Morgunblaðið - 05.09.2022, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2022
Elspa – konan sem
breytti lífi mínu
Árið er 1979, það er miðvikudagur
18. apríl og ég, Guðrún Frímanns-
dóttir, rúmlega tvítugur ritari hjá
Félagsmálastofnun Akureyrar, sit
sem oftar við skrifborðið mitt og
pikka á ritvél upp af svokölluðum
diktafóni, sem nú telst til safngripa
en var mikið þarfaþing þegar þetta
var. Skrifstofan er á fjórðu hæð í
gamla Búnaðarbankahúsinu á Akur-
eyri sem stóð við Bankastíg. Ég sit
við gluggann, sé yfir Ráðhústorgið
og nágrenni, er í
rauninni eins og
hrafninn sem
stendur efst á
ljósastaur og
fylgist með
mannlífinu.
Austan Ráð-
hústorgsins er
lítið hús sem fyr-
ir löngu hefur
vikið fyrir stærri
byggingum, þarna var áður miðstöð
langferðabíla sem óku meðal annars
til höfuðborgarinnar. Nokkrar
manneskjur standa við húsið auk
bílanna sem þar eru. Það er tíu stiga
hiti, sól og fallegt veður.
Það er nákvæmlega á þessu
augnabliki sem ég sé Elspu Sigríði
Salberg Olsen í fyrsta skipti og er
auðvitað grunlaus um það þá að hún
á eftir að gjörbreyta lífi mínu. Þarna
stendur hún við einn langferðabíl-
inn, stuttklippt með áberandi gler-
augu, frekar mikil um sig, í víðri frá-
hnepptri kápu og pilsi sem náði
niður á mið læri. Með henni voru
tvær litlar stúlkur, dætur hennar
þriggja og fimm ára gamlar. Elspa
talar mjög hátt og reiðilega en ég
greini ekki orðaskil. Athygli mín er
samt fönguð og ég fylgist grannt
með Elspu storma að Búnaðar-
bankahúsinu með fyrirgangi, hávaða
og látum. Stúlkubörnin sem hún
dregur á eftir sér eiga fullt í fangi
með að halda í við hana. Hávaðinn
eykst þegar Elspa og dætur hennar
koma inn í Búnaðarbankahúsið. Ég
verð óttaslegin þegar ég átta mig á
að þær eru á leið upp á fjórðu hæð til
mín. Þær mæðgur fikra sig upp stig-
ana og smám saman heyri ég það
sem fram fer og satt að segja er
orðaflaumur Elspu ekki birtingar-
hæfur.
Farsíminn er ekki kominn til sög-
unnar á þessum árum og mér því
engin leið að hringja í yfirmann
minn og biðja hann um aðstoð strax.
Nei, ég verð sjálf að taka til minna
ráða. Eftir nokkra stund er hurðinni
hrundið upp. Elspa snarar sér mikil-
úðleg í fasi inn á gólfið með dæturn-
ar tvær. Hún sleppir höndunum af
stúlkunum, ýtir þeim frá sér og snýr
sér hranalega að mér með þeim
háværu skilaboðum að hún sé farin
til Reykjavíkur. Segir að ég geti hirt
þessar stelpur, hún sé búin að fá nóg
af þeim eins og öllu öðru.
Með hurðaskellum rýkur Elspa út
úr herberginu og stormar niður stig-
ana, yfir götuna og að langferðabíln-
um, sem ekur með hana á brott til
höfuðborgarinnar. Eftir sit ég með
tvö barnung stúlkubörn sem ég hef
aldrei séð áður. Þær eru hljóðar,
haldast í hendur og horfa á mig
stórum óttaslegnum augum.
Systurnar skilja ekki hvað er að ger-
ast, skilja ekki af hverju mamma
þeirra er svona reið og af hverju hún
skilur þær eftir aleinar og umkomu-
lausar hjá ókunnugri konu. Sjálf skil
ég heldur hvorki upp né niður í þess-
ari uppákomu, en ég reyni að hlúa að
börnunum eftir bestu getu. Á meðan
ég sinni þeim fer hugur minn á flug
og ég spyr sjálfa mig spurninga sem
ég veit að ég fæ engin svör við hér
og nú, en ég veit líka að ég mun finna
svörin þótt síðar verði:
Hvernig stóð á því að Elspu leið
svona hræðilega illa og kom fram við
börnin sín á þennan hátt?
