Morgunblaðið - 13.10.2022, Side 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2022
Marta María Winkel Jónasdóttir
mm@mbl.is
„Draumurinn hefur verið lengi að
koma með mína eigin fatalínu. Ég
hef verið lengi að vinna að þessu og
nýja línan endurspeglar það. No-
Name Design er klassísk og tíma-
laus fatalína úr gæðaefnum. Ég
vildi hanna falleg föt sem eru samt
þægileg og klæðileg,“ segir Kristín
sem hannaði línuna sjálf og nýtti
alla þá reynslu sem hún hefur feng-
ið í gegnum störf sín.
„Í gegnum tíðina hef ég alltaf
unnið í tískubransanum, hvort sem
ég er að farða, kenna eða aðstoða
konur í NN Studio þannig að ég tel
mig vita hvað konur vilja. Línan er
saumuð í Úkraínu. Ég var lengi að
reyna að finna einhvern sem ég
treysti til að vinna með. Ég var
mjög heppin þar sem ég fann hana
Veru fyrir rúmlega ári. Vera er
mikill frumkvöðull og við tengdumst
strax góðum vinaböndum. Hún rek-
ur sína eigin saumastofu og er það
kvennafyrirtæki eins og mitt fyrir-
tæki. Við í NN Studio fengum áfall
þegar stríðið hófst. Ég tala við Veru
mörgum sinnum í viku og hún
ákvað að flýja upp í fjöllin með fjöl-
skyldu sína, stóran hóp starfs-
manna og fjölskyldu þeirra. Vera
saumar fyrir fleiri fyrirtæki innan
Evrópu og er hún núna búin að
opna stofuna sína aftur í litlu þorpi
og er að sauma núna. Línan okkar
átti að koma í sölu í mars eða apríl
en stríðið hefur sett sitt strik í
reikninginn. Ég var ekkert að pæla
í línunni þegar stríðið hófst og af-
skrifaði þetta, en síðan í sumar
komu kassarnir og við gátum hafið
undirbúninginn. Við hlökkum til
þegar sá dagur rennur upp að Vera
geti komið til Íslands,“ segir Krist-
ín.
Átta flíkur í línunni
Í þessari fyrstu fatalínu hennar
eru átta flíkur. Um er að ræða kjól
og jakka í tveimur útfærslum. Þar
eru líka leggingsbuxur, kímónó,
toppur og tvær skyrtur.
„Ég stefni á að koma með ný föt í
línuna tvisvar á ári. Flíkur eins og
leggingsbuxurnar, kjóllinn og jakk-
inn koma aftur en síðan koma flíkur
í sérstökum efnum og sniðum sem
koma svo aldrei aftur. Þannig verð-
ur línan alltaf með eitthvað nýtt og
spennandi,“ segir hún.
Kristín var 17 ára þegar hún opn-
aði fyrstu snyrtistofuna og segir að
sér hafi alltaf fundist gaman að
vinna.
„Ég byrjaði ung að vinna, það
hefur alltaf verið mikill frum-
kvöðlakraftur í mér og ég var 16
ára þegar ég flutti til London að
læra förðun. Þegar ég var 17 ára
opnaði ég fyrstu snyrtistofuna á
Laugaveginum, kom beint heim frá
London og snyrtistofan NN var
opnuð. Frá Laugaveginum á Garða-
torg hefur ýmislegt skemmtilegt átt
sér stað. Ég kenndi lengi við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti, opnaði
Snyrtiakademíuna og seldi síðan.
Ég hef komið víða við í sjónvarpi,
framleiddi fyrsta VHS-förðunar-
myndbandið sem segir nú ýmislegt.
Einnig gaf ég út bókina mína, Förð-
un skref fyrir skref, árið 2013.
