Morgunblaðið - 13.10.2022, Page 55
ÍÞRÓTTIR 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2022
Íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu verður ekki með á
heimsmeistaramótinu sem fram
fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi á
næsta ári eftir ótrúlega svekkj-
andi tap gegn Portúgal.
Dómari leiksins, Frakkinn
Stéphanie Frappart, gerði ís-
lenska liðinu engan greiða þegar
hún rak Áslaugu Mundu Gunn-
laugsdóttur mjög óverðskuldað af
velli í upphafi síðari hálfleiks en á
sama tíma áttu varnarmenn ís-
lenska liðsins að vera löngu búnir
að koma boltanum í burtu.
Íslenska liðið spilaði hins
vegar miklu betur einum leik-
manni færri, heldur en það gerði í
rúmlega 50 mínútur þegar jafnt
var í liðum. Það var eins og órétt-
lætið hefði kveikt í liðinu, eitthvað
sem hefði átt að vera óþarft fyrir
jafnstóran leik.
Það má líka setja spurningar-
merki við þá ákvörðun þjálfara-
teymisins að fara inn í framleng-
inguna með þrjá varnarmenn.
Vissulega virkaði það vel fyrri part
síðari hálfleiks en það sást alla
leið til Íslands að nokkrir leik-
menn voru orðnir bensínlausir á
70. mínútu.
Íslenska liðið hefur spilað
fimm mjög stóra leiki á árinu, úr-
slitaleiki ef svo má segja, og hefur
ekki ennþá tekist að vinna einn
þeirra, sem er dapurt. Maður von-
aðist til þess að liðið myndi taka
skref fram á við eftir Evrópumótið
í sumar en leikirnir gegn Hollandi
og Portúgal einkenndust á
stórum köflum af allt of háu
spennustigi þar sem leikmenn
þorðu ekki að halda í boltann eða
taka áhættu í uppspilinu.
Niðurstaðan í Portúgal er sér-
staklega svekkjandi í ljósi þess að
þetta var líklegast síðasta tæki-
færi Dagnýjar Brynjarsdóttur,
Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur,
Söndru Sigurðardóttur og Söru
Bjarkar Gunnarsdóttur til þess að
spila á HM.
Einhverjir „Twitter-sérfræð-
ingar“ hafa kallað eftir endurnýj-
un á liðinu, líklegast þeir sömu og
kölluðu eftir endurnýjun á karla-
liðinu á sínum tíma. Brandara-
kallar. Kvennalandsliðið þarf enga
endurnýjun, enda allt frábærir
leikmenn, en þær þurfa að fara að
spila boltanum betur á milli sín til
þess að halda í við aðrar þjóðir
sem eru að taka fram úr okkur,
eins og til dæmis Portúgal.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Danmörk, Finnland, Noregur og
Svíþjóð, með stuðningi Íslands og
Færeyja, hafa lagt fram umsókn
um að halda lokakeppni EM kvenna
í fótbolta á Norðurlöndunum árið
2025. Leikið yrði í átta borgum í
Danmörku, Finnlandi, Noregi og
Svíþjóð og færi úrslitaleikurinn
fram á Friends Arena í Stokkhólmi,
en hann tekur 50.000 manns í sæti
og er stærsti völlur Norðurlanda.
Frakkland hefur einnig lagt fram
umsókn, sem og Pólland og Sviss,
en ákvörðun verður tekin fyrir 25.
janúar á næsta ári.
Norðurlöndin
vilja halda EM
Morgunblaðið/Eggert
2025 Íslendingar létu sig ekki vanta
á Evrópumótinu á Englandi í sumar.
Jóhann Kristinn Gunnarsson hefur
verið ráðinn þjálfari kvennaliðs
Þórs/KA í knattspyrnu og skrifaði
hann undir þriggja ára samning við
félagið.
Hann þekkir vel til hjá félaginu
en hann tók fyrst við liðinu árið
2011 og gerði Þór/KA að Íslands-
meisturum árið 2012.
Hann stýrði liðinu í fimm ár áður
en hann lét af stöfum árið 2016 þeg-
ar hann tók við Völsungi.
