Morgunblaðið - 13.10.2022, Side 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2022
iðar aðstæður, það er víða um heim,
en þá þarftu að fara aðrar leiðir.“
„Það er þetta verndarkerfi, sem við
verðum að slá skjaldborg um. Mis-
notkun þess er að ógna tilvist þess,
það er það sem er hættulegt.“
Dómsmálaráðherra minnir á að
slík misnotkun sé oft tengd skipu-
lagðri glæpastarfsemi.
„Við erum vöruð við því af Europol
og lögreglu í nágrannalöndum okkar,
að straumurinn liggi svolítið til Ís-
lands. Vatnið leitar þangað sem leiðin
er auðveldust.“
Ekki ófyrirséður vandi
Jón minnir á að straumur hælisleit-
enda til Íslands hafi ekki verið ófyrir-
séður, dómsmálaráðherrar undanfar-
inna ára hafi ritað minnisblöð þess
efnis, en þeim varnaðarorðum hafi
ekki verið gefinn gaumur. „Þar
standa upp úr þessi lagafrumvörp,
sem dómsmálaráðherrar Sjálfstæðis-
flokksins hafa verið að leggja fram og
reyna að koma í gegnum þingið, en
þingið hefur ekki hlustað. Það hefur
ekki náðst samstaða um það. Því er
ástandið orðið eins og það er. Ef við
hefðum brugðist við með breyttri lög-
gjöf fyrir tveimur árum eða þremur
árum, þá væri staðan ekki eins og
hún er í dag,“ fullyrðir Jón.
„Ástandið í útlendingamálum hér
er fyrst og fremst vegna þess að í
okkar löggjöf eru þættir, sem eru
öðruvísi en með öðrum þjóðum. Við
erum hreinlega að bjóða betur.“
Hann rekur það annars vegar til
einstakra lagaákvæða, en einnig til
niðurstöðu kærunefndar útlendinga-
mála, sem sé algerlega sjálfstæð
stofnun og engin leið að bregða frá
túlkun hennar á lögum eða niður-
stöðum um oft mjög matskennda
þætti. Eins séu fyrningarfrestir hér
þannig, að beinlínis felist í þeim hvat-
ar til að reyna að þvæla mál og hlíta
ekki niðurstöðum um að fara úr landi.
„Þessir þættir eru öðruvísi í okkar
kerfi [en annars staðar], það eru
þessir frestir og það er framfærslan.
Í mörgum löndum er það þannig að ef
þú hefur fengið synjun þá detturðu út
af framfærslu eftir 30 daga. Þá færðu
ekki lengur félagslega aðstoð, þú átt
að fara af landinu, þú ert í ólögmætri
dvöl. Hér heldur öll félagsleg þjón-
usta og framfærsla áfram þar til þú
ert farinn úr landinu. Þetta eru þær
breytingar, sem ég er að reyna að
innleiða í frumvarpi að nýjum útlend-
ingalögum.“
Jón segir bráðnauðsynlegt að
breyta þessu, enda virki kerfið nú
eins og segull á fólk.
„Við erum að bjóða betur en aðrar
þjóðir. Þess vegna liggur hlutfalls-
lega svona mikill straumur til okkar,“
segir Jón og bendir á að nú séu um
20% hælisleitenda hér frá Venesúela,
meira en helmingur fólks frá öðrum
löndum en Úkraínu. Það sé innan við
1% á hinum Norðurlöndunum.
4.500 hælisleitendur á árinu
„Á þessu ári er reiknað með að það
geti orðið allt að 4.500 manns, sem
komi inn í verndarkerfið. Það eru ein-
ar Vestmannaeyjar á ári, um það bil
sami fjöldi og fæðist hér á ári.“
Jón segir vandann blasa við og
spyrja verði hvað Ísland beri í þeim
efnum. „Hver er geta okkar? Hvenær
bresta félagslegir innviðir, skólar,
leikskólar, félagsleg þjónusta? Það er
þess vegna sem ríkislögreglustjóri
lýsir yfir hættustigi á landamærum.
Ekki vegna þess að það sé örtröð á
landamærunum, heldur í þeim úr-
ræðum sem taka við. Þegar skamm-
tímaúrræði og langtímaúrræði í hús-
næðismálum eru þrotin, það er þá
sem hættustigið er sett á.“
Jón hafnar því að hann sé með ein-
hvern hræðsluáróður um hælisleit-
endur. „Þetta eru staðreyndir, sem
við verðum að horfast í augu við.
Þjóðin þarf að gera sér grein fyrir
þessari mynd og við þurfum að gera
okkur grein fyrir því hvernig við ætl-
um að takast á við þennan vanda.
