Morgunblaðið - 05.09.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.09.2022, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2022 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Félag atvinnurekenda segir stjórn- völd geta slegið á verðbólgu með því að ýmist fella niður eða breyta vernd- artollum sem lagðir eru á sumar neysluvörur. Ólafur Stephensen, framkvæmda- stjóri félagsins, nefnir sem dæmi að háir tollar valdi því að á Íslandi eru blóm marg- falt dýrari en þau þyrftu að vera: „Við höfum gert óformlegan verð- samanburð á milli Íslands og ná- grannalandanna og yfirleitt kemur í ljós tvöfaldur til þrefaldur munur á einföldum blóma- vöndum af því tagi sem fólk grípur oft með matarinnkaupunum.“ Fáir sem græða en margir sem tapa Að sögn Ólafs er ekki að því hlaup- ið að reikna út heildarupphæð þeirra tolla sem lagðir eru á innflutt blóm eða að reikna hve mörg störf hjá ís- lenskum blómabændum njóta góðs af verndinni. „Þetta eru fáeinir vinnu- staðir á Suðurlandi, varla teljandi á fingrum beggja handa. Aftur á móti bera skarðan hlut af þessum tollum margir tugir blómaverslana sem myndu annars geta boðið blóm á hag- stæðara verði og væntanlega selt meira af þeim – og svo auðvitað hinn almenni neytandi sem borgar marg- falt hærra verð fyrir vöru sem í öðr- um löndum er litið á sem sjálfsagða dagvöru en þykir á Íslandi hálfgerður lúxus vegna þess hvað hún er dýr.“ Hefur FA bent á að verndartollar séu jafnvel lagðir á blóma- og jurta- tegundir sem ekki eru framleiddar á Íslandi. „Hér á landi eru ræktaðar innan við tíu tegundir af afskornum blómum en ofurtollar lagðir á öll inn- flutt afskorin blóm. Er því verið að leggja á verndartolla sem hafa í raun engin áhrif á innlenda ræktun. Af þeim tegundum sem íslenskir blóma- bændur rækta eru síðan sumar að- eins í boði á vissum árstímum en toll- arnir lagðir á innflutning allt árið um kring. Ein möguleg leið til að leysa vandann væri að gera eins og í græn- metisframleiðslu þar sem verndar- tollum er aðeins beitt á meðan inn- lend framleiðsla er í boði.“ Ráðuneytin þögul Árið 2019 hafði Félag atvinnurek- enda samband við fjármálaráðuneyt- ið og atvinnuvegaráðuneytið með ábendingar sínar og segir Ólafur að viðtökurnar hafi verið mjög jákvæðar í fyrstu. „Vinna hófst innan ráðuneyt- anna við að fara í saumana á þessum málum og var rætt við fjölda hags- munaaðila. Í júní 2020 fengum við þau svör hjá fjármálaráðuneytinu að þessi vinna væri að klárast og niður- stöður myndu liggja fyrir í lok þess mánaðar. Síðan hafa engin efnisleg svör fengist þrátt fyrir ítrekaðar fyr- irspurnir og sennilegasta skýringin er að kippt hafi verið í pólitíska spotta og einfaldlega sett lok á málið. Af- staða stjórnvalda verður enn sér- kennilegri þegar haft er í huga að á blómamarkaði, eins og flestum öðr- um mörkuðum, hafa orðið miklar verðhækkanir að undanförnu, s.s. út af kórónuveirufaraldrinum og ófriðn- um í Úkraínu, og ættu stjórnvöld að vera að leita allra leiða til að lækka vöruverð. En þau daufheyrast við til- lögum þó að margar þær lausnir sem lagðar eru til viðhaldi engu að síður verndinni fyrir þessa örfáu innlendu framleiðendur.