Árið 2015 opnaði ég MUD Studio
á Garðatorgi sem er alþjóðlegur
förðunarskóli, það gekk mjög vel en
þróaðist síðan í NoName Makeup
Studio þar sem ég var að kenna
með mínum eigin vörum. Verslunin
á Garðatorgi seldi NoName Cosme-
tics-vörur og ég var alltaf að
stækka vöruúrvalið. Ég ákvað síðan
að bæta við fötum og byrjaði að
kaupa inn lítið í einu, eftir það varð
ekki aftur snúið. Ég hafði reglulega
verið að setja inn förðunarmynd-
bönd en eftir að fötin komu, í kring-
um 2019, byrjaði ég að setja inn
fatamyndbönd. Þegar kórónuveiran
skall á fóru myndböndin að fá meiri
athygli og ég vann með markaðs-
stofu en í byrjun ársins 2021 réð ég
inn markaðsstjóra, hana Margréti
Guðjónsdóttur, sem er með meist-
aragráðu í vörumerkjastjórnun. Þá
fórum við að vinna meira og dýpra í
vörumerkinu NoName. Við end-
urbættum förðunarlínuna og núna
er línan fullkomin fyrir alla aldurs-
hópa. Ég passa alltaf að nota mottó-
ið mitt „less is more“ enda þarf
maður fáar en góðar vörur. Við er-
um alltaf að vinna að því að þróa
vörumerkið NoName og fatalínan
er búin að vera draumur í langan
tíma. Herferðin fyrir línuna sem
Margrét sá um byggist á því sem
NoName hefur gert áður fyrr. Það
muna kannski sumir eftir því en
fyrir 25-30 árum var ég alltaf með
NoName-andlit ársins. Í markaðs-
herferðinni fyrir Noname Design
fengum við alvöru konur, konur
sem versla hjá okkur, til að koma í
myndatöku og taka þátt í herferð-
inni. Þær eru allar stórglæsilegar
enda NoName-konur í hjartanu.
Myndirnar og öll myndböndin í
kringum herferðina eru alveg frá-
bær og sýna vel hvað NoName
stendur fyrir,“ segir Kristín.
Hæhæ stelpur
Svo hafið þið stelpurnar í No-
Name verið að slá í gegn á TikTok.
„Já, við höfum verið að slá í gegn
á TikTok. Í gegnum tíðina hefur
verið gaman hvernig „Hæ hæ stelp-
ur“ hefur oft verið klippt saman í
skemmtileg myndbönd. Það eru
nokkur ár síðan einhver gerði þetta
á Twitter. Um daginn var einn ynd-
islegur drengur á TikTok, hann Álf-
grímur, sem klippti saman nokkur
myndbönd og bjó til hljóðið sem all-
ir hafa verið að nota til að gera
þessi myndbönd.
Okkur finnst þetta alveg æðislegt
og ekkert smá gaman að sjá hópa
gera svona í veislum, útilegum og út
um allt. Meira að segja tóku lands-
liðið og Reykjavíkurdætur upp
svona myndband um daginn.
Þetta er náttúrlega alveg frábær
markaðssetning. Við erum að ná til
fólks sem er kannski ekki í okkar
markhópi en núna er mikill fjöldi af
ungu fólki að mæta til okkar og for-
vitnast. Þá fara þau að skoða vör-
urnar okkar og prufa aðeins, áður
en við vitum af þá erum við bara
komin með fastakúnna sem elska
kremin okkar,“ segir Kristín.
Byrjaði með snyrti-
stofu 17 ára og hristir
upp í fólki með
„Hæ hæ stelpur“
Förðunarmeistarinn Kristín Stefánsdóttir var ekki
nema 17 ára þegar hún stofnaði sína fyrstu snyrti-
stofu en svo kom snyrtivörumerkið NoName
Cosmetics á markað. Árlega var þess beðið með
eftirvæntingu hver yrði NoName-stúlkan það árið. Í
tæplega fjörutíu ár hefur hún kennt íslenskum kon-
um að snyrta sig og selt þeim framúrskarandi
vörur. Nú er hún komin með sína eigin fatalínu en
með fatalínunni rættist gamall draumur.
Draumurinn rættist Kristín Stefánsdóttir eigandi NoName er komin með sína eigin fatalínu.
Fyrir venjulegar konur Kristín hannaði línuna með það að markmiði að fötin pössuðu á venjulegar íslenskar konur.
Hér er hún ásamt Sigrúnu Pedersen, Gerði Guðmundsdóttur, Guðrúnu Skúladóttur og Svanhvíti Valgeirsdóttur.
HELLY HANSEN
Fremont vatnsheldir skór
Kr. 26.990.-
ASOLO
Falcon dömuskór
Kr. 29.990.-
ASOLO
Falcon dömuskór
Kr. 29.990.-
ASOLO
gönguskór
Kr. 37.990.-
SALEWA
Alp trainer
Kr. 39.990.-
ASOLO
Falcon herraskór
Kr. 29.990.-
HELLY HANSEN
Adore vetrarstígvél
Kr. 22.990.-
HELLY HANSEN
Cora vatnsheldir skór
Kr. 17.990.-
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
Þín útivist - þín ánægja
L A U G A V E G U R 9 1
ASOLO
Space GV
Kr. 22.990.-
SALEWA
Alpenrose 2 mid GTX
Kr. 31.990.-
HELLY HANSEN
Alma vetrarskór
Kr. 26.990.-