Morgunblaðið - 02.09.2022, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 02.09.2022, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2022 NÝJUM AÐILUM fylgja ferskir vindar og ný vinnubrögð Faglegar heildarlausnir og samkeppnishæf verð. Allt á einum stað. Dalshraun 6 | 220 Hafnarfjörður | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is „ÞAÐ ER ÓKEI EF ÞÚ ÞARFT AÐ FARA, LITLI VIN. SUMIR ÞURFA AÐ VAGGA, AÐRIR AÐ VELTA.“ „ÞAÐ LEIÐ YFIR FÍLINN OG VIÐ FINNUM EKKI TEMJARANN.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... svart og sykurlaust kaffi – en samt sykursætt. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann SPJALLAFRÁBÆR MÁLTÍÐ! Ó, JÁ VEISTU HVAÐ MÉR FINNST GOTT AÐ GERA EFTIR MAT? HVAÐ? ÉG MUN EKKI HVÍLAST FYRR EN ÉG HEF REFSAÐ ÞÉR GRIMMILEGA! OF SEINT! ÉG ER ÞEGAR KVÆNTUR! ferðamálafræði við Háskólann á Hólum. Maki: Lind Björk Jak- obsdóttir, f. 26.5. 1990 snyrtifræð- ingur og nemi í félagsráðgjöf við HÍ, búsett í Borgarnesi; 2) Halldór Óli, f. 1.4. 1988, BA í þjóðfræði, MA í hag- nýtri menningarmiðlun og diplóma í handrita- og leikstjórn. Stuðnings- fulltrúi hjá Reykjavíkurborg. Maki: Ewa Koprowska, f. 7.11. 1986, land- fræðingur og kennari, búsett í Reykjavík; 3) Íris, f. 15.9. 1990, BS í viðskiptafræði og MS í mannauðs- málum, gæða- og mannauðsstjóri hjá Borgarbyggð. Maki: Davíð Ás- geirsson, f. 14.10. 1993, bygg- ingaverkamaður hjá ÁY Byggir. Dætur þeirra eru Tara, f. 2014, Elma, f. 2017, og Lea Mjöll, f. 2021. Systkini Helgu sammæðra eru Erla Hulda Halldórsdóttir, f. 1966, prófessor í kvenna- og kynjasögu hjá HÍ; Ásgrímur Halldórsson, f. 1968, rafiðnfræðingur og viðskipta- stjóri hjá Medor, og Guðjón Hall- dórsson, f. 1977, rafiðnfræðingur og verkefnastjóri hjá Rafmiðlun. Systkini samfeðra eru Sigrún Sigurðardóttir, f. 1955, félagsliði og ferðaráðgjafi; Jóhann Sigurðarson, f. 1956, leikari, Ólöf Sigurðardóttir, f. 1958, læknir, og Þorsteinn Gauti Sigurðarson, f. 1960, píanóleikari og skólastjóri. Foreldrar Helgu: Inga Guðjónsdóttir, f. 26.6. 1943, fv. bóndi á Minni-Borg og starfsmaður Brákarhlíðar, búsett í Borgarnesi, og Sigurður Sigurðarson, f. 5.12. 1931, d. 17.8. 2006, bóndi á Hamra- endum í Stafholtstungum og sjó- maður. Kjörfaðir Helgu var Halldór Ásgrímsson, f. 3.8. 1931, d. 6.10. 1998, bóndi á Minni-Borg. Foreldrar Halldórs voru hjónin Ásgrímur Gunnar Þorgrímsson, f. 16.9. 1895, d. 25.8. 1983, bóndi á Borg, og Anna Stefánsdóttir, f. 21.1. 1897, d. 24.9. 1967, húsfreyja á́ Borg. Helga Halldórsdóttir Gísli Björnsson bóndi í Hvammi og verkamaður í Hnífsdal Sveinbjörg Kristjánsdóttir húsfreyja í Hvammi í Dýrafirði Sigurður Gíslason bóndi á Hamraendum Ólöf Ólafsdóttir húsfreyja á Hamraendum Sigurður Sigurðarson bóndi á Hamraendum í Stafholtstungum og sjómaður Sesselja Jónsdóttir húsfreyja í Kalmanstungu Ólafur Stefánsson bóndi í Kalmanstungu á Hvítársiðu Magnús Þórarinsson bóndi í Hrútsholti Anna Sigurborg Sigurbrandsdóttir húsfreyja í Hrútsholti Guðjón Magnússon bóndi í Hrútsholti Erla Hulda Valdimarsdóttir húsfreyja í Hrútsholti í Eyjahreppi Frímann Valdimar Hersir Brynjólfsson prentari í Reykjavík Inga Eiríksdóttir húsfreyja í Miklaholti í Hraunhr. og Reykjavík Ætt Helgu Halldórsdóttur Inga Guðjónsdóttir fv. bóndi á Minni-Borg í Eyja- og Miklaholtshreppi, búsett í Borgarnesi Mér þykir vænt um það, sem Jón Atli Játvarðarson skrifar á Boðnarmjöð : „Stundum heyri ég frá kunningjum mínum að þeir hafi séð vísur eftir mig í Mogganum, í vísnaþætti sem Halldór Blöndal hefur prókúru fyrir. Ég vil geta þess að fyrir þeirri birtingu er fullt leyfi frá mér, þó ég hafi í raun ekk- ert fylgst með“: Meðan þjóðin Moggann les og meðtekur það besta. Blöndal, sem og Sókrates segja frá því versta. Það er hausthljóð í Magnúsi Hall- dórssyni: Kinnar strýkur kvöldsins blær, koldimmt skýjadragið. Birta dvín, en blíðan tær blikar sólarlagið. Gunnar J. Straumland skrifar: „Undir fornyrðislagi kveð ég haustkvæði um eylendusoninn sem fékk að bergja á skáldamiði hjá al- valdi en nær ekki að finna hugsun sinni farveg“: Hverf er haustgríma himins nátta fæðast andvana fylgjur málgaldurs. Allt gaf alvaldur auðnu leitanda hann skal einsamall huga stýra. (Máltækið „Hverf er haust- gríma“ merkir að haustnóttu er ekki treystandi, því hún er sí- breytileg.) Hvítabjörn í Hornvík reyndist hvítur selur. Jón Jens Kristjánsson yrkir: Göngufólkið vissi vel að vafans enginn nýtur enda varð því ekki um sel af því hann var hvítur. Jón Atli Játvarðsson kveður: Hef ég gengið holt og grjót, hlíðar upp og niðr’í mót, í berghlaupum er bratt á fót, ber þó með mér allskyns dót. Gunnar Hólm Hjálmarsson skrif- aði á miðvikudag: „Seðlabankinn hækkaði stýrivexti í morgun og boðar frekari hækkun. Ég tel því rétt að senda seðlabankastjóra til- mæli“: Viltu hafa hægt um þig hér er margt í húfi. Veldu sanngjarnt vaxtastig væni drengurinn ljúfi. Ólafur Stefánsson yrkir (bara til að bulla eitthvað ): Hagyrðingar háðir sinni fíkn, halda upp fjöri á þessum stað. Drottinn veiti þrautaþjáðum líkn, þeim svo líka er eiga’ að lesa það. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vísurnar lærast og birtast

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.