Af hverju var hún svona reið?
Hafði einhver gert henni eitthvað?
Hvers konar fyrirmyndir átti hún
í sínum eigin foreldrum?
Hvers konar ævi hafði hún átt
sjálf?
Á hvern hátt væri hægt að koma
henni til hjálpar?
Hvað beið stúlknanna?
Var þetta í fyrsta skipti sem þær
upplifðu slíka höfnun frá móður
sinni?
Það er ekki ofaukið orði þótt ég
segi að þessi atburður hafi haft djúp
og varanleg áhrif á mig. Hann mark-
aði í rauninni lífsbraut mína og
framtíð. Þarna skapaðist hjá mér
þörf fyrir dýpri þekkingu á mann-
legu eðli, löngun til þess að læra um
þann félagslega vanda sem gjarnan
berst á milli kynslóða. Og síðast en
ekki síst hvernig megi koma fólki
eins og Elspu og börnum hennar til
hjálpar.
***
Elspa hvarf ekki úr huga mér.
Rúmum þrjátíu árum eftir að hún
henti stúlkubörnunum tveimur inn
fyrir dyrnar hjá Félagsmálastofnun
Akureyrar gerði ég klukkutíma
langan útvarpsþátt um lífshlaup
hennar. Við gerð þáttarins rifjaði ég
upp þetta tiltekna atvik með Elspu.
Hún sagði að minningin væri sér of
erfið og því hefði hún grafið hana
djúpt niður og geymt þar ásamt
ýmsu öðru sem á daga hennar hefði
drifið. Sumt væri einfaldlega of sárt
að muna. Mótlæti, ofbeldi, sjálfs-
vígstilraunir, barnsmissir, svik,
einelti og stöðug fátækt hafa verið
fylginautar Elspu á lífsleiðinni. Fé-
lagslegur arfur fyrri kynslóða birtist
henni strax í frumbernsku og hefur
sett svip á og mótað allt hennar líf.
Nú eru liðin tólf ár frá gerð þessa
útvarpsþáttar og rúm fjörutíu ár frá
þeim tíma er við Elspa hittumst
fyrst. Einhvern veginn finnst mér
ekki nema rétt að ég ljúki starfsævi
minni sem félagsráðgjafi og skrifi, í
orðastað Elspu sjálfrar, um lífshlaup
stórmerkrar konu sem hefur haft
jafn mikil og mótandi áhrif á líf
margra samferðamanna sinna, þar á
meðal á mig.
Við gerð bókarinnar hafa ýmsar
heimildir reynst hið mesta þarfa-
þing. Elspa fékk til dæmis afrit af
gögnum frá félagsmála- og barna-
verndaryfirvöldum Akureyrar,
Sjúkrahúsinu á Akureyri og Héraðs-
dómi Norðurlands. Skrif Elspu
sjálfrar um líf sitt og stöðu frá því er
hún sat í gæsluvarðhaldi í fangelsinu
á Akureyri eru einnig mikilvæg og
mögnuð heimild. Þetta eru þrjátíu
og átta þéttskrifaðar blaðsíður sem
Elspa handskrifaði á þremur dög-
um. Brynjólfur Ingvarsson, geð-
læknir á Akureyri, hvatti hana til
þessara skrifa, en honum var falið að
gera á Elspu geðrannsókn eftir til-
raun hennar til manndráps. Í skrif-
um Elspu eru áhrifaríkar lýsingar á
lífi hennar þar sem hvergi er að
finna stóran staf, punkt, kommu eða
greinaskil. En án allra greinar-
merkja lifna þær engu að síður við.
Samantektina fékk Brynjólfur í
hendur með loforði um að farga
henni að lestri loknum. Sem betur
fer varðveitti Brynjólfur skrifin.
Auk þessara heimilda komu Saga
Akureyrar og Hernámsárin á Akur-
eyri eftir Jón Hjaltason að góðum
notum. Sömu sögu er að segja um
gamlar kirkjubækur á Akureyri og
Bíldudal, skjöl í vörslu Héraðs-
skjalasafnsins á Akureyri, gömul
dagblöð og Íslendingabók.
Það hefur verið mér lærdómsríkt,
gefandi og á sama tíma sársaukafullt
að hlusta á Elspu rekja sögu sína.
Minni hennar er gott og höfum við
margsinnis fengið það staðfest þeg-
ar frásögn hennar er borin saman
við þau opinberu gögn sem stuðst
hefur verið við.
