Morgunblaðið - 04.10.2022, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.10.2022, Blaðsíða 32
ELDRI BORGARAR: Aðventurferðir til Kaupmannahafnar 2022 Innifalið eru flug með Icelandair, skattar, gisting, m/morgunverði á Hotel Skt. Petri 5*, rútuferðir, kvöldverðir og annað samkvæmt dagskrá. Fagþegar fá vildarpunkta fyrir ferðina, einnig er hægt að greiða hluta ferðar með punktum ! ! ! ! ! 1. ferð: 20.-23. nóvember 2. ferð: 27.-30. nóvember 3. ferð: 4.-7. desember – UPPSELT Verð: 179.000 kr. á mann í tvíbýli. Aukagjald v/gistingar í einbýli er 34.900 kr. Niko ehf | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750 Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301, einnig með tölvupósti í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is og á www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is Gist er á hinu glæsilega Hotel Skt. Petri 5* sem er staðsett í miðborg Kaupmannahafnar. Skemmtileg og fjölbreytt dagskrá Sunnudagur: Flogið með Icelandair snemma morguns og lent í Kaupmannahöfn á hádegi. Gisting á hinu glæsilega Hotel Skt. Petri í miðborg Kaupmannahafnar. Um kvöldið er snæddur ekta danskur matur á veitingastaðnum Karla sem er í göngufæri frá hótelinu. Mánudagur: Skoðunarferð um gamla bæinn með Ástu Stefáns- dóttur leiðsögumanni sem gengur um slóðir Fjölnismanna og fræðir farþega um sögu Kaupmannahafnar. Þriðjudagur: Heimsókn í Jónshús, þar sem staðarhaldarinn Halla Benediktsdóttir tekur á móti hópnum og fræðir um sögu hússins. Um kvöldið er snæddur „Julefrokost“ í Tivoli á veitingastaðnum Grøften. Eftir kvöldverðinn er hægt að skoða sig um í Tivoli sem hefur verið breytt í „Juleland“ á Aðventunni. Miðvikudagur: Sigling um síkin og Christianshavn meðan hljómsveit Michael Bøving og félaga leikur jazztónlist og vana- lega ríkir mikil stemning í þessum ferðum. Brottför frá hóteli á Kastrup flugvöll síðdegis og flug til Íslands um kvöldið. Fararstjóri: Sigurður K. Kolbeinsson Hörn Hrafnsdóttir messósópran kemur fram á hádegistónleikum í Hafnarborg í dag, ásamt Antoníu Hevesi, píanóleikara. Tónleikarnir hefjast klukkan 12. Yfirskrift tónleikanna er „Stelpur og stéttaskipt- ing“. Á efnisskránni eru aríur úr óperum eftir tón- skáldin Bizet, Ponchielli, Verdi og Saint-Saëns. Hörn nam í Söngskólanum í Reykja- vík og í sótti í kjölfarið einkatíma hjá söngv- urum hér á landi og er- lendis. Árið 2007 vann Hörn svo til fyrstu verð- launa í alþjóðlegri söng- keppni. Auk þess að koma fram á fjölda einsöngs- tónleika hefur Hörn sungið hlutverk hjá Íslensku óp- erunni og til að mynda sungið í Óp-hópnum. Hörn Hrafnsdóttir syngur á hádegistónleikum í Hafnarborg ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 277. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Leikmenn Breiðabliks geta farið að huga að því í hvaða tegund af kampavíni þeir ætla að skála þegar Íslands- meistaratitilinn er kominn í höfn. Liðið vann sannfær- andi 3:0-sigur á Stjörnunni á Kópavogsvelli í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi og náði fyrir vikið átta stiga forskoti á toppnum, þegar aðeins fjórar umferðir eru eftir. Dagur Dan Þórhallsson kom Breiðabliki á bragðið á 12. mínútu og þeir Gísli Eyjólfsson og Jason Daði Svan- þórsson bættu við mörkum í seinni hálfleik. »26 Átta stiga forskot Breiðabliks ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Haustið 1974 tóku átta strákar sig saman og byrjuðu að spila körfu- bolta eitt kvöld í viku í íþróttahúsi Austurbæjarskóla. Á 48 árum hafa orðið nokkrar mannabreytingar og æfingarnar flust í íþróttahús Mela- skóla, Breiðagerðisskóla og Laug- arnesskóla, þar sem þær hafa verið lengst af, en þrír úr fyrsta hópnum, bræðurnir Sveinbjörn og Þorvaldur Egilssynir og Ólafur Jóhannsson, hafa verið með allan tímann. „Um 25 manns í heildina hafa tekið þátt í æf- ingunum, allir eru lifandi og hreyf- ingin hefur verið af hinu góða,“ segir Ólafur. Strákarnir höfðu allir áhuga á íþróttum en æfðu ekki lengur hjá íþróttafélögum. „Þetta var kunn- ingja- og vinahópur sem tengdist í gegnum tónlist og partíhald, aðeins einn eða tveir okkar höfðu æft og spilað körfubolta, en við völdum körfuna vegna þess að auðvelt var að fá inni í litlum sölum,“ segir Ólafur um átakið. Þegar hann hugsi til baka sjái hann líka að þetta hafi verið til- tölulega hættulaus tómstund. „Við höfum fengið góða æfingu fyrir arma og fætur út úr þessu sprikli og enginn hefur meiðst alvarlega.“ Hann hafi alltaf verið sendur í sveit á sumrin þegar hann var strákur og því ekki getað æft og spilað með fé- lögunum, sem margir hafi þurft að glíma við gömul meiðsl á efri árum. „Ég komst enda sjaldan í lið og fékk því ekki tækifæri til þess að meið- ast!“ Alltaf sami maturinn Fyrir um 15 árum byrjaði Ólafur að spila fótbolta vikulega með öðrum áhugamannahópi. „Þar eru meðal annars fyrrverandi meistaraflokks- menn í körfubolta,“ segir Ólafur. Sófus Guðjónsson hafi fengið sig í hópinn, sem spilar fótbolta síðdegis á laugardögum, og hann hafi launað honum það með því að taka hann inn í körfuna á þriðjudagskvöldum. „Ég hef alla anga úti til að halda körfunni gangandi og ekki er verra að fá menn með reynslu.“ Nýlega byrjaði Ólafur í leikfimi á mánudags- og föstudagsmorgnum fyrir 60 ára og eldri. „Ég geri allt sem ég get til þess að viðhalda góðri heilsu og takast á við vandamál hvers líðandi dags,“ segir hann með mikilli áherslu á gildi hreyfingar fyr- ir sál og líkama. Fótboltahópurinn heldur árshátíð árlega. „Sófus er formaður og ég varaformaður og við einir vitum hvert skal haldið saman eftir æfingu einu sinni á vetri,“ segir Ólafur. „Við veljum veitingastaðinn hverju sinni en rétturinn er alltaf sá sami; hum- ar- eða sjávarréttasúpa og síðan nautalund með béarnaise-sósu. Áður hitum við upp með því að fara í gufu- bað og fáum okkur síðan samlokur og bjór á meðan við horfum á einn gamlan þátt af Spaugstofunni.“ Morgunblaðið/Eggert Í körfubolta Á æfingu í liðinni viku. Frá vinstri: Kjartan Kjartansson, Gunnar Gunnarsson, Ólafur Jóhannsson, Þorvaldur Egilsson, Sveinbjörn Egilsson, Smári Ólafsson og Sveinn Guðnason. Tekst á við vandamál með líkamsræktinni - Ólafur Jóhannsson í „bumbubolta“ í bráðum hálfa öld

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.