Morgunblaðið - 08.10.2022, Side 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022
✝
Gunnar Páll
Guðjónsson
fæddist í (húsinu)
Gömlu búð í Kefla-
vík 3. október
1924. Hann lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Víðihlíð,
Grindavík, 29.
ágúst 2022.
Foreldrar hans
voru Guðjón Magn-
ús Guðmundsson, f.
í Keflavík 12. júlí 1899, ættaður
frá Húsatóftum Grindavík, d. 4.
apríl 1984, og Guðrún Páls-
dóttir, f. í Pálshúsum á Stokks-
eyri 15.10. 1904, d. 11.1. 1994.
Systur Gunnars Páls: Hrafn-
hildur, f. 18. mars 1927, d. 23.
apríl 2014, maki Guðjón Þór-
arinsson. Börn þeirra eru: Þór-
hildur, Guðjón og Aðalheiður;
Inga Áróra, f. 28. febrúar 1937,
maki Vignir Erlendsson. Sonur
þeirra Viðar.
Gunnar Páll giftist 22. sept-
ember 1948 Þórdísi Þorbergs-
dóttur (Diddu), f. í Garðhúsum,
Ytri-Njarðvík, 23. ágúst 1925,
d. 1. apríl 2011. Foreldrar Þór-
dísar voru Þorbergur Magn-
ússon frá Hólmfastskoti, Innri-
Njarðvík, f. 7. júlí 1898, d. 25.
júní 1948, og Ingibjörg Hall-
dórsdóttir frá Sauðholti í Holt-
um, f. 28. apríl 1903, d. 17. jan-
úar 1999. Bróðir Þórdísar er
Aðalsteinn Jón Þorbergsson, f.
Elías, f. 2016. Fyrir átti Kristín
Linda soninn Aron Ingva Guð-
mundsson, f. 2008. c) Friðrik
Þór, f. 1996.
3) Þórdís, f. 1961, maki Karl
Guðmundsson, f. 1953, d. 1997.
Dóttir þeirra er a) Kristín, f.
1989, maki Berglind Ómars-
dóttir, f. 1992. Dætur þeirra
eru Embla Ýr, f. 2019, og Alex
Röfn, f. 2022. Fyrir átti Þórdís
Jenný Lovísu Árnadóttur, f.
1979. Sonur hennar er Gunnar
Þór, f. 2003. Karl átti fyrir
dótturina Báru, f. 1979, maki
Sævar Garðarsson. Dætur
þeirra eru Íris og Elva. Sam-
býlismaður Þórdísar er Ómar
Ásgeirsson, f. 1958. Dætur hans
eru Sigríður, Berta Dröfn,
Selma Rut, Marín Ösp og Bríet
Irma.
Gunnar Páll var 16 ára árið
1940, þegar hann réð sig á
dragnótabát frá Keflavík og
stundaði hann sjóinn þar til ár-
ið 1949 er hann réð sig til Ha-
milton félagsins á Keflavík-
urflugvelli við málningu/-
merkingu flugbrauta. Þegar
herinn kom var hann ráðinn af
Varnarliðinu sem yfirmaður
málara á Paint Shop og öðlaðist
síðar réttindi sem málarameist-
ari í húsa- og bílamálun. Hann
vann við þetta fag hjá hernum
allan sinn starfsferil.
Gunnar Páll og Þórdís hófu
fyrstu búskaparárin að Tún-
götu 9, Keflavík, síðan í Hátúni
21 en lengst af bjuggu þau að
Mávabraut 12d. Síðustu árin
bjuggu þau í Grindavík.
Útför Gunnars Páls hefur
farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
1935, maki Stella
Stefánsdóttir, f.
1936, d. 2014. Syn-
ir þeirra: Þorberg-
ur, Aðalsteinn og
Stefán.
Dætur Gunnars
Páls og Þórdísar
eru:
1) Ingibjörg, f.
1950, maki Geir
Gunnarsson, f.
1945. Synir þeirra
eru: a) Gunnar, f. 1977, sam-
býliskona Kristbjörg Hafberg,
f. 1983. Dóttir þeirra er Ingi-
björg Þórdís, f. 2014, fyrir átti
Kristbjörg dótturina Isabellu, f.
2004. b) Arnar, f. 1985. c) Stef-
án, f. 1991, sambýliskona Hild-
ur Ösp Randversdóttir, f. 1992.
Börn þeirra eru Smári Geir, f.
2014, og Lilja Karen, f. 2020. d)
Þorbergur, f. 1991, sambýlis-
kona Agata Mist Atladóttir, f.
