Morgunblaðið - 08.10.2022, Síða 20
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022
Faxafeni 14
108 Reykjavík
www.z.is
byggðinni líður mér vel. Það gleym-
ist ekki heldur að Íslendingar voru
fyrstir til að viðurkenna sjálfstæði
Eistlands, ég vil þakka fyrir það,“
sagði hinn eistneski Reinis Kampe.
Hann mun einnig vera í hlutastarfi
hjá Þórshafnarkirkju við æfingar og
undirleik hjá kirkjukórnum en
organistaleysi hefur í gegnum tíðina
staðið kirkjustarfi og kór fyrir þrif-
um og bindur nú sóknarnefnd vonir
við betri tíð í þeim málum.
- - -
Sveitarfélagið Langanes-
byggð, sem um tíma var nafnlaust,
ber nú nafn sitt og merki löglega
ásamt samþykktum. Þetta var stað-
fest á fundi sveitarstjórnar á
fimmtudaginn, sem og ráðning sveit-
arstjórans Björns S. Lárussonar.
Fundurinn í ágúst, þar sem þessar
ákvarðanir voru fyrst teknar, var úr-
skurðaður ólögmætur því ekki hafði
verið boðað til hans með nægilega
löngum fyrirvara. Innviðaráðuneyt-
ið leggur að öðru leyti í hendur
sveitarfélagsins hvernig leyst verður
úr öðrum málum sem samþykkt
voru á þessum ólöglega fundi og
mun sveitarstjórn leita ráðgjafar
Sambands íslenskra sveitarfélaga til
að geiða úr þeim málum.
- - -
Hafnargarðurinn á Þórshöfn
skemmdist nokkuð í óveðrinu um
daginn og fram undan eru viðgerðir
á honum, sem flýtt verður eftir
bestu getu en Vegagerðin sér um
meirihluta þess kostnaðar. Einnig
urðu nokkrar skemmdir á Bakka-
vegi og á íþróttamiðstöðinni, það
verður og lagfært fyrir veturinn.
- - -
Mikil óánægja er með þá fyrir-
ætlun að leggja skuli niður eina
opinbera starfið á Þórshöfn. Það er
starf fulltrúa sýslumanns en tillaga
er um þá niðurfellingu í fjárlögum.
Sveitarstjórn lýsti óánægju sinni
með þetta á fundi með þingmönnum
og leggur mikla áherslu á að þessu
starfi verði haldið hér, því reynslan
sýni að full þörf er á því. Íbúar hér
þurfa almennt að sækja alls kyns
þjónustu um langan veg og illa gert
að skerða það litla sem fyrir er.
Ákvörðun mun liggja fyrir um
áramót með nýjum fjárlögum.
Langanesbyggð fær að heita Langanesbyggð
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Kennsla Reinis Kampe frá Eistlandi ásamt tveimur ungum tónlistarnemum.
ÚR BÆJARLÍFINU
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Tónlistarkennari hefur verið ráð-
inn til Langanesbyggðar en síðustu
árin hefur verið stopul tónlistar-
kennsla þar sem kennara hefur
vantað. Reinis Kampe er frá Eist-
landi og er menntaður í klassískum
píanóleik en kennir á fleiri hljóðfæri.
Hann talar núna ensku við nemend-
urna en leggur mikla rækt við að
læra íslensku. Reinis er ánægður
með nemendur sína, einnig hljóð-
færakost og aðstöðu tónlistarskól-
ans á Þórshöfn. Hann segir að allir
ættu að eiga kost á tónlistariðkun,
óháð aldri, því tónlistin göfgi og næri
sálina.
Hugmyndin um að flytja til Ís-
lands varð til vegna tengsla hans við
fyrrverandi skólafélaga og samlanda
sem búa hér á landi og starfa við
tónlist: „Ég hef búið erlendis bæði í
borgum og úti á landi en á lands-
Landsvirkjun hefur hafið að nýju at-
huganir á því hvort mögulegt sé að
stækka Þeistareykjavirkjun. Samið
hefur verið við Jarðboranir hf. um
borun tveggja rannsóknarhola í þeim
tilgangi. Borinn Þór verður notaður
til verksins og verður hann knúinn
með rafmagni frá virkjuninni.
Þeistareykjastöð var gangsett á ár-
unum 2017-2018 og er uppsett afl
hennar 90 megavött. Hefur rekstur
hennar gengið afar vel, samkvæmt til-
kynningu frá Landsvirkjun. Kolefnis-
spor stöðvarinnar er með því lægsta
sem þekkist í jarðvarmavirkjunum.
Landsvirkjun kannar nú möguleika á
að veita koldíoxíði úr borholum á
svæðinu aftur ofan í jarðhitageyminn,
þaðan sem það á uppruna sinn.
Tilgangur væntanlegrar stækkun-
ar er að mæta orkuþörf á Norðaust-
urlandi en nýlega var Hólasandslína
tekin í notkun. Hún tengir þessa
virkjun og fleiri við Eyjafjarðarsvæð-
ið.
Sparar mikið jarðefnaeldsneyti
Þór er nýjasti og fullkomnasti bor
Jarðborana. Hann kom til landsins
fyrir áratug og hefur meðal annars
verið notaður í verkefni fyrir HS
Orku og Orku náttúrunnar. Verkefnið
á Þeistareykjum er það fyrsta sem
unnið er með Þór fyrir Landsvirkjun
og þar með í fyrsta skipti sem borað
er með rafmagni fyrir fyrirtækið.
Lagðir hafa verið háspennustrengir
um Þeistareykjasvæðið til að auð-
velda þá vinnu. Rafmagnsborunin
mun spara nokkur hundruð þúsund
lítra af jarðefnaeldsneyti. helgi-
@mbl.is
Athuga stækkun
á Þeistareykjum
Ljósmynd/Hreinn Hjartarson
Þeistareykir Stöðin var tekin í notkun 2017-2018 og hefur reksturinn gengið vel. Byrjað er að huga að stækkun.
- Rafmagn frá virkjuninni knýr borinn
Vandræðin í leikskólamálum borg-
arinnar halda áfram. Núna stendur
til að loka leikskólanum Árborg í
að minnsta kosti eitt ár vegna raka
og endurbóta á leikskólanum, og er
búist við að lokað verði í lok þessa
mánaðar eða í byrjun nóvember.
Í bréfi sem sent var til foreldra
síðasta þriðjudag segir að í sumar
hafi verkfræðistofan Mannvit verið
fengin til að gera úttekt á leikskól-
anum og þá hafi komið í ljós raka-
skemmdir.
Börnunum verður ekki vísað út á
gaddinn, því leikskólinn Brákar-
borg við Brákarsund 1 mun taka
við þeim þennan tíma, segir í bréf-
inu. Það verður þó talsvert lengra
ferðalag að fara með börnin til og
frá skóla, þar sem leikskólinn Ár-
borg er í Árbæjarhverfi en Brák-
arborg niðri við Sund.
Leikskólastjóri Árborgar, Sig-
ríður Valdimarsdóttir, biður for-
eldra um að reyna að sýna þessu
skilning og standa saman í bréfinu
sem hún sendi í vikunni. Brákar-
borg er nýr skóli sem komst ný-
verið í fréttir eftir að borgin verð-
launaði bygginguna og hönnun
hennar, áður en húsnæðið var
tilbúið til notkunar.
Árborg Leikskólanum í Árbæ verður lokað vegna raka sem kom upp.
Árborg verður lok-
að í ár vegna raka
- Úttekt leiddi í ljós miklar skemmdir