Morgunblaðið - 13.10.2022, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 13.10.2022, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2022 Góður fiskur á alltaf vel við og hér erum við með lax sem búið er að snöggsteikja á pönnu. Meðlætið er óvenjulegt og skemmtilegt. Sæt- kartöflur eru alltaf fyrirtaks með- læti og eplin gera ótrúlega mikið fyrir réttinn. Það er Linda Ben sem á heiðurinn af þessari uppskrift sem hún segir hafa haustlegt yfirbragð. Lax með sætkartöflumús 2 sætar kartöflur 800 g lax 50 g smjör 1 laukur 3 hvítlauksrif 1 cm engifer 1⁄3 tsk þurrkaðar chili-flögur salt og pipar ferskt timjan (líka hægt að nota þurrkað) 1 msk. hunang 75 g smjör grænkál 1 stk. epli Aðferð: Skerið sætu kartöflurnar í u.þ.b. þrjá bita svo þær passi betur í pottinn, setjið vatn í pottinn svo flæði yfir kartöflurnar, sjóðið þar til mjúkar í gegn. Ef þú ert með pönnu sem má fara inn í ofn skaltu kveikja á ofn- inum og stilla á 200°C, undir og yfir. Á meðan sætu kartöflurnar eru að sjóða, skerið þá laukinn smátt niður, steikið á pönnu upp úr smjöri, rífið hvítlauksgeirana og engiferið út á pönnuna. Skerið laxinn í fjóra bita, kryddið með salti og pipar. Færið laukinn til á pönnunni svo pláss myndist fyrir laxinn, setjið svolítið af lauknum of- an á laxinn, kryddið með chili, timj- an og setjið örlítið hunang yfir. Steikið laxinn á pönnunni í nokkrar mín. og setjið svo pönnuna inn í ofn þar til hann er bakaður í gegn. Ef þú ert með pönnu sem má ekki fara inn í ofn þá lækkarðu hitann undir pönnunni og setur lokið á hana þar til laxinn er eldaður í gegn. Taktu hýðið af sætu kartöflunum og settu þær í skál, gott að setja í hrærivélina, settu smjörið ofan í skálina og hrærðu allt saman þar til myndast hefur mús. Setjið sætkartöflumús á diskana og setjið svo laxinn yfir með krydd- aða lauknum. Skerið grænkálið og eplin niður, dreifið yfir laxinn. Ljósmynd/Linda Ben Lax með haust- legu yfirbragði Lúxusmatur Góður fiskur er eitt það besta og hollasta sem hægt er að gæða sér á. Eldhúsmotturnar frá Pappelina hafa notið mikilla vinsælda um heim allan en í ár fagnar klassíska Veru-hönnunin tuttugu ára afmæli. Í tilefni þess hann- aði Pappelina nýtt mynstur sem inn- blásið er af upprunalegu Verunni. Vera 2.0 er fyrsta plastmotta heims sem unnin er úr svokölluðu Biovyn en það er PVC sem unnið er úr náttúru- legri og kolefnishlutlausri furuolíu. Mottan er aðeins til í takmörkuðu upp- lagi en markmiðið er að innleiða og þróa hugmyndina enn frekar. Biovyn er fyrsti PVC-efniviðurinn sem unninn er úr náttúrulegri furu- olíu. Olían er hliðarafurð sem fellur til við pappírsframleiðslu í Svíþjóð en með þessari framleiðsluaðferð minnk- ar kolefnissporið um meira en 90% í samanburði við hefðbundið PVC. Stefna Pappelina hefur frá upphafi verið að innleiða endingargóða hönnun og framleiðslu. Þá skiptir það fyrir- tækið miklu máli að leggja sitt af mörkum til að draga úr sóun, að end- urnýta og endurvinna auðlindir heims- ins. Morgunblaðið/Pappelina Ný Vera kynnt til leiks Vinsælar Pappelina- motturnar njóta mikilla vinsælda en þær fást í versluninni Kokku. Tónlist fyrir sálina Matur fyrir líkamann Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Lifandi píanótónlist öll kvöld Opnunartími Mán.–Fös. 11:30–14:30 Öll kvöld 17:00–23:00 Borðapantanir á matarkjallarinn.is eða í síma 558 0000 Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is LÉTTU ÞÉR LÍFIÐ Fagfólk STOÐAR veitir nánari upplýsingar og ráðgjöf. Fjölbreytt úrval göngugrinda sem auka öryggi og tækifæri til hreyfingar og útivistar Verð frá 39.800,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.