Þór/KA hafnaði í sjöunda sæti
Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð
með 17 stig.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri Jóhann Kristinn stýrði
Þór/KA frá 2011 til ársins 2016.
Jóhann tekur
við Þór/KA
EVRÓPUBIKARINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Markmiðið var alltaf að komast
áfram í næstu umferð og það tókst,“
sagði Mariam Eradze, leikmaður
Vals, eftir að liðið tryggði sér sæti í
3. umferð Evrópubikars kvenna í
handknattleik um síðustu helgi.
Valur mætti Dunajská Streda frá
Slóvakíu í 2. umferð keppninnar.
Báðir leikirnir fóru fram ytra og
vann Valsliðið viðureignina saman-
lagt 57:53 en Mariam skoraði tíu
mörk í leikjunum tveimur.
„Við vorum slakar í fyrri leiknum
en á sama tíma vissum við lítið um
andstæðinginn og höfðum séð lítið af
honum. Við spiluðum líka við Fram
miðvikudaginn 5. október, þremur
dögum fyrir leikinn í Slóvakíu, og
það fór ákveðið púður og einbeiting í
þann leik. Við fórum því ekki að
hugsa um þessa Evrópuleiki í Sló-
vakíu fyrr en á fimmtudaginn síð-
asta og það hafði smá áhrif.
Um leið og við fundum aðeins
taktinn hjá slóvakíska liðinu þá átt-
uðum við okkur fljótlega á því að
þetta var mótherji sem hentaði okk-
ur ágætlega. Við spiluðum fyrri leik-
inn ágætlega en vorum sjálfum okk-
ur verstar ef svo má segja. Við
gerðum ákveðin tæknimistök og
klikkuðum á dauðafærum líka, nokk-
uð sem við áttum ekki að gera, og við
löguðum það bara í seinni leiknum,“
sagði Mariam.
Fúlar eftir fyrri leikinn
Valsliðið tapaði fyrri leiknum
26:29 en vann seinni leikinn örugg-
lega, 31:26.
„Við vorum hundfúlar eftir fyrri
leikinn enda allar meðvitaðar um að
við áttum og gætum gert miklu bet-
ur. Það var því auðvelt að hvetja sig
áfram fyrir seinni leikinn sem og við
gerðum. Við vorum meðvitaðar um
það að við þyrftum að vinna með
meira en tveimur til þess að eiga
möguleika á að komast áfram en um
leið og dómarinn flautaði til leiks
vorum við bara að einbeita okkur að
leiknum sjálfum.
Þegar langt var liðið á seinni hálf-
leikinn þá læddist þessi hugsun aft-
ur að okkur og þá fór þetta að snúast
meira um það að reyna að skora eins
mikið af mörkum og við gátum. Þeg-
ar við náðum þriggja marka forskoti
um miðjan síðari hálfleikinn þá fór
okkur að líða mjög vel og eftir það
sigum við bara hægt og rólega fram
úr og uppskárum mjög sanngjarnan
sigur.“
Evrópubikarinn gulrót
Valskonur hafa byrjað tímabilið af
miklum krafti og eru með fullt hús
stiga eða 6 stig í efsta sæti úrvals-
deildarinnar, Olísdeildarinnar.
„Það er ótrúlega gaman að taka
þátt í svona Evrópukeppni og þetta
er fyrst og fremst frábær reynsla
fyrir okkur leikmennina. Það eykur
fjölbreytnina í þessu að mæta
þessum erlendu liðum sem spila oft
allt öðruvísi en liðin heima og ég
held að þegar allt kemur til alls þá
geri þetta okkur að betri hand-
boltakonum að taka þátt í svona
keppni.
Hversu langt við förum þarf svo
bara að koma í ljós en við ætlum
okkur eins langt og mögulegt er.
Það er ákveðin gulrót að taka þátt í
þessu verkefni og þetta snýst líka
um að vera heppinn með drátt.
Þegar allt kemur til alls þá förum við
í hvern einasta leik til þess að vinna
hann, alveg eins og við gerum í leikj-
unum hérna heima,“ sagði Mariam í
samtali við Morgunblaðið.