Samtöl okkar tveggja fóru fram
heima í stofu hjá Elspu, þar sem hún
kom sér vel fyrir í sófanum, gjarnan
með bæði köttinn Ólíver og tíkina
Hope hjá sér. Frásagnir Elspu hafa
einkennst af góðum frásagnarhæfi-
leika og hún kallar hlutina gjarnan
sínum réttu nöfnum.
Heiðarleiki og ósérhlífni Elspu í
eigin garð hafa verið aðdáunarverð.
Hún hefði auðveldlega getað fegrað
sjálfa sig með því að segja ekki frá
ýmsu sem á daga hennar hefur drif-
ið. Eins hefði hún getað óskað eftir
því að eitt og annað færi ekki á
prent. Frásagnir hennar hafa hvað
eftir annað kallað fram erfiðar minn-
ingar sem hún hefur grafið djúpt og
reynt að gleyma. Þegar það gerðist
gaf hún sér góðan tíma, upplifði
sársaukann og talaði um líðan sína
áður en hún hélt óhikað áfram.
Einu skiptin sem Elspa hefur
veigrað sér við að leyfa frásögninni
að fljóta er varðandi Eyju móður-
systur hennar, sem lést fyrir mörg-
um árum. Elspa óttast að sverta
minningu frænku sinnar í huga síð-
ari kynslóða sem dýrkuðu hana og
dáðu eins og hún gerði sjálf. Móður-
systirin var bjargvættur barnahóps-
ins á Restinni á Akureyri og auk
þess fórnarlamb aðstæðna sem hún
réð ekki við frekar en aðrir sem þar
bjuggu.
Við gerð bókarinnar komu fram
skýringar og svör við vangaveltum
mínum, sem fyrir rúmum fjörutíu
árum upplifði hranalega framkomu
Elspu við tvær barnungar dætur
sínar.
Saga Elspu gefur glögga mynd af
því að hún átti ekki fyrirmyndir sem
gáfu henni tilefni til að koma fram
við dætur sínar á annan hátt en hún
gerði. Elspa fór á mis við það í eigin
uppvexti að eiga kærleiksríka for-
eldra sem mynduðu við hana heil-
brigð tengsl, veittu henni öryggi og
jákvæða athygli. Hvers kyns ofbeldi
var hluti af hennar lífi allt frá fæð-
ingu og fram á fullorðinsaldur. Hún
var rænd skólagöngu sinni og barn-
ung var hún látin kljást við hluti inn-
an heimilisins sem voru henni ofviða.
Hún þekkti ekki til jákvæðra sam-
skipta milli foreldra og barna.
***
Barátta Elspu fyrir eigin tilveru
var hörð og vægðarlaus þar sem hún
lærði fljótt hegðun sem gerði henni
kleift að lifa af. Líf hennar fór því í
myrkan farveg strax við fæðingu og
átti síðar eftir að móta hana sem
barn, ungling, fullorðna konu,
móður, eiginkonu og nú sem full-
orðna konu sem segir sögu sína af
æðruleysi og heiðarleika.
Elspa lét tilleiðast að segja sögu
sína sem ég skrái hér. Hún hefur
orðið í fyrstu persónu og ég trufla
ekki framvinduna. Hún stiklar á
stóru um lífshlaup sitt, henni er ekk-
ert um smáatriðalýsingar gefið, og
dregur ekkert undan. Við lestur
bókarinnar vonast ég til að við,
Íslendingar nútímans, kynnumst
rótum okkar betur og færumst
skrefi nær lífssögu sem vonandi
heyrir fortíðinni til, eða ætti að
minnsta kosti að gera það.
Guðrún Frímannsdóttir.
Sumt er of sárt að muna
Bókarkafli Í bókinni Elspa – Saga konu segir
Elspa, Sigríður Salberg Olsen, harmsögulega ævi
sína og upprisu til nýs lífs á síðustu árum. Guðrún
Frímannsdóttir félagsráðgjafi, sem kom að mál-
um Elspu og dætra hennar á sínum tíma með
dramatískum hætti, skráir söguna.
Restin Caroline Rest var æskuheimili Elspu, og þar bjó fjölskyldan með allan sinn krakkaskara.
Ljósmynd/Úr einkasafni
Mótlæti Elspa Sigríður Salberg Olsen segir sögu sína í Elspa – Saga konu.