Morgunblaðið - 29.10.2022, Page 2

Morgunblaðið - 29.10.2022, Page 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2022 www.kofaroghus.is - Sími 553 1545 TIL Á LAGER Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik STAPI - 14,98 fm Tilboðsverð 779.000kr. 25% afsláttur BREKKA34 - 9 fm Tilboðsverð 489.000kr. 25% afsláttur NAUST - 14,44 fm Tilboðsverð 539.000kr. 30% afsláttur VANTAR ÞIGPLÁSS? Afar einfalt er að reisa húsin okkar. Uppsetning tekur aðeins einn dag TILBOÐÁGARÐHÚSUM! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Kristrún Frostadóttir er nýr formað- ur Samfylkingarinnar. Var hún ein í framboði og hlaut 94,59 prósent greiddra atkvæða. „Kjörið endur- speglar ánægju með nýkjörinn for- mann flokksins,“ segir í fréttatilkynn- ingu, en Kristrún tekur við af Loga Einarssyni sem hefur verið formaður frá 2016 og er því þaulsætnasti for- maður Samfylkingarinnar hingað til. Guðmundur Árni Stefánsson var kjörinn nýr varaformaður flokksins og var einnig sjálfkjörinn. Logi Einarsson, fráfarandi formað- ur, og sá þaulsætnasti sem fyrr segir, þakkaði fyrir sig með ræðu á lands- fundinum, leit yfir farinn veg og hvatti flokkssystkini sín til að styðja vel við bakið á nýrri forystu. „Ég var kallaður útfararstjóri flokksins á sínum tíma en enginn spá- ir flokknum dauða nú, heldur snýst gagnrýnin nú fremur um að við séum ekki enn stærri,“ sagði Logi. Sagði hann að nú, er hann hyrfi úr sæti sínu, liði honum svipað og við lok menntaskóla. „Fékk örugglega slaka einkunn í stöku áfanga og var stund- um kallaður inn á beinið en lærði samt heilmargt, sem hefur nýst mér í framhaldinu. En það sem stóð upp úr og kenndi mér kannski allra mest var félagsskapurinn, maður minn!“ sagði Logi. Hæðst að loftslagsmálum Hann kvaðst áfram myndu berjast af öllum kröftum fyrir hugsjónum jafnaðarstefnunnar auk þess sem hann kæmi til með að styðja nýja for- ystu með ráðum og dáð. Forysta flokksins þyrfti öflugt aðhald en einn- ig öflugan stuðning almennra flokks- manna sagði Logi og hvatti viðstadda til að fylkja sér að baki þeirra sem treyst yrði til að leiða flokkinn. Formaðurinn fráfarandi sagði ýmsa eiga það til að hæðast að flokk- um á borð við Samfylkinguna sem meðal annars hefði gert loftslags- og mannréttindamálum hátt undir höfði og kallað ímyndarstjórnmál. „Ekkert er fjær sanni. Þetta eru ekki jaðarmál eða afmarkaðir mála- flokkar, heldur verða að vera megin- þráðurinn í öllum hinum pólitíska vefnaði,“ sagði Logi. „Loftslagsmálin snúast um bráðavanda sem þarf að bregðast við með sameiginlegu átaki alls mannkyns, og verður að móta all- an hugsunarhátt til ókominnar fram- tíðar,“ hélt hann áfram. Mannréttindamálin væru hins veg- ar barátta sem alltaf hefði fylgt sam- félagi manna og lyki aldrei þótt hún tæki vissulega stöðugt á sig nýjar birtingarmyndir. „Við sem aðhyllumst jafnaðar- stefnu viljum að einstaklingar geti notið sín og hæfileika sinna í atvinnu- lífinu, í skapandi greinum, í íþróttum eða á öðrum sambærilegum vett- vangi. En við lítum ekki á ríkið, opin- berar stofnanir sem reknar eru fyrir almannafé og í almannaþágu, sem ógn við framtak einstaklinganna,“ sagði Logi. Af virðingu og vináttu Sameiningarafl Samfylkingarinnar væru hugsjónir. „Við höfum að sjálf- sögðu ólíkar hugmyndir um það hvernig best verði starfað í anda þeirra hugsjóna og við tökumst á um það. En við eigum alltaf að gera það af virðingu og vináttu. Og gleymum því ekki að við störfum í flokki sem hefur stefnu sem er stærri en hvert og eitt okkar, var til á undan okkur öllum og mun lifa okkur öll,“ sagði Logi. Verkafólk við hlið kennara Þetta hafi dregið hann að Samfylk- ingunni á sínum tíma, hugsjónirnar, en einnig jarðsambandið sem hug- sjónirnar hefðu hjá flokksmönnum. Þá ræddi hann fjölbreytnina í röðum félaga flokksins. „Hér starfar verkafólk við hlið kennara, heilbrigðisstarfsfólk við hlið verkfræðinga, sjómenn við hlið forrit- ara, ungt fólk við hlið roskinna, há- skólaborgarar, atvinnurekendur, listamenn, iðnaðarmenn og svona er hægt að telja endalaust upp, því að við endurspeglum íslenskt samfélag og erum þverskurður af íslensku samfélagi, og við eigum okkur djúpar rætur í þjóðlífinu,“ sagði formaðurinn fráfarandi. Þegar hann tók við formennsku hefði sjálfsmynd flokksins verið í molum, ágreiningur hefði tætt flokk- inn í sundur og fjárhagurinn verið mjög erfiður að loknum kosningum. En með sameiginlegu átaki hefði tek- ist að sætta sjónarmið, finna taktinn og rétta úr kútnum. Þakkaði Logi flokkssystkinum að lokum fyrir sinn tíma. Og nú segi ég: Takk kæru fé- lagar, takk fyrir mig.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Að leiðarlokum Logi Einarsson þakkaði fyrir sex ár við formennsku Samfylkingarinnar á landsfundinum í gær. Kristrún kjörin nýr formaður - Sjálfkjörin og hlaut umboð 94,59 prósenta flokksmanna - Guðmundur Árni sjálf- kjörinn varaformaður - Logi Einarsson þakkaði sína formennsku með virktum Nýr formaður Kristrún tekur við formennsku Samfylkingarinnar. Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Þarna kemur skýrt fram að það hafi verkað til refsiþyngingar að mann- drápið hafi verið skipulagt, ofsafeng- ið og framið af einbeittum ásetn- ingi,“ segir Margrét Valdimars- dóttir, dósent í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri, um nýfallna dóma Landsréttar í Rauðagerðis- málinu, þrjá 14 ára fangelsisdóma og einn til 20 ára. Segir Margrét almennu regluna á Íslandi síðustu ár hafa verið 16 ára dóma fyrir manndráp. Í þeim málum hafi sjaldnast fylgt ásetningur um að ráða fórnarlambið af dögum, al- mennt hafi þar alvarleg líkams- árásarmál endað með dauða. Þyngri dómur kom ekki á óvart Manndrápið í Rauðagerðismálinu sé í eðli sínu ólíkt dæmigerðum ís- lenskum manndrápsmálum. Þar leggi fjórar manneskjur á ráðin um að fremja ódæði og slík skipulagning og samverknaður horfi til refsiþyng- ingar. „[Þ]ess vegna kom mér það ekki á óvart að dómurinn [yfir Ster- kaj] hefði verið þyngdur,“ segir Mar- grét og kveður skilaboð dómskerf- isins ekki til að misskilja. „Þessi dómur sem féll í dag er að senda þau skilaboð út í samfélagið að við líðum ekki svona – skipulagða brotastarfsemi sem er að enda í manndrápsmálum, og við ætlum að taka það mjög alvarlega,“ segir hún. Aðspurð kveður Margrét dóma af þessu tagi líkast til hafa varnaðar- áhrif út í samfélagið. „Það er erfitt að segja til um það, en ef þungir dómar hafa varnaðaráhrif í einhverj- um brotaflokkum, og þegar við horf- um á manndráp sérstaklega, þá er það einmitt í manndrápum af þessu tagi, þar sem ásetningur er mjög skýr og einbeittur, sem þungir dóm- ar geta haft varnaðaráhrif,“ segir Margrét. Skilaboð dómsins skýr - „Líðum ekki svona og ætlum að taka það alvarlega“ Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Afbrotafræðingurinn Margrét tel- ur varnaðaráhrif dómsins sterk. Embætti héraðs- saksóknara hefur ákært fjóra menn í stóru kókaín- máli sem fyrst var greint frá í ágúst. Flytja átti tæplega 100 kíló af kókaíni til landsins. Efnin voru falin í gámi með timbursend- ingu frá Brasilíu sem hafði viðkomu í Hollandi á leiðinni til Íslands. Anna Barbara Andradóttir, sak- sóknari hjá embætti héraðssaksókn- ara, staðfesti við mbl.is að ákæra hefði verið gefin út gagnvart mönn- unum fjórum, en RÚV greindi fyrst frá ákærunum. Efnin fundust við leit hollenskra löggæsluyfirvalda og var gervi- efnum komið fyrir í staðinn. Sam- kvæmt tilkynningu lögreglunnar í ágúst byggðist leitin á upplýsingum frá íslenskum löggæsluyfirvöldum og frumkvæðisrannsóknum á skipu- lagðri brotastarfsemi. Einn maður var handtekinn eftir að hann hafði sótt gám með sending- unni og þrír aðrir í kjölfarið. Þeir voru síðan úrskurðaðir í gæslu- varðhald. Héraðssaksóknari ætlaði að óska eftir framlengingu varð- haldsins í gær. Fjórir ákærðir í kókaínmáli - Ætluðu að smygla 100 kg af kókaíni Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir að ekki hafi verið staðið nægilega vel við bakið á þeim fréttamönnum og öðrum starfs- mönnum sem lentu í hremm- ingum fyrir að hafa verið að sinna vinnunni sinni, þegar kom að fréttaflutningi um útgerðarfyrir- tækið Samherja. Þetta segir hann í viðtali á heimasíðu Blaðamanna- félags Íslands um nýjar siðareglur Ríkisútvarpsins. Reglurnar tóku gildi í júní og um leið ný stefna RÚV til ársins 2026. Í nýjum reglum er siðanefnd lögð niður auk þess sem ákvæði um tjáningu starfsmanna RÚV á samfélags- miðlum var fjarlægt. Siðanefnd RÚV lögð niður í nýjum reglum Stefán Eiríksson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.