1994. Synir þeirra eru Stormur,
f. 2019, og Brimir, f. 2022.
2) Guðrún, f. 1956, maki
Ólafur Elías Ólafsson. Synir
þeirra eru: a) Gunnar Páll, f.
1977, maki Þórey Eva Ein-
arsdóttir, f. 1978. Dætur þeirra
eru Andrea Eva, f. 2013, og
Magnea Eva, f. 2015. Fyrir átti
Gunnar Páll dótturina Guðrúnu
Katrínu, f. 2004. b) Ólafur Egg-
erts, f. 1980, sambýliskona
Kristín Linda Sigmundsdóttir,
f. 1982. Sonur þeirra er Ólafur
Elsku afi. Þegar ég sit hér og
skrifa nokkur orð um þig koma
upp ýmsar minningar um þig og
ykkur ömmu saman.
Ég var svo heppin að alast
upp hjá ykkur ömmu, var mikið
hjá ykkur sem barn og ungling-
ur er ég sótti í að vera í Kefla-
vík. Mér er minnisstætt þegar
ég fékk að fara með þér í vinn-
una uppi á Kanavöll, hvað allt
þar var framandi og öðruvísi en
í Keflavík, öðruvísi sími og tala
nú ekki um nammisjálfsalann
sem ekki fannst fyrir utan völl-
inn. Það þótti alltaf mikið sport
að fá að fara með afa í vinnuna.
Afi hugsaði vel um bílana sína
og í minningunni er afi að stússa
úti í bílskúr að þurrka bílana
sína, því ekki máttu þeir vera
blautir í bílskúrnum. Afa þótti
sætabrauð mjög gott og þá sér-
staklega sérbakað vínarbrauð
og sú ánægja fylgdi honum
sannarlega út ævina. Hann var
þó alltaf að hugsa um línurnar
þegar hann stalst í einn og einn
bita af vínarbrauðinu eða fékk
sér meira smjör með matnum.
Þetta fannst afa gott. Að fara í
bíltúr með afa og ömmu út fyrir
bæinn var skemmtilegt. Afi
þekkti nöfnin á öllum hólum og
hæðum og liggur við hverri þúfu
sem maður sá. Afi var fróður
maður og minnugur fram til síð-
asta dags. Maður kom ekki að
tómum kofunum þegar maður
leitaði upplýsinga hjá afa, hann
vissi alltaf svarið. Hann hafði
líka mikinn áhuga á fólkinu sínu
og var montinn af því. Þegar
Gunnar minn heimsótti þig þá
spurðir þú alltaf hvort það væri
ekki allt gott að frétta og hvern-
ig skólinn gengi. Sagðir svo;
flott, gott gott, þegar svarið var
að það gengi vel, en Gunnar
heimsótti þig í síðasta sinn
nokkrum dögum fyrir andlát
þitt.
Þegar árin færðust yfir og þið
amma fluttuð í Grindavík þá var
nú gott að geta skroppið í stutta
heimsókn við og við. Á seinni ár-
um, þegar sjónin fór versnandi
og þú að vesenast með fjarstýr-
inguna á sjónvarpinu, þá áttir
þú til að ýta á ranga takka. Ekki
kunnir þú að laga það og þá
voru ófá símtölin sem þú
hringdir í mig og baðst mig að
koma og laga sjónvarpið því það
væri eitthvað bilað. Ekki var
það meira bilað en svo að þú
hafðir ýtt á einn rangan takka
og því auðvelt að kippa málun-
um í liðinn. Við Gunnar minn
hlógum að því seinna að auðvit-
að hefðum við bara átt að líma
fyrir alla takka á fjarstýring-
unni nema þessa fimm sem þú
þurftir að nota.
Ég gæti haldið endalaust
áfram að skrifa og rifja upp
yndislegar minningar um þig
elsku afi minn. Nú hefur þú
sofnað svefninum langa, þú
varst sannarlega búinn að skila
þínu og líkaminn orðinn vel lú-
inn, rétt tæplega 98 ára, en
gleðin og minnið var alltaf á sín-
um stað.
Góða nótt afi minn.
Þín dótturdóttir,
Jenný Lovísa Árnadóttir.
Elsku afi. Í dag kveð ég þig í
síðasta skipti og langar mig þess
vegna að skrifa nokkur orð um
þig. Ég man að þú hringdir oft í
okkur mömmu til að koma og
laga sjónvarpið þitt og stilla
klukkuna á bakarofninum þegar
hún var vitlaus. Við mamma
hlógum að því að við hefðum átt
að líma fyrir alla takkana á fjar-
stýringunni nema þá sem þú
þurftir að nota.
