Morgunblaðið - 04.10.2022, Síða 8

Morgunblaðið - 04.10.2022, Síða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2022 Malbikstöðin ehf • 516 0500 • tilbod@malbikstodin.is • malbikstodin.is Í pistli á vefnum Frjálst land á blog.is er fjallað um vindmyllur: „Í Vesturálnum í Noregi voru reist- ar 14 vindmyllur. Þær þola ekki veðrin. Íbúar voru á móti vindmyll- unum frá byrjun og eru nú orðnir þreyttir á fljúg- andi plastskrani og klakaklumpum þó tilraunir til að endurbæta vind- myllurnar hafi verið gerðar. Norska eftirlitið segir að verði þær ekki lagaðar fyrir 10. október verði vindmyllugarðinum lokað. Vindmyllur eru yfirleitt óvinsæl- ar hjá nágrönnum. Þær hafa slæm áhrif á umhverfið, þekktar fyrir að meiða fugla, skapa mikið af óend- urvinnanlegu rusli og eru bil- gjarnar. Stjórnvöld í Noregi eru heltekin af bábiljum um að koltví- sýringur frá orkuframleiðslu sé skaðlegur og leyfa því uppsetningu vindmyllugarða út um fjöll og taka byrðarnar af taprekstrinum á skattgreiðendur. Vindmyllutískan er aðalorsök lífskjarahrunsins í ESB og Bretlandi.“ - - - Á síðustu árum hefur gleymst hve orka er mikilvæg í nú- tímaþjóðfélagi og önnur og óljósari markmið verið sett á oddinn. Án öruggrar orku er mikil hætta á ferðum og er þá ekki aðeins átt við lakari hagvaxtartölur. - - - Við erum svo heppin á Íslandi að hafa góðan aðgang að orku vatnsfalla og jarðhita og þurfum að nýta hana vel. Erlendis er staðan almennt ekki þessi og þá þarf að nýta kjarnorku, gas og olíu í meira mæli en hér. Því fer fjarri að nýjar aðferðir við orkuöflun hafi enn sem komið er breytt einhverju um þess- ar staðreyndir. Draumsýn í þessum efnum getur verið mjög hættuleg eins og nú ætti að vera orðið alger- lega ljóst. Orkuöflun þarf að setja í fyrsta sæti STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Erla Þorsteinsdóttir söngkona, sem oft var nefnd „stúlkan með lævirkjaröddina“, er látin, 89 ára að aldri. Hún lést á hjúkrunar- heimili í Holbæk í Danmörku 25. sept- ember síðastliðinn. Erla fæddist á Sauðárkróki 22. jan- úar 1933, foreldrar hennar voru Þorsteinn Sigurðsson frá Mó- skógum í Fljótum og Ingibjörg Konráðs- dóttir frá Brekkukoti í Blönduhlíð, sem eignuðust átta börn. Erla fór snemma að syngja og leika á gítar á heimaslóðum en gít- arinn hafði hún fengið í ferming- argjöf. Átján ára fluttist hún til Danmerkur til að starfa við þjón- ustu en söngferill hennar hófst mjög snögglega er henni bauðst að syngja og leika á gítar í dönskum útvarpsþætti snemma árs 1954. Þar flutti hún lögin Til eru fræ og Kvöldið var heiðskírt og hljótt. Í beinu framhaldi opnuðust henni fjölmargar gáttir og tækifæri til að koma sér á framfæri, og í kjölfarið einnig að syngja inn á plötur. Meðal laga sem Erla söng eru t.d. Þrek og tár, Litli tón- listarmaðurinn, Kata rokkar og Vagg og velta, sem var svo frægt að vera bannað í Ríkisútvarpinu. Þrátt fyrir að hafa afkastað miklu spann- ar ferill Erlu ekki nema rétt um hálfan áratug, sá tími dugði þó vel til að gera hana að einni ástsælustu söngkonu landsins. Hafa margir tekið lög hennar til endurvinnslu, má þar t.d. nefna Björk og Tríó Guð- mundar Ingólfssonar á plötunni Gling gló. Tvöföld safnplata, Stúlk- an með lævirkjaröddina, kom út árið 2000 og er á henni að finna flest af lögum Erlu. Erla hætti að syngja opinberlega aðeins 26 ára gömul til að sinna eiginmanni og fjölskyldu. Eigin- maður hennar var Poul Dancell, sem lést árið 1989. Eignuðust þau fjögur börn; Paul, Evu Ingibjörgu, Stefan Thorstein og David Konrad. Synirnir þrír eru allir búsettir í Danmörku en dótt- irin býr í Hollandi. Andlát Erla Þorsteinsdóttir Búið er að skrá og mynda allar dag- bækur Alþingis, Alþingismál, allt aftur til ársins 1845 og til og með 1913. Verkið hefur staðið yfir síðast- liðið ár í samstarfi skrifstofu Alþing- is og Landsbókasafns Íslands – Há- skólabókasafns. Eru bækurnar nú aðgengilegar á vef Alþingis og á vefnum handrit.is. Bækurnar hafa að geyma gríðar- miklar og fjölbreyttar heimildir um starfsemi Alþingis og þau erindi er því bárust. Á vef Alþingis segir að heimildirnar varpi nýju ljósi á störf þingsins. Bænaskrár og styrkbeiðnir Þarna er m.a. að finna bænaskrár, áskoranir, styrkbeiðnir og margt annað frá almenningi í landinu sem voru alla jafna ekki birt í Alþingistíð- indum, heldur einungis umræður þingmanna um þau. Nú má kynnast því sem fólki lá á hjarta, t.d. undir- skriftum þúsunda kvenna um bann við innflutningi áfengis árið 1895, beiðni um „Vitfirringaspítala“ árið 1897, ósk Katrínar Þorvaldsdóttur, ekkju Jóns Árnasonar þjóðsagna- safnara, um framfærslustyrk árið 1891 og margt fleira. Þessum erind- um fylgdu oft uppdrættir, teikning- ar, rökstuðningur, greinargerðir, undirskriftalistar og fleira fróðlegt. Öll þingmál frá 1845 eru skönnuð - Dagbækur Alþingis aðgengilegar - Miklar og fjölbreyttar heimildir Morgunblaðið/Ómar Alþingi Allar dagbækur þingsins frá fornu fari hafa verið skannaðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.