Morgunblaðið - 04.10.2022, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2022
110
„VIÐ HÖFUM VERIÐ GIFT Í 38 ÁR OG
HANN SPURÐI MIG „NOTARÐU MJÓLK Í
KAFFIÐ?“.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... kossar og knús.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
LÍFIÐ HEFUR
ENGAN TILGANG
PÍTSUSNÚÐARNIR
ERU TILBÚNIR!
OG ÞAR
KOM ÞAÐ!
HERBERGIÐ HANS
AMLÓÐA ER ALGER
SVÍNASTÍA!
ÞÚ ÆTTIR AÐ KENNA
HONUM AÐ GANGA
FRÁ EFTIR SIG!
ÞÚ HEFUR NÓG AÐ GERA VIÐ AÐ
HIRÐA UPP EFTIR MIG!
KRAFTLYFTINGAR
ingafélags Íslands í dómnefnd um
skipulagsverðlaun. Hann hefur skrif-
að fjölmargar blaðagreinar um sam-
göngumál.
Þórarinn lauk störfum hjá Verkís
2017 og sinnir nú áhugamálunum, sem
eru m.a. lax- og silungsveiðar, brids
og skák. Hann er í Rótarýklúbbnum
Þinghól. Einnig hafa þau hjónin mjög
mikla ánægju af ferðalögum en þau
eru núna stödd á Ítalíu.
Fjölskylda
Eiginkona Þórarins er Halla Hall-
dórsdóttir, f. 25.3. 1948, ljósmóðir,
hjúkrunarfræðingur, lýðheilsufræð-
ingur og markþjálfi. Foreldrar henn-
ar voru hjónin Halldór Finnsson,
sparisjóðsstjóri og sveitarstjóri í
Grundarfirði, f. 2.5. 1924, d. 7.4. 2001,
og Pálína Gísladóttir, kaupmaður og
húsmóðir í Grundarfirði, f. 27.1. 1929,
d. 12.4. 2022.
Börn Þórarins og Höllu eru: 1)
Hjalti, f. 29.1. 1975, tölvunarfræðingur
og MBA. Hann er framkvæmdastjóri
Marel Innova. Hjalti er kvæntur
Ernu Margréti Geirsdóttur, kennara
og listamanni, og eiga þau þrjú börn,
Andreu Ósk, Þórarin Orra og Óliver
Daða. Þau eru búsett í Kirkland á
Seattlesvæðinu, BNA; 2) Freyja Vil-
borg, f. 30.7. 1980, stjórnmálafræð-
ingur, lögfræðingur og hagfræð-
ingur. Hún er stofnandi og fram-
kvæmdastjóri GemmaQ. Hún er gift
Magnúsi Halldórssyni, starfsmanni
Eyris Venture Management, og eiga
þau tvo syni, Heimi Andra og Halldór
Elí. Þau eru búsett í Kirkland á
Seattlesvæðinu, BNA.
Systkini Þórarins eru: Oddur Carl
Gunnlaugur, f. 12.6. 1949, tæknifræð-
ingur í Reykjavík; Sigríður, f. 17.10.
1951, lífeindafræðingur og listamað-
ur, búsett í Naples í BNA; Hrólfur f.
20.2. 1953, viðskiptafræðingur í
Reykjavík; Gunnlaug, f. 7.8. 1954, líf-
eindafræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Þórarins voru hjónin
Hjalti Þórarinsson, f. 23.3. 1920, d.
23.4. 2008, yfirlæknir á Landspít-
alanum og prófessor við læknadeild
Háskóla Íslands, og Alma Anna Þór-
arinsson, f. 12.8. 1922, d. 9.7. 2011,
svæfingarlæknir á Hvítabandinu og
Landakoti, yfirlæknir Leitarstöðvar
Krabbameinsfélags Íslands og síðast
geðlæknir á Kleppi og Landspít-
alanum.
Þórarinn
Hjaltason
Hólmfríður Árnadóttir
húsfreyja á Hvassafelli
Bjarni Júlíus Gunnlaugsson
bóndi á Hvassafelli í Eyjafirði
Gunnlaug Júlíusdóttir Thorarensen
húsfreyja á Akureyri
Oddur Carl Thorarensen
lyfsali á Akureyri
Alma Anna Þórarinsson
læknir í Reykjavík
Alma Clara Margrethe Schiöth
húsfreyja á Akureyri
Oddur Carl Thorarensen
lyfsali á Akureyri
Hansína Sigurbjörg Þorgrímsdóttir
húsfreyja í Hofteigi og víðar
Þorvaldur Ásgeirsson
prestur í Hofteigi á Jökuldal og víðar
Sigríður Þorvaldsdóttir
húsfreyja á Hjaltabakka
Þórarinn Jónsson
bóndi og alþingismaður á Hjaltabakka á Ásum,A-Hún.
Margrét Jóhannsdóttir
húsfreyja í Geitagerði og víðar
Jón Þórarinsson
bóndi í Geitagerði og víðar í Skagafirði
Ætt Þórarins Hjaltasonar
Hjalti Þórarinsson
yfirlæknir og prófessor
í Reykjavík
Ingólfur Ómar gaukaði að mér
stöku:
Fuglahljómur fjarri er
fölva blómin skarta.
Senn í dróma foldin fer
finn ég tóm í hjarta.
Á Boðnarmiði segir Hallmundur
Guðmundsson:„Fyrir fáum árum
var staðan svona“.
Aumt og lasið er mitt grand;
er að –drepast- í bakinu.
Allt mitt væri annað stand
ef endað hefði í lakinu.
Davíð Hjálmar Haraldsson skrif-
ar: Ég er ekki hestamaður og yrki
sjaldan um hesta. En nýlega sá ég
slíkan gæðing að hann á skilið vísu:
Valinn bestur, fráleitt fer
fremri honum margur.
Talinn mestur, aldrei er
umfram vonir kargur.
Svo vel vill til að ekki þarf annað
en að lesa vísuna aftur á bak, þá er
þar komin nákvæm lýsing á knap-
anum. Eru þetta ekki kölluð ref-
hverf sléttubönd?
Kargur vonir umfram er,
aldrei mestur talinn.
Margur honum fremri fer,
fráleitt bestur valinn.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir:
Óveður (sléttubönd hringhent)
Gnötrar húsið, vindar væla,
vermir krúsar lögur.
Nötrar músin, skvísur skæla,
skáldin knúsa mögur.
Öfugt:
Mögur knúsa skáldin, skæla
skvísur, músin nötrar.
Lögur krúsar vermir, væla
vindar, húsið gnötrar.
Tryggvi Jónsson yrkir:
Haltur á báðum með hausinn snúinn
heilsunni er ég næstum alveg rúinn.
Skeggjaður er og í skapi fúinn
skrönglast ég um lífið lúinn.
Friðrik Steingrímsson spyr:
„Öfugmæli?“
Aldrei Trump með fleipur fer
friðelskandi maður,
lítið hælir sjálfum sér
sífellt hress og glaður.
Jón Atli Játvarðarson yrkir
„haustvísur úr sveitalífinu“:
Lægðin kom með léttan vind,
lúpínu beit gömul kind,
fyllti skurðinn liðtæk lind,
laus úr viðjum erfðasynd.
Bágindi með búmarkið,
bregst mér aftur fjórhjólið.
Folinn beisli fúlsar við,
farið aftur rafmagnið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Haltur á báðum