Morgunblaðið - 08.10.2022, Síða 11

Morgunblaðið - 08.10.2022, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin 20% afsláttur af treflum, klútum, húfum, töskum og hönskum kjólum og undirkjólum Ný sending af Póstsendum B E R N H A R Ð L A X D A L Skipholti 29b • S: 551 4422 LAXDAL er í leiðinni Skoðið netverslun laxdal.is NÚLPURNAR RÁ LOKSINS KOMNAR DÚ F Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Mér fannst markverðast hvað það virðist ríkja mikil sátt í Noregi og Danmörku um málsmeðferð um- sókna hælisleitenda,“ segir Eyjólfur Ármannsson, 1. varaformaður alls- herjar- og menntamálanefndar. Nefndin fór nýlega til Danmerkur og Noregs og kynnti sér m.a. málefni flóttamanna. Eyjólfur segir að í Danmörku hafi sáttin verið sérstaklega áberandi á milli stóru flokkanna, Venstre og sósíaldemókrata. Þessar nágranna- þjóðir okkar leggja áherslu á að hver umsækjandi um alþjóðlega vernd fái réttláta málsmeðferð. „Ef umsókn er hafnað þarf við- komandi að fara úr landi. Ef hann neitar að fara sjálfviljugur þá þarf að beita þvingunaraðgerð. Það ríkir sátt um þessa málsmeðferð og litið á brottvísanir sem eðlilegan hluta af henni,“ segir Eyjólfur. Talsmenn samtakanna NOAS, sem vinna að því að styrkja réttar- stöðu flóttafólks í Noregi, sögðu að svo lengi sem málsmeðferð sé rétt séu brottvísanir hluti af ferlinu. Danskur ráðuneytisstarfsmaður sagði nefndinni að af þeim sem ekki fá hæli í Danmörku snúi 90% sjálf- viljug til baka. Eyjólfur segir sama kerfi vera í Noregi og Danmörku. Hvað getum við lært af þessu? „Við þurfum að taka upp svipað kerfi og er í þessum ríkjum. Það þarf að nást breið sátt á Alþingi um það og ég tel að okkur þingmönnum beri skylda til þess. Noregur og Danmörk eru í Schengen eins og við og við eig- um að geta haft sama kerfi og þau. Afgreiðsla mála þarf líka að vera hröð á fyrstu stigum,“ segir Eyjólfur. Hann segir að málaflokkurinn virðist hafa farið úr böndunum hér. „Við þurfum að standa við okkar al- þjóðlegu skuldbindingar, líkt og þessar þjóðir gera, og tryggja að fólk sem sækir um vernd fái réttláta málsmeðferð og uppfylli alþjóðleg skilyrði til að fá verndina.“ Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur alþingismanni þótti athyglisvert hvað norsk sveitarfélög gegna stóru hlutverki í móttöku flóttafólks með stuðningi norska ríkisins. Henni þótti einnig blasa við hvað þessar þjóðir og sveitarfélög eru mikið stærri og öflugri en hér á landi. „Mér finnst að við eigum að taka á móti flóttamönnum eftir getu, en það er læknaskortur og það vantar húsnæði. Ég vil að flóttafólk sem kemur hingað fái nauðsynlega þjón- ustu. Það er ekki hægt að setja þetta fólk í þær aðstæður að það fái ekki þjón- ustu,“ segir Lilja. Hún telur að við ráðum tæp- lega við að sinna öllum hælisleit- endum, eins og staðan er í dag. „Við þurfum að geta tekið á móti flóttamönnum, en erum að nálgast þolmörkin,“ segir Lilja. Hún bendir á að ekki hafi náðst samstaða um að breyta lögum um útlendingamál. „Lögin eru ekki í samræmi við þróunina í samfélaginu. Þess vegna erum við að vinna með gamalt kerfi sem er ekki að höndla þetta. Ég tel að það þurfi að breyta kerfinu,“ seg- ir Lilja. Þarf að taka upp sama kerfi og er í Noregi og Danmörku? „Ég held að við þurfum að laga kerfið að getu okkar. Hvernig það verður gert veit ég ekki en ég tel að það þurfi að gera í samstarfi við alla sem koma að málaflokknum,“ segir Lilja. Hún kveðst vilja sjá meira sam- starf við sveitarfélögin. Um leið verð- ur að viðurkenna að ekki munu öll sveitarfélög hafa getu til að annast móttöku flóttamanna. Eins telur hún að huga þurfi að réttindum flóttamannanna og nefnir að í Danmörku séu farsímar teknir af hælisleitendum til að afla upplýsinga úr þeim. „Þau sem tóku símana voru ekki viss um að þau hefðu lagaheim- ild til þess. Við fengum ekki svör við því. Þeim fannst þetta bara sjálfsagt. Það þarf að vera mjög skýrt hvað má og hvað má ekki. Ég vil að þeir sem raunverulega þurfa að fá alþjóðlega vernd fái hana,“ segir Lilja. Norska leiðin til fyrirmyndar Talsvert mikill munur er á því hvernig Norðmenn og Danir af- greiða umsóknir um alþjóðlega vernd, þótt sumt sé líkt, að sögn Sig- mars Guðmundssonar alþingis- manns sem tók þátt í ferð allsherjar- og menntamálanefndar. „Báðar þjóðirnar leggja áherslu á að finna með mjög skilvirkum hætti hvort fólk eigi rétt á efnismeðferð,“ segir Sigmar. Eigi það ekki slíkan rétt og ekki möguleika á að fá hæli er því vísað tiltölulega fljótt úr landi. „Við mættum örugglega skoða eitt og annað í því.“ Hann telur norsku leiðina vera til fyrirmyndar og hvernig sveitar- félögin taka þátt í að aðlaga flótta- fólkið að norsku samfélagi með til- styrk ríkisins. Sigmari finnst kerfið í Danmörku ganga út á að taka á móti sem fæst- um. Því er öðruvísi farið í Noregi. „Mér finnst áherslur dómsmála- ráðherra vera aðeins meira danskar en norskar. Við erum svolítið mikið að reyna að búa til girðingar og að fækka í hópnum frekar en hitt,“ seg- ir Sigmar. „Þetta er risavaxinn vandi sem blasir við heiminum öll- um. Þótt við og önnur lönd reisum miklar girðingar þá hverfur þessi vandi ekki. Við þurfum miklu frekar að velta því fyrir okkur hvernig við getum tekið á móti fleirum með skil- virkari hætti og komið þeim fyrr inn í samfélagið.“ Sigmar segir að aðstæður fólks sem fengið hefur vernd í Grikklandi séu oft slæmar. Það fái ekki fé- lagsaðstoð, illa vinnu, sé sumt á göt- unni og komi jafnvel ekki börnum í skóla. Það vilji fá að lifa eðlilegu lífi með fjölskyldum sínum. „Ég er ekki sammála því að við eigum að senda þetta fólk frá okkur af því að það er með vernd í Grikk- landi. Aðstæður fólks í Evrópu geta líka verið þannig að það eigi rétt á vernd hér á Íslandi,“ segir Sigmar. Flóttamannakerfið þarf að laga - Sátt um málsmeðferð hælisleitenda í Danmörku og Noregi - Umsækjendur um hæli eiga að fá réttláta málsmeðferð - Sé umsókn hafnað fylgir brottvísun - Leið Norðmanna til fyrirmyndar AFP/Sakros Mitrolidis Jasídar á flótta Yfir 150.000 skilríkjalausir flóttamenn hafa verið stöðvaðir í Grikklandi það sem af er þessu ári. Eyjólfur Ármannsson Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir Sigmar Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.