Meðan við gerum það ekki mun vand-
inn aukast.“ Jón segir ekkert óeðli-
legt við að fólk í leit að betra lífi leiti
hingað. „Maður hefur fulla samúð
með því, en okkar geta til þess að
taka á móti þessum mikla fjölda, sem
fylgir því að við bjóðum betur en aðr-
ir, innviðirnir þola það ekki.“
Innviðir þola ekki meira álag
- Dómsmálaráðherra í viðtali við Dagmál - Segir breytingar á útlendingalögum bráðnauðsynlegar
- Fjöldi hælisleitenda á við einar Vestmannaeyjar á ári - Ástæðan sú að Ísland býður betur en aðrir
Morgunblaðið/Hallur
Dagmál Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir að standa verði vörð um verndarkerfi flóttamanna og koma í veg
fyrir að í það sé sótt af öðrum en þeim, sem séu í bráðri lífshættu vegna stríðsátaka, innanlandsófriðar eða ámóta.
DAGMÁL
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra
segir að ekki sé lengur hægt að bíða
með að gera breytingar á útlendinga-
lögum, meðal annars til þess að sam-
ræma þau lagaumhverfi á Schengen-
svæðinu, en aðallega þó vegna þess að
innviðir landsins þoli ekki þá gríðar-
legu fjölgun hælisleitenda, sem hér
hafi orðið. Hana megi að miklu leyti
rekja til þess að hér sé „boðið betur“
en í öðrum löndum.
Þetta kemur fram í viðtali við ráð-
herrann, sem birt er í Dagmálum í
dag, streymi Morgunblaðsins á net-
inu, sem opið er öllum áskrifendum.
Dómsmálaráðherra lætur í ljós von
um að með frumvarpinu og ýmsum
aðgerðum öðrum verði unnt að ná
tökum á málefnum hælisleitenda, en
móttaka þeirra hefur vaxið kerfinu og
innviðum yfir höfuð. Ráðherra segir
ekki unnt að bíða lengur með að taka
af skarið í þeim efnum, flæðið sé
stjórnlaust og bregðast þurfi við
tafarlaust.
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn, sem
lagt er í að breyta þeim, því þetta er í
fimmta sinn sem það er gert. Jón seg-
ist bjartsýnni á að frumvarpið nái
fram að ganga nú en áður og byggir
það meðal annars á því að skilningur á
eðli málanna og þeim vanda, sem við
er að glíma, sé víðtækari en áður,
enda hafi vandinn vaxið líkt og spáð
var.
„Það sem við erum fyrst og fremst
að deila um eru flóttamenn, þeir sem
koma hingað og eru að leita að
vernd,“ segir Jón. Í þeim hópi séu
hins vegar ekki allir á flótta undan
stríði eða innanlandsástandi og líf
fólks í bráðri hættu, líkt og eigi aug-
ljóslega við um Úkraínumenn. „Síðan
eru margir, sem nýta sér þetta kerfi
og koma frá öðrum löndum, sem eru
talin örugg, og eru að leita að betri
lífskjörum. Það fólk ætti að koma og
óska eftir dvalarleyfi og atvinnuleyfi,“
segir Jón. „Líf og limir þessa fólks eru
ekki í hættu. Það getur búið við erf-
Rennslið úr Grímsvötnum nálgaðist í
gær tæpa 300 rúmmetra á sekúndu.
Var vöxturinn þá hægari en reiknað
hafði verið með.
Miðað við þessa þróun er líklegast
að hámarksrennsli úr vötnunum
verði síðdegis í dag eða aðfaranótt
föstudags, að því er Veðurstofan
greindi frá í gær.
Reiknað er með að það taki hlaup-
vatn um sólarhring að renna undir
Skeiðarárjökul frá Grímsvötnum og
niður í farveg Gígjukvíslar við þjóð-
veg 1.
Áfram er reiknað með að há-
marksrennsli út úr vötnunum verði
um 500 rúmmetrar á sekúndu. Lík-
legt er að rennslið við brúna yfir
Gígjukvísl verði minna en úr vötn-
unum sjálfum vegna dempunar
hlauptoppsins í lónum framan við
Skeiðarárjökul.
Rennslið við brúna í þessu hlaupi
mun því jafnast á við mikið sumar-
rennsli og ekki hafa nein áhrif á
mannvirki. Lítil sem engin skjálfta-
virkni er í eldstöðinni og í gær hafði
enginn gosórói mælst.
Ljósmynd/Veðurstofan
Grímsvötn Reiknað er með að hlaupið úr jöklinum verði lítið að þessu sinni.
Hægðist á rennsli
úr Grímsvötnum
- Búist við hámarksrennsli í dag
SPILAÐU GOLF
Í PUNTA CANA, DÓMINÍSKA LÝÐVELDINU
25. NÓVEMBER - 04. DESEMBER
BARCELÓ BÁVARO 5*
SUPERIOR TVÍBÝLI MEÐ ÖLLU INNIFÖLDU,
STAÐSETT VIÐ LAKES GOLFVÖLLINN.
VERÐ FRÁ 499.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 GOLF@UU.IS
INNIFALIÐ Í VERÐI:
BEINT FLUG
5* HÓTEL MEÐ ÖLLU INNIFÖLDU
BÓKUN Í BETRI SÆTI
INNRITUÐ TASKA 20 KG.
FLUTNINGUR Á GOLFSETTI
18 HOLUR Í 6 DAGA
GOLFBÍLL INNIFALINN
ÍSLENSK FARARSTJÓRN
AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI