Morgunblaðið - 05.09.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.09.2022, Blaðsíða 2
ADHD gæti verið algengara en ella Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Formaður ADHD-samtakanna segir þekkingu skorta til að skera úr um hvað aukin notkun ADHD-lyfja þýði þar sem bæði skorti rannsóknir og upplýsingar um greiningar. Notkun lyfjanna jókst um rúm 19 prósent á milli ár- anna 2020 og 2021. „Þarna kristall- ast auðvitað helsti vandinn, sem við erum búin að vera að tala um í ára- tug: Það skortir allar rannsóknir og þekkingu á því sem raunverulega er að gerast. Við þurfum að setja pen- inga í rannsóknir, bæði hér á landi og sameiginlegar með öðrum þjóðum,“ segir Vilhjálmur Hjálmarsson, for- maður samtakanna. Varasamt sé að draga ályktanir út frá slíkum hrágögnum. „Er ADHD algengara hér á landi en annars staðar? Er ADHD algeng- ara en fólk almennt viðurkennir í hin- um vestræna heimi og víðar?“ Allt séu þetta spurningar sem frekari rannsóknir gætu varpað ljósi á. „Það þarf að lesa betur úr gögnum sem eru þegar til staðar, það þarf líka frum- kvæði til þess að gera nýjar rann- sóknir.“ Vilhjálmur bendir á að tölurnar segi bara hálfa söguna, til dæmis séu engar upplýsingar til um fjölda greininga á Íslandi. „Það eru ekki til neinar upplýsingar um það. Við vit- um meðal annars ekki hve margir eru börn, unglingar og fullorðnir sem eru að koma aftur inn og óska eftir lyfja- meðferð eftir Covid-faraldurinn.“ Spurður hvort hann telji að um- ræða um aukna notkun ADHD-lyfja geti haft skaðleg áhrif á fólk sem glímir við röskunina, segir Vilhjálm- ur: „Í gegnum tíðina hafa þessar tölur og birtingar á þeim valdið fjaðrafoki og það er vissulega að gerst núna en ekki í þeim mæli sem hefur gerst áð- ur.“ Þar skipti framsetning höfuð- máli og hrósar Vilhjálmur landlækn- isembættinu fyrir framsetningu talnanna í ár, en embættið tók sér- staklega fram mikilvægi þess að um- ræða um notkun ADHD-lyfja sé á faglegum og hófstilltum nótum, enda séu fjölmargir sem nauðsynlega þurfa á lyfjunum að halda í daglegu lífi. - Rannsóknir skorti til að álykta Vilhjálmur Hjálmarsson HAUSTGOLF ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 GOLF@UU.IS Á EL PLANTIO GOLF INNIFALIÐ Í VERÐI: ÓTAKMARKAÐ GOLF INNRITUÐ TASKA 20 KG OG HANDFARANGUR GOLFBÍLL INNIFALINN FLUTNINGUR Á GOLFSETTI MORGUNVERÐUR ÍSLENSK FARARSTJÓRN AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI VERÐ FRÁ 173.900 KR. Á MANN M.V. 4 EÐA 2 FULLORÐNA Á EL PLANTIO GOLF Ferðirnar okkar til El Plantio bjóða þér upp á að ráða lengd ferðarinnar, hvort það sé 4, 7, 11, 21 daga löng ferð. Völlurinn býður upp á 18 holu championship völl ásamt 9 holu æfingavelli. Æfingaaðstaðan býður upp á magnað pitch svæði og góðu æfingasvæði. Svo er hann rétt hjá miðborg Alicante eða aðeins í 15 mínútna fjarðlægð. ÓTAKMARK AÐ GOLF OG AFNOT AF GOLFBÍL INNIFALIÐ Í VERÐI *NÝTT* BÓKAÐU GOLFKE NNSLU HJÁ PGA GOLFKENN ARA Á MEÐAN Á FERÐINNI ÞINNI STENDUR 09. - 16. SEPTEMBER - ÖRFÁ SÆTI LAUS STÖK KTU ÚT 2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2022 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. og samstarf allrar lögreglunnar þvert á umdæmi, og jafnvel út fyrir landsteinana, gegn sameiginlegri ógn sem er fólgin í skipulagðri brotastarfsemi.“ Öflug umdæmi lausnin Jón segir lausnina fólgna í öfl- ugum umdæmum um allt land sem stýra sínum umdæmismálum á daglegum grunni. Þannig væri öfl- ugur mannskapur til þess að bregðast við daglegum verkefnum lögreglunnar. „En þegar upp koma stærri og sérhæfðari mál þá hafa Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir að vilji sé hjá ráðuneytinu til að efla liðsheild og samstarf lög- reglunnar um allt land. Grunnhugs- unin sé að styrkja löggæsluna og viðbragð á hverjum stað. Því sé unnið að því að fjölga menntuðum lögreglumönnum. „Þessi þörf er ekki síst brýn þeg- ar við horfum á ógnvekjandi þróun í skipulagðri brotastarfsemi sem teygir anga sína um allan heim. Ís- land er ekki undanþegið eða vernd- að frá einu eða neinu í þeim efnum. Við erum skotmark þar eins og öll önnur vel megandi og efnuð sam- félög,“ segir Jón. Skipan lögreglumála sé alltaf fólgin í því að skipta niður mann- skap, þekkingu, fjármunum og auð- lindum á þann hátt að þjónustan sé góð um allt land en að nýtingin sé líka ásættanleg. „Við viljum að hvert umdæmi sé sjálfbært og full- burða til að sinna þeim málum sem koma upp í umdæminu, hvort sem þar er um að ræða alvarlega glæpi, alvarleg slys eða hugsanlega nátt- úruvá. Rauði þráðurinn í umbreyt- ingunum er síðan að efla liðsheild öll umdæmi aðgang að sameigin- legri og miðlægri þjónustuauðlind til að bregðast við þeim verkefnum. Mannskapurinn eða vinnan kemur þá hugsanlega úr öðrum umdæm- um eða miðlægri stoðþjónustu lög- reglunnar.“ Kostnaðurinn væri þá greiddur úr miðlægri þjónustu- auðlind lögreglunnar. „Það er snúið að hólfa niður fjár- muni í umdæmi þegar við vitum aldrei hvar upp kunna að koma stór verkefni sem kalla á margfalt meiri fjárútlát á einum stað en öðr- um. Þetta þarf að hugsa upp á nýtt.“ Segir Jón að mörg sérhæfð verkefni lögreglu séu ekki bundin við ákveðinn stað og því hægur vandi að byggja upp sérhæfingu af ýmsu tagi í þekkingarsetrum lög- reglu víða um land. „Með þessu gætu fengist verðmætari störf og fleiri verkefni á landsbyggðina sem eykur um leið viðbragðsgetu lög- regluliðsins á hverju svæði. Þeir lögreglumenn sem þar vinna bæði vilja og þurfa að halda sér í formi með hefðbundnum lögreglustörfum ef á þarf að halda í þeirra um- dæmi,“ segir hann. Ísland skotmark eins og önnur lönd - Brýn þörf á að styrkja löggæsluna í ljósi þróunar í skipulagðri brotastarfsemi um allan heim Þessi tignarlegi hundur naut góðviðrisins í höf- uðborginni í fyrradag. Nokkuð bjart hefur verið þar síðustu daga, eftir votviðri dagana á undan. Þótt hundi væri vissulega út sigandi ákvað þessi að betra væri að sitja við gluggann, svona ef ske kynni að rigna tæki á ný. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ekkert hundalíf í sólskininu „Ég bíð bara á hliðarlínunni og legg jafnaðar- mönnum allt til sem ég get. Það er einfaldlega þannig, en ég hef engin áform um þetta. Ef ég get hjálpað til þarna eða annars staðar þá geri ég það,“ segir Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnar- firði, spurður hvort hann íhugi framboð til varaformanns Samfylk- ingarinnar. „Maður segir aldrei aldrei í pólitík,“ bætir Guðmundur Árni við, en hann hefur einnig gegnt embætti varaformanns Alþýðu- flokksins frá árinu 1999. Líkt greint hefur verið frá sækist Heiða Björg Hilmisdóttir borgar- fulltrúi eftir endurkjöri. Talið er lík- legt að Kristrún Frostadóttir þing- maður verði næsti formaður flokks- ins, en hún er enn sem komið er ein í framboði. Því telja sumir Samfylk- ingarmenn að karlmann þurfi í stöðu varaformanns til að tryggja breidd í forystunni. Þá skipti einnig máli að varaformaðurinn sé ekki úr borginni. „Maður segir aldrei aldrei í pólitík“ Guðmundur Árni Stefánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.