Dregið verður í 3. umferð Evrópu-
bikarsins hinn 18. október í höfuð-
stöðvum EHF í Vínarborg í Austur-
ríki.
„Ætlum eins
langt og
mögulegt er“
Morgunblaðið/Eggert
10 Stórskyttan Mariam Eradze lék mjög vel fyrir Valskonur í Evrópubik-
arnum og skoraði tíu mörk í leikjunum tveimur gegn Dunajská Streda.
- Valur er kominn áfram í 3. umferð
Evrópubikarsins eftir sigur í Slóvakíu
Subway-deild kvenna
Breiðablik – Fjölnir.............................. 65:69
ÍR – Njarðvík........................................ 70:78
Valur – Keflavík ................................. (49:49)
_ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun.
Staðan fyrir leik Vals og Keflavíkur:
Keflavík 3 3 0 258:196 6
Haukar 4 3 1 321:252 6
Njarðvík 4 3 1 322:310 6
Valur 3 2 1 230:190 4
Fjölnir 4 2 2 286:297 4
Breiðablik 4 1 3 246:306 2
Grindavík 4 1 3 275:303 2
ÍR 4 0 4 240:324 0
1. deild kvenna
Snæfell – Ármann................................. 62:54
Aþena – Þór Ak................................... 73:100
Stjarnan – KR....................................... 87:79
Staðan:
Snæfell 5 4 1 362:281 8
Stjarnan 4 4 0 336:281 8
Þór Ak. 5 4 1 375:307 8
KR 4 3 1 314:279 6
Ármann 4 1 3 250:269 2
Aþ/Lei/UM 4 1 3 329:317 2
Hamar-Þór 4 1 3 274:273 2
Tindastóll 4 1 3 264:253 2
Breiðablik B 4 0 4 148:392 0
4"5'*2)0-#
Urté Slavickaité var stigahæst hjá
Fjölni þegar liðið vann nauman sigur
gegn Breiðabliki í úrvalsdeild
kvenna í körfuknattleik, Subway-
deildinni, í Smáranum í Kópavogi í 4.
umferð deildarinnar í gær.
Leiknum lauk með 69:65-sigri
Fjölnis en Slavickaité skoraði 20
stig, tók fimm fráköst og gaf fjórar
stoðsendingar.
Mikið jafnræði var með liðunum
en Blikar leiddu 47:45 að þriðja leik-
hluta loknum. Fjölnir var hins vegar
sterkara liðið í fjórða leikhluta og
landaði sínum öðrum sigri í deildinni.
Dagný Lísa Davíðsdóttir skoraði
15 stig fyrir Fjölni, ásamt því að taka
ellefu fráköst, en Sabrina Haines var
stigahæst í liði Breiðabliks með 27
stig.
_ Þá fór Aliyah Collier á kostum
fyrir Njarðvík þegar liðið vann
öruggan sigur gegn ÍR í Skógarseli í
Breiðholti. Leiknum lauk með 78:70-
sigri Njarðvíkur en Collier skoraði
29 stig, tók 18 fráköst og gaf sjö stoð-
sendingar. Njarðvíkingar leiddu
með átta stigum í hálfleik, 38:30, og
ÍR-ingum tókst aldrei að ógna for-
skoti Íslandsmeistaranna í síðari
hálfleik.
Raquel Laniero skoraði 18 stig
fyrir Njarðvík, tók sex fráköst og gaf
sex stoðsendingar en Jamie Cherry
var stigahæst í liði ÍR með 19 stig og
sjö fráköst.
_ Leik Vals og Keflavíkur var
ekki lokið þegar blaðið fór í prentun
en umfjöllun um hann má nálgast á
mbl.is/sport/korfubolti.
Fjölnir sterkari á
lokamínútunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vörn Fjölniskonan Dagný Lísa Davíðsdóttir og Blikinn Isabella Ósk Sigurð-
ardóttir eigast við í Smáranum en þær voru báðar atkvæðamiklar í leiknum.