Morgunblaðið - 13.10.2022, Síða 45
Viltu taka virkan þátt í að móta
framtíðina í húsnæðismálum?
• Vinna við stefnumótun og áætlanagerð á sviði
húsnæðismála
• Framkvæmd áætlana, innleiðing og eftirfylgni
• Ráðgjöf og upplýsingamiðlun til stjórnvalda
Sérfræðingur í húsnæðismálum – helstu verkefni:
• Samskipti við almenning og aðra hagaðila
• Þátttaka í vinnuhópum og nefndum á vegum
ráðuneytisins
• Virk þátttaka í teymisvinnu ámálefnasviði
ráðuneytisins
Innviðaráðuneytið auglýsir eftir öflugum liðsmanni í starf sérfræðings á skrifstofu húsnæðis- og
skipulagsmála. Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga og þekkingu á húsnæðismálum sem býr
yfir frumkvæði og metnaði til að taka virkan þátt í stefnumótun á þessu sviði. Í daglegu starfi er rík áhersla
lögð á samvinnu og þverfaglega nálgun.
Skrifstofan hefur umsjón með stefnumótun og framfylgd laga á sviði húsnæðis-, skipulags- og
mannvirkjamála. Framundan eru krefjandi verkefni við að samþætta málaflokka ráðuneytisins, móta
nýja húsnæðisstefnu og fylgja eftir aðgerðummeð það að meginmarkmiði að skapa stöðugleika
á húsnæðismarkaði fyrir íbúa landsins.
Innviðaráðuneytið er öflugt ráðuneyti sem tekst á við nýja tíma. Í ráðuneytinu fara samanmikilvægir mála-
flokkar, s.s. húsnæðismál, mannvirkjamál, skipulagsmál, sveitarstjórnarmál, byggðamál og samgöngumál.
Innviðaráðuneytið
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hólmfríður Bjarnadóttir,
skrifstofustjóri húsnæðis- og skipulagsmála,
holmfridur.bjarnadottir@irn.is eða í síma 545-8200.
Nánar um hæfnikröfur á vef Starfatorgs - starfatorg.is
Ráðuneytið hvetur alla hæfa umsækjendur til að sækja um, óháð kyni. Umsókn skal skila rafrænt
á starfatorg.is. Umsóknarfrestur er til og með 19. október nk. Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá,
þar sem fram koma upplýsingar um menntun og fyrri störf, ásamt kynningarbréfi með upplýsingum
um ástæðu umsóknar og árangur sem umsækjandi hefur náð og telur að nýtist í starfinu.
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
RÁÐNINGAR Starfsmenn eru lykill
að árangri allra fyrirtækja.