Aðfangadagur hjá ömmu og
afa í Efstahrauninu og það varst
oftast þú sem fékkst möndluna í
eftirréttinum. Það voru
skemmtilegir tímar þegar amma
og frænkur mínar hittust heima
hjá þér í Víðigerði og komu með
alls konar bakkelsi og þú fékkst
þér alltaf vínarbrauð. Þú spurð-
ir mig alltaf hvernig mér gengi í
skólanum þegar ég hitti þig og
varst glaður þegar ég sagði það
ganga bara mjög vel.
Takk fyrir allt elsku afi minn,
ég mun halda áfram að standa
mig vel í skólanum fyrir þig.
Þinn nafni,
Gunnar Þór Snæberg.
Gunnar Páll
Guðjónsson
Það er komið
haust, laufin falla
af trjánum og
sumarið kveður.
Æskuvinkona mín og fyrrver-
andi mágkona kvaddi okkur nú
á fallegum haustdegi líkt og
sumarið.
Við vorum ekki háar í loftinu
(urðum það reyndar aldrei) er
við kynntumst litlu vinkonurn-
ar. Bjuggum hlið við hlið í
nokkur ár og brölluðum ým-
islegt saman. Þótt heimilin
okkar stæðu hlið við hlið
bjuggum við hvor í sinni göt-
unni, ég í Byggðavegi og Ingv-
eldur í Álfabyggð. Stundum
fengu Simmi bróðir og Tryggvi
bróðir hennar að taka þátt í
uppátækjum okkar. Þegar
Ingveldur flutti aðeins ofar á
brekkuna, í Lerkilundinn, átta
ára gömul fækkaði samveru-
stundum okkar og enn frekar
er ég flutti í þorpið ári seinna
en við vissum alltaf hvor af
annarri.
Mörgum árum seinna vildi
Ingveldur Tryggva
Petreudóttir
✝
Ingveldur
Tryggva Pet-
reudóttir fæddist
21. september
1972. Hún lést 13.
september 2022.
Útför hennar fór
fram í kyrrþey.
svo skemmtilega
til að hún og
Simmi bróðir fóru
að rugla saman
reytum og leiðir
okkar lágu saman
á ný er hún og
Petrea litla komu
inn í fjölskylduna
okkar. Fjölmargar
góðar og skemmti-
legar fjölskyldu-
stundir áttum við
saman á þessum árum. Leiðir
Ingveldar og Simma skildi fyr-
ir nokkrum árum og því miður,
líkt og þegar við vorum litlar
stelpur, fækkaði samveru-
stundum okkar mikið en við
vorum duglegri við nota
tæknina og halda þannig smá
sambandi.
Nú skilur leiðir á ný. Takk
fyrir allt elsku Ingveldur, láttu
nú fara vel um þig í sumarland-
inu, blessuð sé minning þín
elsku vinkona.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Ég votta elsku Birni, Petreu,
Eyjólfi, systkinum Ingveldar og
fjölskyldum þeirra og öðrum
ástvinum Ingveldar mína dýpstu
samúð. Megi góður Guð fylgja
okkur og styrkja.
Sigrún
Björnsdóttir.
Vináttu er hægt að lýsa á
margan hátt. Fyrir okkur felst
hún í ást, trausti, trúnaði, litrík-
um hárkollum, hlátri, hlýju og
galsa.
Í mismunandi og einstökum
hugtökum sem saman mynda
sterka heild í hjörtum okkar.
Við getum líka lýst vináttu
með sjö nöfnum; Ingveldur,
Brynja, Heiðdís, Jóhanna,
Hanna, Vala, Dóra. Allar mis-
munandi, einstakar og hver úr
sinni áttinni en saman myndum
við eina sérstaka og órjúfanlega
heild. Sjö púsl í heildarmynd.
Núna kveðjum við eitt púsl,
einn hlekk úr keðjunni, fallegu
Ingveldi. Kveðjum, en þó ekki
því Ingveldur verður alltaf ein
af okkur.
Ingveldur, með sínar hlýju
hendur og notalegu nærveru.
Ingveldur sem virtist geta bros-
að með allri sálinni svo að ekki
var hægt annað en að gleðjast
og hrífast með.
Sönglandi, prjónandi, smíð-
andi, skapandi, allt lék í hönd-
unum á henni. Það var róandi
að horfa á hana nostra á meðan
við ræddum um allt á milli him-
ins og jarðar, hennar þekking
og skilningur náðu út yfir öll
mörk.