“ Meðal þeirra raka sem nefnd hafa verið gegn því að breyta tollum á blóm er að innlenda framleiðslan sé umhverfisvænni en sú erlenda, eða að ríkissjóður myndi verða af miklum tekjum. Ólafur segir ósennilegt að innflutt blóm séu með stærra kolefn- isspor en þau innlendu ef tekið er með í reikninginn að innlend blóma- rækt kallar á að reisa stór mannvirki á meðan víða erlendis má rækta skrautblómin á opnum ökrum. „Þá myndi lækkun eða afnám tolla vafalít- ið leiða til aukinnar sölu á blómum sem myndi auka tekjur ríkissjóðs af virðisaukaskatti.“ Staflar af tillögum Ólafur játar að ef tollum á blóm væri breytt einum og sér myndu áhrifin á verðbólgumælingar vera sáralítil. „En margt smátt gerir eitt stórt og svo eru margar aðrar breyt- ingar af svipuðum toga sem stjórn- völd ættu að ráðast í. Þannig var ný- verið í fréttum að síðasti íslenski framleiðandinn væri hættur að fram- leiða franskar kartöflur. Í dag er lagður 76% verndartollur á þá vöru sem verndar þá ekki neitt lengur. Hjá stjórnvöldum liggja heilu bréfa- staflarnir með tillögum FA um hvernig mætti stuðla að lægra vöru- verði með svona breytingum, jafnvel án þess að draga úr vernd innlendrar framleiðslu, en ráðherrarnir og ráðu- neytin gera ekkert til að bregðast við.“ Verndin byrði á neyt- endum og atvinnulífinu Ljósmynd/FA, Anton Brink Gleðigjafi Starfsmaður á blómabýli á Spáni safnar saman rósum. Afskorin blóm bera háa tolla og á það jafnvel við um tegundir sem ekki eru ræktaðar á Íslandi. Sams konar tollar á ýmsar vörur eiga þátt í að ýta verðlagi upp. - Blómvendir sem teljast dagvara erlendis þykja lúxus á Íslandi vegna hárra tolla - Franskar kartöflur hátt tollaðar þó þær séu ekki lengur framleiddar innanlands Ekki einsdæmi » Félag atvinnurekenda hefur reiknað út að tollar tvöfalda verð á afskornum rósum. » Árlegur tollkvóti nemur 2.000 blómum sem er um 2% af árlegum innflutningi. » FA hefur gefið stjórnvöldum ótal tillögur að breytingum sem gætu lækkað verð á ýms- um vörum og þannig dregið úr verðbólgu. Ólafur Stephensen 5. september 2022 Gjaldmiðill Gengi Dollari 141.6 Sterlingspund 163.63 Kanadadalur 107.76 Dönsk króna 19.026 Norsk króna 14.145 Sænsk króna 13.163 Svissn. franki 143.82 Japanskt jen 1.0081 SDR 184.12 Evra 141.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 176.0208 Ný könnun á viðhorfum neytenda í Bandaríkjunum sýnir að almenn- ingur þar í landi er svartsýnni nú en í kórónuveirufaraldrinum. Háskól- inn í Michigan annast mælinguna og byggir á símaviðtölum við 500 manns þar sem spurt er um fjárhag fólks, kaupgetu og væntingar. Könn- unin á sér langa sögu og eru svör fólks frá árinu 1966 notuð til viðmið- unar og gefið gildið 100. Árið 2019 mældist bjartsýni Bandaríkjamanna á bilinu 91,2 stig til 100 stig en tók að lækka í kórónuveirufaraldrinum og fór lægst í 67,4 stig í nóvember 2021. Wall Stret Journal greinir frá að nýtt met hafi verið slegið í júní á þessu ári þegar niðurstaða könnun- arinnar var aðeins 50 stig en vísital- an hefur farið hækkandi undanfarna tvo mánuði og mældist 58,2 stig í ágúst. Ástandið er svipað í Evrópu og sýna tölur OECD að í löndun á borð við Bretland, Holland og Svíþjóð hefur bjartsýni almennings verið á hraðri niðurleið í tíu mánuði sam- fleytt. Á það einnig við um Þýska- land, Ítalíu, Frakkland, Írland, Dan- mörku og Spán að framtíðarsýn neytenda hefur farið versnandi marga mánuði í röð. Er vaxandi neikvæðni einkum rakin til þess að neytendur hafi miklar áhyggjur af verðbólgu. ai@mbl.is Neytendur í BNA svart- sýnni en í faraldrinum Kvíði Drungi er yfir neytendum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.