Morgunblaðið - 02.09.2022, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 02.09.2022, Qupperneq 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2022 GOLD Sölustaðir: Apótek, almennar verslanir. Mest selda liðbætiefni á Íslandi Sérvalin blanda bætiefna fyrir liðina. Inniheldur virkt og uppbyggilegt kondrótín, kollagen og kalk fyrir bein og brjósk. Njóttu sumarsins eymslalaus. NUTRILENK Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég þurfti ekki að hugsa mig lengi um þegar mér bauðst að leikstýra þessu verki, enda er það ekki á hverjum degi sem Beckett er settur upp á Íslandi,“ segir Harpa Arnardóttir, leik- stjóri Hamingjudaga eftir írska Nóbelsverð- launaskáldið, Samuel Beck- ett, sem Leikfélag Akur- eyrar frumsýnir í Menning- arhúsinu Hofi í kvöld kl. 20. Með hlutverkin tvö í verk- inu fara Edda Björg Eyj- ólfsdóttir og Árni Pétur Guðjónsson. Brynja Björnsdóttir hannar leik- mynd og búninga, Ólafur Ágúst Stefánsson hannar lýsingu og um tónlistina sér Ísidór Jökull Bjarnason. Hafliði Arngrímsson yfirfór þýðingu Árna Ibsens. „Við erum heppin að hafa Hafliða með okkur, því hann er mikill leikhúsmaður.“ Beckett var séní Harpa rifjar upp að uppfærsla Árna Ibsen á nokkrum verkum eftir Beckett hjá Stúdenta- leikhúsinu, sem hún sá fyrir um fjörutíu árum þegar hún var aðeins 19 ára, hafi haft mikil áhrif á sig. „Ég man enn eftir áhrifum textans og þeirri skynjun sem henni fylgdi,“ segir Harpa og tekur fram að hún hafi í gegnum tíð- ina ávallt reynt að grípa þau tækifæri sem hafa gefist til að vinna með Beckett enda sé hann sannkallað séní. Rifjar hún upp að hún hafi leikið konuna í tunnunni í uppfærslu á Enda- tafli í Tjarnarbíói sem Kristín Jóhannesdóttir leikstýrði 2015. „Ég dvaldi í tunnunni alla sýninguna og naut þess að hlusta á þennan magnþrungna texta,“ segir Harpa og rifjar upp að hún hafi stundum haft með sér prjóna. „Einu sinni hafði ég pappír og kol með mér í tunnuna og teiknaði í blindni tilfinninguna sem textinn vakti með mér.“ Hlustar á raddirnar hið innra „Beckett leikstýrði oft eigin verkum og hafði mjög skýrar hugmyndir um hvernig nálgast ætti textann. Hann skrifaði leiklýsingar alveg niður í smæstu smáatriði. Við völdum þá leið að vera samferða Beckett og láta reyna á hug- myndir hans um eigið verk. Á póstmódern- ískum tímum, sem vel að merkja eru nú kannski liðnir, þá er eitthvað við það að mæta þessu verki bara þráðbeint. Verk hans eru oft mjög formföst en innan þessa sterka forms er mikið frelsi, sem getur verið mjög gefandi fyr- ir bæði leikstjóra og leikara,“ segir Harpa og tekur fram að í ákveðnum skilningi minni textar Becketts á tónverk. „Það er eins og hann sé alltaf að reyna að komast handan við orðin, inn í taktinn, sönginn og dansinn. Í Hamingjudögum talar aðalper- sónan Vinní látlaust og bíður eftir að fá að syngja sönginn sinn fyrir svefninn. „Það er svo fátt að tala um. Maður talar um það allt,“ segir hún og heldur áfram: „Kemur sá tími að orðin bregðast.“ Það þarf að læra verk Becketts nánast eins og tónverk, en síðan finna frelsið og spila ekki endilega allar nóturnar heldur leyfa orkunni að taka yfir í stóru bogunum,“ segir Harpa. Hún tekur fram að í ákveðnum skilningi séu textar Becketts fremur til að skynja en að skilja. „Beckett átti við heilmikið þunglyndi að stríða. Á einni af myrkustu stundum lífs síns varð hann fyrir hugljómun og fann lykilinn að sinni höfundarrödd. Honum varð ljóst að hann átti ekki að skrifa um ytri heiminn heldur hlusta á raddirnar í höfðinu á sér, sem voru lík- legast að gera hann alveg brjálaðan. Í kjölfarið hófst eitt gjöfulasta tímabilið á hans ritferli þar sem Beðið eftir Godot varð til, sem mark- aði á sinn hátt upphaf nútímaleikritunar. Beckett fór með ljósið inn í myrkustu kima vitundarinnar. Hann gat verið vitni að sjálfum sér á mjög myrkum stað og gefið því listrænt form,“ segir Harpa og tekur fram að Beckett taki lesendur og leikhúsgesti með sér í ferða- lag breytinga í verkum sínum. „Textarnir hans eru lifandi ferlar – og það eru ekki endilega auðveldir ferlar.