Ingveldur var húmorísk, fal-
leg á alla vegu, margslungin og
alveg einstakur töffari. Hún var
okkar fyrirmynd í svo mörgu og
við gerum okkur grein fyrir
þeirri gæfu að hafa verið í þeim
útvalda hópi sem fékk að kynn-
ast henni fyllilega.
Ein af okkar kærustu minn-
ingum er þegar hún bauð okkur
í afmæli í Lækjargötunni. Við
það tilefni sungum við, hástöf-
um og endurtekið, texta sem
saminn var henni til heiðurs. Í
dag er erfitt að hugsa aftur til
þess fallega viðburðar, vitandi
að heimboðið var einstakt og
verður aldrei endurtekið. En
vonandi, einhvern tímann síðar
á lífsleiðinni, munum við treysta
okkur til að raula aftur saman í
minningu hennar.
Einskonar (vinkonu) ást:
Þig vil ég sjá þínu afmæli á.
Takk fyrir boð og segjum skál.
Því gott er að sjást og leggja smá
rækt við vinkonuást.
Þú veist að við hér
höldum með þér
gegnum sætt eða súrt,
jafnvel smá klúrt því
vináttan er alltaf til staðar hvernig
sem fer
Æfóninn tek, skrifa í hann
til þess að boða í óvissurölt eða
happý
inn í kirkjugarði eð́á göngubrúnni
á Fjólubarnum eða Múlabergi
því gott er að sjást og leggja smá
rækt
við vinkonuást.
Alltaf vinkonur, alltaf sjö,
alltaf þínar.
Brynja, Dóra, Hanna,
Heiðdís, Jóhanna, Vala.
Ástkær eiginmaður minn, faðir
og tengdafaðir,
ÓÐINN RÖGNVALDSSON
prentari,
Sléttuvegi 23,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
24. september. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn
10. október klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast
afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Alzheimersamtökin eða önnur líknarfélög.
Hulda Arnórsdóttir
Kolbrún Óðinsdóttir
Hrafnkell Óðinsson Svetlana Motorova
Margrét Óðinsdóttir Jón H. Skúlason
Ingiríður Óðinsdóttir Árni Guðmundsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
HALLGERÐUR PÉTURSDÓTTIR,
Boðaþingi 24, Kópavogi,
sem lést laugardaginn 24. september,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði miðvikudaginn 12. október
klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Sigrún Jónsdóttir Gunnar Hólm Ragnarsson
Jón Gauti Jónsson Sigrún Magnúsdóttir
Sólveig Ásta Gautadóttir Vignir Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður, sonur, faðir,
tengdafaðir, stjúpi og afi,
STEFÁN SIGURJÓNSSON,
Stebbi skó,
lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum
1. október. Útförin verður gerð frá
Selfosskirkju föstudaginn 14. október klukkan 14.
Beint streymi verður á vef Selfosskirkju. Blóm og kransar
vinsamlega afþökkuð, þeim sem vilja minnast hans er bent
á Parkinsonsamtökin.
Jóhanna Gunnarsdóttir
Sigrún Kristjánsdóttir Gunnar Kristmundsson
Dagbjört Stefánsdóttir Þórarinn Guðni Sveinsson
Sigrún Stefánsdóttir Bjarki Björnsson
Gísli Stefánsson Guðrún Bergrós Tryggvadóttir
Kristín Stefánsdóttir Davíð Sigurðsson
Alda Jónsdóttir Arnþór Jónsson
Marta Jónsdóttir Þröstur V. Söring
og barnabörn
Elskulegur frændi okkar og vinur,
ÞORKELL K. JÓNSSON,
Litla-Botni, Hvalfirði,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 21.
september. Útför hans fer fram frá
Akraneskirkju mánudaginn 10. október
klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju,
www.akraneskirkja.is.
Hlekk á streymi má einnig nálgast á mbl.is/andlat.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Kristín Sigurbjörg Pétursdóttir
Kristjana Björg Sveinsdóttir
Petra Steinunn Sveinsdóttir
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma
og systir,
LÁRA ERLINGSDÓTTIR,
varð bráðkvödd á heimili sínu í Danmörku
26. september. Hún verður jarðsungin í
Dómkirkjunni föstudaginn 28. október
klukkan 13.
Henry Á. Þorsteinsson Veronica Þorsteinsson
Amy, Laura, Lui, Theo
Ólöf Erlingsdóttir Þorsteinn Jóhannesson
Björn Erlingsson Bergþóra Valsdóttir
Már Erlingsson Halla Gunnarsdóttir
Heiða Erlingsdóttir Rúnar Sigtryggsson