Morgunblaðið - 05.09.2022, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.09.2022, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2022 Stífluþjónusta Íslenska gámafélagsins Íslenska gámafélagið býður upp á stífluþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Losun fitu-, sand-og olíuskilja, hreinsun niðurfalla og stíflulosun. www.gamafelagid.is sími: 577 5757 Sterklega er búist við að Liz Truss muni bera sigur úr býtum í nýaf- stöðnu leiðtogakjöri Íhaldsflokksins í Bretlandi og verði næsti forsætis- ráðherra landsins. Atkvæðagreiðslu lauk á föstudaginn en þar var kosið á milli Truss, sem er utanrík- isráðherra, og Rishi Sunak, fyrrver- andi fjármálaráðherra. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar verður gerð opinber klukkan 11:30 í dag að ís- lenskum tíma en talið er að um 200 þúsund meðlimir Íhaldsflokksins hafi tekið greitt atkvæði. Boris Johnson, sem starfað hefur sem for- sætisráðherra frá því hann sagði af sér embætti í byrjun júlí, mun í kjöl- farið færa Elísabetu Englands- drottningu formlegt uppsagnarbréf sitt á morgun. Hin 47 ára Truss hefur undanfarið notið meiri stuðnings meðal al- mennra flokksmanna í skoðana- könnunum en Sunak. Hefur Truss lofað að lækka skatta og setja efna- hagslífið í algjöran forgang verði hún kjörin en Bretland glímir nú við eina mestu verðbólgu sem sést hefur í áratugi. „Ég hef djarfa stefnu í hyggju sem mun leiða til meiri hagvaxtar, skila hærri tekjum, meira öryggi og samfélagsþjónustu á heimsmæli- kvarða,“ voru lokaorð Truss í kapp- ræðum gegn hinum 42 ára gamla Sunak, sem gagnrýndi stefnu Truss og sagði hana lykta af óvarkárni. Varaði hann við því að verðbólgan gæti hækkað, verði áform Truss að veruleika. Sagði hann reynslu sína sem fjármálaráðherra í faraldrinum koma að góðum notum og gerði hann að sterkasta forsætisráðherraefn- inu. Þó er ósennilegt að það hafi dugað til. AFP/Susannah Ireland Einvígi Lokaeinvígið fór fram á föstudaginn, milli Truss og Sunak. Liz Truss sögð líklegri til sigurs - Úrslit leiðtogakjörsins kynnt í dag Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Þetta var hræðilegt, en á sama tíma er ég agndofa yfir þeirri mannúð sem þarna sást,“ segir Óskar Hall- grímsson. Hann fór í síðustu viku til Soledar í Donetsk-héraði, þar sem harðir bardagar hafa geisað síðustu daga. Þar varð hann vitni að því þegar fólki var bjargað úr húsarústum í Soledar og flutt til Kramatorsk, höf- uðborgar Donetsk-héraðs, þaðan sem fólkið fer til annarra áfanga- staða. „Þessir menn sem sinna þessu starfi eru ekki á neinum launum, allt sjálfboðaliðar sem fjármagna sig sjálfir. Það var bara mikill heiður fyrir mig að fá að vera í kringum al- vöruhetjur,“ segir Óskar. Frá Kramatorsk fór Óskar til Sa- porisjía, en þar er flóttamanna- miðstöð þangað sem margir þeirra sem flúið hafa átökin í suðri og austri leita. Þaðan fer fólkið svo í rútur sem flytja það til Póllands og annarra Evrópuríkja. „Þarna sér maður alls kyns fólk sem hefur mátt ganga í gegnum ótrúlegar hörmungar,“ seg- ir Óskar og nefnir sem dæmi sjö manna fjölskyldu sem hafði verið á flótta í sex daga frá átakasvæðunum í Kerson og þurfti að múta sér leið í gegnum 15 varðstöðvar til þess að komast í skjól. „Að vita að það sé til svona mikið ljótt í þessu stríði, en að það sé einn- ig til fólk sem lætur gott af sér leiða. Þessir menn hættu ekki, þeir hafa bjargað þúsund manns og fara hvern dag og hverja nótt inn í aðstæður sem önnur hjálparsamtök höfðu sagt of hættulegar. Helsta tilfinningin sem ég fann því fyrir var auðmýkt.“ Bjargað undan skugga styrjaldar - Heiður að sjá alvöruhetjur að störfum Ljósmynd/Óskar Hallgrímsson Soledar Eyðileggingin er gríðarleg í Soledar en björgunar- mennirnir láta sér fátt fyrir brjósti brenna. Kramatorsk Sjúkrahúsið er með plast fyrir gluggunum sem hindrar að rúðurnar springi ef eldflaug lendir nærri. Bugun Leitarmennirnir taka sér stund milli stríða. Skömmu síðar var haldið aftur út í óvissu stríðsins. Kramatorsk Flóttafólkið fær rauðrófusúpu, Borsjt, og brauð, en þá er það búið að vera á stanslausum flótta í nokkra daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.