfuknatt- leiksdeildar Skallagríms um árabil. Við komum m.a að stofnun nytja- markaðar Skallagríms ásamt fleir- um en markaðurinn var stofnaður árið 2009. Ferðalög og útivist eru helstu áhugamálin núna, hvort sem er innanlands eða utan.“ Í dag er Helga að vinna í verkefni sem heitir Upplifunargarður. „Það gengur út á að byggja upp afþrey- ingu eða upplifunargarð í Borgar- nesi sem byggist á grunnhug- myndum um Latabæ og tvinna þar leiðsögumannanám í EHÍ haustið 2011 og lauk því 2012. Hún lauk stúdentsprófi 2012 frá FVA. „Það var ekki möguleiki fyrir mig árið 1981 að fara í nám, búandi úti á landi með lítið barn. Mig langaði hins veg- ar alltaf að læra meira og haustið 2019 hóf ég nám í viðskiptafræði með áherslu á verkefnastjórnun við Háskólann á Bifröst og lýk því námi núna í vetur.“ Helga var varamaður í bæjar- stjórn Borgarbyggðar fyrir Sjálf- stæðisflokkinn 1998 og svo aðal- maður 1999-2002. Árin 2002-2006 var hún forseti sveitarstjórnar. Einnig var hún í stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og for- maður um tíma. „Þetta var mjög skemmtilegur tími, sameining sveit- arfélaga var í gangi á þessum árum og það var mikið framfaraspor að mínu mati þegar nýtt sveitarfélag varð til árið 2006 sem er Borgar- byggð í núverandi mynd.“ Helga var formaður byggingarnefndar Menntaskóla Borgarfjarðar 2006- 2008. „Ég er hvað stoltust af því að H elga Halldórsdóttir fæddist 2. september 1962 í Reykjavík og dvaldi fyrstu mán- uðina með móður sinni hjá móðurforeldrum í Hrúts- holti. Árið 1963 giftist móðir Helgu kjörföður hennar, Halldóri Ásgríms- syni frá Borg í Miklaholtshreppi. „Það var mikið gæfuspor fyrir okkur mömmu. Æskuárin í sveitinni voru yndisleg. Ég ólst upp á Minni- Borg með þremur yngri systkinum og í nálægð við stóran frændgarð á Borg og í Hrútsholti. Það voru margir krakkar á svipuðum aldri í sveitinni. Við stunduðum mikið íþróttaæfingar á sumrin og ýmislegt brasað á veturna. Ég las mestallan bókakost beggja heimila á Borg og Minni-Borg á þessum árum auk þess sem bókasafnið í félagsheimilinu var mikið notað. Í sveitinni lærðu krakk- ar snemma að taka þátt í bústörf- unum og við fengum að vera með í öllu. Ég sóttist meira í útistörfin og hestastúss, ég var ekki eins spennt fyrir heimilisstörfunum.“ Helga gekk í Laugargerðisskóla, fór í Fjölbraut á Akranesi og í fram- haldinu í Flensborg í Hafnarfirði og lauk námi af uppeldisbraut 1981. Á sumrin vann hún heima í sveitinni. Fyrsta fasta starfið fyrir utan sveitastörfin var á skrifstofu KB í Borgarnesi 1982-1988. Hún var að mestu heima með yngri tvö börnin 1988-1994 en vann í lengri og skemmri tíma á nokkrum stöðum þessi ár. Hún starfaði á leikskól- anum Klettaborg, Hyrnunni og hjá UMSB. Hún starfaði hjá Búnaðar- samtökum Vesturlands 1998- 2012. Árið 2013 hóf hún störf hjá Ráðgjaf- armiðstöð landbúnaðarins (RML) þar sem hún starfar nú á starfsstöð þeirra á Hvanneyri. „Hjá RML er afar gott samstarfsfólk og góður vinnustaður. Það er alltaf gaman að fara í vinnuna.“ Árið 2010 stofnuðu Helga og Gunnar, eiginmaður henn- ar, ferðaþjónustufyrirtækið Egils Guesthouse og ráku til 2021. Árin 2001-2002 stundaði Helga nám í opinberri stjórnun og stjórn- sýslu hjá EHÍ þegar hún tók þátt í sveitarstjórnarmálum. Þá fór hún í saman upplifun, heilbrigði og holl- ustu. Mér finnst betra að hafa nóg fyrir stafni og hafa nokkra bolta á lofti á sama tíma.“ Fjölskylda Eiginmaður Helgu er Gunnar Jónsson, f. 2.5. 1960, bygginga- verktaki. Hann rekur fyrirtækið Nesafl í Borgarnesi, þar sem þau eru búsett. Foreldrar Gunnars voru hjónin Inga Sigurbjörg Ingvars- dóttir, f. 17.7. 1937, d. 30.11. 2017, húsmóðir, og Jón Þórðarson, f. 22.2. 1935, d. 13.7. 2022, bifreiðarstjóri. Þau voru búsett í Borgarnesi. „Við Gunnar erum svo heppin að tvö af þremur börnunum okkar búa í Borg- arnesi og dóttir okkar og tengdason- ur og ömmustelpurnar búa í sömu götu og við. Svo er að bætast lítil stúlka í hópinn okkar í september en Halldór Óli og Ewa konan hans eiga von á sínu fyrsta barni.“ Börn Helgu og Gunnars eru 1) Hafþór Ingi, f. 15.9. 1981, blikk- smiður og körfuboltaþjálfari, starfar hjá SSV í Borgarnesi og nemi í Helga Halldórsdóttir, verkefnastjóri hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins – 60 ára Stórfjölskyldan Afmælisferð á Tenerife í apríl síðastliðnum. Með marga bolta á lofti Hjónin Helga og Gunnar í Krist- janíu í Kaupmannahöfn í sumar. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.