“ Fer leikandi létt inn í myrkrið Hamingjudögum hefur verið lýst sem skemmtilegasta leikriti Becketts. Þegar það er borið undir Hörpu segir hún ákveðinn léttleika einkenna verkið. „Hann fer með okkur inn í myrkrið, leikandi létt. Þetta er hálfgert uppi- stand. Hann hefur húmor fyrir sjálfum sér og mannlegum veikleikum. Aðalpersónan Vinní er föst í haugnum, föst í eigin sjálfskaparvíti. Hún þráir breytingar en þorir ekki að breyta neinu. Hún þráir frið, en getur ekki látið sjálfa sig í friði,“ segir Harpa og tekur fram að verk- ið, sem var frumsýnt í New York 1961, „sé ein- hvern veginn bæði gamalt og nýtt. Ég trúi því að gamli tíminn í þessu verki sé að hverfa, manneskjurnar geti fundið innri frið og þar með skapist friður á jörðinni en kannski er það bara óskhyggja. Þegar jarðarbúar eiga þann kost einan að sameinast og hjálpast að til að afstýra loftslagshamförum og eigin útrým- ingu, þá bætist enn eitt stríðið við. Mannkynið er einhvern veginn pikkfast í þráhyggjukenndum hjólförum þar sem út- blásin egó eru við stýrið. Það var víst ung kona frá Úkraínu sem sagði, þegar stríðið braust út: „Ég sofnaði 2022 og vaknaði 1945.“ Það er ein- hver tímaskekkja í öllu þessu stríðsbrölti sem byrjar auðvitað á einhvern hátt innra með hverri manneskju. Beckett kannaðist við þá djöfla sem hann hafði að draga og gaf þeim rödd. Það er heilunarkraftur í því. Þegar höf- undur skrifar svona innan úr kvikunni er hann í raun í tengslum við eitthvað sem er stærra en hann sjálfur,“ segir Harpa og lýsir Hamingju- dögum í þeim skilningi sem klassísku verki. Fram til 10. september verða Hamingju- dagar sýndir fjórum sinnum í Hofi. Síðan held- ur sýningin suður yfir heiðar og fer á fjalir Borgarleikhússins frá og með 5. nóvember. Ljósmynd/Auðunn Níelsson Frelsi „Verk hans eru oft mjög formföst en innan þessa sterka forms er mikið frelsi sem getur verið mjög gefandi fyrir bæði leikstjóra og leikara,“ segir Harpa Arnardóttir um verk Becketts. „Fremur til að skynja en skilja“ - Hamingjudagar eftir Beckett frumsýndir í Hofi - „Það þarf að læra verk Becketts nánast eins og tónverk en síðan finna frelsið og spila ekki endilega allar nóturnar,“ segir leikstjóri sýningarinnar Harpa Arnardóttir Fjallað er um sýningu á verkum Sigurjóns Ólafssonar á Norður- bryggju í Kaupmannahöfn í danska listtímaritinu Kunstavisen. Sýn- ingin nefnist Digte i træ (Ljóð skor- in í tré) og samanstendur af tré- skúlptúrum. Í umfjöllun sinni skrifar Lis Engel að titill sýningarinnar undir- striki þá ljóðrænu tilfinningu og mikla næmi sem Sigurjón hafi haft í vinnu sinni með tré sem efnivið. „Sýningin í heild er fallega sam- ansett af Birgittu Spur sýningar- stjóra og býður upp á ferðalag inn í ævintýralega og dásamlega mynd- sköpun í gegnum aukna skynjun af sérstökum möguleikum trésins,“ skrifar Engel. Hún tekur fram að um sé að ræða „list sem snertir hjörtu og líkama og talar til okkar með því að hrífa okkur með sér“ og mælir heilshugar með sýningunni. „Farið í rannsóknarleiðangur sem auðgar ykkur,“ skrifar Engel og tekur fram að sýningin henti fyrir allan aldur. Síðasti sýningardagur er sunnudagurinn 11. september. List sem hrífur áhorfendur með sér Næmi Tréverk Sigurjóns Ólafssonar eru til sýnis á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn. Myndlistarmaðurinn Hallur Karls- son, sem gengur undir lista- mannsnafninu Uggi, opnaði sýn- ingu í gær í Núllinu, galleríi neðst í Bankastræti við hlið stjórnar- ráðsins sem áður gegndi hlutverki almenningsklósetts. Er það önnur sýning Ugga í Núllinu. Uggi sýnir málverk og segist hafa verið að lesa bækur Charles Bukowskis þegar hann var að mála þau. Hafi hann mikið spáð í texta skáldsins og tónlist og nið- urrif komið honum í sköpunar- gírinn. Uggi sýnir málverk í Núllinu Kraftmikið Hluti málverks eftir Ugga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.